Morgunblaðið - 27.01.2001, Page 31
VÍSINDAMENN telja að
of margt fólk, sem þjáist
af offitu – og of fáir sem
eru undir kjörþyngd – séu
greindir með astma. Frá
þessu er greint á fréttavef
breska ríkisútvarpsins,
BBC, nýverið.
Þá hefur ennfremur
komið í ljós, að minni líkur
eru á að börn stórreyk-
ingafólks fái þá meðferð
sem þau þurfa við astma,
vegna þess að foreldrarnir
fara ekki með þau til lækn-
is.
Rannsókn er gerð var í
Ástralíu leiddi í ljós að fólk
sem er of þungt kvartar
oftar undan and-
þrengslum og öndunarerf-
iðleikum, en hafði ekki
svonefnd „eiginleg einkenni“ astma.
Aftur á móti kom í ljós að fólk sem er
undir kjörþyngd og greindist ekki
með astma hafði þessi einkenni.
Áströlsku vísindamennirnir rann-
sökuðu hátt í tvö þúsund fullorðna á
aldrinum 17 til 73 ára. Skráðu þeir
niður astmagreiningu og þyngd, en
athuguðu sjálfir hvort fólkið var með
astma. Tekið var tillit til aldurs, kyns,
reykinga og fjölskyldusögu. Í ljós
kom að þeir sem þjáðust af offitu
voru tvöfalt líklegri til að hafa verið
greindir með astma. Aftur á móti
voru þessir einstaklingar ekki tvöfalt
líklegri til að vera með viðkvæm önd-
unarfæri, sem er einkenni astma.
Vísindamennirnir telja líklegt að
öndunarerfiðleika þeirra, sem þjást
af offitu, megi rekja til þess að þeir
þurfa að hafa meira fyrir því að anda,
og sé þetta greint rangt sem astmi.
Sjaldnar til læknis
Í hinni rannsókninni könnuðu
skoskir vísindamenn heilsufarsupp-
lýsingar um 400 börn á aldrinum
tveggja til tólf ára, sem áttu foreldra
sem reykja. Var kannað magn kót-
íníns í munnvatni barnanna, en það
efni er aukaafurð tóbaks, til þess að
athuga hversu miklar óbeinar reyk-
ingar barnanna væru.
Í ljós kom, að börn sem áttu for-
eldra sem reykja mikið höfðu farið
allt að þriðjungi sjaldnar til læknis í
astmagreiningu. Tíðni
ferða til læknis lækkaði
ennfremur eftir því sem
foreldrarnir reyktu
meira, og bar einkum á
þessum tengslum í þeim
tilfellum þegar móðirin
reykti. Þessi tengsl komu
aftur á móti ekki í ljós
varðandi aðra sjúkdóma.
Vísindamennirnir
segja að ástæðan fyrir
því að þessi börn fara
sjaldnar til læknis í
astmagreiningu kunni að
vera sú, að stórreykinga-
fólk sé síður vakandi fyr-
ir einkennum sjúkdóms-
ins, eða sé tregara til að
fara til læknis. Börn stór-
reykingafólks njóti
vegna þessa ef til vill ekki
nægilegs eftirlits.
Greint er frá þessum rannsóknum
í Thorax, tímariti samtaka breskra
brjóstholslækna (British Thoracic
Society, BTS). Vísindamenn telja að
offita sé of sjaldan greind sem orsök
öndunarörðugleika. Hætta sé á að
þeir sem þjást af offitu séu ranglega
greindir með astma og hljóti því
ónauðsynlega meðferð. Einnig verði
að hafa auga með þeim möguleika að
astmi sé ekki greindur nægilega oft
hjá þeim sem eru of léttir.
Offitusjúklingar grein-
ast of oft með astma
Kannanir gefa til kynna að börn stórreykingafólks fái
síður astmameðferð en jafnaldrar sínir.
TENGLAR
.....................................................
Tímaritið Thorax:
http://thorax.bmjjournals.com/
Associated Press
HVERNIG geta vísindamenn best
nýtt það gífurlega magn upplýsinga
sem er að hafa úr nýkortlögðu gena-
mengi mannsins til þess að búa til
seljanleg lyf? Starfsmenn fyrirtæk-
isins Genzyme Transgenics í Banda-
ríkjunum hafa bætt geni úr mönnum
í erfðaefni um það bil 250 geita. Leið-
ir þetta til þess, að þegar þær eru
mjólkaðar framleiða þær manna-
prótín, svonefndan mót-blóðhleypi
(AT-III), sem notaður er til að koma
í veg fyrir blóðtappamyndun í sjúk-
lingum sem gangast undir hjartaað-
gerð.
Að búa til svona „þvergenetísk“
dýr til að framleiða lyf er með frum-
legri aðferðum við að framleiða mik-
ið magn af mannaprótínum sem
kunna að verða næsta kynslóð lyfja.
Dýraréttindasinnar hafa efast um að
það sé siðlegt að búa til svona dýr, en
vísindamenn segja að með þessum
hætti kunni að verða mögulegt að
framleiða prótín sem nú er einungis
hægt að fá í mjög takmörkuðu magni
úr mannablóði.
Er fram líða stundir kunna geitur,
kindur og kýr að geta framleitt
hundruð prótína sem gætu jafnvel
bjargað mannslífum, er vísindamenn
túlka genamengið. Thomas E. New-
berry, yfirmaður fjárfestatengsla
hjá Genzyme, segir að vanhæfni til
að framleiða þessi prótín ódýrt og í
miklu magni hafi í för með sér að
flöskuháls myndist og tefji framfarir
í læknavísindum.
Genzyme er eitt af nokkrum fyr-
irtækjum sem hafa veðjað á að geit-
ur eða önnur stór spendýr geti gefið
af sér það sem á vantar. Spendýr,
eins og til dæmis menn og geitur, eru
prótínverksmiðjur sem framleiða
mikið magn til þess að fóðra ungviði
sitt. Genzyme áætlar nú að framleiða
13 vörutegundir úr geitamjólk til
þess að meðhöndla sjúkdóma á borð
við HIV [veiruna er veldur alnæmi]
og gikt.
Til stóð að AT-III yrði fyrsta prót-
ínið, búið til úr þvergenetískri dýra-
mjólk, sem kæmi á markað, sem átti
að verða snemma á næsta ári. En
þær áætlanir hafa farið úr skorðum
vegna þess að bandaríska matvæla-
og lyfjaeftirlitið hefur farið fram á að
gerðar verði fleiri tilraunir með efn-
ið. Annað fyrirtæki, Bayer, heldur
nú kindur á Nýja-Sjálandi í því skyni
að framleiða prótín sem gegnir lyk-
ilhlutverki í meðhöndlun fólks með
lungnaþembu og slímseigjuvanþrif.
Langtímamarkmið
Langtímamarkmið fyrirtækja
sem eru að þróa þvergenetísk dýr er
að búa til nýja kynslóð lyfja sem
byggð eru á genaafurðum, í stað
lyfja sem búin eru til af efnafræð-
ingum, að sögn Newberrys. Undan-
farin ár hafa til dæmis níu einklóna
mótefni, eða ónæmiskerfisprótín
sem virka einungis á nákvæmlega
tilgreind skotmörk, verið samþykkt
til notkunar í mönnum. Á síðasta ári
nam sala á þessum mótefnum ríflega
einum milljarði dollara, segir New-
berry. Lyfjasala í heiminum í heild
nam 220 milljörðum dollara í fyrra.
Dan Adams, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins Protein Sciences í
Bandaríkjunum, bætir því við að
prótín séu yfirleitt hættuminni en lyf
sem búin séu til úr efnablöndum.
„Þegar klínískar tilraunir með þau
eru á annað borð hafnar eru minni
líkur á að þau bregðist,“ sagði hann.
„Þau eru flottu krakkarnir í klíníska
hverfinu.“
Leita leiða til að nýta upplýsingar úr genamengi mannsins
„Þvergenetískar“ geitur
framleiða mannaprótín
Los Angeles Times/Washington Post.
Læknavísindin verða
sífellt líkari framtíð-
arskáldsögum. Hér
segir frá sérræktuðum
geitum, sem framleiða
efni til að koma í veg
fyrir blóðtappamyndun.
TENGLAR
.....................................................
Heimasíða Genzyme:
www. genzyme.com
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 31