Morgunblaðið - 27.01.2001, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 27.01.2001, Blaðsíða 47
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 47 ✝ Þorleifur Einars-son fæddist á Steinavöllum í Flóka- dal í Vestur-Fljótum 10. maí 1909. Hann lést á Heilbrigðis- stofnuninni á Sauð- árkróki 17. janúar síðastliðinn. Þorleif- ur var hjá foreldrum sínum til tveggja ára aldurs en fór þá að Illugastöðum í sömu sveit til Guðmundar Jónssonar og Sal- bjargar Jónsdóttur og var hjá þeim til tíu ára aldurs á Illugastöðum, Sjö- undastöðum og Bakka á Bökkum. Með þeim flutti hann fram í Skagafjörð að Frostastöðum til Magnúsar H. Gíslasonar og Krist- ínar Guðmundsdóttur og var hjá Magnúsi og Kristínu þar og flutti með þeim að Eyhildarholt 1929. Hann var á Alþýðu- skólanum á Laugum í Reykjadal veturinn 1929–1930, vann á Hólsbúinu í Siglu- firði 1944–1966, lengst af hjá Guð- mundi Jónassyni. Þorleifur var í Ey- hildarholti á veturna milli þess sem hann vann á Hólsbúinu. Hann fékk viður- kenningu frá Búnað- arfélagi Íslands fyrir langa þjónustu á sama stað. Allt frá því að Þorleifur flyst í Frosta- staði, til Magnúsar og Kristínar, má segja að hann hafi þjónað þessari fjölskyldu (fjórum ættlið- um) allt til loka ævi sinnar. Útför Þorleifs fer fram frá Flugumýrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Okkur systkinunum er ljúft að minnast föðurbróðar okkar Þorleifs Einarssonar, Leifa föðurbróður nefndum við hann oftast. Okkur fannst viss virðing í því. Er við vor- um lítil börn var það yfirleitt hann úr föðurætt okkar sem heimsótti okkur systkinin sex og móður okkar, ætíð með suðusúkkulaði sem hann dró upp úr úlpuvasa sínum handa okkur. Þessum sið hélt hann alla tíð. Við urðum fullorðin og þá fengu börnin okkar góðgætið. Mikið var stolt okk- ar systkina er hann gerðist vinnu- maður á Hólsbúinu heima á Siglu- firði. Þar með áttum við rétt á að fara inn að Hóli og dvelja þar dag- stund með Leifa. Sannarlega voru þetta ævintýraferðir og vel þess virði, þó langt væri fyrir okkur að ganga. Prúðmennska og trygglyndi voru aðalsmerki frænda okkar. Er hann kom til Siglufjarðar seinna meir varð hann að heimsækja alla þá er hann hafði kynnst, engum mátti gleyma. Faðir okkar og Leifi voru miklir vin- ir þó ekki auðnaðist þeim að alast upp saman. Við minnumst þess er þeir sátu saman á heimili eins okkar. Þeir þurftu ekki að tala mikið saman, en héldust í hendur og brostu til hvors annars langa kvöldstund. Leifi föðurbróðir okkar var til fjölda ára í Eyhildarholti í Hegranesi, þangað vorum við ávallt velkomin og bar húsfreyjan þar, hún Salbjörg, okkur hinar bestu veitingar. Honum auðn- aðist að komast af sjúkrahúsi Sauð- árkróks og dveljast í Eyhildarholti síðustu jólin sín. Við sáum hann síð- ast í nóvember og brosið hans milda gladdi okkur er við kvöddum hann. En nú er þessi öðlingur allur. Guð blessi minningu Þorleifs föðurbróð- ur okkar. Hann á góðar móttökur skilið í ríki Guðs. Björg, Sigurjóna Marsibil, Einar, Anna og Ágústa Lúthersbörn. Í dagsins önnum dreymdi mig þinn djúpa frið, og svo varð nótt. Ég sagði í hljóði: Sofðu rótt, þeim svefni enginn rænir þig. (Steinn Steinarr.) Leifi frændi er látinn. Síðasta föð- ursystkinið farið yfir móðuna. Ákveðið tómarúm myndast. Minn- ingarnar streyma fram. Litlar syst- ur muna hvað spennandi var að fá Leifa frænda í heimsókn. Hæglátan, fágaðan og jafnvel kannski svolítið dularfullan, en alltaf stutt í glað- værðina. Undantekningarlaust dró hann upp úr úlpuvasa sínum rjómasúkkulaði, hver fékk sitt stykki. Okkur fannst einkennilegt hvernig honum tókst að fela allt þetta súkkulaði í úlpunni. Leifi frændi og úlpan voru okkur kær. Þrátt fyrir fjarlægðir tókst honum með undraverðum hætti að halda góðum tengslum við flest sín systk- inabörn og þau voru ófá. Nokkrar voru ferðirnar sem hann fór til Siglu- fjarðar og Reykjavíkur í gegnum ár- in. Alltaf var hann með það á hreinu hvar fólkið hans var. Eftir því sem árin liðu og aldurinn færðist yfir hann, fækkaði ferðum hans en þá var komið að okkur að heimsækja hann í Eyhildarholt. Þangað var gott að koma og þrátt fyrir að sjaldnast væri gert boð á undan sér var alltaf tekið vel á móti okkur með kaffi og heimabökuðu. Börnin okkar munu minnast Leifa frænda með hlýhug. Við systur, makar og börn erum þakklát fyrir samleiðina með Leifa frænda og um leið og við kveðjum hann, viljum við þakka góðar móttökur í Eyhildar- holti gegnum árin. Aðalbjörg, Halldóra, Kristín og Þorleif Lúthersdætur. Þorleifur Einarsson, (eða Leifi „frændi“ eins og við systkinin frá Fitjum kölluðum hann á yngri árum, sá eini sem hafði það sem fast við- hengi við nafnið) er látinn. Mig lang- ar til að setja nokkur orð á blað, nú þegar leiðir skilur um sinn. Leifi hefur farið mikils á mis í líf- inu við að alast upp án foreldra sinna og systkina, því hann var tveggja ára fluttur frá Steinavöllum yfir Flóka- dalsá að Illugastöðum sem er í innan við tveggja kílómetra fjarlægð og kom þar aldrei meir, fyrr en árið 1985 rúmum 70 árum seinna er ég ásamt konu minni o.fl. fór með hann og móður mína í Steinavelli. Það varð að ganga síðasta spölinn, en þau drógu ekki af sér þótt hvor- ugt hefði heilsu til þess. Það var ótrúlegt að horfa upp á gamla manninn reyna að kalla fram minninguna þarna í tóftunum hvern- ig umhorfs hafði verið þar innan dyra og það rann okkur til rifja þeg- ar hann sagði: „Hvers vegna var ég látinn fara, af hverju mátti ég ekki vera heima eins og hinir?“ og maður veltir því fyrir sér hvers vegna hann kom aldrei þar í heimsókn þótt svo stutt væri á milli bæjanna. Kannski var hann valinn af því að hann var svo þægur, geðgóður og prúður en það var hann alla tíð. Það geta svo sem verið ýmsar ástæður fyrir því, hugsunarleysi sem stundum var á þeim tíma, fátækt, basl og heilsuleysi móður þeirra, en hún dó þegar Leifi var níu ára gam- all. Ég held að hann hafi ekki verið við útför hennar. Upp frá því fluttist faðir hans frá Steinavöllum og fjöl- skyldan tvístrast æ meir, en mörg þeirra voru fyrst í stað á Siglufirði. Hann spurði í nær hvert skipti sem við hittust eftir þetta „hvenær eigum við að fara í Steinavelli næst?“ Leifi og Sigurður faðir okkar voru talsvert líkir, litlir og grannir, eins og þau voru raunar öll, en ég minnist þess að þeir höfðu svo líkt fas og hljóð að við héldum að pabbi væri kominn heim þegar Leifi kom í heim- sókn, en pabbi vann fyrir sunnan ár- um saman á þeim tíma. Svo var einnig með eldri son minn sem var lítill hjá ömmu sinni um sumartíma og gat ekki munað eftir pabba sem lést skömmu eftir að hann fæddist, en hann hrópaði „amma! amma! hann afi er kominn.“ Ég vildi gjarnan að við hefðum getað haft meira samneyti við föð- ursystkini okkar en við höfðum, þótt það hafi verið einna mest við Leifa, en af því verður ekki um sinn. Guð blessi minningu fjölskyldunn- ar frá Steinavöllum í Fljótum. F.h. systkinanna frá Fitjum, Steindór Sigurðsson. Elsku Leifi. Æviskeiði þínu er lokið, dagsverk- in orðin mörg. Þú varst orðinn full- orðinn, kominn á 92. aldursárið, en alltaf koma andlátsfregnir manni í opna skjöldu. Minningarnar hrannast upp í hug- um okkar. Þú tengist æsku okkar og uppvaxtarárum heima í Eyhildar- holti. Alltaf gátum við gengið að þér vísum og leitað til þín þegar með þurfti. Þú varst einstaklega ljúfur og hógvær persónuleiki, jafnlyndur en fastur fyrir með þínar skoðanir. Ná- kvæmur með alla hluti og sérstakt snyrtimenni. Þú bjóst yfir lúmskri kímnigáfu og varst hnyttinn í tilsvör- um. Alltaf var stutt í stríðnina en aldrei var það neinum til sárinda. Þessi vísa segir meira um þig en mörg orð: Láttu smátt, en hyggðu hátt. Heilsa kátt, ef áttu bágt. Leik ei grátt við minni mátt. Mæltu fátt og hlæðu lágt. (Einar Ben.) Þú varst öllum góður og aðdáun- arverð var natni þín við allar skepn- ur, stórar og smáar. Við munum eftir snjótittlingunum sem voru vetur eft- ir vetur austan við íbúðarhúsið, í tugatali. Þú stóðst í miðjum hópnum með moðpoka og dreifðir moði á frosna jörðina, æti fyrir litlu fuglana, þú gleymdir engum. Nákvæmni þín við hirðingu kúnna var einstök. Mikið var í húfi ef breyta átti hirðingatímanum. Víst er að vel verður tekið á móti þér af þessum vinum þínum og fleirum. Við munum líka eftir jólunum í Eyhildarholti, óþolinmóðir krakkar út um allt hús biðu eftir því að tíminn liði, að stóra stundin kæmi. Ekki mátti bera pakkana inn í stofu fyrr en þú varst kominn en ekki varstu að flýta þér, eða það fannst okkur, og stutt var í brosið yfir óþolinmæði okkar. Dýrmætar minningar okkar stelpnanna eru þegar þú fórst þínar árlegu haustferðir til ættingja og vina og veittir okkur afnot af her- bergi þínu á meðan. Það breyttist undir eins í ævintýraland með dúkk- um og tilheyrandi og ekki var laust við að öfundar gætti hjá strákunum því það var upphefð fyrir okkur að njóta trausts þíns. Ekki brást það þegar þú fórst af bæ að ævinlega færðirðu okkur rauðan Opal þegar heim var komið, kærkominn glaðn- ing sem þá sást ekki á hverjum degi. Minningarnar eru margar og góð- ar. Nú hækkar sól og heldur styttist nótt. Og hlýju ljósi er sérhver dagur bundinn. En veður geta í lofti skipast skjótt, það skyggir fljótt er nálgast kveðju- stundin. Það líf á gott sem leyst er þrautum frá og langþráð hvíldin Drottins vel er þegin. Það uppsker maður hver sem mun hann sá,svo margföld gefst þér dýrðin hinum megin. Þig leiði Guð í ljóssins ríkið bjarta, þar lifnar þrek og endurnýjast kraftur. En alltaf geymast munu í mínu hjarta minningarnar þar til sjáumst aftur. (Guðrún Eyhildur.) Elsku Leifi, Far þú í friði friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Guð geymi þig og varðveiti. Frá krökkunum í Holti, Sveinn, Gísli, Erlendur, Guðrún Eyhildur, Þorbjörg, Sigríður, Hannes, Ragnar og Stefanía Guðrún. ÞORLEIFUR EINARSSON '$    $   ( !  )    %  ! )*+     $,        %      (    3,(:;6  <'%%' # *=> -             .   /   &    '$%$*7*& '%/$ $%$*7#%  '$%$*7*&.% !%$ %*& &'(' ?*& ' *' *#% / (' ?#%  /')$ '%% '*&  '(' ?*& '%'&%#% - (' ?*& ,%%1 #% 7'(' ?#% )- '%% $&%*& (' */@ -   %'#% # 4%*.7%          3  :<A B3%'C  3  2$   % DE' $.7-' /7 !  ' $  0 $      % & &       1       '2 *(' *'*& '/'3%)- (' *'*& 0' *& $%#% 0 *' '+(' *'*& '-&%#%   )'%') %#)'%')'%') % 2 (             3(: 3 6  # ' D $ -'%'%$ !   34 $  3%)-  '%/$ *& "&%%'*& ,- %"#)$#% %%' '/''*& 0$ &2'%%$#%  /%'*& # 0-''#%  $%)- % 4  $%)- %#% %%' '%/$  $%)- %#% "#7$ (' *'#% ,-'%' $ 7       #)'%') %     33 6 7F'/'$' F$E !  ) ,%  5     36 $     % /$ %*& 8 G :< 3  A'   !  $       3" $    $   5    $   30 $   "778 "/$*&  $-'%'#% ,/% $$*& 0'' *0'' /-&%*&      #)'%') %
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.