Morgunblaðið - 17.03.2001, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 17.03.2001, Blaðsíða 57
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 57 BENT Larsen hefur nú jafnað sig eftir erfið veikindi og er meðal þátttakenda á sterku lokuðu skák- móti í Pinamar í Argentínu. Lar- sen er þó ekki eini skákmaðurinn af sinni kynslóð á mótinu, því arg- entínski stórmeistarinn og verk- fræðingurinn Oscar Panno er einnig meðal þátttakenda. Þessir tveir skákmenn eru báðir fæddir 1935 og eru því jafnaldrar Frið- riks Ólafssonar. Pinamar er við strönd Argentínu, ekki langt frá Mar del Plata, þar sem mörg sögufræg skákmót hafa verið haldin og þar hafa þeir allir teflt, Friðrik, Larsen og Panno. Panno sigraði reyndar tvívegis á Mar del Plata mótinu, í fyrra skiptið fyrir tæpri hálfri öld, árið 1954. Eftir sjö umferðir á mótinu þurftu þeir Larsen og Panno ekki að kvarta yfir árangrinum, voru báðir taplausir og einungis hálfum vinningi á eftir Alejandro Hoff- man sem var efstur með 5 vinn- inga. Í áttundu umferð mætti Panno Bernardo Roselli og samdi um jafntefli eftir stutta viðureign. Larsen hafði hins vegar svart gegn sænska stórmeistaranum Ulf Andersson, sem var jafn hon- um að vinningum. Andersson fékk þægilegri stöðu og eftir 50 leiki varð Larsen að sætta sig við sitt fyrsta tap á mótinu. Hoffman gerði jafntefli við Pablo Ricardi og því er Panno enn meðal efstu manna. Staða efstu manna eftir átta umferðir: 1.–2. Alejandro Hoffman og Ulf Andersson 5½ v. 3.–4. Oscar Panno og Carlos Garcia Palermo 5 v. 5.–8. Bent Larsen, Pablo Ric- ardi, Sergio Giardelli og Jorge Szmetan 4½ v. o.s.frv. Bandaríkin – Kína Kínverjar hafa lagt mikla áherslu á skák á undanförnum ár- um og árangurinn lætur ekki á sér standa. Um þessar mundir stendur yfir landskeppni milli Bandaríkjanna og Kína. Keppnin fer fram í Seattle og það er bandaríski stórmeistarinn Yasser Seirawan sem skipuleggur hana. Tefldar verða fjórar umferðir á 10 borðum. Á efstu sex borðunum eru sterkustu meistarar hvors lands, en á neðstu borðunum mætast sterkustu konur og ung- lingar landanna. Fyrstu umferð lauk með sigri Bandaríkjanna, 5½–4½. Annarri umferð lauk síðan með jafntefli 5–5 og Bandaríkjamenn héldu því vinningsforskoti sínu. Keppninni lýkur á sunnudag. Tomas Oral atskák- meistari Grandrokks Tékkneski stórmeistarinn Tom- as Oral vann sigur á meistaramóti Skákfélags Grandrokk í atskák sem fram fór á sunnudaginn. Oral hlaut sex og hálfan vinning í sjö umferðum. Í öðru sæti varð Ró- bert Harðarson með fimm og hálf- an vinning og bronsið hreppti Tómas Björnsson með fimm vinn- inga. Tomas Oral, sem er 23 ára og varð stórmeistari í skák fyrir þremur árum, er fyrsti stórmeist- arinn sem teflir undir merkjum Skákfélags Grandrokk. Á atskák- mótinu tefldi hann afar vel, en þurfti þó að hafa fyrir jafntefli gegn Róbert í fjórðu umferð. Þeir Róbert voru efstir fyrir síðustu umferð en þá tapaði Róbert fyrir Tómasi Björnssyni meðan stór- meistarinn sigraði Sveinbjörn Jónsson. Jafnir í fjórða til fimmta sæti urðu Flovin Þór Næs og Rógvi Rasmussen með fjóra vinn- inga, næstur kom Einar K. Ein- arsson með þrjá og hálfan en þrjá vinninga hlutu Páll Gunnarsson, Hrafn Jökulsson, Grímur Gríms- son, Birgir Berndsen, Arnar Ing- ólfsson og Sveinbjörn Jónsson og Hrannar Jónsson hlaut tvo og hálfan vinning, en neðst allra varð „Jakobína“, slypp og snauð einsog fyrri daginn. Umhugsunartími var 15 mínútur á skák. Um kvöldið var svo haldin uppskeruhátíð skákfélagsins þar sem því var fagnað að þau þrjú markmið, sem sett voru áður en seinni hluti deildakeppninnar hófst, náðust öll. C-sveit félagsins sigraði í fjórðu deild og fylgdi þar með í kjölfar A- og B-sveitanna. B-sveitin, sem var neðst í þriðju deild eftir fyrri hlutann, rétti úr kútnum með glæsibrag, sigraði í öllum umferðunum í seinni hlut- anum og hafnaði í fjórða til fimmta sæti. Í annarri deild sýndi A-liðið styrk sinn í síðustu umferð þegar það þurfti nauðsynlega að sigra sterka Skagamenn, sem voru þá í þriðja sæti deildarinnar, á öllum borðum. Það tókst og fyrsta deildarsætið var í höfn. Á uppskeruhátíðinni var Róbert Harðarson útnefndur „Skákmaður ársins 2000“ hjá Skákfélagi Grandrokk og hlaut í viðurkenn- ingarskyni forkunnarfagran grip úr rammíslensku byggingarefni. Róbert hefur verið fyrirliði A- sveitar Skákfélags Grandrokk frá upphafi og leitt hana úr 4. deild og upp í þá fyrstu. Hann hefur jafnan verið fremstur meðal jafn- inga í Skákfélaginu og viðurkenn- inguna hlaut hann ekki síður fyrir framúrskarandi félagsanda og óeigingjarnt starf í þágu félagsins. Þá var og efnt til hins árlega tvískákarmóts og eftir harða bar- áttu sigruðu Tómas Björnsson og Grímur Grímsson meistara síð- asta árs, Róbert Harðarson og Hrafn Jökulsson. Næst kom lið Hörpu Ingólfsdóttur og Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur, sem voru sérstakir gestir á hátíðinni. Tom- as Oral náði ekki að blanda sér í toppbaráttuna en með honum tefldu til skiptis Jón Brynjar Jónsson og Karl Hjaltested. Stór- meistarinn Helgi Áss Grétarsson sem ásamt konu sinni, Lenku Ptacnikova, var heiðursgestur kvöldsins, náði ekki heldur að blanda sér í toppbaráttuna, en hann naut fulltingis Björgvins G. Sigurðssonar framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar. Glæsileg verðlaun í VN- mótaröðinni í skák Viðskiptanetið mun í samvinnu við Skákfélag Grandrokk efna til skákhátíðar á næstu vikum með það fyrir augum að finna snjall- asta hraðskákmann landsins. Þátttökurétt hafa allir skákmenn, að stórmeist- urum undanskildum, og fyrstu verðlaun eru mjög vegleg: 70 þúsund króna inneign á Viðskiptanets- reikningi, sem hægt er að nota til kaupa á vöru og þjónustu hjá aðildar- fyrirtækjum Viðskipta- netsins hf., en aðildarfyr- irtæki Viðskiptanetsins eru yfir 1000 talsins. Með stuðningi við Skákfélag Grandrokk vill „Við- skiptanetið leggja sitt af mörkum til eflingar al- menns skákáhuga í land- inu og framgangs þess- arar göfugu íþróttar“. Laugardagana 17. og 24. mars, klukkan 14 fara fram tvö úrtökumót á Grandrokk, Smiðjustíg 6. Tefldar verða níu um- ferðir skv. Monrad-kerfi og komast átta efstu menn af hvoru móti áfram í úrslitakeppni sem haldin verður laug- ardaginn 31. mars. Þar keppa sextán skákmenn með útsláttar- fyrirkomulagi, fjórar skákir í hverri umferð, uns einn stendur uppi sem sigurvegari með nafn- bótina VN-meistarinn 2001. Sá sem lendir í öðru sæti hlýtur 20 þúsund króna inneign á Viðskipta- netsreikningi en auk þess verður dregið um hvaða tveir keppendur til viðbótar úr 16 manna úrslit- unum hljóta 20 þúsund króna inn- eign hvor. Þátttakendur þurfa að skrá sig til leiks hjá Hrafni Jökulssyni í síma 897-1609 eða með tölvupósti (hrafnj@yahoo.com). Mars-skemmtikvöld TR Annað skemmtikvöld TR verð- ur haldið laugardaginn 17. mars kl. 20. Allir eru velkomnir, en ald- urstakmark er þó 18 ár. Þátttöku- gjald er 500 kr. og rennur það til styrktar tölvuvers TR sem verið er að setja upp. Dagskrá kvölds- ins er: 1) Skákskýringar og kynn- ing á forritunum ChessBase og ChessAssistant. 2) Forgjafarskák- mót (9 umf.). 3) Létt partý- stemmning til 1. Pitsur, snakk og gos verða í boði TR en menn geta síðan keypt sér léttar veitingar á kostnaðarverði. Skemmtikvöldið fer fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12. Rétt er að benda á að skemmti- kvöld TR eru ótengd skemmti- kvöldum skákáhugamanna, sem haldin hafa verið um árabil, þótt nafngiftin sé svipuð. Netskákmót Reykjavíkur Netskákmót Reykjavíkur er nýtt mót sem TR gengst fyrir. Mótið fer fram á ICC-skákþjón- inum 18. mars og þarf að skrá sig í síðasta lagi fyrir kl. 19:30 á sunnudeginum. Aðeins Íslending- um er heimiluð þátttaka. Sigurvegari hlýtur að launum farandbikar, Aðalsteinsbikarinn, sem gefinn er af Magnúsi V. Pét- urssyni, skákáhugamanni og fyrr- verandi milliríkjadómara m.m. auk þess sem peningaverðlaun og frímánuðir á ICC verða í boði. Hægt er að skrá sig í mótið með tölvupósti (rz@itn.is). Skákmót á næstunni 17.3. Grand. VN-mótaröðin 17.3. TR. Skemmtikvöld TR 18.3. SA. Mars-hraðskákmótið 18.3. TR. Netskákmót Reykja- víkur 22.3. SA. Skylduleikjamót 25.3. SA. Parakeppni 26.3. Hellir. Hraðskákmót Hellis 29.3. TK. Hraðskákmót Kópa- vogs 30.3. Skákþing Norðlendinga Larsen enn að Oscar Panno SKÁK A r g e n t í n a PINAMAR-SKÁKMÓTIÐ 8.–18.3 2001 Daði Örn Jónsson AFHENDING sveinsbréfa í blikk- smíði fór fram 2. febrúar sl. Það voru Félag blikksmiðjueigenda og Bíliðnafélagið/Félag blikksmiða sem að venju stóðu fyrir fagnaði vegna afhendingarinnar. Fimm nýsveinar tóku við skír- teinum sínum úr hendi Einar Gunn- arssonar sem bauð nemana vel- komna í Bíliðnafélagið/Félag blikksmiða. Kolviður Helgason, for- maður Félags blikksmiðjueigenda, tók til máls fyrir hönd meistaranna og óskaði hinunm nýútskrifuðu vel- farnaðar í framtíðinni. Þeir sem útskrifuðust voru Elvar Þ. Óskarsson, Jón Svavarsson, Rík- harður K. Magnússon, Sigurður Óli Ingvarsson og Valdimar Valdi- marsson. Frá afhendingu sveinsbréfa. Á myndinni eru nýsveinarnir ásamt sveins- prófsnefnd og meisturum. Afhending sveins- skírteina í blikksmíði AÐALFUNDUR Félags sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara (FSSS) hinn 10. febrúar sl. mótmælir harðlega þeirri skerðingu á sjúkraþjálfun sem Tryggingastofnun ríkisins boðar með auglýsingu í desemberhefti lækna- blaðsins sem og í dreifibréfi hinn 29. desember 2000, segir í ályktun frá félaginu. Einnig segir: „Fundurinn mótmælir þeirri óvirðingu sem TR sýnir sjúkraþjálfurum, háskóla- menntaðri fagstétt og telur slíka framkomu ekki samboðna stofnun eins og TR. Það vekur furðu að tryggingayfirlæknir skuli hvetja lækna til að sýna aðgát í að vísa sjúk- lingum í sjúkraþjálfun þar sem út- gjöld vegna sjúkraþjálfunar hafi auk- ist. Útgjöld til sjúkraþjálfunar hafa hins vegar aukist mun minna en lyfja- kostnaður, sérfræðikostnaður, iðju- þjálfun o.fl. Stöðu sinnar vegna ætti tryggingayfirlækni að vera fullljósar ástæður þess að kostnaður vegna sjúkraþjálfunar hefur aukist en þar má nefna breyttar áherslur í heil- brigðiskerfinu, aukinn fjölda aldr- aðra o.fl. Þá átelur fundurinn vinnu- brögð varðandi kröfu um tíðari greinargerðir sjúkraþjálfara þar sem að auki er ekki tekið mark á umbeðn- um greinargerðum heldur eru þær sendar tilvísandi lækni til samþykkt- ar eða synjunar gegn þóknun. Slík vinnubrögð telur aðalfundur FSSS algjörlega óviðeigandi og bendir á að ekki var samið um tíðari greinargerð- ir í nýgerðu samkomulagi TR og FÍSÞ. Aðalfundur FSSS krefst þess að tryggingaráð endurskoði afstöðu sína til skiptafjölda í sjúkraþjálfun. Sú breyting sem tryggingaráð sam- þykkti um sl. áramót er ekki aðeins ósanngjörn og ófagleg heldur mun koma harðast niður á þeim sem síst skyldi, þ.e. fötluðum, öldruðum og ör- yrkjum. Skerðing á virkri sjúkra- þjálfun mun fyrr eða síðar leiða til frekari kostnaðar annars staðar,“ segir m.a. í ályktuninni. Mótmæla skerðingu á sjúkraþjálfun Á MIÐSTJÓRNARFUNDI Frjáls- lynda flokksins, 15. mars 2001, var eftirfarandi yfirlýsing samþykkt vegna nýrrar skýrslu Byggðastofn- unar: „Frá upphafi hefur Frjálslyndi flokkurinn hamrað á þeim stað- reyndum að núgildandi fiskveiði- stjórn væri eyðibyggðastefna stjórnvalda, sem hrekti íbúa sjáv- arbyggðanna frá eignum sínum og störfum. Jafnlengi hafa stjórnvöld og fylgifiskar þeirra beitt peninga- afli sægreifa og þjónkun fjölmiðla til að leyna þeim staðreyndum og telja almenningi trú um að Íslendingar byggju við ,,besta fiskveiðistjórnar- kerfi í veröldinni“. Gilti einu þótt við blasti að skuldir sjávarútvegsins hlæðust upp í stjarnfræðilegar tölur og kvóta,,eigendur" hrifsuðu til sín þjóðarauðinn í skjóli ríkisstjórnar- flokkanna. Nú hefur hinsvegar svo borið til, að Byggðastofnun þykist skyndilega hafa uppgötvað kaldar staðreyndir málsins og birtir í nýrri skýrslu. Svo er að sjá að þingmenn Vest- firðinga og Byggðastjórnarmenn, Kristinn H. Gunnarsson og Einar K. Guðfinnsson, hafi þurft að hafa fyrir augum 40 auðar íbúðir í bæn- um sínum til þess að augu þeirra opnuðust. Hvorki þeir né neinir aðr- ir ábyrgðarmenn kvótakerfisins eiga neina afsökun þar sem afleið- ingarnar hafa blasað við um margra ára skeið. Frjálslyndi flokkurinn ítrekar fyrri kröfur sínar um að fiskveiði- stjórnarkerfinu verði þegar í stað kastað fyrir róða.“ Ítreka fyrri kröfur um afnám fiskveiðistjórnarkerfisins HVERNIG virka GPS-staðsetning- artækin? Af hverju þarf að kunna á áttavita ef maður hefur aðgang að slíku tæki? Stöðugt fleiri leggja land undir fót og ferðast um fjöll og firn- indi á Íslandi. Það getur verið villu- gjarnt og rétt að kunna fótum sínum forráð. Ferðafélag Íslands ákvað því að efna til námskeiðs í rötun í sam- vinnu við Íslenska alpaklúbbinn. Um er að ræða námskeið, sem stendur í tvö kvöld og einn dag. Fyrsta kvöldið verður farið yfir notkun áttavita og korta og seinna kvöldið verða kynntir möguleikar GPS-staðsetningartækja. Laugar- daginn 24. mars verður svo verkleg æfing utandyra. Menn eru sammála um að til að nota GPS-tæki sé nauð- synlegt að kunna vel á áttavita og því er þetta tekið saman. Einungis er hægt að taka allt námskeiðið, sem byrjar 19. mars. 21. mars verður kennt á GPS-tæki og laugard. 24. mars verður verkleg æf- ing eins og áður sagði. Skráning á skrifstofu Ferðafélags Íslands er forsenda þátttöku. Námskeið í rötun hjá FÍ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.