Morgunblaðið - 17.03.2001, Blaðsíða 24
LANDIÐ
24 LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Í GÖMLUBÚÐ á Höfn verður opn-
uð í dag, laugardag, kl. 14 far-
andsýning á teikningum norrænna
barna. Sýningin er árangur af
teikni- og ritunarsamkeppni sem
var skipulögð af Norrænu ráð-
herranefndinni og Norðurlanda-
ráði á haustdögum í Noregi árið
2000, undir yfirskriftinni Norræn
sérkenni. Sýningin fer um öll
Norðurlöndin en er aðeins sett
upp á tveimur stöðum á Íslandi;
fyrst á Höfn í Hornafirði og ferð
þaðan til Reykjavíkur.
Öllum efri bekkjum grunnskóla
á Norðurlöndum var boðin þátt-
taka í samkeppninni og alls bárust
1.239 teikningar frá Íslandi, Sví-
þjóð, Finnlandi, Álandseyjum,
Færeyjum, Danmörku og Noregi
og er úrval af myndunum á þess-
ari farandsýningu. Einnig var
útbúið kver, Lestu og lærðu, sem
hefur að geyma valda texta úr
keppninni, þar sem ungmennin
lýsa því hvernig þeim finnst að
eiga heima á Norðurlöndum.
Kverið liggur frammi á sýning-
arstað.
Saga byggðar á Höfn
Sýningin verður opin tvær
næstu helgar kl. 14–17 og gefst
fólki um leið tækifæri á að skoða
byggðasafnið. Ókeypis aðgangur.
Nú stendur yfir sýningin Saga
byggðar á Höfn í Pakkhúsinu. Á
sýningunni eru skipulagsupp-
drættir frá árinu 1920 fram til árs-
ins 2001, gamlar myndir frá
byggðinni og nýlegt líkan af Höfn.
Í sýningarkössum er hægt að sjá
fundargerðarbækur frá ýmsum
tímum byggingarnefndar bæj-
arins.
Bæði bindin af Sögu Hafnar í
Hornafirði eru svo og til sýnis.
Sýningin er opin frá 14–17.
Norræn sérkenni –
sýning á listsköpun barna
Listamaðurinn sem teiknaði þessa mynd heitir Kine Djupevåg Fristad og er í Olsvik-skóla í Noregi.
ÞJÓÐAHÁTÍÐ Vestfirðinga verður
sett í Súðavík í dag. Þetta er í fjórða
sinn á jafnmörgum árum sem slík há-
tíð er haldin og að sögn Magnúsar
Ólafs Hanssonar, framkvæmdastjóra
Þjóðahátíðarinnar, taka liðlega 40
þjóðerni þátt að þessu sinni en vel á
fimmta hundrað manns af erlendu
bergi brotnu eru nú búsett á Vest-
fjörðum.
Magnús segir Alþjóðadag Samein-
uðu þjóðanna gegn kynþáttafordóm-
um hafa verið kveikjuna að því að
fyrsta hátíðin var haldin árið 1998 en
hann er 21. mars ár hvert. „Upphaf-
lega voru það nokkrar konur sem
byrjuðu á þessu en markmið þeirra
var að hér skyldi rísa nýbúamiðstöð,“
segir hann. „Þær vildu ná saman
þeim gríðarlega mannauði, sem býr í
því fólki, sem hingað hefur flutt frá
öðrum löndum á nokkra staði hér á
Vestfjörðum, þannig að Íslendingar
sem aðrir gætu nýtt sér þeirra
reynslu.“
Síðan fyrsta hátíðin var haldin hef-
ur hún stöðugt undið upp á sig. Að
þessu sinni mun hún teygja sig yfir
vikutíma. Hátíðinni er einnig dreift á
mismunandi staði á Vestfjörðum eftir
dögum.
Opnunarhátíðin í dag hefst klukkan
tvö í íþróttahúsi og grunnskóla Súða-
víkur með blandaðri hátíðardagskrá á
sviði þar sem meðal annars verður
boðið upp á fjölbreytta tónlistardag-
skrá. Þá verður myndlistarsýning
grunn- og leikskólanema þar sem tólf
verk verða verðlaunuð sérstaklega.
Dagskráin yfir vikuna verður fjöl-
breytt. Má þar nefna kynningu á ís-
lensku samfélagi sem verður í sal
Menntaskólans á Ísafirði og hefst
klukkan 14 á morgun og í kjölfar
hennar, klukkan 15, verður kaffiboð
að hætti Pólverja.
„Mikill
mannauður
í nýbúum“
Þjóðahátíð sett á Vestfjörðum í dag
Selfossi - 67 konur gengu í Kven-
félag Selfoss á konukvöldi sem
félagið gekkst fyrir nýverið og jókst
félagatalan þetta kvöld um 63%.
Félagskonur voru 107 en urðu 174
og telja konur þetta vera landsmet
ef ekki heimsmet en altént er þetta
einsdæmi. Um 230 konur á öllum
aldri komu á konukvöldið hjá kven-
félaginu og skemmtu sér mjög vel.
Þetta kvöld bauð Hótel Selfoss
konunum upp á kvöldverð á tilboð-
inu tveir fyrir einn og síðan tók við
fjölbreytt dagskrá, þar á meðal
ferðakynning frá Suðurgarði,
strengjasveit frá Tónlistarskóla Ár-
nesinga spilaði, leikkonan Sigrún
Sól var með leikþátt og gamanmál
og Jóna Guðrún Kristinsdóttir söng.
Þá var tískusýning þar sem kven-
félagskonur sýndu fatnað frá versl-
uninni Lindinni, Snyrtistofa Ólafar
sá um snyrtingu og Hártískuhúsið
Centrum og Ózon önnuðust hár-
greiðsluna. Þá var kynning á förð-
unarlínunni Kanebo og Majorica-
perlur voru til sölu.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Frá tískusýningunni á konukvöldi kvenfélagsins.
67 konur gengu
í kvenfélagið á einu kvöldi
Bíldudal - Kennarar í skólum í Vest-
urbyggð og á Tálknafirði héldu sam-
eiginlegan fund í Bíldudalsskóla ný-
lega þar sem fjallað var m.a. um
samnýtingu gagna og gæða skólanna
og ýmis fyrirhuguð samstarfsverk-
efni bæði meðal kennara og nem-
enda. Margar góðar hugmyndir
komu eining fram um vettvangsferð-
ir eins og ferð í Byggðasafnið að
Hnjóti, út í Selárdal og til Hrafns-
eyrar svo eitthvað sé nefnt.
Á fundinn kom Andrés Guð-
mundsson frá Símenntunarstofnun
og hélt hann fyrirlestur og fræðslu
um lífsleikni.
Morgunblaðið/Nanna Sjöfn
Kennarar í skólum í Vesturbyggð og á Tálknafirði héldu sameiginlegan
fund í Bíldudalsskóla.
Samstarfsdagur kennara
ÁRNI Bragason, forstjóri Náttúru-
verndar ríkisins, segir stofnunina
hafa verktaka á sínum snærum sem
sjái um allar meindýravarnir í þjóð-
garðinum á Jökulsárgljúfrum þar
sem hvorki refur né minkur sé frið-
lýstur.
„Minkur hefur alltaf verið veiddur í
þjóðgarðinum en minna hefur verið
um refaveiðar. Þegar grunur liggur á
um dýrbít er þó auðvitað gripið til við-
eigandi ráðstafana og við stöndum
auðvitað ekki í vegi fyrir slíku,“ segir
Árni. Auk þessa er í sumar fyrirhugað
faglegt mat á stofnstærð refa og
minka bæði þar og í þjóðgarðinum í
Skaftafelli þar sem þéttleiki stofn-
anna verður kannaður.
Árni segir Árna Loga Sigurbjörns-
son, hjá Meindýravörnum Íslands á
Húsavík, því hafa farið með rangt mál
í viðtali við Morgunblaðið sem birt var
á fimmtudag, þar sem hann segir að
ekki megi eyða minki í þjóðgarðinum í
Jökulsárglúfrum, þar sem Náttúru-
vernd ríkisins hafi friðlýst svæðið.
Hvorki minkur né
refur friðlýstur
Fáskrúðsfirði - Hreppsnefnd Búða-
hrepps voru nýlega færðar gjafir.
Björg Lilja Jónsdóttir og börn hennar
hafa gefið forláta sófasett er áður var í
eigu franskra nunna er voru á Fá-
skrúðsfirði snemma á öldinni sem leið.
Í gjafabréfi sem fylgir með gjöfinni er
þess getið að hún sé gefin til minn-
ingar um franska sjómenn.
Björg Lilja og eiginmaður hennar,
Finnbogi Jóhann Indriðason, sem nú
er látinn, keyptu sófasettið eftir að
starfsemi Franska spítalans lauk
1929, en það var notað í stássstofu
nunnanna í Franska spítalanum á Fá-
skrúðsfirði. Þegar starfsemi spítal-
ans lauk voru flestir munir seldir á
uppboði. Í gjafabréfinu segir að
þetta sófasett hafi verið fyrsta og
eina sófasettið er þau hjón áttu.
Fyrir nokkrum árum var tekin
ákvörðun um að koma upp safni á
Fáskrúðsfirði til minningar um
franska tíma. Safni þessu hefur verið
valinn staður á lofti ráðhússins og
þar má sjá sófasettið ásamt mynd af
frönsku húsunum á Fáskrúðsfirði
sem einnig var gefin af sömu aðilum.
Hreppsnefnd Búðahrepps þakkar
höfðinglega gjöf.
Búðahreppi færðar gjafir
úr Franska spítalanum
Morgunblaðið/Albert Kemp
Sófasettið forláta sem Búðahreppi hefur verið gefið.