Morgunblaðið - 17.03.2001, Page 15
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 15
AÐ MATI Samtaka um betri byggð
á höfuðborgarsvæðinu gæti verð-
mæti lóða í Vatnsmýrinni, ef flug-
völlurinn fer, numið um 51,6 millj-
örðum króna. Þetta kom fram á
blaðamannafundi sem samtökin
efndu til í fyrradag í tilefni af at-
kvæðagreiðslunni um framtíð flug-
vallarins.
Verðmatið byggist á 129 hektur-
um af lóðum, 2,3 milljónum fermetra
af húsum og 400 milljónir króna fyrir
hvern fermetra.
Samtökin bentu á þau ummæli
borgarstjórans í Reykjavík í fjöl-
miðlum nýlega að ríkið hefði árið
1999 verið tilbúið að selja borginni
sinn hlut í Vatnsmýrinni, sem er um
40% af væntanlegum byggingarlóð-
um, fyrir um 4 milljarða króna. Mið-
að við fermetrafjölda húsa upp á 2,3
milljónir og hlutfall af þessum lóðum
þýði það 70 milljarða króna lóðar-
verðmæti í heild.
Sumir borgarfulltrúar
ósamkvæmir sjálfum sér
Á fundinum í fyrradag bentu tals-
menn samtakanna einnig á „hróplegt
ósamræmi“ hjá sumum borgarfull-
trúum með því að hafa samþykkt
Staðardagskrá 21 fyrir Reykjavík en
lýst um leið yfir stuðningi við áfram-
haldandi flugrekstur í Vatnsmýrinni.
Sú umhverfisstefna gangi í þver-
öfuga átt við væntanlegt svæðis-
skipulag höfuðborgarsvæðisins með
flugvelli í Vatnsmýrinni. Þessir
borgarfulltrúar eru, að mati samtak-
anna, ósamkvæmir sjálfum sér í
veigamiklu máli sem varði framtíð-
arheill höfuðborgarbúa.
Flutningur skiptir ekki
sköpum fyrir sjúkraflugið
Samtökin benda á að væntanlegt
svæðisskipulag geri ráð fyrir 15%
aukningu aksturs á mann en árlegur
aksturskostnaður bíla á höfuðborg-
arsvæðinu sé nú um 100 milljarðar
króna. Benda þau jafnframt á að 25
þúsund manna byggð í Vatnsmýri
væri 8,5 km nær þyngdarpunkti höf-
uðborgarsvæðisins en sambærileg
byggð á t.d. Álfsnesi. Árlegur sparn-
aður í rekstri bílaflotans yrði því
a.m.k. 6 milljarðar króna. Ef flug-
völlurinn verði áfram í Vatnsmýrinni
og byggð haldi áfram að dreifast upp
til fjalla og með ströndinni þýði það
einungis aukna mengun og fleiri um-
ferðarslys. Á fundinum í fyrradag
var einnig lögð fram ályktun um
sjúkraflug í tengslum við Reykjavík-
urflugvöll, sem Stefán Matthíasson
læknir tók saman. Að mati hans mun
það engu breyta um öryggi sjúkra-
flutninga til sjúkrastofnana í
Reykjavík þótt flugvöllurinn í Vatns-
mýrinni verði færður á annað stað á
höfuðborgarsvæðinu.
Stefán Matthíasson bendir í þessu
sambandi á að flestir sjúklingar, sem
fluttir eru með flugvélum til borg-
arinnar, séu ekki það bráðveikir að
lenging flutningstímans um eina
klukkustund skipti sköpum, lang-
flestir bráðveikir sjúklingar komi
með þyrlu sem lendi á þartilgerðum
palli í Fossvoginum. Bendir hann á
150 tilvik slíks þyrluflugs í fyrra.
Telur Stefán, og taka samtökin
undir þetta mat, að verði flugvöllur í
Vatnsmýri lagður niður og flug flutt
til Keflavíkur megi með endurskipu-
lagningu sjúkraflugs með flugvélum
og bættum tengiflutningum til borg-
arinnar viðhalda álíka öryggi og er í
dag, og jafnvel bæta um betur.
Hann leggur einnig til að útgerð
sjúkraþyrlu gæti verið frá sérútbúnu
svæði á höfuðborgarsvæðinu eins og
tíðkist víða erlendis. Keflavík yrði
eftir sem áður varalendingarstaður.
Samtök um betri byggð
Meta Vatnsmýrina
á 51,6 milljarða
Morgunblaðið/RAX
Fulltrúar Samtaka um betri byggð á fundinum voru, frá vinstri, Örn
Sigurðsson, Steinunn Jóhannesdóttir og Gunnar H. Gunnarsson.
STARRI Heiðmarsson varði 3.
október doktorsritgerð í grasafræði
við Uppsalaháskóla og nefnist rit-
gerðin: Flokkunarfræði og þróun-
arsaga korpa
(Dermatocarpon)
með sérstakri
áherslu á norræn-
ar tegundir
(Taxonomy and
Phylogeny of
Dermatocarpon
(Verrucariales,
Lichenized As-
comycotina) with
Special Emphasis
on the Nordic Species). Aðalkennari
Starra var prófessor Leif Tibell í
Uppsölum en andmælandi við vörn-
ina dr. Martin Grube frá Karl-
Franzen-háskólanum í Graz í Aust-
urríki.
Korpur eru fléttur en flétta er
sambýli svepps og þörungs. Oftast er
það sveppurinn sem er ráðandi í
sambýlinu og bera fléttur nafn
sveppsins sem myndar þær. Flokk-
unarfræðilegar rannsóknir felast í
rannsóknum á eiginleikum einstakra
tegunda, ættkvísla, ætta, sem og
mörkunum á milli þeirra. Þróun-
arsaga er hins vegar rannsókn á
skyldleika tegundanna, ættkvíslanna
eða ættanna og gefur vísbendingar
um hvernig þróun hefur átt sér stað
innan hópsins sem rannsakaður er.
Doktorsverkefni Starra má skipta
í tvo hluta. Fyrri hlutinn fólst í flokk-
unarfræðilegri rannsókn á norræn-
um korputegundum (Dermatoc-
arpon), sem eru af fjörusvertuætt.
Þeirri rannsókn hefur verið komið til
skila í þremur tímaritsgreinum.
Fyrsta greinin birtist í tímaritinu
Bryologist og fjallaði um hélu sem
sumar tegundanna mynda á efra
borði og fyrrum var notuð til að-
greiningar á korputegundum. Með
hjálp rafeindasmásjár sýndi Starri
fram á að hélan er gerð úr dauðum
frumulögum og fer það eftir fjölda
frumulaganna hvort yfirborð þalsins
virðist hélað eða einungis gráleitt.
Önnur greinin birtist í tímaritinu
Annales botanici fennici og fjallar um
fjórar korputegundir og aðgreiningu
þeirra. Tölfræðilegar aðferðir er
nefnast PCA (Principal Component
Analysis) voru notaðar til að kanna
nákvæmlega aðgreiningu tveggja
tegundanna. Þriðja greinin er svo
heildarúttekt á öllum korputeg-
undum sem vaxa á Norðurlöndum
með nákvæmum lýsingum og grein-
ingarlykli og er sú grein í prentun í
tímaritinu Nordic Journal of Botany.
Seinni hluti doktorsverkefnisins
var svo þróunarsöguleg rannsókn á
hluta ættkvíslarinnar, byggð á rað-
greiningu ITS-hlutar DNA. Meg-
inmarkmiðið var að kanna tengsl
þriggja afbrigða tegundarinnar
þarmakorpu (Dermatocarpon mini-
atum), sem og tengsl þeirra við tvær
skyldar tegundir (D. leptophyllum
og D. linkolae). Til samanburðar
voru nokkrar aðrar tegundir af korp-
um einnig rannsakaðar, m.a. sýni af
nýrri tegund frá Arizona sem í útliti
minnir mjög á þarmakorpu. Skyld-
leikatengslin voru rannsökuð með
kláðugreiningu (cladistic analysis) og
myndar þarmakorpa einstofna hóp
ásamt D. leptophyllum og D. linkolae
en seinni tegundirnar tvær eru vist-
aðar inni í þarmakorpuhópnum og
eru því ekki sjálfstæðar tegundir.
Starri varð stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1989 og lauk
B.Sc.-prófi í líffræði frá Háskóla Ís-
lands 1992. Hann er ættaður úr
Húnavatnssýslu, sonur Heiðmars
Jónssonar frá Ártúnum og Helgu
Þórðardóttur frá Sauðanesi. Starri
er kvæntur Bergþóru Aradóttur
landfræðingi og eiga þau þrjú börn:
Þrúði, Eiri og Þorra. Fjölskyldan
býr við Eyjafjörð, Starri starfar við
Náttúrufræðistofnun Íslands, Ak-
ureyrarsetur, og stundar einkum
rannsóknir á íslenskum fléttum.
FÓLK
Varði dokt-
orsritgerð í
grasafræði
Starri Heið-
marsson
MANNRÉTTINDADÓMSTÓLL
Evrópu hefur vísað frá tveimur mál-
um gegn íslenska ríkinu vegna meints
vanhæfis Péturs Hafstein hæstarétt-
ardómara. Málunum var vísað frá eft-
ir frumskoðun um mitt ár í fyrra og í
fyrrahaust, en þar sem um frumskoð-
un var að ræða var engum kynnt nið-
urstaðan nema kærendum sjálfum.
Í öðru tilvikinu er um að ræða mál
Vífilfells ehf. og Péturs Björnssonar
gegn íslenska ríkinu, en kært var fyr-
ir brot á eignarréttarákvæði mann-
réttindasáttmála Evrópu vegna nið-
urstöðu hæstaréttardóms í skatta-
máli gegn fyrirtækinu. Einnig var
kærð seta Péturs Hafstein hæstarétt-
ardómara í málinu þar sem hún hefði
gert það að verkum að dómstóllinn
hefði ekki verið sjálfstæður og óvil-
hallur í skilningi 1. mgr. 6. gr. sátt-
málanas vegna hagsmunatengsla sem
stofnast hefðu vegna forsetaframboðs
Péturs á árinu 1996. Mannréttinda-
dómstóllinn féllst á hvorugt kæruefn-
ið.
Allar ákvarðanir verði kynntar
Hitt málið varðar kæru Jakobs
Ragnarssonar, en þar er einnig kært
vegna meints vanhæfis Péturs Haf-
stein hæstaréttardómara til setu í
máli kæranda. Kærunni var vísað frá
dómstólnum þar sem runninn var út
sex mánaða kærufrestur frá því
hæstaréttardómurinn var kveðinn
upp.
Þar sem um frumskoðun var að
ræða hjá Mannréttindadómstólnum
án þess að óskað væri eftir greinar-
gerð frá íslenska ríkinu var eingöngu
kærendum sjálfum kynnt niðurstað-
an. Hins vegar er unnt að fá niður-
stöðuna sé þess óskað eftir að ákvörð-
un liggur fyrir og er samkvæmt
upplýsingum dómsmálaráðuneytisins
stefnt að því að íslenska ríkið fari þess
formlega á leit að allar ákvarðanir
sem teknar eru hjá dómstólnum í
kærumálum gegn Íslandi verði
kynntar íslenska ríkinu.
Mannréttindadómstóll Evrópu í Strasbourg
Tveimur málum gegn
íslenska ríkinu vísað fráSKIPTAFUNDUR Stúdenta-ráðs fór fram sl. fimmtudags-
kvöld þar sem það Stúdenta-
ráð, sem kosið var 27. og 28.
febrúar, tók við og starfsárið
2001–2002 hófst. Valdahlutföll-
in í ráðinu héldust óbreytt í
kosningunum þannig að
Röskva hefur 11 fulltrúa en
Vaka 9.
Þorvarður Tjörvi Ólafsson
hagfræðinemi var kjörinn for-
maður Stúdentaráðs og tekur
hann við af Eiríki Jónssyni
laganema. Um leið urðu fram-
kvæmdastjóraskipti þegar
Dagný Jónsdóttir íslenskunemi
tók við af Hauki Þór Hannes-
syni verkfræðinema.
Ný forysta
í Stúd-
entaráði
ÞORSTEINN Einarsson, formað-
ur HK, var í vikunni útnefndur
Eldhugi Kópavogs 2001 af Rót-
arýklúbbi bæjarins. Viðurkenn-
inguna fékk hann fyrir áratuga
farsælt starf, en hann hefur verið
formaður HK í tæplega 20 ár.
Rótarýklubbur Kópavogs hefur
undanfarin ár valið einstakling úr
röðum Kópavogsbúa, sem með
sérstöku framtaki hefur vakið at-
hygli og umtal á þann hátt sem
samræmist anda og hugsjón Rót-
arý. Sá sem hlýtur viðurkenn-
inguna hverju sinni hefur yfirleitt
unnið sér eitthvað til afreka á
sviði lista eða menningar- eða
félagsmála.
Guðmundur Arason, formaður
viðurkenningarnefndar Rót-
arýklúbbsins, sagði að Þorsteinn
hefði síðastliðin 20 ár verið burð-
arásinn í uppbyggingu íþrótta- og
unglingastarfs HK.
Morgunblaðið/Golli
Guðmundur Þorvar Jónasson, forseti Rótarýklúbbs Kópavogs, til
vinstri, afhendir Þorsteini Einarssyni, formanni HK, Eldhugann.
Formaður HK valinn
Eldhugi Kópavogs
ELÍN Vigdís Hallvarðsdóttir,
fulltrúi lögreglustjórans í Reykja-
vík, segir lögregluna ekki hafa tek-
ið afstöðu til þess hvort skýrslu-
taka yfir stúlku, sem orðið hafði
fyrir meintu kynferðisbroti af
hendi stjúpföður síns, færi fram í
Barnahúsi eða í dómshúsi Reykja-
víkur.
Stjúpfaðir stúlkunnar var nýlega
sýknaður af ákæru um kynferðis-
brot gegn henni.
Elín Vigdís segist hins vegar
hafa lýst yfir áhyggjum yfir því að
rannsókn málsins kynni að spillast
vegna ágreinings um hvar skýrslu-
takan yfir stúlkunni ætti að fara
fram.
Í viðtali við Sif Konráðsdóttur,
hrl., réttargæslumann stúlkunnar,
sem birtist í Morgunblaðinu á
fimmtudag gagnrýndi hún lögregl-
una fyrir að styðja ekki kröfu sína
um að yfirheyrslur færu fram í
Barnahúsi. Lögreglan hafi þess í
stað bókað andstöðu sína við því
þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir um
hið gagnstæða.
Elín Vigdís átti að vera fulltrúi
lögreglu og ákæruvaldsins við yf-
irheyrslur yfir stúlkunni. Elín Vig-
dís sagði í samtali við Morgunblað-
ið að þegar Sif hefði lagt fram
kröfu þann 8. september um að
skýrslutakan yfir stúlkunni færi
fram í Barnahúsi en ekki í dóms-
húsinu hefði orðið ljóst að málið
myndi tefjast allverulega. Því hefði
hún lagst gegn þessari kröfu.
Eftir að Hæstiréttur hafði stað-
fest úrskurð Héraðsdóms Reykja-
víkur um að skýrslutakan gæti far-
ið fram í dómshúsinu varð ljóst að
stúlkan myndi ekki mæta í dóms-
húsið. Þá lýsti Elín Vigdís þeirri
skoðun ákæruvaldsins að þetta
myndi gera lögreglu erfitt um vik
að halda áfram rannsókn þessa
máls þar sem ekki yrði hægt að
taka skýrslu af barninu fyrir dómi.
Lögreglan tók ekki afstöðu til
þess hvar skýrslutaka færi fram
Lýsti áhyggjum yfir
því að deilur gætu
spillt rannsókn