Morgunblaðið - 27.01.2001, Qupperneq 61
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 61
Forsýnd í Stjörnubíói í kvöld kl. 20:00. Miðasala opnar kl. 14:30
Forsýnd á morgun sunnudag í Laugarásbíói kl. 22:15. Miðasala opnar kl. 15:00
Tryggið ykkur miða á þessa frábæru gamanmynd sem orðin er
stærsta og aðsóknarmesta mynd Mel Gibson frá upphafi!
ALMENN FORSÝNING Í KVÖLD OG Á MORGUN
Hann hefur hæfileikann
til að heyra
hugsanir kvenna.
Loksins... maður sem hlustar.
Stærri/Stinnari brjóst ?
Uppl‡singar um Erdic® í síma: 5640062 (virka daga 13-17) e›a á heimasí›u www.erdic.co.uk
SÁ SIÐUR tíðkast bæði hér á landi og erlendis að afhenda tónlistarmönn-
um svokallaðar „gullplötur“ fyrir framúrskarandi sölu. Hér á landi fá lista-
menn slíkar plötur ef þeir ná að selja meira en fimm þúsund eintök af
sömu plötunni.
Á fimmtudagskvöldið var þó brotið blað hvað varðar myndbandaútgáfu
á Íslandi því þá var afhent fyrsta „gullspólan“. Hana fékk einræðisherra
grínsins, Jón Gnarr, fyrir þann stórmerkilega árangur að hafa selt yfir
7.500 eintök af myndbandsspólunni „Ég var einu sinni nörd“.
Á myndbandinu var að finna upptöku af sýningu hans, sem bar sama
nafn, sem hann sýndi í lengri tíma við endalausar vinsældir í Loftkastal-
anum. Semsagt enginn Meðal-Jón heldur Eðal-Jón, einn á sviði að segja
brandara.
Blásið var til veislu á Hótel Borg af þessu tilefni þar sem Jón fékk við-
urkenningarskjöld og gullspóluna afhenta og var gestum boðið upp á létt-
ar veitingar.
Já, það getur borgað sig að vera fyndinn.
Jón Gnarr ásamt dóttur sinni, Margréti Eddu, og kær-
ustunni Jógu.
Hér tekur Jón við gullspólunni úr hendi Guð-
mundar Breiðfjörð, starfsmanns Norðurljósa.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þær hafa lík-
legast verið
gestum til
„vín-andlegs
stuðnings“,
blómarós-
irnar Kristín
Erla Jó-
hannsdóttir
og Snjólaug
Þorsteins-
dóttir.
Jón Gnarr fær afhenta gullspólu
Jón Gnarr,
gulls ígildi
Ævintýri Sebastian Cole
(The Adventures of Sebastian
Cole)
G a m a n / D r a m a
Leikstjórn og handrit: Tod Willi-
ams. Aðalhlutverk: Adrian Grenier,
Clark Gregg. (96 mín.) Bandaríkin
1999. Háskólabíó. Öllum leyfð.
HANN Sebastian Cole greyið á
ekki sjö dagana sæla. Hann er besta
skinn, ungur og efnilegur drengur
sem á þann draum heitastan að ger-
ast rithöfundur – skrifa skáldsögur.
En vandinn er bara sá að líf hans er
eins og ein löng og ólíkindaleg skáld-
saga. Foreldrar
hans eru einhvers
konar eilífðarhipp-
ar, ennþá svífandi
um á skræpóttu
sýruskýi, rótlaus
og vonlaus – í það
minnsta sem for-
eldrar því þau hlúa
einungis að sínum
eigin kenjóttu
þörfum. Þau er fyrir löngu skilin og
Cole og systir hans búa með móður
sinni og lögfræðingi sem þau virða
og unna. En einmitt þegar festa virð-
ist loksins komin á líf Coles tekur
stjúppabbinn þá örlagaríku ákvörð-
un að gerast kona. Við það skilja þau
móðir Coles, hún hverfur til Eng-
lands en eftir vonlaust flakk ákveður
Cole að búa með nýju stjúpmóður
sinni sem reynist þó erfiðara en hann
grunaði.
Það er aldeilis magnað hvernig
höfundinum Williams tekst að segja
þessa kengrugluðu sögu á svo raun-
sannan og trúverðugan máta. Út-
koman er í senn skemmtileg og
frumleg, hinn ungi Grenier sýnir
stjörnuleik og synd að sjá hann nú
leika í lafþunnum gelgjumyndum á
borð við Drive Me Crazy.
Skarphéðinn Guðmundsson
MYNDBÖND
Vaxandi verkir