Morgunblaðið - 17.03.2001, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 17.03.2001, Blaðsíða 35
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 35 Á TÓNLEIKUM Sinfóníuhljóm- sveitar áhugamanna sem hefjast á morgun kl. 17, verða frumflutt tvö ný íslensk tónverk eftir Óliver Kentish, Sonnetta fyrir strengja- sveit og hörpu og Triptych fyrir selló og strengjasveit. Þá verður fluttur ljóðaflokkurinn Sumarnætur eftir Hector Berlioz. Sigrún Jóns- dóttir syngur þar einsöng en Gunn- ar Kvaran mun leika einleik í frum- flutningi tónverksins Tryptich. Óliver Kentish mun stjórna sveit- inni á tónleikunum á morgun, sem eru þeir fimmtu á þessu starfsári. Hann hefur stjórnað sveitinni á ein- um tónleikum á ári undanfarið, og var það að hans tillögu að sveitin frumflytur verk eftir hann nú. „Sin- fóníuhljómsveit áhugamanna hefur verið ötul við það að frumflytja verk eftir íslensk tónskáld og hefur með framtaki sínu skapað okkur tón- skáldum mikilvægan vettvang,“ seg- ir hann. Sinfóníuhljómsveit áhugamanna hefur starfað óslitið frá árinu 1990 og kemur hún jafnan komið fram opinberlega nokkrum sinnum á ári. Sveitin veitir áhugafólki í hljóðfæra- leik tækifæri til að stunda tónlist og nemendum til aukins þroska og þjálfunar í hljómsveitarleik. Auk þess nýtist hún starfandi tónlistar- kennurum sem vettvangur til að við- halda færni sinni í hljóðfæraleik. Ingvar Jónasson hefur verið aðal- stjórnandi og driffjöður hljómsveit- arinnar frá upphafi. Ljóðrænt og hæglátt Efnisskráin hefst á flutningi á Sonnettu fyrir strengjasveit og hörpu og segir Óliver þar vera um nokkurs konar tækifærisverk að ræða. Megininntak verksins er sótt í lokalínur XVIII. sonnettu Shake- speares í þýðingu Daníels Á. Dan- íelssonar: „uns augu ei sjá né bifast barmur manns, / minn bragur lifir – þú í línum hans“. Verkið er jafn- framt uppbyggt líkt og sonnetta, þar sem þrír meginkaflar samsvara þremur fjögurra lína hendingum en niðurlagið er hugsað sem lokalín- urnar tvær. „Það er mikil ró yfir verkinu, og segja má að það lýsi blendnum tilfinningum. Það má raunar skilgreina verkið ýmist sem ástarljóð eða harmljóð, allt eftir því hvernig áheyrandinn upplifir það,“ segir Óliver. Tónverkið Triptych fyrir selló og strengi er öllu meira verk, en það tekur um 25 mínútur í flutningi og verður á dagskrá eftir hlé. „Verkið var samið með Gunnar Kvaran sellóleikara í huga og var hann svo vinsamlegur að taka það að sér að frumflytja það,“ segir tónskáldið. Triptych er tregafullt verk, sem samið er í minningu stjúpföður og tengdamóður Ólivers en þau létust bæði fyrir tveimur árum. „Tryptich merkir „altaristafla í þremur hlut- um“, en í raun er hér um að ræða tvö verk sem ég skeyti saman í eitt. Fyrsti og síðasti hlutinn fjalla um stjúpföður minn en miðhlutinn, Tregróf, er um tengdamóður mína. Ég kalla þetta í raun hugleiðingu í þremur hlutum fyrir selló og strengi. Þetta er mjög hægfara og innhverf tónlist, en sellóið fær m.a. það hlutverk að túlka hið innra líf mannsins.“ Óliver segir að um sé að ræða frumflutning á hljómsveitargerð Ljóðaflokksins Sumarnætur eftir Berlioz. „Sem er nokkuð merkilegt, þar sem um er að ræða rúmlega 150 ára gamalt verk. Þetta er mjög sér- stök tónlist, en segja má að Berlioz hafi verið á undan sínum samtíma í verkinu. Það er hárómantískt, tært og viðkvæmnislegt verk.“ Óliver bendir á að verkin á efnis- skránni myndi ákveðna heild, þau séu öll á mjög ljóðrænum og hæg- látum nótum sem reyni nokkuð á hljómsveitina sem þarf stöðugt að hemja sig og leggja sig eftir því að halda hinum hæga tóni. Óliver segist að lokum þakklátur fyrir að fá tækifæri til að stjórna hljómsveitinni og fá verk verkin sín frumflutt. „Sveitin vinnur ákaflega gott starf og er sífellt að eflast. Þetta er mikilvæg starfsemi og er hún vonandi komin til að vera. Ég vil því hvetja fólk til að koma og hlýða á tónleikana á morgun.“ Tón- leikarnir hefjast sem fyrr segir kl. 17 og verða haldnir í Neskirkju við Hagatorg. Sinfóníuhljómsveit áhugamanna heldur tónleika í Neskirkju á morgun „Sveitin hefur unnið ötult starf við að frumflytja íslensk verk“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Sinfóníuhljómsveit áhugamanna ásamt Sigrúnu Jónsdóttur messósópran og Óliver Kentish stjórnanda. ÚTGÁFUFYRIRTÆKIÐ Genealogia Islandorum, Gen.is, hefur gert starfslokasamning við Þorstein Jónsson, ætt- fræðing og út- gáfustjóra Sögusteins, sem annast ættfræðiút- gáfu innan Gen.is. Tryggvi Pét- ursson, stjórn- arformaður Gen.is, segir starfslokasamninginn hafa ver- ið gerðan í fullu bróðerni við Þorstein og að fyrirtækið hyggi á breytingar í rekstri sínum. „Þorsteinn hefur átt þátt í uppbyggingu fyrirtækisins og nú er tími til kominn að það þróist áfram. Þannig ganga málin gjarnan fyrir sig þegar verið er að byggja upp fyrir- tæki. Þetta hefur verið gert í bróðerni og án nokkurra átaka,“ segir Tryggvi. Nýlega lét Jóhann Páll Valdimarsson, fyrrum fram- kvæmdastjóri Gen.is og út- gáfustjóri dótturfyrirtækisins JPV-forlag, af störfum hjá fyr- irtækinu, og stofnaði ásamt nokkrum aðilum eigið hluta- félag, JPV-útgáfu. Tryggvi segir þær breytingar hafa verið eðlilegt framhald af þróun fyr- irtækisins, þar sem starf Jó- hanns Páls á vegum JPV-for- lags, hafi ekki átt nægilega heima í starfsemi Gen.is. Tryggvi segir jafnframt að breytingar séu framundan hjá fyrirtækinu sem skýrist á næstunni. Breyt- ingar í rekstri Gen.is Þorsteinn Jónsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.