Morgunblaðið - 27.01.2001, Side 20
ERLENT
20 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FLUGVÉL með 24 innan-
borðs, þar af 20 evrópska og
bandaríska ferðamenn, fórst á
fimmtudagskvöld í fátækra-
hverfi nærri borginni Ciudad
Bolivar í Suður-Venesúela.
Allir fórust sem í vélinni voru,
en hún var gömul, af gerðinni
McDonnell-Douglas DC-3.
Þrír slösuðust á jörðu niðri.
Flugvélin, sem var í eigu Rut-
aca-flugfélagsins, hrapaði
skömmu eftir flugtak frá Ciud-
ad Bolivar, þar sem hún hafði
millilent til að taka eldsneyti á
leiðinni frá Canaima-þjóðgarð-
inum, þar sem ferðamennirnir
höfðu verið að skoða Engla-
fossa, hæstu fossa heims.
Ferðinni var heitið til Karíba-
hafseyjarinnar Margarita.
Ástæður hrapsins voru óljós-
ar, en rannsókn stendur yfir.
Þýzkar
umbætur
samþykktar
NEÐRI deild
þýzka þings-
ins samþykkti
í gær um-
fangsmikinn
lagapakka um
víðtækar
umbætur á
þýzka lífeyr-
iskerfinu. Þær miða að því að
forða þroti kerfisins eftir því
sem meðalaldur Þjóðverja
hækkar og hlutfall vinnandi
fólks af heildaríbúafjöldanum
fer lækkandi. „Þetta eru
mestu félagslegu umbætur
sem ráðizt hefur verið í frá
stofnun lýðveldisins eftir
stríð,“ fullyrti Walter Riester,
atvinnumálaráðherra þýzku
stjórnarinnar. Stjórnarand-
stöðuþingmenn Kristilegra
demókrata (CDU) greiddu at-
kvæði gegn tillögunum, sem
hafa verið lengi í undirbúningi.
Stjórnin hefur þó þegar tryggt
sér að þeir hlutar lagapakkans
sem efri deild þingsins, Sam-
bandsráðið, þarf að sam-
þykkja, verði ekki felldir þar
þrátt fyrir að stjórnarflokk-
arnir, jafnaðarmenn (SPD) og
græningjar, hafi þar ekki
meirihluta. Hagfræðingar
gagnrýna áformin fyrir að
ganga ekki nógu langt; þörf
verði á að breyta kerfinu aftur
eftir fáein ár.
Kabila yngri
orðinn
forseti
JOSEPH Kabila undirhers-
höfðingi sór í gær embættiseið
sem arftaki föður síns, Laur-
ent Kabila, sem forseti Lýð-
veldisins Kongó. Kabila yngri
er 29 ára gamall, reyndur her-
maður en óreyndur á sviði
stjórnmála. Hans bíður nú það
vandasama verkefni að sam-
eina land sem er á stærð við
alla Vestur-Evrópu, þar sem
stríð hefur staðið yfir með
litlum hléum í nokkur ár og
ekki sér fyrir endann á. Upp-
reisnarmenn sem njóta stuðn-
ings a.m.k. tveggja grannríkja
hafa á valdi sínu hátt í helming
landsins, sem er mjög ríkt að
náttúruauðlindum, svo sem
gimsteinum og gulli.
STUTT
Flugslys
í Venes-
úela
Walter
Riester
GRÍÐARLEGA öflugur jarðskjálfti
reið yfir Indland laust fyrir níu í gær-
morgun að staðartíma, um óttubil að
íslenskum tíma. Skjálftans varð vart
um allt Indland, í Pakistan og í Nep-
al. Jarðskjálftinn, sem er sá öflugasti
á Indlandi í 50 ár, mældist að sögn
indverskra jarðskjálftafræðinga 6,9
á Richter-kvarða en 7,9 að sögn er-
lendra starfsbræðra þeirra.
Ekki er ljóst hve margir létust í
skjálftanum en ljóst er að þeir skipta
hundruðum í það minnsta. Mikið tjón
varð af völdum skjálftans og mörg
hundruð byggingar hrundu til
grunna.
Skjálftinn átti upptök sín 20 km
norðaustur af bænum Bhuj, í strjál-
býlu fenjasvæði sem ber heitið Rann
of Kutch og liggur við landamæri
Pakistan. Bhuj, sem er 150.000 þús-
und manna borg, varð mjög illa úti.
150 manns létust þegar bygging ein
hrundi til grunna en tíundi hluti
bygginga í bænum gjöreyðilagðist í
skjálftanum. Að sögn talsmanns rík-
isstjórnarinnar eru nær allar hinar
skemmdar.
Hrikalegt um að lítast
Einnig var hrikalegt um að lítast í
stærstu borg Gujarat-ríkis, Ahmed-
abad. Þar hrundu mörg hundruð hús
til grunna. Innanríkisráðherra Ind-
lands, L.K. Advani, sagði blaða-
mönnum í gær að allt að 1.000 manns
gætu verið látnir. Þegar hafði verið
staðfest að á þriðja hundrað manns
létust í gær en talið var að mörg
hundruð manns væru fastir í húsa-
rústum.
Advani sendi hersveitir á vettvang
til að hjálpa til við björgunarstörf og
voru mörg þúsund manns við þau í
gær. Flóðlýst var á svæðum þar sem
unnið var í gærkvöldi til að gera
björgunarfólki auðveldar fyrir. Um
sjö stiga hiti var á Indlandi í gær-
kvöldi og kom herinn sér fyrir á sér-
stökum stöðum og dreifði teppum og
veitti særðum fyrstu hjálp.
Æðsti embættismaður borgarinn-
ar, K. Srinivas, sagði AFP-fréttastof-
unni að 500 hús að minnsta kosti
hefðu hrunið til grunna í borginni.
„Tvö stærstu sjúkrahús borgarinnar
eru yfirfull af fórnarlömbum skjálft-
ans, lífs og liðnum. Skjálftinn var
mjög harður og hann kom fyrirvara-
laust.“
Gujarat er eitt auðugasta ríki á
Indlandi og þar er stærsta olíu-
hreinsistöð landsins, hún skemmdist
ekkert í skjálftanum. Þrátt fyrir að
Gujarat sé jarðskjálftasvæði þá eru
hús þar sjaldnast nægilega byggð til
að þola meiriháttar skjálfta líkt og
þennan.
Neyðarfundur ríkisstjórnar
Indverjar héldu upp á þjóðhátíð-
ardaginn í gær og voru þúsundir
manna samankomnar í miðborg
Nýju-Delhi, höfuðborgar Indlands,
til að fara í hátíðaskrúðgöngu. Þar
voru staddir helstu frammámenn í
stjórnmálum, leiðtogar hersins og
erlendir gestir. Rétt áður en skrúð-
gangan átti að hefjast reið skjálftinn
yfir en hans varð greinilega vart þar í
borg, háhýsi sveigðust til og myndir
titruðu á veggjum. Sömu sögu var að
segja í Bombay, mörg hundruð kíló-
metrum frá upptökum skjálftans.
Forsætisráðherra Indlands, Atal
Behari Vajpayee, boðaði ríkisstjórn-
ina á neyðarfund, strax að skrúð-
göngunni lokinni. „Ég er harmi sleg-
inn yfir fregnum af áhrifum
skjálftans,“ sagði hann í yfirlýsingu
að fundi loknum.
Jarðskjálftans varð greinilega vart
í Pakistan. Hús hrundu til grunna í
borginni Hyderabad og að minnsta
kosti tveir létust. Í bænum Badin, 80
km suður af Hyderabad, var sömu
sögu að segja. Yfirmaður lögreglunn-
ar í Hyderabad, Saud Mirza, sagði í
gær að björgunarstörfum hefði verið
lokið á innan við tveimur klukku-
stundum og taldi hann engan vera
lokaðan inni í rústum húsa. Tugir
manna hlupu felmtri slegnir út á götu
í Khatmandu, höfuðborg Nepal, þeg-
ar skjálftans varð vart þar. Ekki
fréttist um neitt tjón þar.
Nær 181 ár er liðið síðan jafnöflug-
ur jarðskjálfti reið yfir Gujarat. Árið
1819 létust um 1.500–2.000 manns í
jarðskjálfta á þessum slóðum. Síðasti
harði jarðskjálftinn á Indlandi átti
sér stað í ágúst 1999 í Uttar Pradesh-
ríki. Þá létust 100 manns og 300
særðust í skjálftanum, í Himalaya-
fjallgarðinum. Árið 1993 létust um
10.000 manns í jarðskjálfta á Ind-
landi.
Öflugur jarðskjálfti reið yfir Indland á þjóðhátíðardeginum
„Sjúkrahús full af
fórnarlömbum skjálft-
ans, lífs og liðnum“
AP
Lögreglumaður og sjálfboðaliðar hlaupa með lík fórnarlambs skjálftans á sjúkrahús í Ahmedabad.
Nýju-Delhi, Ahmedabad. AFP, AP, Reuters.
!"!" # ! !! $
%! $ & ' ( " )
%
! "#
$% & ' ( )'* $ '
+,- %$
&(-&-
"
.
/
0
Reuters
Pakistanskur drengur ber í burtu það sem hann fann nýtilegt í rústum heimilis síns í Hyderabad.