Morgunblaðið - 17.03.2001, Blaðsíða 84

Morgunblaðið - 17.03.2001, Blaðsíða 84
FÓLK Í FRÉTTUM 84 LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ ER ÖLL sköpun list og ef ekki, hve- nær hættir hún þá að vera það? Þær hafa örugglega verið margar rökræð- urnar í gegnum tíðina um hina eilífu árekstra dægurmenningar og „há- menningar“. Smekkur manna er mis- jafn og það hefur ekkert að gera með greind eða næmi hvort fólk leyfir sér blygðunarlaust að hafa gaman af því sem þarfnast ekki mikils aðlögunar- tíma. Það er einmitt þessi eilífa um- ræða sem er kjarninn í þeirri gam- ansemi og þeim vitsmunalegu vangaveltum sem gera leikritið Já, hamingjan eftir Kristján Þórð Hrafnsson, sem sýnt er á Litla sviði Þjóðleikhússins, svo áhugavert. Svo skemmtilega vill líka til að leikstjór- inn Melkorka Tekla Ólafsdóttir er unnusta Kristjáns. Leikararnir eru tveir, þeir Pálmi Gestsson og Baldur Trausti Hreins- son, sem leika bræður með afar ólík viðhorf til lífsins og horfa þeir afar misjöfnum augum á menningar- heima. Leikritið er skemmtilega upp- byggt, óslitnar rökræður milli bræðr- anna frá byrjun til enda. Í ljósi þessara einstöku tengsla milli höfundar og leikstjóra er vel við hæfi að spyrja parið hvort þessar rökræður eigi sér hliðstæðu í heim- ilislífi þeirra. „(Hlær.) Nei, ekki á nokkurn hátt,“ svarar Kristján og hann og Melkorka hlæja í takt, líta hvort til annars og brosa á svipaðan máta. „Þetta er al- farið skáldskapur og bara hugmyndir sem ég steypti saman. Mig langaði til þess að skrifa gamanleikrit og gera tilraunir með húmorinn. Láta hann byggjast á því óvænta og reyna að vekja undrun og koma áhorfandan- um á óvart. Auk þess sem okkur að- standendum sýningarinnar finnst gaman að vita til þess að áhorfendur skuli hlæja og skemmta sér skiptir það okkur líka miklu máli að verkið virðist vekja heilabrot og skilja eitt- hvað eftir sig.“ „Eitt af því sem mér fannst svo spennandi við að setja þetta leikrit upp er að það kemur inn á svo margt sem skiptir okkur máli í okkar sam- tíma,“ bætir Melkorka við. „Það er mjög sterkt leiðarstef í því. Það er verið að fást við þessa þörf okkar í nútímanum fyrir andlegt líf.“ „Þetta er leikrit sem fjallar um mikilvægi húmorsins í mannlífinu og hvað hann skiptir miklu máli. Hvað hann getur hjálpað fólki mikið við að takast á við lífið og tilveruna,“ segir Kristján. Kaldhæðna kynslóðin Eldri bróðirinn, sem leikinn er kostulega af Pálma, er frekar stífur maður og algjör klaufi í mannlegum samskiptum. Það kemur því dálítið á óvart að inn á milli veltur ýmislegt upp úr honum sem er afskaplega vel ígrundað. „Hann er ofsalega reglufastur og treystir eiginlega algjörlega á rök- hugsun, reglu og formfestu en yngri bróðirinn treystir meira á innsæi og tilfinningar,“ útskýrir Kristján. „Mér þykir ofsalega vænt um þá báða, mér finnst þeir báðir hafa heilmikið til síns máls. Mig langaði einmitt að skrifa leikrit sem væri fyndið en ekki kaldhæðið. Ég held að það sé ákveðin hætta á því í okkar samfélagi að kald- hæðnin drepi niður einlægnina, að kaldhæðnin hindri fólk í því að fjalla um það sem raunverulega skiptir máli.“ „Þrátt fyrir að sá eldri sé sá sem lendir í því hlutverki að áhorfendur hlæja að honum hefur hann heilmikið til síns máls líka,“ bætir Melkorka við. „Til dæmis er í verkinu og upp- setningu þess lögð áhersla á að vekja samúð með þeim báðum.“ „Eldri bróðirinn er hálfgerður klaufi í mannlegum samskiptum og það er kannski vegna þessa klaufa- skapar sem ýmsar spaugilegar að- stæður verksins skapast,“ segir Kristján. „Hann trúir á að það sé hægt að leysa öll vandamál lífsins á skipulagðan hátt.“ Bræðurnir í okkur öllum Hvort sér Melkorka meira af Kristjáni í yngri eða eldri bróðurn- um? „(Hlær.) Ég verð nú að segja að í samskiptum svipar honum meira til yngri bróðurins, sem betur fer.“ En finnur hún hluta af sjálfri sér í öðrum hvorum? „Ég er nákvæmlega eins og eldri bróðirinn (hlær). Nei, nei, í raun og veru ekki. Ég held að það sé bara mikið af eldri og yngri bróðurnum í okkur öllum í einhverjum mæli.“ „Já, þetta er góður punktur,“ segir Kristján áhugasamur. „Þeir standa fyrir tvær ólíkar hliðar í fólki sem eru kannski misríkjandi í hverjum og ein- um. Maður hefur upplifað að margir sjá í þessum tveimur einstaklingum mannlega eiginleika sem þeir þekkja mjög vel úr sínu umhverfi þótt það sé kannski í ólíkri mynd; ákveðna eig- inleika sem snerta framkomu, sam- skipti og afstöðu til lífsins. Það má eiginlega segja að þetta leikrit snúist um þá baráttu mannsins að reyna að hafa stjórn á lífi sínu. Hvernig mann- eskjan bregst við mótlæti og þeirri staðreynd að í mannlegum samskipt- um skiptast á gleði og sársauki. Að lífið er fullt af húmor og sársauka og hve mannleg samskipti geta verið flókin.“ Fyrir helgi var leikverkinu pakkað ofan í ferðatösku. Leikritið var í gær- kveldi, og verður aftur í kvöld, sýnt á Ísafirði. En þær slóðir eru báðum leikurum líklegast aldrei fjarri huga. „Baldur Trausti er frá Ísafirði og Pálmi er frá Bolungarvík, sem er næsti bær við,“ útskýrir Melkorka. „Þannig að leikararnir eru á heima- slóðum.“ Er kaldhæðnin að drepa einlægnina? Þeir sem eiga það að áhugamáli að hlera líflegar rökræður ókunnugra eiga líklega eftir að njóta sín á leikritinu Já, hamingjan. Birgir Örn Steinarsson hitti höfund verksins, Kristján Þórð Hrafnsson, og leikstjórann, Melkorku Teklu Ólafsdóttur, og ræddi við þau um verkið. Morgunblaðið/Jim Smart Kristján Þórður Hrafnsson og Melkorka Tekla Ólafsdóttir. Leikritið Já, hamingjan sýnt á Litla sviði Þjóðleikhússins GRÆNLENSKIR dagar standa nú yfir í Fjörukránni í Hafnarfirði og var formleg opnunarhátíð haldin þar síðastliðið miðvikudagskvöld. Að sögn Jóhannesar Viðars Bjarnasonar, veitingamanns í Fjörukránni, er tilgangur þess- arra daga að efla frekar það sam- starf sem hefur verið að þróast milli Íslands, Grænlands og Fær- eyja, ekki síst með tilkomu vest- norræna Gisti- og kúltúrhússins við Fjörukrána. Benedikte Thorsteinsson, sem sæti á í framkvæmdanefnd Græn- lensku daganna, setti opnunarhá- tíðina og trommudansarinn Anda Kuitsi sýndi listir sínar. Síðan hófst borðhald í Fjöugarðinum þar sem framreiddur var græn- lenskur hátíðarmatur. Árni Johnsen alþingismaður var veislustjóri, en hann er líklega einn mesti Grænlandsvinur sem Ísland hefur alið síðan Eiríkur rauði var og hét enda hefur hann ferðast vítt og breitt um landið og er hafsjór af fróðleik um Græn- land og grænlenska menningu. Árni fór líka létt með að stjórna veislunni, gerði það með „trukki og dýfu“, eins og hans var von og vísa og lét sig ekki muna um að stjórna fjöldasöng á grænlensku. Í forrétt voru bornar fram rækjur í salati og í aðalrétt var sauðnaut og svartfugl. Eftirrétt- urinn var svo bláberjaís með rjóma, en ýmislegt fleira verður á boðstólum á Grænlensku dög- unum, svo sem hreindýrasteik, ristað krabbakjöt, steikt loðna, laxacarpaccio og rabarbaraterta svo eitthvað sé nefnt, allt borið fram að hætti Grænlendinga. Undir borðum skemmti söng- konan Ida Heinrich með græn- lenskum söngvum og hljómsveitin Qarsoq tók lagið, en hljómsveitin þykir í fremstu röð grænlenskra dægurlagahljómsveita. Auk þess- ara skemmtikrafta munu koma fram á Grænlensku dögunum fjöl- margir fleiri skemmtikraftar og listamenn frá Grænlandi, auk þess sem fyrirlestrar verða fluttir í Vestnorræna kúltúrhúsinu, en Grænlensku dögunum lýkur 1. apríl næstkomandi. Grænlenskir dagar á Fjörukránni Íslenskir ferðamálafrömuðir létu sig ekki vanta á opnunarhátíðina og hér má sjá Kjartan Lárusson, Birgi Þorgilsson og Ragnheiði Gröndal. Fjöldi þjóðlegra skemmtiatriða var í boði, þ. á m. hefðbundinn græn- lenskur trommudans að hætti Anda Kuitsi. Grænlandsvinurinn Árni Johnsen stjórnaði veislunni. Morgunblaðið/Ásdís X-mennirnir (X-Men) S p e n n u m y n d  Leikstjóri: Bryan Singer. Handrit: David Hayter. Aðalhlutverk: Halle Berry, Hugh Jackman, Patrick Stewart, Ian McKellen. (104 mín.) Skífan. Bönnuð innan 12 ára. GAMLAR og nýjar ofurhetjur myndasagnanna eru tíðir gestir á hvíta tjaldinu og njóta þar gjarnan mikilla vinsælda. En þótt myndasög- ur séu að mestu hættar að taka ofur- hetjur sem dulbúa sig í litskrúðugum búningum alvar- lega, halda kvik- myndirnar jafnan í þessa gamaldags framsetningu. Hetjurnar taka hlutverk sitt alvar- lega, illmennin eru virkilega vond og gleraugu teljast gott dulargervi. Kvikmyndin X-mennirnir er tvennt í senn, skref fram á við fyrir ofurhetju- kvikmyndina að því leytinu að áhersla er lögð á mannlega dýpt sögupersón- anna, en eftir því sem á líður kemst klisjukennd hasaratburðarás í for- grunn og ánægjan af því að horfa á myndina fjarar að mestu út. Heiða Jóhannsdótt ir MYNDBÖND Ofurhetjur í vígahug
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.