Morgunblaðið - 17.03.2001, Blaðsíða 80
DAGBÓK
80 LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Hafnarfjarðarhöfn: Ým-
ir og Rán komu í gær.
Askur og Kriscitie koma
í dag. Elianna og Hvíta-
nes fóru í gær.
Fréttir
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði,
fundur í Gerðubergi á
þriðjud. kl. 17.30.
Mannamót
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50
„Grænlenskir dagar“.
Fjörukráin býður
félagsmönnum í
Félagi eldri borgara í
Hafnarfirði á Græn-
lenska daga í Fjöru-
kránni á morgun, sunnu-
daginn 18. mars, kl.
15:30. Grænlandskynn-
ing og kaffiveitingar.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10–13. Matur í hádeginu.
Mánudagur: Brids kl. 13
Þriðjudagur: Skák kl.
13.30, afhending verð-
launa fyrir meist-
aramótið. Leikhópurinn
Snúður og Snælda sýna,
„Gamlar perlur“ sem
eru þættir valdir úr
fimm gömlum, þekktum
verkum. Sýningar eru á
miðvikudögum kl. 14 og
sunnudögum kl. 17, í Ás-
garði Glæsibæ. Ath.
allra síðustu sýningar.
Miðapantanir í símum
588-2111, 568-9082 og
551-2203. Göngu-
Hrólfar fara í létta
göngu frá Ásgarði kl. 10
á miðvikudagsmorgun.
Baldvin Tryggvason
verður til viðtals um
fjármál og leiðbeiningar
um þau mál á skrifstofu
FEB fimmtudaginn 22.
mars kl. 11–12. Panta
þarf tíma. Dagsferð
verður farin í Grindavík-
Bláa lónið-Reykjanes 2.
apríl. Brottför kl. 10 frá
Ásgarði, Glæsibæ.
Skráning hafin á skrif-
stofu FEB. Silfurlínan
opin á mánudögum og
miðvikudögum frá kl.
10–12. Ath. skrifstofa
FEB er opin frá kl. 10–
16. Upplýsingar í síma
588 2111.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Félagsvist á
Garðaholti í boði Kven-
félags Garðabæjar 22.
mars kl. 19.30 . Rútu-
ferðir samkvæmt áætl-
un. Vorfagnaður í
Kirkjuhvoli í boði Odd-
fellow 29. mars kl. 19.30.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðjud. og fimmtud. kl.
13–16.30, spil og föndur.
Pútttímar í Íþróttahús-
inu á Varmá kl. 10–11 á
laugardögum.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund og leikfimiæfingar
í Breiðholtslaug falla
niður á mánudaginn.
Boccia á þriðjudögum kl.
13 og á föstudögum kl.
9.30, umsjón Óla Stína.
Veitingar í kaffihúsi
Gerðubergs. Allar upp-
lýsingar á staðnum og í
síma 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Einmánaðarfagnaður og
handverksmarkaður
verða í Gjábakka
fimmtudaginn 22. mars.
Þeir sem áhuga hafa á að
selja þar handverk sitt
vinsamlegast bókið sem
fyrst.
Vesturgata 7. Heimboð
á bókamarkað Iðunnar
og Fróða á Suðurlands-
braut 8 miðvikudaginn
21. mars. Lagt af stað
frá Vesturgötu kl. 13.15.
Upplýsingar og skrán-
ing í síma 562 7077, eða í
afgreiðslu.
Kirkjustarf aldraðra,
Digraneskirkju. Opið
hús þriðjudag frá kl. 11.
Leikfimi, matur, helgi-
stund og fræðsla. Verið
velkomin.
Félagsstarf SÁÁ
Félagsvist í Hreyfilshús-
inu (3. hæð) laugardaga
kl. 20. Allir velkomnir.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Nánari
uppl. á skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra
skemmtifundur verður
haldinn í Ásgarði,
Glæsibæ, laugardaginn
24. mars kl. 14–16.
Ávarp flytur Ísólfur
Gylfi Pálmason.
Vinabandið leiðir söng
og dans. Allir velkomnir.
GA-fundir spilafíkla,
eru kl. 18.15 á mánudög-
um í Seltjarnarneskirkju
(kjallara), kl. 20.30 á
fimmtudögum í fræðslu-
deild SÁA, Síðumúla
3–5, og í Kirkju Óháða
safnaðarins við Háteigs-
veg á laugardögum kl.
10.30.
Hríseyingafélagið.
Hríseyingar, bingó verð-
ur í Skipholti 70, sunnu-
dagin 18. mars kl. 14.
Góðir vinningar. M.a.
aðalvinningur: vikudvöl í
sumarhúsi í Hrísey. Allir
velkomnir.
Minningarkort
MS-félag Íslands. Minn-
ingarkort MS-félagsins
eru afgreidd á Sléttu-
vegi 5, Rvk, og í síma
568-8620 og myndrita s.
568-8688.
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheimer-
sjúklinga. Minning-
arkort eru afgreidd alla
daga í s. 533-1088 eða í
bréfs. 533-1086.
Heilavernd. Minning-
arkort fást á eftirtöldum
stöðum: í síma 588-9220
(gíró) Holtsapóteki,
Vesturbæjarapóteki,
Hafnarfjarðarapóteki,
Keflavíkurapóteki og
hjá Gunnhildi Elíasdótt-
ur, Ísafirði.
Parkinsonsamtökin.
Minningarkort Park-
insonsamtakanna á Ís-
landi eru afgreidd í síma
552-4440 frá kl. 13–17.
Eftir kl. 17 s. 698-4426
Jón, 552-2862 Óskar eða
563-5304 Nína.
Minningarkort Samtaka
sykursjúkra fást á skrif-
stofu samtakanna
Tryggvagötu 26,
Reykjavík. Opið virka
daga frá kl. 9–13, s. 562-
5605, bréfsími 562-5715.
Krabbameinsfélagið.
Minningarkort félagsins
eru afgreidd í síma 540-
1990 og á skrifstofunni í
Skógarhlíð 8. Hægt er
að senda upplýsingar í
tölvupósti (minn-
ing@krabb.is).
Minningarkort Sjálfs-
bjargar, félags fatlaðra
á höfuðborgarsvæðinu,
eru afgreidd í síma 551-
7868 á skrifstofutíma og
í öllum helstu apótekum.
Gíró- og kreditkorta-
greiðslur.
Minningarkort For-
eldra- og vinafélags
Kópavogshælis
fást á skrifstofu end-
urhæfingadeildar Land-
spítalans Kópavogi
(fyrrverandi Kópavogs-
hæli), síma 560-2700 og
skrifstofu Styrkt-
arfélags vangefinna, s.
551-5941 gegn heim-
sendingu gíróseðils.
Félag MND-sjúklinga
selur minningarkort á
skrifstofu félagsins á
Norðurbraut 41, Hafn-
arfirði. Hægt er að
hringja í síma 565-5727.
Allur ágóði rennur til
starfsemi félagsins.
Minningarsjóður
Krabbameinslækninga-
deildar Landspítalans.
Tekið er við minning-
argjöfum á skrifst.
hjúkrunarforstjóra í
síma 560-1300 alla virka
daga milli kl. 8 og 16. Ut-
an dagvinnutíma er tek-
ið á móti minning-
argjöfum á deild 11-E í
síma 560-1225.
Minningarkort Minn-
ingarsjóðs Maríu Jóns-
dóttur flugfreyju eru fá-
anleg á eftirfarandi
stöðum: Á skrifstofu
Flugfreyjufélags Ís-
lands, s. 561-4307/fax
561-4306, hjá Halldóru
Filippusdóttur, s. 557-
3333 og Sigurlaugu
Halldórsdóttur, s. 552-
2526.
Minningarkort Minn-
ingarsjóðs hjónanna
Sigríðar Jakobsdóttur
og Jóns Jónssonar á
Giljum í Mýrdal við
Byggðasafnið á Skógum
fást á eftirtöldum stöð-
um: Í Byggðasafninu hjá
Þórði Tómassyni, s. 487-
8842, í Mýrdal hjá Ey-
þóri Ólafssyni, Skeiðflöt,
s. 487-1299, í Reykjavík
hjá Jóni Aðalsteini Jóns-
syni, Geitastekk 9, s.
557-4977.
Í dag er laugardagur 17. mars, 76.
dagur ársins 2001. Geirþrúðardag-
ur. Orð dagsins: Fyrst Guð skrýðir
svo gras vallarins, sem í dag stend-
ur, en á morgun verður í ofn kastað,
skyldi hann þá ekki miklu fremur
klæða yður, þér trúlitlir!
(Matt. 6, 30.)
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 látlausa, 8 lygi, 9
bólgna, 10 keyri, 11 lofar,
13 byggja, 15 sjá eftir, 18
reika stefnulítið, 21 ótta,
22 grandinn, 23 gyðja, 24
álappalegt.
LÓÐRÉTT:
2 fram á leið, 3 auðugar,
4 hleypir, 5 sjúgi, 6 reyk-
ir, 7 karlfugls, 12 elska,
14 rengi, 15 skurn, 16
festi, 17 hægt, 18 manns-
nafn, 19 dreggjar, 20 fífl.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 svört, 4 fussa, 7 Auður, 8 ólmur, 9 Týr, 11
kugg, 13 barð, 14 álfur, 15 þröm, 17 álfa, 20 hag, 22
fagna, 23 urmul, 24 nælan, 25 lúrir.
Lóðrétt: 1 svark, 2 örðug, 3 tært, 4 flór, 5 summa, 6 af-
ræð, 10 ýlfra, 12 gám, 13 brá, 15 þúfan, 16 öngul, 18 lem-
ur, 19 allar, 20 hann, 21 gull.
K r o s s g á t a
Víkverji skrifar...
NOKKRIR vinir og kunningjarVíkverja eiga börn sem verða
fermd á næstunni. Það er misjafnt
hvernig staðið er að fermingarund-
irbúningi og veisluhöldum. Sumir
sem Víkverji þekkir baka sjálfir eða
elda og halda veisluna heima eða í sal
eftir aðstæðum. Þeir hafa síðan
ákveðið að kaupa gjöf á skikkanlegu
verði fyrir barnið.
Víkverji þekkir þess dæmi að
heildarkostnaður fyrir ferminguna
og 60–80 manna fermingarveislu sé í
kringum hundrað þúsund krónur.
Á hinn bóginn veit hann líka nokk-
ur dæmi þess að fólk sé að borga um
2.500–3.000 krónur fyrir hádeg-
isverð á manninn og ekki óalgengt að
veislurnar séu 80–100 manna. Í
sumum tilfellum þarf fólk síðan að
sjá sjálft um blómaskreytingar,
servíettur, kerti, aðstoðarmanneskju
í eldhús og drykkjarföng.
Ofan á þetta bætist síðan ferming-
argjöf, fötin á barnið, ljósmyndatak-
an og ef um stúlku er að ræða stríp-
ur, hárgreiðsla og jafnvel förðun.
Víkverja reiknast til að það sé ekki
óalgengt að foreldrar eyði um og yfir
hálfri milljón í fermingu barnsins
síns.
x x x
VINUR Víkverja hélt afmælis-veislu í vikunni en í henni var á
annan tug lítilla stúlkna. Hann kann-
aði verð á pítsum á nokkrum stöðum
og komst að því að hann gat keypt
sex stórar pítsur á um 4.000 krónur,
þ.e.a.s. ef hann sótti þær sjálfur.
Þetta fannst vininum hagstætt
verð og sagði að stundum þegar
hann léti senda sér eina pítsu kostaði
hún um 1.800 krónur. Hann tók hins
vegar eftir því að afmælisgestirnir
sóttu alveg eins í heita skinkubrauð-
ið sem hann hafði útbúið með píts-
unni og heimabökuðu afmælistert-
una. Vinurinn sagði Víkverja að
hann hefði komist að því að börnin
væru orðin hálfleið á pítsum sem þau
sögðu að væru í næstum öllum af-
mælum og með reglulegu millibili í
matinn heima.
SONUR Víkverja er að taka bíl-próf á næstu dögum. Fyrir
fjölda ára, þegar hann tók sjálfur bíl-
próf, var farið í ökukennslu, tekið
próf og farið út í umferðina, í raun
löngu áður en Víkverji var orðinn
öruggur bílstjóri.
Núna hefur sonur Víkverja verið
að æfa sig á bíl fjölskyldunnar í
næstum ár og alltaf hafa foreldrarnir
verið með honum nú eða þá amma og
afi, en drengurinn var líka með leyfi
til að keyra þeirra bíl.
Víkverji mælir eindregið með því
að um leið og krakkar hafa aldur til
fari þeir í ökutíma og fái síðan æf-
ingaleyfi svo foreldrarnir geti fylgst
með barninu og aðstoðað það þennan
tíma sem gefst áður en barnið fer
eitt út í umferðina.
Foreldrarnir geta líka kennt börn-
um öruggan akstur með góðu for-
dæmi. Þegar unglingarnir eru að
æfa sig taka þeir nákvæmlega eftir
akstrinum hjá foreldrum sínum og
eru fljótir að benda á ef ekki er rétt
staðið að öllu.
ÞÓ SVO að það búi meiri-
hluti þjóðarinnar á suðvest-
urhorninu, þá varðar lands-
byggðina um staðsetningu
flugvallar fyrir innanlands-
flug ekki bara höfuðborgar-
búa. Því ætti það að vera
krafa landsbyggðarfólks,
að fá að segja til um stað-
setningu flugvallar fyrir
innanlandsflug. Nú er uppi
ágreiningur milli minni- og
meirihluta í borgarstjórn.
Hættið að deila og leyfið
fólkinu í landinu að ákveða
hvar flugvöllur fyrir innan-
landsflug verður. Ef ekki
þyrfti að þjóna flugi út á
landsbyggðina, þá þyrfti
ekki neinn flugvöll á höfuð-
borgarsvæðinu. Munið að
það býr líka fólk fyrir utan
höfuðborgarsvæðið.
Gunnar G. Bjartmars-
son, Hátúni 10, Rvk.
Ísland í bítið
TIL hamingju með að vera
komin aftur á skjáinn, Guð-
rún og Snorri. Þið eruð svo
sæt saman, hress og
skemmtileg. Það er svo
gaman að vakna á morgn-
ana og heyra í skemmtilegu
fólki við hljóðnemann, þá
stekk ég fram úr og kveiki
á sjónvarpinu. Þegar hund-
leiðinlegt fólk er í sjónvarp-
inu eða útvarpinu er það
ekki það sem rífur mig
fram úr. Það verður að vera
skemmtilegt fólk.
Lengi lifi Guðrún og
Snorri! Húrra fyrir Ísland í
bítið!
Gréta.
Ferðamenn
RÁÐAMENN ferðamála
hérlendis vonast eftir því
að fjöldi ferðamanna í á
verði 350-400 þúsund. Ekki
er nema gott eitt um það að
segja, en með hvaða hug-
arfari og þjónustulund, eða
ólund öllu heldur, tökum
við á móti þessum gestum
okkar.
Við þjóðveginn stunda
margir veitingarekstur en
ærið er hann misjafn við-
gjörningurinn. Í sumar er
leið, lá leiðin norður í land
ásamt erlendum gestum.
Staðarskáli í Hrútafirði er
sá áningarstaður er flestir
þekkja er um þjóðveginn
fara.
Gestir mínir hugðust
kaupa sérlagað kaffi en
ekki var því að heilsa þar er
í boði var kaffi af hitabrúsa,
þetta móleita, langstaðna
gutl er allir þekkja, verður
grátt ef mjólk er hellt út í
það. Og ofaní kaupin var
það fram borið í könnum er
betur hæfðu mötuneyti í
frystihúsi.
Ekkert sérlagað kaffi
eða kaffidrykkir voru í
boði. En fyrir hönd ferða-
manna og okkar innfæddu
þeirra er kunna að meta
sérlagað kaffi;hvernig væri
að fara að bera þetta fram
svo einhver mynd sé á. Með
kaffikveðju.
M.
Ungt fólk með
ungana sína
ÉG var í þessu að enda við
að lesa alveg frábæra gein í
Morgunblaðinu í dag föstu-
daginn 9. mars . Á bls 4 D
er grein sem heitir „Ungt
fólk með ungana sína“ eftir
VÞJ og ég vil bara koma á
framfæri að það sem þær
Hera Harðardóttir og
Berglind Hastler eru að
gera fyrir unga foreldra og
börnin þeirra með því að
hafa samverustund á laug-
ardögum á Kakóbarnum er
alveg „frábært“.
Ég er sjálf ung móðir,
gift og annað er á leiðinni
og að vita til þess að stelpur
á mínum aldri í svipuðum
sporum eru að framkvæma
þessa hluti er alveg ein-
stakt. Auðvitað hugsaði
maður fyrst að maður
missti mikið úr hugsanleg-
um glötuðum tækifærum
að vera bara ungur og lifa
lífinu, en eftir að maður fór
að vaxa með barninu sínu
þá sá maður, að það eitt er
það allra mikilvægasta í
heiminum. Að sjá barnið
sofa, leika sér, borða, tala
og knúsa mann er svo
miklu meira en að kaupa
sér tískuföt sem fara úr
tísku eftir 2 mánuði. Börnin
eru alltaf til staða og eru líf
manns.
Vonandi á þetta eftir að
ganga vel hjá þeim og
margir foreldrar koma
þangað með börnin sín, en
ég ætla einmitt að kíkja
þangað einhvern daginn
enda er þetta meiriháttar.
1000 þakkir,
María Úlfarsdóttir.
Ferskt grænmeti og
ferskir ávextir
KONA hafði samband við
Velvakanda vegna greinar
sem birtist í Velvakanda
fyrir stuttu, þar sem lýst er
eftir verslun sem setur
metnað sinn í að selja
ferskt grænmeti og ávexti.
Mig langar til að benda á
verslunina Vínberið við
Laugaveginn. Þar er selt
ferskt grænmeti og ferskir
ávextir.
Tapað/fundið
Ljósmyndir
í óskilum
LJÓSMYNDIR fundust á
Sogavegi, mánud. 12. mars
sl. Uppl. í síma 581-2418.
Dýrahald
Tík í óskilum
HJÁ hundaeftirliti Kópa-
vogs er í óskilum tík síðan
sunnud. 11. mars sl. Þetta
er mjög falleg ljós tík, ein-
hverskonar blendingur, lík-
ist helst ísl. fjárhundi, með
tvískiptan lit á haus. Uppl. í
s.897-5070 eða 550-5400.
Páfagaukur flaug
að heiman
ÞRÍLITUR, hvítur, ljós-
blár og ljósgrár átta mán.
páfagaukur flaug út um
gluggann að Mosarima,
föstud. 16. mars sl. Uppl. í
s. 867-0754.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Um flugvöll
fyrir innan-
landsflug