Morgunblaðið - 17.03.2001, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 17.03.2001, Blaðsíða 59
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 59 Í DAG, 17. mars 2016, er efni til þess að rifja upp að nú eru liðin sextán ár frá því að for- seti okkar og þáverandi borgarstjóri lét kjósa um skipulag í vestur- borginni og fékk sam- þykkt að fjarlægja flug- völl, reyndar í óþökk allrar landsbyggðar- innar. Margt hefur á dag- ana drifið síðan og það var strax í þá daga erf- itt að spá um um fram- tíðina. Klukkan er að verða níu og hraðlestin Skagi- Kjal-Mos, sem borgarstjórinn vígði í gær, er að renna inn á brautarstöðina í Smári-Miðborg. Fyrir einni mínútu kom lestin Sel-Vest inn á brautarpall 2 en lestin Suður-Hafn er í einnar mínútu seinkun vegna fokösku á tein- unum. Smábílar, sem komu með norðan- lestinni, aka frá borði og þeir sem ætla norður aka um borð. Farþegar streyma inn á leið til vinnu í Smára- borg, taka búss eða festa sér korta- bíl, sem þeir síðan geta skilið eftir á hvaða kortabílastæði sem er í borg- inni. Ég sit notalega á kaffihúsi undir hvolfþakinu í Smáraborg, þrátt fyrir norðangarrann úti, og les þessa grein inn í nýjan gemsa og sé textann á sýndarpappír jafnóðum um e-skjá- inn. Áður en ég fer sér bio-gemsinn um að greiða fyrir kaffi og vínar- brauð 5,50 (sérkennilegt að mjólkur- lítrinn kostar í dag nákvæmlega eina evru). Þróun atvinnuvega Það hefur með tímanum orðið æ ljósara að hreint vatn, orka og mat- væli eru þær nauðsynjar sem heim- urinn þarfnast og þær hefur Ísland í ríkum mæli. Fiskveiðarnar sem nú eru í hönd- um tveggja fyrirtækja eru reknar af ýtrustu hagkvæmni og nýta mjög lít- ið vinnuafl. Iðnaður í tengslum við álvinnsluna hefur aukist verulega og sérstaklega á Austurlandi enda hefur verð á áli stórhækkað. Að öðru leyti hefur fjórðungurinn braggast vegna út- gerðar, ferðamennsku og Evrópu- tengsla. Fólksfjöldi hefur margfald- ast. Þetta hefur krafist aukinna flugsamgangna milli Austur- og Vesturlands. Áföll Það skal rifjað upp að efnahags- ástandið er á góðri uppleið eftir kreppuna, sem skall á um 2008 í kjöl- far verðhækkunar á olíuvörum, sem varð þegar Arabaríkin náðu undir- tökum á olíumörkuðum og hækkuðu verðið vegna fyrirsjáanlegrar olíu- þurrðar síðar á öldinni. Þetta kom sér mjög illa í þróunarríkjunum en einnig sérstaklega í Bandaríkjunum, sem fundu til fulls fyrir hækkuninni, sem leiddi þar til hruns, enda áttu þau heimsmet í orkusó- un. Efnahagsbandalag- ið fór betur út úr þessu þar sem ríkisstjórnir gáfu eftir skatta á bens- íni til almennings og settu aftur í gang kjarnorkuver, sem hafði verið lokað. Bandaríkjamenn hættu að standa undir kostnaði við Keflavík- urflugvöll og rekstur- inn var í framhaldi seld- ur Arab Air með nokkurri hlutdeild Atlanta. Svo vel vildi þó til að um þessar mundir hafði verið þróuð ný gerð raf- hlaðna fyrir farartæki, einkum bíla og skip, og þess vegna eru næstum öll þessi farartæki núna rafdrifin en verð á bensíni hefur fjórfaldast frá aldamótum. Kína, fjarlægari Austurlönd og Arabaríkin eru núna ráðandi heims- veldi eftir hrunið í USA og Sovétríkj- unum þar áður. Sem fyrr reynist jafnvel ein vika langur tími í heimspólitíkinni. Innanlandsmál Sá ótrúlegi atburður átti sér stað eitt haustið að stórstraumsflóð, afar djúp lægð og ofsaveður úr vestri olli miklum sjávargangi á gömlu höfninni og sjór fæddi um kvosina, bjórbúllur fylltust af sjó og vatnsborð í Tjörn- inni hækkaði um allt að einn metra. Þetta olli skemmdum á ráðhúsinu þar sem flotkraftur bílageymslanna varð meiri en þungi hússins svo að það flaut upp um 25 cm að sunnan- verðu. Húsið hefur verið ónothæft síðan. Þá varð lítið eldgos á Reykjanesi en landsynningurinn, sem var í gos- byrjun, feykti öskunni framhjá þétt- býli og hún dreifðist yfir óbyggt svæði vestan við álver Ísals. Hið ólíklega verður alltaf afar lík- legt eftir að það er skeð! Hátækni og vísindi Líftækniiðnaðurinn man sinn fífil fegri en í augsýn er samkomulag milli líftæknifyrirtækjanna og – ekki læknafélagsins – heldur sjúklinga- samtakanna eftir að Alþingi sam- þykkti lög þess efnis að sjúklingar ættu öll gögn um sig sjálfa. Hugbúnaðariðnaðurinn hefur tek- ið miklum framförum þar eð nú hefur svokallað Moors-lögmál um sífellda smækkun tölvanna runnið sitt skeið og fyrirtækin geta betur snúið sér að háþróaðri forritagerð. Rannsóknir á starfsemi limbiska hluta heilans hafa leitt til skilnings á þeim tengingum, sem leiða til sjálfs- vitundar. Nú er þetta forritað í nýjar líf- eða bio-tölvur og tölvutæki. Komin er út bók um stjórnmála- fræði eftir Davíð Oddsson. Þróun höfuðborgarsvæðisins Sameinuð sveitarfélög á suðvest- urhorninu eiga í nokkrum erfiðleik- um með sameiginlegt nafn vegna sanngirniskröfu eiganda miðborgar- innar, Smáraborgar, að stórborgin heiti einfaldlega Kópavogur. Lönguskerjaflokkurinn fékk því loks framgengt í kosningum fyrir sex árum að erlent fjármagnsfyrirtæki frá Hollandi var fengið til þess að gera úttekt á flugvelli á Lönguskerj- um. Hollendingarnir bentu strax á þann möguleika að byggja sjóvarnar- garð milli Álftaness og golfvallarins á Seltjarnarnesi og þurrka landið inn- an við. Þessari framkvæmd er nú ný- lokið og auk þess er komin smábáta- höfn utan garðsins. Sögulegt við landfyllinguna er að í henni voru urð- aðir um 20 þúsund ryðgaðir jeppar. Grunnvatninu er dælt út í sjó með sjávarfallaafli, sem er ný hollensk uppfinning, fyrst notuð hér. Þessi framkvæmd kostaði bara 50 milljónir og þarna fengust 600 hektarar lands, sem er metið á 600 milljónir. Ákveðið var eftir að Lönguskerjaflokkurinn datt út úr borgarstjórn að nýta svæð- ið sem útivistarsvæði. Flugvöllurinn í Vatnsmýrinni, er í góðu ástandi þótt lítið hafi verið sinnt flugaðstöðunni. Flugvöllurinn er aðili að samtökum miðborgarflugvalla, London City Airport, Schiphol í Randstadt og Kastrup í Kaupmanna- höfn. Borgarstjórnin ákvað árið 2010 að halda flugvellinum á sínum stað, enda er hann alveg í útjaðri borg- arinnar í vestri og er ómissandi fyrir innanlandsflug, sjúkraflug og land- helgisgæslu. Þannig fór það mál í heilan hring. Þétting byggðar varð ekkert for- gangsverkefni þegar umferðarmálin leystust eftir að lestirnar komu og samstaða náðist um að sjarmi Reykjavíkur er fólginn í dreifbýlinu, sem íbúar í erlendum stórborgum þrá og leita eftir. Anno domini 2016 Björn Kristinsson Framtíðarsýn Hollendingarnir bentu strax á þann möguleika að byggja sjóvarnar- garð milli Álftaness og golfvallarins á Seltjarn- arnesi og þurrka landið innan við, segir Björn Kristinsson í „bréfi til vinar“. Höfundur er prófessor í verkfræði. SENN þurfa Reyk- víkingar að gera upp hug sinn til flugvallar- ins í Vatnsmýri. Um- ræðan hefur þó ekki alltaf verið nógu mark- viss og á stundum virð- ast sumir beinlínis vilja drepa málinu á dreif. Þá hefur borið á því að stuðningsmenn flug- vallarins vilji etja sam- an höfuðborgarbúum og landsbyggðarbúum í flugfæri við bæinn (um 18,5% landsmanna). Í því skyni hafa þeir brugðið á það fals að segja kosningarnar snúast um það hvort innanlandsflugið eigi að vera í Reykjavík eða Keflavík. En kosning- arnar snúast ekki um það hvar innan- landsflugið eigi að vera, heldur hvar það á ekki að vera. Öflugustu vinir flugvallarins eru vafalaust starfsmenn á flugvallar- svæðinu. Fyrir undanfarnar borgar- stjórnarkosningar hafa þeir kvatt frambjóðendur á sinn fund og gert þeim grein fyrir því að starfsmenn- irnir og fjölskyldur þeirra myndu kjósa blint gegn þeim, sem hygðust hrófla við vellinum. Það munar um minna en 1.200 atkvæði og því hafa flokkarnir haldið sig á mottunni. Borgarstjórnarfulltrúar beggja flokka hafa sagt mér að svona sé þetta og engin von sé til þess að annar hvor beiti sér pólitískt í málinu. Annar hópur flugvallarvina eru op- inberir embættismenn, sem hafa rof- ið trúnað við almenning með því að taka ákveðna pólitíska afstöðu í mál- inu í stað þess að vera hlutlausir tæknilegir umsagnaraðilar. Ein ástæða þessa er fremur sérkennileg. Keflavíkurflugvöllur heyrir undir ut- anríkisráðuneytið en ekki samgöngu- ráðuneytið og flugmálastjóra. Þess vegna vilja þeir að Reykjavík- urflugvöllur sé sem mestur og bestur, því annars væri dýrasta djásnið á Eg- ilsstöðum og þeir sennilegast líka! Í þriðja lagi má telja til dreifbýlisfólk og áhyggjur þess eru sennilegast veigamestar í umræðunni. Það óar við því að lengra verði í miðbæinn frá flugvellinum og þannig muni ferða- tími þess lengjast sem því nemur, ekki síst ef innanlandsflugið yrði flutt til Keflavíkur. Þessi rök eru hins veg- ar léttvæg í ljósi þess að fjöldi nær- tækari kosta hefur verið til nefndur og svo má ekki gleyma því að Vatns- mýrin er ekkert sérlega miðsvæðis lengur. Nema náttúrlega fyrir þing- menn utan af landi, sem finnst afar þægilegt að vera aðeins 5 mínútur frá flugvelli að Austurvelli. Árni Johnsen er fljótari niður á þing á morgnana frá Vestmannaeyjum en frá heimili sínu í Breiðholtinu. Áhyggjur dreifbýlisfólks eru þó að mörgu leyti réttmætar, einkum fyrir Vestmanneyinga og Vestfirðinga, sem oft veðurteppast hér syðra vegna vondra veðra heima fyrir og þurfa að komast á völlinn með skömmum fyr- irvara loks þegar fleygt er. En sá vandi snýr kannski fremur að betri innanbæjarsamgöngum en öðru, enda væri sjálfsagt styttra fyrir flesta að komast á Bessastaðanes en suður í innanlandsafgreiðsluna í Skerjafirði eins og umferðaræðunum er nú hátt- að. Þá hefur verið bent á að sjúkraflug yrði tafsamara ef flugið yrði flutt. Málið er þó flóknara, því þyrlur eru jafnan notaðar þegar mest liggur við og þær geta lent beint við sjúkrahúsin. Þá eru fæstir sjúklinganna í bráðri hættu, enda hef- ur Brynjólfur Mogen- sen, sviðsstjóri slysa- og bráðaþjónustusviðs Landspítalans, kveðið upp úr um það, að ná- lægð innanlandsflug- vallar við sjúkrahús sé vissulega æskileg en ekki lífsnauðsynleg. En af hverju ætti flugvöllurinn að fara? Nú hafa verið raktar nokkrar ástæður fyrir því hvers vegna mér finnst rök flugvallarvina ekki þung á metunum. En hvers vegna er flug- völlurinn í Vatnsmýri svo ómögu- legur að verja ætti milljörðum króna til þess að flytja hann? Einfaldasta svarið við því er það að við munum þvert á móti stórgræða á því að flytja hann, því landið sem nú er sóað undir flugvöllinn er afar verðmætt. Menn greinir á um hversu verðmætt það sé, en það er örugglega ekki undir 15 milljörðum. Og það eru ótal aðrir fjárhagslegir ávinningar af því að flytja völlinn og rýma til fyrir byggð. Ný byggð í Reykjavík hefur síðast- liðin ár verið að fikra sig æ lengra út á land með auknum tilkostnaði vegna stóraukins aksturs og tröllaukins veitukerfis. Frekari útþensla (og auk- inn kostnaður) er óhjákvæmileg nema til komi þétting byggðar og hún mun ekki eiga sér stað í grónum hverfum í neinni bráð. Eini raunveru- legi kosturinn í þeim efnum er ein- mitt nýting Vatnsmýrarinnar. Öryggismálin koma líka við sögu, því ekki verður framhjá því litið að flugslys verða oftar við flugvelli en annars staðar og þau valda mestum skaða ef brakið lendir í byggð. Við þessu er eitt og aðeins eitt ráð, en það er að koma flugvöllum fyrir utan þétt- býlis, því lunginn af flugslysum á sér stað innan fimm mínútna frá flugtaki eða lendingu. Altjent leggja menn ekki flugvelli í þéttri byggð, allra síst inni í miðjum borgum. Þá er rétt að minnast á það lýti, sem flugvöllurinn er í hjarta borgar- innar. Sóðaskapurinn bendir til þess að „hollvinirnir“ séu ekki jafn hollir og þeir vilja vera láta, að ógleymdri þeirri mengun, sem viðgengist hefur nánast óheft. Þá þarf vart að fjölyrða um hljóðmengunina, en á höfuðborg- arsvæðinu þurfa nú um 20.000 manns að þola flugvéladyn yfir hávaðamörk- um daglega. Enn ein ástæða er sú að ekki veitir af því að stækka miðbæinn okkar, hleypa nýju lífi í hann og fóstra um leið háskólann og þekkingarþorpið, sem þegar er farið myndast í kring- um hann. Þessu skyld er spurningin af hverju fólk býr í borgum. Ég held að þegar á öllu er á botninn hvolft sé það vegna þess að maður er manns gaman. En hitt veit ég fyrir víst, að enginn hefur ákveðið að setjast að í borg vegna þess að þar væri svo ljómandi góður flugvöllur. Því skora ég á Reykvíkinga að nota tækifærið til þess að kjósa flugvöllinn burt úr Vatnsmýri. Verði það raunin hafa menn 15 ár til þess að undirbúa flutninginn. Þegar hafa komið fram nokkrir ágætir flugvallarkostir á höf- uðborgarsvæðinu og fleiri munu vafa- laust bætast við á næstu árum. Það er kosið um mikilvægasta skipulagsmál borgarinnar um áratugaskeið og borgarbúar verða að vera óhræddir við að segja, að þeir kjósi að hjarta borgarinnar verði lagt undir fólk fremur en flugvélar. Fólk fremur en flugvélar Andrés Magnússon Höfundur er í stjórn samtakanna 102 Reykjavík. Flugvöllur Árni Johnsen er fljótari niður á þing frá Vestmannaeyjum, segir Andrés Magnússon, en frá heimili sínu í Breiðholti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.