Morgunblaðið - 27.01.2001, Side 25

Morgunblaðið - 27.01.2001, Side 25
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 25 INN á borð mitt rataði seint á síð- astliðnu ári nýútkomin bók um fær- eyska myndlist, er tekið hefur sam- an Bárður Jákupsson forstöðumaður Listasafns Færeyja í Þórshöfn (f. 1943). Hef ekki haft tækifæri til að sinna ritinu fyrr, einnig vafasamt að erlendum listaverkabókum sé greiði gerður að fjalla um þær í jólavertíð- inni, allir fjölmiðlar uppteknir af um- ræðu og rýni á innlendar bækur. Þá eru listaverkabækur ætlaðar til eignar og uppflettingar til langs tíma, sem heimild um list einstak- linga, listhópa, landa og landsvæða, en ekki skemmtilesturs í skamm- deginu. Var að nokkru með ráðum gert að geyma sér bókina ásamt fleiri skyldum fram í afturkippinn og lognið í janúar, trúlega sýnu væn- legra að vekja þá athygli á þeim. Höfundur bókarinnar, Bárður Jákupsson, er starfandi málari, sem hefur verið sjálfskrifaður forstöðu- maður listasafnsins frá upphafi. Hann mun hafa verið ráðinn að því 1989, en það komst í gagnið í sér- hannaðri byggingu 1993. Jákupson nam við Akademíuna í Kaupmanna- höfn og hafði Mogens Andersen sem prófessor, var kennari við lýðháskól- ann í Færeyjum í sautján ár, frá árinu 1975 ritstýrði hann jafnframt tímaritinu Möndli, sem Þjóðminja- safnið gaf út fram til 1991 og skrifaði margar greinar í það. Hefur alla tíð verið óþreytandi við að kynna fær- eyska myndlist í ræðu og riti, og í fyrirsvari margra framkvæmda heima sem erlendis. Auk fjölda greina í blöð og tímarit hefur Jákubsson samið stóra bók um þjóð- armálarann Sámal Joensen Mikines (1906-1979), sem út kom 1990, hönn- uð af höfundi og Sigurþóri Jakobs- syni. Setning, umbrot, litgreining. Prentun og bókband var þá verk prentsmiðjunnar Odda hér í borg og allt framúrskarandi vel af hendi leyst. Óhætt að mæla með þessari bók í hendur allra sem kynna vilja sér feril þessa mikla listamanns, vildi helst sjá hana í íslenzkri útgáfu þótt hin merkilega þjóðtunga, fær- eyska, ætti ekki að vefjast tiltakan- lega fyrir þeim sem inni eru í nor- rænum málum og þá einkum ís- lenzku. Bárður Jákupsson hefur þannig verið brimbrjótur og eldsál um framgang færeyskrar myndlistar, og mikil sú landsins gæfa að maður með jafn mikla og jarðtengda yfir- sýn skuli hafa valist í embætti for- stöðumanns listasafnsins, en ekkert bendiprik með menntun í útlenzkum fræðum, stílum og stefnum. Listamaðurinn er þó í erfiðri að- stöðu þegar hann skrifar yfirlit um færeyska myndlist, þar sem hann er sjálfur starfandi málari í litlu sam- félagi, en slíkir geta ekki með öllu farið að hætti atvinnuskrifara og listsögufræðinga, eru á miðjum or- ustuvellinum en horfa ekki yfir hann úr fjarlægð. Í kynningarriti um Færeyjar, sem Jákupssen skrifar í um myndlist svo og bækur um fær- eyska myndlist, þarf því utanaðkom- andi til að fjalla um hann sjálfan, þannig skrifar danski gagnrýnand- inn Helle Lassen um hann í eitt landkynningarritið sem ég hef á milli handanna, og Preben Michael Hornung í bókina Myndlist í Fær- eyum, sem hér skal vakin athygli á. Bókin er í stóru broti en þó aðeins minni umfangs en sú um Mykines, að auk 164 síður á móti 255, hins veg- ar prýdd mun fleiri litmyndum. Er þannig öðru fremur kynningarrit, þar sem á skilvirkan og hlutlægan hátt er farið í saumana á þróun fær- eyskrar myndlistar frá upphafi til síðustu ára, en minna um fræðilega úttekt. Við Íslendingar erum svo lánsamir að þekkja allvel til fær- eyskrar myndlistar, en þó helst eldri kynslóða, eða frá Mikines til spor- göngumanna hans, millikynslóðar- innar, hins vegar þekkjum við minna til hinna elstu og yngstu, kíminu að yfirvegaðri og samfelldari vinnu- brögðum og seinni tíma núlistaáhrif- um að utan. Má segja að færeysk myndlist nýrri tíma sé aðeins yngri en sú íslenzka, eða svo nemi einni kynslóð, og hafi til skamms tíma þróast á þjóðlegri nótunum. Enn- fremur að þeir hafi verið til muna sjálfhverfari en við, jafnvel þótt hálfu styttra hafi verið til Kaup- mannahafnar, heimslistarinnar um leið. Þannig má greina rauðan þráð sem gengur frá fyrstu tilraunum tómstundamálara til seinni tíma at- vinnumálara, þar sem einn tekur við af öðrum um nærtæk viðfangsefni, mannfólkið, fuglana, byggðirnar, húsin, landslagið, veðrabrigðin og samanlögð hrikaleg náttúrusköpin með hafið á allar hliðar, í lúkunum sem fjarlægum sjónhring. Eins og Íslendingar sóttu þeir lengstum og enn meira menntun sína til Kaup- mannahafnar, en í stað þess að leita útávið til fulltingis alþjóðlegri vitund hafa þeir leitað innávið til þjóðlegra minna og almennra athafna. Það má vera að einhverjir finni upp á að tengja þetta nesjamennsku, en allt eins mætti nefna það staðfestu og ást á land- inu og þjóðlegum verð- mætum, grannt skoðað gerðu heimslistamenn síðustu aldar þetta einn- ig en færðu í nýjan bún- ing. Færeyingum hefur og á sinn hátt lánast að móta sérstæða þjóð- tungu, sem rit- og sjón- menntir byggðar á þjóð- legum arfi hafa slípað og eflt, þótt áhrifin séu í báðum tilvikum sótt til evrópskra hefða. Hvað sem heimslist- inni líður, hefur þetta gert landið eitt hið áhugaverðasta á Norð- urlöndum og jafnframt heimsbyggðinni allri. Þórshöfn þannig að mestu haldið svip sínum alla síðustu öld. Engin ný gildi hafa valtað yfir höfuðborgina, ei heldur núviðhorf módernism- ans yfir hina fornu kirkjulist, þannig að Þórshöfn í smæð sinni telst heildstæðasta og sérkennilegasta höfuð- borg á Norðulöndum, mannleg ásýnd hennar einstök. Hér er síður sérsmíð- aður, miðstýrður og tilbúinn fullkomleiki múg- og gervimennsk- unar á ferð, öllu heldur frumstæður og safaríkur ófullkomleiki fámennis- ins, sem mannkynið þarf einmitt mest á að halda nú um stundir, kveikir metnað og gerir lífið að stóru ævintýri. Þetta telst bakgrunn- ur færeyskrar rit- og myndlistar, sem lands- menn hafa um sumt kunnað að fara betur með en Íslendingar, og munu þó nær fimm sinnum færri. Í bókinni kemur fram að styrkur færeyskrar listar felst í nálguninni við náttúrusköpin og að hversu óhlutlæg sem myndverkin eru, kennir skoðandinn jarðbundin og upprunaleg hughrif, aðallega í fjöl- þættum útgáfum úthverfa innsæis- ins. Það er svo í leirlist og textílum að vart verður við nýjan tón, fjar- lægri og alþjóðlegri. Erfiðara en fyrrum að halda höfði í holskelfu al- þjóðlegra nýstrauma sem allt upp- runalegt vill kæfa og helst hefur ver- ið haldið að ungum í listaskólum á síðustu áratugum. Hið mikilvægasta í dag er stofnun listakademíu í Þórshöfn, sem legði rækt við það sem áunnist hefur og opnaði um leið glugga til allra átta, útskrifaði sína eigin listsögufræð- inga og húsameistara, það er stysta leiðin til frelsis og þjóðreisnar um leið, farsælast að haldist í hendur. Í bókinni er málaralist, högg- myndalist, svartlist, textíl og ljós- myndum gerð meir og minna skil. Vert að geta þess að komið hefur verið upp vel búnu grafísku verk- stæði í listasafni Færeyja með áherslu á litógrafíu, og þar hafa áhugasamir úr 350 steinum frá Solnhofen að velja. Stendur starf- andi færeyskum listamönnum til boða ásamt faglegri aðstoð fastráð- ins starfsmanns og stefnt að því að fá útlenda gesti. Dregið saman í hnotskurn er þetta fræðandi og nytsamt uppslátt- arrit, sem vel er staðið að, gefur góða innsýn á færeyska myndlist, þótt sem alltaf megi deila um val myndverka. Upplýsandi bók um færeyska myndlist LIST OG HÖNNUN B á r ð u r J á k u p s s o n MYNDLIST Í FØROYUM Forlagið Atlanta. Erik Frey, Hjørr- ing. Forlagið Sprotinn 2000. Gefin út með stuðningi dansk-færeyska menningarsjóðsins, Margritun, Mentunargrunni landsins og Lista- safni Færeyja. Prentun: Jelling Bogtrykkeri A.S. 164. bls. Hans Pauli Olsen (1957), Hjördís og skugg- inn, 1993, 200x140x48, leir/brons. Hús Iðn- aðarins, Kaupmannahöfn. Sámal Joensen Mikines (1906–79), Mikines- kona, 1934, 54x42 cm, olía á léreft. Í eigu Listasafns Þórshafnar. Bragi Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.