Morgunblaðið - 27.01.2001, Side 18
VIÐSKIPTI
18 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Á
ÆTLAÐ umfang fram-
kvæmda hins opinbera
á vegum Framkvæmda-
sýslu ríkisins verður um
3,5 milljarðar króna,
samanborið við 4,7 milljarða á síð-
asta ári, að sögn Jóhönnu Hansen,
staðgengils forstjóra Framkvæmda-
sýslunnar. Þetta kom fram í máli
hennar á Útboðsþingi Samtaka iðn-
aðarins og Félags vinnuvélaeigenda
sem haldið var í gær. Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir borgarstjóri sagði á
þinginu að samkvæmt framkvæmda-
yfirliti Reykjavíkurborgar væri
áætlað að framkvæmdir borgarinnar
muni aukast úr rúmum 8,8 milljörð-
um á árinu 2000 í rúma 12,3 milljarða
á þessu ári. Þá kom fram í máli Agn-
ars Olsen, framkvæmdastjóra verk-
fræði- og framkvæmdasviðs Lands-
virkjunar, að ef fyrirhuguð stækkun
Norðuráls og ef framkvæmdir Reyð-
aráls verða að veruleika megi gera
ráð fyrir útboðum Landsvirkjunar
vegna framkvæmda þessu tengdu
fyrir um 20 milljarða króna svo
snemma sem strax í haust.
Barnaspítalinn umfangsmestur
Jóhanna Hansen greindi frá helstu
framkvæmdum hins opinbera á
árinu sem Framkvæmdasýslan mun
annast. Hún nefndi innanhússfrá-
gang og búnað vegna Barnaspítala
Hringsins, en gert væri ráð fyrir út-
boði vegna þess verks í apríl og júní.
Umfang þessarar framkvæmdar
væri um 720 milljónir króna og verk-
tíminn 12–14 mánuðir. Þessi fram-
kvæmd er sú umfangsmesta af þeim
sem Jóhanna nefndi. Þá sagði hún að
fyrirhugað væri útboð vegna endur-
bóta innanhúss í Þjóðminjasafninu í
mars, uppsteypu þjónustuskála Al-
þingis í febrúar og snjóflóðavörnum í
Neskaupstað og á Bolungarvík næst-
komandi vor. Hún nefndi einnig ýmis
önnur útboð sem gert væri ráð fyrir
á árinu, sem flest væru minni í snið-
um en þau fyrrnefndu.
Aukning milli ára mest
vegna Orkuveitunnar
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri rakti helstu framkvæmdir
Reykjavíkurborgar á árinu. Hún
sagði að meginástæðan fyrir mikilli
aukningu kostnaðar vegna fram-
kvæmda á milli áranna 2000 og 2001
væri vegna aukinna framkvæmda
Orkuveitunnar og nýs húsnæðis
stofnunarinnar svo og vegna aukinna
verkefna Gatnamálastjóra. Í máli
hennar kom fram að gert væri ráð
fyrir þjóðvegaframkvæmdum í
Reykjavík fyrir 1.385 milljónir króna
samkvæmt vegaáætlun en þar til
viðbótar sé áætlað að þátttaka borg-
arinnar muni nema 250 milljónum.
Að sögn Ingibjargar Sólrúnar er
gert ráð fyrir framkvæmdum til ný-
byggingar gatna og holræsa fyrir
tæplega 3,6 milljarða króna á árinu,
samanborið við tæpa 2,4 milljarða á
síðasta ári. Hún sagði að því verkefni
að hreinsa alla strandlengju borgar-
innar verði lokið á árinu 2003 þegar
áætluðum framkvæmdum við dælu-
stöð við Gufunes lýkur.
Í máli hennar kom fram að gert
væri ráð fyrir lóðum fyrir samtals
554 nýjar íbúðir á árinu, sem hugs-
anlegt væri að fjölga um 120 ef þörf
krefji. Framkvæmdir við skólabygg-
ingar séu áætlaðar fyrir tæplega 1,5
milljarð króna og framkvæmdir við
leikskóla fyrir um 300 milljónir. Ingi-
björg Sólrún greindi frá því að á
þessu og næsta ári verði meiri
áhersla lögð á framkvæmdir við
íþróttamannvirki en áður.
Gísli Viggósson, forstöðumaður
hafnarsviðs Siglingastofnunar,
greindi á Útboðsþinginu frá helstu
framkvæmdum á vegum stofnunar-
innar á árinu. Hann sagði að framlag
ríkisins væri 1.350 milljónir, þar af
séu 1.160 milljónir til nýfram-
kvæmda en tæpar 200 milljónir til
uppgjörs eldri framkvæmda. Hann
sagði að flestar nýjar bryggjur væru
stálþilsbryggjur. Stofnunin fái stál-
þil frá útlöndum í maí og fljótlega eft-
ir það verði hægt að bjóða slíkar
framkvæmdir út.
Hugmyndir um útboð
Landsvirkjunar í haust
Í máli Agnars Olsen kom fram að
hugmyndir Landsvirkjunar væru að
stefna að því að bjóða út fyrstu
áfanga fyrirhugaðra framkvæmda
vegna nýrrar stóriðju eigi síðar en
næsta haust, þ.e. ef af framkvæmd-
um verður. Þær framkvæmdir sem
þá um ræðir vegna fyrirhugaðs ál-
vers í Reyðarfirði væru í fyrsta
áfanga framkvæmdir vegna Kára-
hnjúkavirkjunar og Fljótsdalslínu.
Áætluð verklok í báðum tilvikum
væru á árinu 2006. Í öðrum áfanga
væri stækkun Kárahnjúkavirkjunar,
Fljótsdalsveita, stækkun Kröflu-
virkjunar, Bjarnarflagsvirkjun og
Kröflulína, en áætluð verklok þess-
ara framkvæmda væru árið 2009.
Vegna hugsanlegrar stækkunar
Norðuráls um 90 þúsund tonn væru
framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun,
Norðlingaölduveitu, Búðarhálslínu
og Sultartangalínu og áætluð verk-
lok á árinu 2004. Framkvæmdir
vegna hugsanlegrar 60 þúsund tonna
stækkunar til viðbótar væru annars
vegar Núpsvirkjun og hins vegar
tenging við Búrfellslínu. Áætluð
verklok þessara framkvæmda væru
2007.
Útboð Vegagerðarinnar vegna
jarðganga vonandi síðar á árinu
Rögnvaldur Gunnarsson, for-
stöðumaður framkvæmdadeildar
Vegagerðar ríkisins, greindi á Út-
boðsþinginu frá fyrirhuguðum fram-
kvæmdum Vegagerðarinnar á árinu.
Hann sagði að í vegaáætlun fyrir árið
2001 væri gert ráð fyrir 12 milljörð-
um króna.
Greint hafi hins vegar verið frá því
að 800 milljónir króna verði væntan-
lega teknar af þeirri fjárhæð. Hann
sagði að stærstur hluti þess fjár-
magns sem ákveðið væri á vegaáætl-
un færi til nýrra þjóðvega, eða lið-
lega 5,6 milljarðar. Þar næst kæmi
viðhald þjóðvega fyrir um 2,0 millj-
arða.
Útboðsþing 2001 á vegum Samtaka iðnaðarins og Félags vinnuvélaeigenda
Hugsanlegt 20 millj-
arða króna útboð
Morgunblaðið/Þorkell
Hluti fundargesta á Útboðsþingi 2001.
ÞJÓÐVERJINN Kim Schmitz, 27
ára fyrrverandi hakkari en nú
áhættufjárfestir, sagði í viðtali við
The Guardian í fyrradag að hann
hygðist leggja fram megnið af
þeim 2,5 milljónum punda, tæpar
300 milljónir íslenskra króna, sem
þarf til að forða breska netsölufyr-
irtækinu letsbuyit.com frá gjald-
þroti. Fyrirtækið, sem er skráð í
Hollandi, bað um greiðslustöðvun í
lok desember en hefur enn ekki
glatað trú á að hægt verði að reisa
fyrirtækið við. Fjármálarýnar hafa
þó látið í ljós miklar efasemdir um
að hægt verði að snúa kúrvunni
upp á við aftur, ekki síst því stjórn
fyrirtæksins hafi verið „hörmu-
leg“, að því er sagði í skýrslu um
fyrirtækið og rekstur þess.
Úr hakki í fjárfestingar
Man einhver eftir doktor Rich-
ard Kimble, flóttamanninum í
þekktum bandarískum sjónvarps-
þáttum með sama nafni? Á hakk-
aratíma sínum kallaði Schmitz sig
Kimble í höfuðið á honum og sem
slíkur tókst honum að komast í
gegnum fjöldamörg tölvukerfi.
Hann braust inn í tölvukerfi síma-
félaga eins og hins bandaríska
AT&T og jafnvel inn í Pentagon en
frægastur varð hann fyrir að fara
um Netið inn í viðskiptabanka
Helmut Kohls, þáverandi Þýska-
landskanslara, og breyta lánshæfi
hans í 0. Það kostaði hann reyndar
fjögurra ára fangelsi en hann sat
ekki inni nema í nokkra mánuði.
Nú er hann búinn að leggja slík
strákapör á hilluna. Fyrstu skrefin
á viðskiptabrautinni tók hann með
því að gera öryggiskerfi fyrir
banka og nú á hann 80% hlut í
Dataprotect sem hefur sérhæft sig
á þessu sviði. Nú fullyrðir hann að
hann hafi hannað greiðslukerfi fyr-
ir Netið, sem ekki sé hægt að
hakka og bætir við að geti hann
ekki hakkað það geti enginn það.
Úr þessu hefur auður hans sprott-
ið og með honum hefur hann snúið
sér að áhættufjárfestingum. Nú
virðist letsbuyit.com freista hans.
Áhugi fjárfesta
– stjórn í molum
Ástæðan fyrir því að Schmitz
hefur fengið áhuga á netsölufyr-
irtækinu er að stofnandi letsbuy-
it.com, John Palmer, er vinur
hans. Schmitz er einnig sann-
færður um að þegar tölur yfir jóla-
söluna verði birtar muni menn sjá
hve mikla möguleika fyrirtækið
eigi.
Þær 2,5 milljónir punda, sem
Schmitz hyggst leggja í fyrirtækið,
er þó aðeins bráðalækning. Banka-
menn segja að fyrirtækið þurfi tí-
falda þá upphæð og kannski tutt-
ugufalda til þess að eiga möguleika
á að skila hagnaði. Bara á næstu
vikum þarf fyrirtækið að öllum lík-
indum um 17 milljónir punda til að
geta klórað í bakkann. Schmitz
fullyrðir að ótrúlegur fjöldi fjár-
festa sýni nú fyrirtækinu áhuga.
Ýmsir efast þó um að yfirleitt sé
hægt að bjarga fyrirtækinu og að
núverandi stjórn þess sé tæplega
til þess fallin. Í skýrslu um fyr-
irtækið er fullyrt að yfirmenn
fyrirtækisins virðist ekki hafa
snefil af skilningi á fjárhagslegum
skuldbindingum fyrirtækisins.
Hlutabréf fyrirtækisins tóku í
fyrradag 200 prósenta kipp upp á
við og endaði í 0,72 evrum. Gengið
var hæst í júlí á síðasta ári 5,5 evr-
ur.
Fyrrverandi hakk-
ari reynir að bjarga
Letsbuyit.com
London. Morgunblaðið.