Morgunblaðið - 27.01.2001, Qupperneq 15
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 15
VERKSTJÓRN
Námskeið ætlað öllum verkstjórnendum,
bæði nýjum og þeim sem vilja bæta námi
við reynslu.
Verkstjórnarfræðslan á Iðntæknistofnun býr
yfir meira en þriggja áratuga reynslu við
fræðslu verkstjórnenda.
Námsþættirnir eru alls yfir 20. Meðal þeirra eru:
- Almenn samskipti - Hvatning og starfsánægja
- Samningatækni - Valdframsal
- Áætlanagerð - Stjórnun breytinga
Námskeiðið er samtals 90 stundir og skiptist í tvo hluta.
Þrjú námskeið verða á vorönn og hefjast
5. febrúar, 5. mars og 3. apríl.
Innritun stendur yfir í síma 570 7100 og
á vefsíðu Iðntæknistofnunar www.iti.is.
Keldnaholti, 112 Reykjavík
AAlfa-námskeið verður haldiðí Glerárkirkju
* Alfanámskeið hafa verið haldin á Íslandi í
nokkur ár og hefur þátttaka aukist á hverju ári.
* Alfa er ódýrt, skemmtilegt og
uppbyggjandi námskeið um
grundvallaratriði kristinnar trúar.
* Kynningarfundur um námskeiðið
verður í Glerárkirkju nk.
miðvikudag, 31. janúar kl. 20:00.
Þar verður sagt frá innihaldi og
tillögum þess.
Námskeiðið mun standa yfir í
tíu vikur, eitt kvöld í viku.
Ath.: Einnig verður sagt frá
námskeiðinu í stuttu spjalli í
safnaðarsal kirkjunnar eftir
messu nk. sunnudag.
Kynntu þér alfa
námskeið á vefnum www.alfa.is
veg, S: 588-8899
1620
564-2355
869 6215
delfía, S: 552-1111
S: 567-8800
3987
1-4337
431 1745
rkjunnar
skei› hefjast í janúar
rtöldum stö›um:
AKUREYRARKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11 á morgun,
sunnudag, sr. Guðmundur
Guðmundsson. Sunnudaga-
skóli einnig kl. 11, fyrst í
kirkju og síðan í safnaðarheim-
ili. Fundur í Æskulýðsfélaginu
kl. 17 sama dag. Biblíulestur
kl. 20.30 á mánudagskvöld. Tíu
boðorð, ágirnd og nægjusemi.
Sr. Guðmundur Guðmundsson
hefur umsjón með stundinni.
Morgunsögur kl. 9 á þriðju-
dagsmorgun. Mömmumorgun
frá kl. 10 til 12 á miðvikudags-
morgun. Opið hús, kaffi og
spjall. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund kl. 12 á fimmtudag.
Bænaefnum má koma til
prestanna. Léttur hádegis-
verður á vægu verði í safn-
aðarheimili á eftir.
GLERÁRKIRKJA: Barnasam-
vera og messa kl. 11 á morgun,
sunnudag. Foreldrar eru
hvattir til að koma með börn-
um sínum. Kynning verður á
Alfa-námskeiði í safnaðarsal
að lokinni messu, en boðið
verður upp á slíkt námskeið í
kirkjunni á næstunni. Kyrrð-
ar- og tilbeiðslustund í kirkj-
unni kl. 18 á þriðjudag. Hádeg-
issamvera frá kl. 12 til 13 á
miðvikudag, helgistund, fyrir-
bænir og sakramenti. Léttur
hádegisverður í safnaðarsal á
vægu verði á eftir. Opið hús
fyrir mæður og börn kl. 10 til
12 á fimmtudag. Æfing barna-
kórs Glerárkirkju verður kl.
17.30 þann dag og eru nýir
félagar velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
Sunnudagaskóli kl. 11 á morg-
un. Bænastund verður kl.
19.30 á sunnudagskvöld. Al-
menn samkoma kl. 20. Heim-
ilasamband kl. 15 á mánudag.
Flóamarkaður er alla föstu-
daga frá kl. 10 til 18 í húsa-
kynnum Hjálpræðishersins á
Hvannavöllum 10.
HRÍSEYJARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli verður í Hríseyjar-
kirkju kl. 11 á morgun, sunnu-
dag. Guðsþjónusta kl. 14 sama
dag. Ninja Rut Þorgeirsdóttir
spilar á fiðlu í athöfninni.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Messa í dag, laugardag, kl. 18
og á morgun, sunnudag, kl. 11
í Péturskirkju, Hrafnagils-
stræti 2.
KFUM og K: Almenn sam-
koma í kvöld, laugardag, kl.
20.30. Ræðumaður verður
Skúli Svavarsson kristniboði.
SJÓNARHÆÐ: Sunnudaga-
skóli verður í Lundarskóla á
morgun, sunnudag kl. 13.30.
Almenn samkoma á Sjónar-
hæð, Hafnarstræti 63 kl. 17.
Fundur fyrir 6-12 ára börn á
Sjónarhæð kl. 17.30 á mánu-
dag.
Kirkjustarf
NÝHERJI og Íslandsnet efna
til opins morgunfundar um net-
verslun í nútíð og framtíð en
hann verður á Hótel KEA
næstkomandi þriðjudag, 30.
janúar 8.30.
Tilgangur fundarins er að
varpa ljósi á hlutverk Netsins
og annarra fjarskiptamiðla í
neytendaverslun samtímans.
Áherslan verður tvíþætt, ann-
ars vegar verður fjallað um
hlutverk og möguleika Netsins
á öllum stigum verslunar, allt
frá markaðssetningu til af-
hendingar vöru og hins vegar á
þær tæknilausnir sem í boði
eru og hvernig þær geta auð-
veldað samskipti verslunar-
manna jafnt við viðskiptavini
sem birgja eða aðra.
Þeir sem flytja erindi eru
Sveinn Eydal verslunarstjóri
Verslun.strik.is, Ásgeir Frið-
geirsson framkvæmdastjóri Ís-
landsnets og Jökull M. Stein-
arsson yfirmaður veflausna hjá
Nýherja.
Nýherji og
Íslandsnet
Net-
verslun í
nútíð og
framtíð
NÁNAST ekkert hefur þurft að
sinna snjómokstri á Akureyri það
sem af er þessu ári og segir Guð-
mundur Guðlaugsson, deildarstjóri
framkvæmdadeildar, þennan jan-
úarmánuð hafa verið einstaklega
þægilegan.
Guðmundur sagði að aðeins hefði
þurft að hreinsa götur í tvö til þrjú
skipti á fyrstu dögum ársins en síð-
asta hálfa mánuðinn hefði allt verið
marautt og hiti yfir frostmarki.
Hann sagði að eitthvað hefði verið
um hálkueyðingu þar sem ísing
hefði verið á götum fyrst á morgn-
ana en þau tæki sem notuð eru í því
verkefni séu mun ódýrari en þau
sem sinna snjómokstri.
Guðmundur sagði þessa stöðu
vissulega ánægjulega og koma bæj-
arsjóði vel. Ekki væri óalgengt í
snjóþungum mánuðum að eyða um
10 milljónum króna í snjómokstur.
„Það er enginn vandi að fara upp
í slíka upphæð þegar mikill snjór
er. Þetta snjóleysi er því besta mál
hvað það varðar,“ sagði Guðmund-
ur.
Hann sagði ekki mikinn mann-
skap að störfum um þessar mundir
á vegum deildarinnar og því væri
ekki verið að sinna miklum fram-
kvæmdum. „Við erum þó að vinna
við fráveituframkvæmdir niður við
Útgerðarfélag Akureyringa og
Strýtu en það er verkefni sem ann-
ars hefði verið unnið að í vor. Þessi
góða tíð gerir að verkum að við get-
um unnið þetta núna,“ sagði Guð-
mundur.
Nánast enginn
snjómokstur
í janúar
HELDUR vetrarlegra var um að
litast á Akureyri í gær enda jörð
orðin hvít á ný eftir einmuna veð-
urblíðu undanfarna daga. Ekki er
þó hægt að kvarta yfir veðrinu
þrátt fyrir einhverja ofankomu og
um helgina verða áfram norð-
lægar áttir og éljagangur.
Vetur konungur hefur farið
frekað mjúkum höndum um Ak-
ureyringa sem og aðra Norðlend-
inga en margir eru þó með var-
ann á og eru þess vissir að
eitthvað eigi eftir að ganga á fyr-
ir vorið. Þrátt fyrir snjóléttan
vetur til þessa hefur verið nægur
snjór í Hlíðarfjalli og gott skíða-
færi.
Morgunblaðið/Kristján
Jörð var á hvít á ný norðan heiða í gær eftir einmuna veðurblíðu síðustu daga.
Jörð orðin hvít á ný