Morgunblaðið - 27.01.2001, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 57
DAGBÓK
Gull
er gjöfin
Gullsmiðir
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert mjög viðkvæmur fyr-
ir áliti annarra. Láttu það
liggja á milli hluta og vertu
sjálfum þér samkvæmur.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert ekki til stórræðanna
fyrri part dags en munt
bæta það upp seinnipartinn.
Notaðu kvöldið til að endur-
nýja orku þína.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Hafðu ekki áhyggjur þótt þú
eigir erfitt með að taka
ákvörðun í sambandi við
starf þitt. Það mun skýrast
fyrr en seinna.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú hefur úr mörgu að velja í
viðskiptum og þarft að vera
vel vakandi svo ekkert fari
úrskeiðis. Leitaðu ráða ef
þess gerist þörf.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Margar forvitnilegar hug-
myndir rekur á fjörur þínar
þessa dagana. Það er vandi
að velja en þér er óhætt að
treysta dómgreind þinni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Láttu ekki ginnast af gylli-
boðum því reikningana þarf
að borga fyrr eða síðar. Þér
vegnar vel ef þú sýnir
ákveðni og festu.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er alltaf ánægjulegt
þegar góðir vinir reka inn
nefið. Svo verður einnig hjá
þér. Óvænt uppástunga
verður þér til mikillar gleði.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú ert ákveðinn og kraft-
mikill þessa dagana sem
kemur sér vel því þú færð
tækifæri sem gæti falið í sér
fjárhagslegan gróða ef rétt
er með farið.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Einhver smámisklíð kemur
upp á milli þín og samstarfs-
manna þinna. Sýndu sveigj-
anleika og þá munu allir erf-
iðleikar gufa upp.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú hefur nóg að gera í
félagslífinu og nýtur þess að
eiga góða vini. Hugsaðu þig
vel og vandlega um áður en
þú tekur ákvörðun um að
fjárfesta.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ef þú leggur þig allan fram
máttu vera ánægður með
störf þín hvort heldur um er
að ræða í starfi eða heima
við. Taktu vel á móti góðum
gestum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú þarft að taka stóra
ákvörðun í samráði við fjöl-
skylduna er varðar framtíð-
ina. Þú færð góðar fréttir
sem hafa mikilvæg áhrif á
afkomu þína.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ef þú vilt flytja þig um set
ættirðu að gera það núna. Þú
færð góðar fréttir sem færa
þér fjárhagslegan ávinning.
Sinntu þínum nánustu.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÞRJÚ grönd suðurs byggj-
ast á því að hitta í tígulinn,
þar sem drottningin er
fjórða úti. Samkvæmt lík-
indafræðinni er nokkurn
veginn jafn gott að taka ÁK
eins og að svína fyrir drottn-
inguna, svo yfirleitt ráða
önnur sjónarmið ákvörðun
sagnhafa í hvert skipti. Hér
er spil úr tvímenningi í
Stokkhólmi, þar sem Maart-
en Gustawsson reyndist
hittinn í slíkri stöðu, en
makker hans var Magnús
Eiður Magnússon. Magnús
sendi þættinum spilið og tók
fram að þeim hefði gengið
illa – enduðu í 10. sæti af 62
pörum. Magnús gerir kröf-
ur.
Vestur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ ÁG3
♥ 1093
♦ 103
♣ ÁK1086
Vestur Austur
♠ K1074 ♠ D985
♥ ÁDG82 ♥ 754
♦ 4 ♦ D72
♣D53 ♣G92
Suður
♠ 62
♥ K6
♦ ÁKG9865
♣74
Vestur Norður Austur Suður
– Magnús – Gustawsson
1 hjarta 2 lauf Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
Vestur spilaði út hjartagosa,
sem Gustawsson tók með
kóng. Flestir myndu loka
augunum og taka ÁK í tígli
strax, en Gustawsson hafði
ekki upplýst spilin sín í
sögnum, svo hann ákvað að
leita til varnarinnar eftir að-
stoð. Fyrst spilaði hann laufi
upp á ás og síðan tígli úr
borði. Undarlegur millileik-
ur, en tilgangurinn var sá að
laða fram heiðarlega taln-
ingu í austur. Austur lét
sjöuna (hátt/lágt fyrir staka
tölu) og Gustawsson tók
með ás. Hann fór svo inn í
borð á laufkóng og spilaði
aftur tígli. Þegar þristurinn
kom frá austri ákvað Gust-
awsson að taka hann trúan-
legan og svínaði gosanum.
Lymskulega spilað og vel
hugsað. Magnús bendir
réttilega á að ef sagnhafi
leggur niður tígulás í öðrum
slag væri engin ástæða fyrir
austur að merkja lengd – því
það er ekki sama hvort lit er
spilað að heiman eða úr
borði. Þetta er góð ábending
sem spilarar ættu að setja á
sitt sálarprik.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Árnað heilla
60 ÁRA afmæli. Mánu-daginn 29. janúar
verður sextug Una Stefanía
Sigurðardóttir, forstöðu-
kona saumastofu Ríkisút-
varps-Sjónvarps, Fellasm-
ára 9, Kópavogi. Hún og
eiginmaður hennar Þór
Magnússon taka á móti ætt-
ingjum og vinum í sal
Starfsmannafélags Flug-
leiða, Síðumúla 11, sunnu-
daginn 28. janúar milli kl. 17
og 19.
Þessar duglegu stúlkur söfnuðu 5.000 kr. til Hjálparstarfs
kirkjunnar til styrktar barna í skuldaábyrgð. Þær heita
Eva Hrund Hlynsdóttir, Hugrún Snorradóttir og Unnur
Þórisdóttir.
Morgunblaðið/Þorkell
Hlutavelta
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman hinn 24. júní sl. í Há-
teigskirkju af sr. Sigurði
Grétari Sigurðssyni, presti á
Hvammstanga, Rúnar Þ.
Guðmundsson og Kristín
Ágústa Nathanaelsdóttir.
Með þeim á myndinni eru
börn þeirra, Aníta Rós Rún-
arsdóttir og Hlynur Daði
Rúnarsson.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 26. ágúst sl. í Laug-
arneskirkju af sr. Bjarna
Karlssyni Sigríður Ása
Sigurðardóttir og Gautur
Garðar Gunnlaugsson.
Heimili þeirra er í Eski-
hlíð 22, Reykjavík.
STAÐAN kom upp á Skák-
þingi Reykjavíkur sem
stendur yfir þessa dagana.
Svart hafði Stefán Krist-
jánsson (2.385) gegn Páli
Agnari Þórarinssyni
(2.225). 28. ...Hxa5! 29.
bxa5? Hvítur hefði getað
haldið taflinu gangandi með
29. Hxa5 Rxa5 30. bxa5 þó
að svartur standi vissulega
betur eftir t.d 30. ...e5 29.
...Rxc3 30. Rxe6
Örþrifaráð en 30.
Dxc3 var slæmt
sökum 30. ...Dxc5
og svartur stend-
ur til vinnings. 30.
...Rxd1 31. Rxf8
Rdb2 32. Rxg6
Dxg6 33. Df3
Bxd4 34. a6 Re5
35. Dg2 Ekki
gekk upp að leika
35. Dxd5 sökum
35. ...Dxg3+ og
svartur mátar. 35.
...Dg4 36. Kf1 Rf3
37. Ha3 Rc4 38. a7
Bxa7 39. Hxa7 Rcd2+ og
hvítur gafst upp, enda tapar
hann drottningunni eftir 40.
Ke2 Rh4+. Skákin í heild
sinni tefldist svona: 1. e4 e6
2. d4 d5 3. e5 c5 4. c3 Rc6 5.
Rf3 Rge7 6. a3 Rf5 7. b4
cxd4 8. cxd4 Bd7 9. Bb2 b5
10. Bxb5 Rxe5 11. Bxd7+
Rxd7 12. 0-0 Be7 13. Rbd2
a5 14. Bc3 axb4 15. axb4 0-0
16. Rb3 Dc7 17. Rc5 Rd6 18.
Dd3 Bf6 19. Rd2 Dc6 20.
Rdb3 Rb6 21. g3 g6 22. h4
Db5 23. Df3 Bg7 24. h5 Rbc4
25. hxg6 hxg6 26. Hfd1 Dc6
27. Dd3 Rb5 28. Ra5
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
KIRKJUSTARF
STARFSGREINAMESSA verður í
Landakirkju nk. sunnudag þar sem
starfsfólki Íslandsbanka-FBA og
Sparisjóðs Vestmannaeyja er boðið
sérstaklega til messu með fjölskyld-
um sínum auk annarra sem kirkjuna
sækja. Mun starfsfólk sparisjóðsins
og bankans setja svip sinn á mess-
una með þátttöku sinni, en lesari
verður frá hvoru fyrirtækinu, sem
lesa upp úr Ritningunni. Þá leggur
Sparisjóðurinn og Íslandsbanki-
FBA kökur og annað meðlæti á borð
með sér í kirkjukaffinu sem verður í
safnaðarheimilinu eftir messu. Allir
eru hjartanlega velkomnir og er
hvort tveggja alveg ókeypis, guðs-
orðið og kaffið. Eitt af markmiðum
með sérstakri starfsgreinamessu er
að vinnufélagar í sömu starfsgrein
geti komið saman með fjölskyldum
sínum undir öðrum kringumstæðum
en á vinnustaðnum. Kirkjukaffið á
eftir er líka kærkominn vettvangur
til að spjalla og kynnast betur í
stórum hópi í húsnæði Guðs.
Sr. Kristján Björnsson
Grafarvogskirkja. AA-hópur kl. 11.
Fríkirkjan Vegurinn: Fjölskyldu-
samkoma kl. 11. Brauðsbrotning.
Samkoma kl. 20. Brauðsbrotning.
Högni Valsson prédikar. Allir hjart-
anlega velkomnir.
KEFAS: Almenn samkoma kl 14.
Ræðumaður: Helga R. Ármanns-
dóttir. Mikil lofgjörð og fyrirbæn.
Kaffi og spjall að lokinni samkomu.
Allir hjartanlega velkomnir!
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl.
11 söngæfing hjá Litlum lærisvein-
um í safnaðarheimilinu.
Akraneskirkja. Kirkjuskóli kl. 11.
TTT-starf (10-12 ára) kl. 13. Umsjón:
Hreiðar Örn Stefánsson.
Hvammstangakirkja. Barnamessa
sunnudag kl. 11.
Útskálakirkja. Laugardagurinn 27.
janúar. Safnaðarheimilið Sæborg.
Kirkjuskólinn kl. 14.
Bankamannamessa
Safnaðarstarf
Landakirkja
LJÓÐABROT
Þú komst í hlaðið
Þú komst í hlaðið á hvítum hesti.
Þú komst með vor í augum þér.
Ég söng og fagnaði góðum gesti
og gaf þér hjartað í brjósti mér.
Ég heyri álengdar hófadyninn.
Ég horfi langt á eftir þér.
Og bjart er alltaf um bezta vininn,
og blítt er nafn hans á vörum mér.
Þó líði dagar og líði nætur,
má lengi rekja gömul spor.
Þó kuldinn næði um daladætur,
þær dreymir allar um sól og vor.
Davíð Stefánsson