Morgunblaðið - 27.01.2001, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 27.01.2001, Blaðsíða 38
UMRÆÐAN 38 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ G eorge W. Bush hafði aðeins setið í tvo daga á forsetastóli þegar hann varpaði sakleysislegri sauð- argærunni sem hann skrýddi sig með í kosningaslagnum. Á mánudaginn lét hann til skarar skríða og stöðvaði öll fjár- framlög Bandaríkjanna til sjóða sem styðja alþjóðleg félaga- samtök er gefa ráð um skipu- lagningu barneigna, þar með talið fóstureyðingar. Þetta var fyrsta meiriháttar verk hans á forsetastóli og líklegt að það gefi tóninn að því sem koma skal. Nú er það ekki svo að þessar stofnanir taki framlög Banda- ríkjanna og noti beinlínis til að greiða fyrir fóstur- eyðingar, eins og halda mætti af aðgerðum Bush. Þetta eru alþjóðlegar stofnanir, sem hafa notið fjárframlaga frá Bandaríkjunum líkt og frá öðr- um löndum, en meðal þess sem þær hafa á sinni könnu er að ráðleggja konum í þriðja heims löndum um heilbrigðismál, þar á meðal getnaðarvarnir og fóst- ureyðingar. Samtök kvenna hafa bent á að yfirlýsingar Bush um að virða beri allt líf hljómi an- kannalega í fátækrahverfum Kalkútta eða afrísku þorpi. Þau hafa vísað í tölur Alþjóðaheil- brigðisstofnunarinnar, um að árlega látist nær 600 þúsund konur í þróunarlöndunum af völdum ýmissa kvilla sem rekja má til þungunar. Þau hafa líka bent á að árlega deyi unn- vörpum örvæntingarfullar kon- ur sem reyna sjálfar að eyða fóstri eða leita til skottulækna. Bush hefur aldrei leynt því að hann er andstæðingur fóstur- eyðinga, enda hafa íhaldsöfl enn þau tök á Repúblikanaflokknum að hann hefði aldrei náð tilnefn- ingu sem forsetaefni ef hann hefði æmt um rétt kvenna til að ráða yfir eigin líkama. Í upphafi kosningabaráttunnar var hann iðinn við yfirlýsingar gegn fóst- ureyðingum en dró verulega úr þegar fór að nálgast kosningar, líklega til þess að fæla ekki í burtu þá kjósendur sem áttu eftir að gera upp hug sinn. Hinn 1. október á síðasta ári var t.d. skýrt frá því í Morg- unblaðinu að frambjóðendurnir tveir, Bush og Al Gore varafor- seti, væru ekki á einu máli um hvort leyfa hefði átt neyð- argetnaðarvarnarpilluna, eins og bandaríska lyfjaeftirlitið hafði þá ákveðið að gera. Í fréttinni kemur fram að Bush hafði, við umræður um neyð- argetnaðarvarnarpilluna, notað tækifærið og fullyrt að næsti forseti Bandaríkjanna gæti með skipun nýrra dómara breytt hlutfalli andstæðinga og fylgj- enda fóstureyðinga í hæstarétti. Í fréttinni sagði einnig: „Bush hefur áður lýst því yfir að hann muni hugsanlega taka mið af af- stöðu manna til fóstureyðinga við skipun hæstaréttardómara.“ Nokkrum dögum síðar mætti Bush í sjónvarpssal, í fyrstu kappræður forsetaframbjóðend- anna. Þar saumaði Gore að hon- um varðandi fóstureyðingar og hefur líklega viljað fá fram sömu yfirlýsingar frammi fyrir alþjóð. En George W. var far- inn að vanda sig. Í frásögn Morgunblaðsins 5. október sagði m.a.: „Fóstureyðingar voru ræddar í tilefni þess að bandaríska lyfjaeftirlitið heim- ilaði að neyðargetnaðarvarn- arpillan yrði sett á markað. Bush, sem er yfirlýstur and- stæðingur fóstureyðinga, sagð- ist aðspurður ekki telja að for- setinn gæti breytt þeirri ákvörðun upp á sitt einsdæmi. Gore hélt því fram að Bush myndi reyna að beita áhrifum sínum til að lyfjaeftirlitið drægi ákvörðun sína til baka, en Bush sagði mikilvægara að breyta viðhorfi fólks til fóstureyðinga. Frá fóstureyðingum barst tal- ið að skipan hæstaréttardóm- ara. Gore sagði að Bush myndi án efa velja dómara sem væru andvígir fóstureyðingum og þeir myndu breyta úrskurði rétt- arins frá 1973 sem tryggði kon- um rétt til fóstureyðinga. Bush svaraði með því að segja að hann myndi velja dómara sem dæmdu eftir lögunum enda væri það hlutverk dómara.“ Frá illa dulbúinni hótun nokkrum dög- um fyrr stökk Bush sem sagt yfir í óljóst tal um að hann myndi velja hæstaréttardómara sem dæmdu eftir lögunum. Og frá yfirlýsingu í kappræðum um að hann teldi ekki að forsetinn gæti breytt ákvörðun lyfja- eftirlitsins upp á sitt einsdæmi stökk hann svo yfir í yfirlýsingu síðasta mánudag um að hann ætlaði sér að fyrirskipa endurskoðun þeirrar ákvörð- unar. Í dagblaðinu San Francisco Cronicle fyrr í vikunni rifjaði blaðamaður upp að hann hefði tekið viðtal við Bush í fyrra og sérstaklega innt hann eftir því hvers vegna hann væri andvíg- ur fóstureyðingum. Blaðamað- urinn segir að forsetaefnið hafi hikstað dálítið og tafsað en svarað því svo að hann tryði því að líf kviknaði við getnað. Þessi afstaða væri ekki endilega trúarleg, heldur tryði hann því að þarna væri um líf að tefla og þar með ætti einnig við sú grundvallarhugmynd að hver maður ætti rétt til lífs, frelsis og hamingjuleitar. Blaðamaðurinn kveðst hafa haldið að þetta loðna svar þýddi að málefnið brynni ekkert sér- lega heitt á George W. Bush, en nú væri hann búinn að gera sér grein fyrir að svarið endur- speglaði alls ekki áhugaleysi forsetans heldur hve illa máli farinn hann væri. Blaðamað- urinn ásakaði sjálfan sig fyrir að hafa ekki verið á varðbergi og fyrir að hafa haldið að Bush væri meinlaus og myndi engan skaða gera í embætti. Það hafi aðeins átt við fyrstu tvo daga hans þar. Gæran fallin „Nú er það ekki svo að þessar stofnanir taki framlög Bandaríkjanna og noti beinlínis til að greiða fyrir fóstureyðingar, eins og halda mætti af aðgerðum Bush.“ VIÐHORF Eftir Hönnu Katrínu Frið- riksson VIÐBRÖGÐ forystu stjórnarflokkanna hafa einkennst af hroka og yfirgangi við dómsniður- stöðu Hæstaréttar í ör- yrkjamálinu. Íhlutun forseta Hæstaréttar undir lok umræðna á Al- þingi í hápólitísku deilu- máli milli stjórnar og stjórnarandstöðu að beiðni þeirra sem valdið hafa í hinum pólitíska meirihluta er líka graf- alvarleg. Sjálfstæði dómstólanna er nú um stundir dregið í efa. Það óhugnanlega er að graf- ið hefur verið undan meginstoðum stjórnskipunar lands- ins, sem ekki stendur söm eftir. Eftir virðist standa samanþjappað vald allra þriggja valdþáttanna – á einni hendi. Styrkja þarf lýðræðið og réttaröryggi borgaranna Við þessar aðstæður hljóta að vakna spurningar um hvað er til ráða til að styrkja lýðræðið í landinu og réttaröryggi borgaranna, þegar nú hefur verið grafið undan því skjóli sem borgararnir hafa haft hjá Hæstarétti til að leita réttar síns m.a. gegn ofríki og valdníðslu fram- kvæmda- og löggjafarvaldsins. Auk þess sem til skoðunar hlýtur að koma stjórnlagadómstóll og að efnt verði til stjórnlagaþings til að endurskoða stjórnarskrána og stjórnskipan landsins er brýnt að opna möguleika á beinu lýðræði fólksins með þjóðaratkvæðagreiðslu. Lengi hefur það verið eindreginn vilji þjóðarinnar að stjórnarskráin hafi að geyma heimild til þjóðaratkvæða- greiðslu. Á það hefur ekki verið hlustað. Í ljósi síðustu atburða í ör- yrkjamálinu hlýtur sú krafa að verða hávær á næstunni. Mikill meirihluti þjóðarinnar studdi málstað öryrkj- anna í glímunni við rík- isvaldið í kjölfar dóms- niðurstöðu Hæsta- réttar í öryrkjamálinu. Fólkið hafði enga möguleika til að láta vilja sinn í ljós í þjóð- aratkvæðagreiðslu. Með því fulltrúalýð- ræði sem við búum við er fullt og óskorað vald látið í hendur kjörinna fulltrúa á þjóðþinginu, sem samkvæmt stjórnarskránni þurfa ekki að fara eftir vilja kjósenda heldur eftir eigin sannfæringu. Oftar en ekki ræður þar vilji flokks- forystunnar. Hér á landi gildir því fyrst og fremst flokksræði og full- trúalýðræði, en ekki beint lýðræði fólksins nema í kosningum til Alþing- is, sveitarstjórna og forsetaembætt- isins. Lýðræðislegum rétti fólksins til að veita stjórnmálaflokkum aðhald er því mjög þröngur stakkur skorinn meðan ekki er fyrir hendi heimild til þjóðaratkvæðagreiðslu um einstök mál sem Alþingi hefur til umfjöllunar án atbeina forseta Íslands. Forseti Íslands hefur aldrei frá stofnun lýðveldisins beitt heimild í stjórnarskránni um að synja stað- festingar á lagafrumvarpi og bera það undir þjóðaratkvæðagreiðslu, þrátt fyrir að vilji mikils hluta þjóð- arinnar hafi staðið til þess í nokkrum stórum málum. Af framkvæmdinni má því ráða að þetta vald forsetans til að færa valdið frá þinginu til þjóð- arinnar sé í raun nánast marklaust. Almennt ákvæði um þjóðaratkvæða- greiðslu án atbeina forseta er því nauðsynlegt. Sex ár í salti á Alþingi Sex ár í röð hafa þingmenn Sam- fylkingarinnar flutt frumvarp um breytingu á stjórnarskránni þess efnis að fimmtungur kosningabærra manna geti krafist þess að lagafrum- varp sem Alþingi hefur samþykkt verði borið undir þjóðaratkvæða- greiðslu. Þjóðaratkvæðagreiðslan verði bindandi ef meira en helmingur þeirra sem þátt taka í henni greiða atkvæði gegn gildi laganna. Eðlilegt væri líka að til skoðunar komi að styrkja rétt minnihluta Alþingis með því að t.d. þriðjungur þingmanna geti krafist þess að mál séu sett í þjóð- aratkvæðagreiðslu, sem vissulega styrkti lýðræðið í landinu og mikil- vægt hlutverk stjórnarandstöðu í að veita framkvæmdavaldinu öflugt að- hald. Stjórnarmeirihlutinn á Alþingi, sá hinn sami og nú hefur með eftir- minnilegum hætti brotið lög og rétt á öryrkjum, hefur ekki bara komið í veg fyrir framgang frumvarpsins um þjóðaratkvæðagreiðslu, heldur líka að frumvarpið hafi fengið eðlilega umfjöllun í sérskipaðri nefnd sem kosin var í þinginu til að fjalla um málið. Atburðir síðustu daga knýja á um að herða róðurinn á Alþingi fyrir rétti fólksins til að geta vísað málum í þjóðaratkvæðagreiðslu með líkum hætti og þekkist víða í nágrannalönd- unum. Krafan um þjóðar- atkvæðagreiðslu Jóhanna Sigurðardóttir Öryrkjadómurinn Lengi hefur það verið eindreginn vilji þjóð- arinnar, segir Jóhanna Sigurðardóttir, að stjórnarskráin hafi að geyma heimild til þjóð- aratkvæðagreiðslu. Höfundur er alþingismaður. SÁ, sem hér heldur á penna, hefir aldrei leyft sér að efast um grand- varleik Hæstaréttar Ís- lands. Raunar talið að jafnbrýndi guðlasti að draga í efa að réttlæti og strangasti heiðar- leiki sæti þar ávallt í fyrirrúmi. Nú er þetta breytt. Á einu andartaki í sölum Alþingis, þriðjudaginn 23. janúar 2001, við upplestur forseta Al- þingis á pólitísku afláts- bréfi frá forseta æðsta réttar þjóðarinnar. Pöntuðu af valdasjúk- um foringjum og afgreiddu af fákæn- um samflokksmanni forsætisráð- herra. Málatilbúnaður, sem matreiddur var af skósveinum flokksforingjanna – þeim hinum sömu sem kokkuðu álitsgerðina um dóm Hæstaréttar í öryrkjamálinu eftir pöntun - og gleyptur var af for- setum Alþingis og Hæstaréttar. Héðan í frá leyfist undirrituðum að hafa þær skoðanir á dómurum Hæstaréttar, að þeir eigi til með að gerast handbendi pólitíkusa ef svo ber undir. Því var haldið stíft að hon- um á sínum tíma, að þessháttar at- hæfi hefði verið í frammi haft þegar hinn kunni Vatneyrardómur gekk. Því vísaði hann með öllu á bug. Nú er greinarhöfundur hinsvegar varnar- laus gegn þeim sem öðru vildu trúa og höfðu aðallega æði forsætisráð- herrans fyrir sér í þeim fullyrðing- um, og höfðu skilið orð hans að upp- kveðnum Vatneyrardómi sem hótanir í garð Hæsta- réttar. Enginn efast lengur um að hann hafi fylgt þeim orðum sín- um eftir við málvini sína í hinum hæzta rétti. Framganga stjórn- valda í málefnum ör- yrkja er með fádæm- um. Að uppkveðnum dómi Hæstaréttar voru kallaðir til hlutdræg- ustu attaníossar for- ingjanna að túlka dóm- inn, þjónar herranna, sem engum dytti í hug að trúa fyrir bréfi yfir bæjarlæk ef það snerti hag höfðingja þeirra. Í kjölfarið hófst aðförin á Alþingi að festa í lög smíð hinna dyggðum prýddu þjónustu- manna. Auðvitað snerist pródúkt þeirra um að brjóta lög og dóm á ör- yrkjum eins og pantað hafði verið. Að sjálfsögðu var haldið áfram að skerða kjör þeirra, sem dómurinn fjallaði um, þrátt fyrir skýlaus ákvæði dóms- ins. Reynt var með öllu móti að af- flytja málið með því að fullyrða að dómurinn væri eingöngu til hagsbóta fyrir vel stadda í röðum öryrkja, og stjórnarandstaðan ásökuð um að láta sig engu varða um hina verst settu. Beitt var fyrningu á ákvæði dómsins um endurgreiðslu, en sá sem hér heldur á penna getur borið vitni um, að ráðuneyti bera ekki fyrir sig fyrn- ingu krafna, ef krafan er á annað borð eðlileg og sanngjörn. Og vextir á vangreiddar bætur skornir við nögl á tímum vaxtaokurs, sem stjórnvöld bera einkaábyrgð á. Fólk spyr í forundran: Hvers- vegna eru slík afglöp framin af ráðn- um hug? Hvað gengur mönnunum til? Ekkert viðhlítandi svar er finnan- legt, ef mennirnir eru á annað borð taldir með réttu ráði. Þó tekur stein- inn með öllu úr þegar kemur að af- skiptum Hæstaréttar og vinargreiða forseta hans við há-yfirdómarana. Það hlýtur sterklega að koma til álita að fulltrúar stjórnarandstöð- unnar í stjórn Alþingis segi af sér þeim störfum til að eiga ekki á hættu að vera teymdir á foraðið eins og gert var með betlibréfinu til forseta Hæstaréttar. Svo er komið málum í umgengni stjórnvalda við lög og rétt í landinu, að bezt fer á að þeir hafi sjálfir allan veg og vanda af verkun- um meðan umboð þeirra endist til. Enda eiga ekki aðrir innangengt í klíkuveldið en þeir, sem vilja láta kylfu ráða kasti og kæra sig kollótta um örlög tveggja veigamestu innviða lýðræðisins: Löggjafarvaldið og dómsvaldið. Klíkuveldið Sverrir Hermannsson Hæstiréttur Héðan í frá leyfist und- irrituðum að hafa þær skoðanir á dómurum Hæstaréttar, segir Sverrir Hermannsson, að þeir eigi til með að gerast handbendi póli- tíkusa ef svo ber undir. Höfundur er formaður Frjálslynda flokksins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.