Morgunblaðið - 17.03.2001, Blaðsíða 73
ÚTSKÁLAKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 14. Aðalsafnaðarfund-
ur Útskálasóknar verður haldinn
strax að guðsþjónustu aflokinni,
boðið verður til kaffisamsætis.
Kirkjuskólinn í dag, laugardag, kl.
14 í safnaðarheimilinu Sæborgu.
HVALSNESSÓKN: Kirkjuskólinn í
dag kl. 11. Ath.: Kirkjuskólinn verður
að þessu sinni í grunnskólanum í
Sandgerði.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Messa
(altarisganga) sunnudag kl. 14. Sr.
Kristín Þórunn Tómasdóttir, héraðs-
prestur Kjalarnesprófastsdæmis,
predikar og þjónar fyrir altari. Nem-
endur úr Tónlistarskóla Reykjanes-
bæjar koma fram. Kirkjukór Njarðvík-
ur syngur undir stjórn Steinars
Guðmundssonar organista. Frímúr-
arabræður í Sindra, Keflavík, og fjöl-
skyldur þeirra fjölmenna. Kaffi- og
kökusala að athöfn lokinni og rennur
ágóðinn í líknarsjóð prestakallsins.
Sunnudagaskóli sunnudag kl. 11 í
umsjá sr. Kristínar Þórunnar Tómas-
dóttur og Vilborgar Jónsdóttur. Bald-
ur Rafn Sigurðsson.
NJARÐVÍKURKIRKJA: Sunnudaga-
skóli sunnudag kl. 11. Ástríður
Helga Sigurðardóttir og Tune Sol-
bakke leiða starfið. Baldur Rafn Sig-
urðsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta og aldursskiptur
sunnudagaskóli kl. 11 árd. Prestur:
Sigfús Baldvin Ingvason. Kór Kefla-
víkurkirkju leiðir söng. Organisti: Ein-
ar Örn Einarsson. Meðhjálpari: Ívar
Valbergsson. Fermingar í Keflavík,
sjá: keflavikurkirkja.is
SELFOSSKIRKJA: Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Morguntíð sungin
þriðjudaga til föstudaga kl. 10. For-
eldrasamvera miðvikudaga kl. 11.
Krakkaklúbbur miðvikudaga kl. 14–
14.50. Leshringur kemur saman á
miðvikudögum kl. 18, sakramentis-
þjónusta að lestri loknum. Sóknar-
prestur.
STRANDAKIRKJA: Kvöldmessa mið-
vikudaginn 21. mars kl. 20. Messan
markar upphaf vísitasíu biskups Ís-
lands í Árnesprófastsdæmi. Biskup
Íslands predikar og þjónar fyrir altari
ásamt sóknarpresti. Sóknarprestur.
HVERAGERÐISKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11. Fundur með fermingar-
börnum og foreldrum kl. 14. Sókn-
arprestur.
ODDAKIRKJA á Rangárvöllum:
Messa kl. 14. Messuheimsókn úr
Hrunaprestakalli. Séra Eiríkur Jó-
hannsson, sóknarprestur í Hruna,
predikar og þjónar fyrir altari ásamt
staðarpresti. Barn fært til skírnar.
Kirkjukór Hrunaprestakalls leiðir
sönginn. Organisti: Edit Molnar.
Kaffi og spjall í safnaðarheimilinu
eftir messu. Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa
sunnudag kl. 11. Sóknarprestur.
HAUKADALSKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 14. Sóknarprestur.
TORFASTAÐAKIRKJA: Kvöldguðs-
þjónusta sunnudag kl. 21. Sóknar-
prestur.
KIRKJUBÆJARKLAUSTUR-
SPRESTAKALL: Kapellan á Klaustri:
Föstumessa með altarisgöngu verð-
ur sunnudagskvöldið kl. 21. Lesið
verður úr píslarsögunni og eingöngu
sungnir passíusálmar. Grafarkirkja í
Skaftártungu: Barnastarf í dag laug-
ardag kl. 11. Guðsþjónusta sunnu-
dag kl. 14 og að henni lokinni er að-
alsafnaðarfundur. Sr. Bryndís Malla
Elídóttir.
AKRANESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14. Kristbjörg Smáradóttir verður
fermd í athöfninni. Dvalarheimilið
Höfði: Guðsþjónusta kl. 12.45.
Sóknarprestur.
BORGARPRESTAKALL: Barnaguðs-
þjónusta í Borgarneskirkju kl.
11.15. Messa í Borgarneskirkju kl.
14. Guðsþjónusta á Dvalarheimili
aldraðra kl. 15.30. Sóknarprestur.
ÓLAFSVÍKURKIRKJA: Sunnudaga-
skóli með Konna, Bjarti og öllum hin-
um. Mikill söngur. Mætum öll. Sókn-
arprestur.
MÖÐRUVALLAKLAUSTURSKIRKJA:
Messa fyrir allt prestakallið sunnu-
dag kl. 14. Molasopi á prestssetrinu
eftir messu. Mætum öll og njótum
samveru í húsi guðs. Sóknarprestur.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 11. Skólakórar grunn-
skólans í heimsókn. Kyrrðarstund á
morgun, mánudag, kl. 18. Sóknar-
prestur.
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 73
BISKUP Íslands, herra Karl Sigur-
björnsson, endurvígir Dalvíkur-
kirkju sunnudaginn 18. mars kl. 14
og mun hann jafnframt flytja predik-
un.
Sóknarprestur, séra Magnús G.
Gunnarsson og séra Jón Helgi Þór-
arinsson þjóna fyrir altari.
Eftir vígsluna býður sóknarnefnd
kirkjunnar upp á kaffiveitingar.
Gerðar hafa verið gagngerar end-
urbætur á kirkjunni. Hönnuður
þeirra er Haukur Haraldsson og
Fanney Hauksdóttir, Arkitekta- og
verkfræðistofu Hauks ehf., en Tré-
verk ehf. smíðaði innréttingar og sá
um endurbæturnar.
Klukkan 17 sama dag halda Kór
Dalvíkurkirkju og Kirkjukór Ólafs-
fjarðar tónleika í kirkjunni í tilefni
vígslunnar. Laugardaginn 17. mars
ætla kórarnir að flytja sömu dagskrá
kl. 16 í Ólafsfjarðarkirkju.
Kvöldvaka
við kertaljós
NÆSTKOMANDI sunnudagskvöld,
18. mars, kl. 20 verður kvöldvaka við
kertaljós í Fríkirkjunni í Hafnarfirði
með fjölbreyttri dagskrá í tali og tón-
um, en slíkar kvöldvökur eru haldnar
einu sinni í mánuði. Yfirskrift kvöld-
vökunnar að þessu sinni er fermingin
og er þess sérstaklega vænst að
fermingarbörn og þeirra fjölskyldur
fjölmenni en að sjálfsögðu eru allir
velkomnir til þessarar stundar. Þessi
samverustund verður lokaþáttur í
fermingarundirbúningi vetrarins en
á þessu vori fermast 70 unglingar í
Fríkirkjunni í Hafnarfirði.
Það er Örn Arnarson sem leiðir
tónlistarflutning og undirleik ásamt
hljómsveit sinni.
Að lokinni kvöldvöku verður svo
boðið til látlausrar „fermingarveislu“
í safnaðarheimili kirkjunnar þar sem
boðið verður upp á heitt súkkulaði og
léttar veitingar.
Þessar mánaðarlegu kvöldvökur
Fríkirkjunnar hafa verið afar vel
sóttar og fólk virðist njóta þess að
geta átt notalega stund við kertaljós,
íhugun og fallega tónlist í kirkjunni
sinni.
Kvöldmessa
í Grensáskirkju
ANNAÐ kvöld, sunnud. 18. mars,
verður kvöldmessa í Grensáskirkju
og hefst hún kl. 20.
Form messunnar er mjög einfalt
og lagt upp úr léttum og kröftugum
söng við píanóundirleik. Í töluðu máli
er reynt að nota ekki fleiri orð en
nauðsyn krefur og skapa þannig
kyrrlátt og friðsælt andrúmsloft.
Kvöldmessan tekur innan við
klukkustund en að henni lokinni er
molasopi í safnaðarheimilinu.
Með þessu fyrirkomulagi er reynt
að mæta þörfum þeirra sem vilja
gjarnan sækja kirkju en finna sig
ekki í hefðbundnu messuformi og
fyrirkomulagi.
Aðalatriðið er að mæta Drottni og
eiga stund í húsi hans til uppbygg-
ingar í upphafi nýrrar vinnuviku.
Breytingaskeið karla
og kvenna
ÓLAFUR M. Håkansson kvensjúk-
dómalæknir kemur í heimsókn í
hjónastarf Neskirkju nk. sunnudags-
kvöld 18. mars og ræðir um efnið
„Breytingaskeið karla og kvenna“.
Menn hafa löngum vitað að horm-
ónastarfsemi kvenna breytist á
miðjum aldri en í seinni tíð hafa menn
beint sjónum að þeirri staðreynd að
hormónabreytingar eiga sér einnig
stað hjá körlum. Breytingar á horm-
ónastarfseminni geta svo haft marg-
vísleg áhrif á vellíðan og jafnvel and-
lega heilsu fólks. Ólafur M.
Håkansson er líffræðingur og læknir
að mennt með sérmenntun í kven-
sjúkdómum og fæðingarhjálp. Hann
starfaði í mörg ár í Svíþjóð, svo og á
sjúkrahúsinu í Keflavík, en rekur nú
eigin læknastofu í Reykjavík.
Fyrirlestur hans er haldinn í safn-
aðarheimili Neskirkju og hefst kl.
20:00. Hann er öllum opinn.
Málefni
kirkjuþings rædd
LEIÐARÞING Kjalarnessprófasts-
dæmis verður haldið sunnudaginn
18. mars í safnaðarheimili Keflavík-
urkirkju kl. 17–21. Þingið sitja prest-
ar og djáknar í prófastsdæminu, for-
menn sóknarnefnda og safnaðar-
fulltrúar. Á leiðarþingi eru málefni
kirkjuþings til umfjöllunar og munu
fulltrúar leikmanna í Kjalarnesspró-
fastsdæmi fjalla um helstu mál síð-
asta kirkjuþings. Þá gefst leiðar-
þingsmönnum tækifæri til að spyrja
fulltrúa sína á kirkjuþingi um störf
þingsins og ræða málefni kirkjunnar.
Þá verða æskulýðsmál kirkjunnar í
brennidepli á leiðarþinginu og staða
æskulýðsstarfsins skoðuð. Að lokn-
um kvöldverði verður flutt leikrit um
trú og sjósókn undir stjórn Jóns
Hjartarsonar leikara en verkið var
samið sérstaklega fyrir Hafnarfjarð-
arsókn á síðasta ári.
Kristín Þórunn Tómasdóttir,
héraðsprestur Kjalarness-
prófastsdæmis.
Æðruleysismessa
Dómkirkjunnar
ÆÐRULEYSISMESSA Dómkirkj-
unnar tileinkuð fólki í leit að bata
eftir tólfsporakerfinu verður í Dóm-
kirkjunni í Reykjavík sunnudags-
kvöldið 18. mars kl. 20:30. Þar eru
allir velkomnir til tilbeiðslu og æðru-
leysis.
Lofgjörðina leiðir söngkonan lífs-
glaða Anna Sigríður Helgadóttir við
undirleik bræðranna Birgis og Harð-
ar Bragasona. Þorvaldur Halldórs-
son mun gleðja viðstadda með ein-
söng.
Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir leiðir
stundina og sr. Jóna Hrönn Bolla-
dóttir predikar og sr. Jakob Ágúst
Hjálmarsson leiðir fyrirbæn.
Jafnframt verður reynslusögu
deilt með viðstöddum. Í lok stund-
arinnar verður fyrirbæn og smurn-
ing upp við altari Dómkirkjunnar.
Æðruleysismessur eru einstakar
og helgar stundir þar sem fólk kemur
og leitar af heiðarleika og einlægni
eftir samfélagi við Guð og meðbræð-
ur sína. Það sem einkennir messurn-
ar er létt sveifla í helgri alvöru.
Æðruleysismessur eru 21. aldar
messur og það eru allir velkomnir.
Orgelandakt
í Hjallakirkju
MEÐ tilkomu nýja orgelsins í Hjalla-
kirkju í Kópavogi verður sú ný-
breytni tekin upp að 3. sunnudag í
mánuði verður orgelandakt kl. 17.00.
Leikið verður á orgelið í u.þ.b. 30–35
mínútur og einnig verður ritningar-
lestur og bæn.
Sunnudaginn 18. mars verður 1.
andaktin og verður Kári Þormar,
organisti Fríkirkjunnar í Reykjavík,
við orgelið og mun leika „Pièce hér-
oïque“ eftir César Franck, „Toccötu“
úr 5. orgelsinfóníunni Op. 42 í F-dúr
eftir Charles-Maria Widor. Einnig
Prelúdíu og fúgu í D-dúr BWV 532 og
sálmforleik yfir „O Mensch, bewein
dein Sünde Gross“ WV 622 eftir Jo-
hann Sebastian Bach og verk eftir R.
Vaughan Williams. Séra Íris Krist-
jánsdóttir annast talað mál.
Með þessu tónlistarguðsþjónustu-
formi er komið til móts við þá sem
vilja eiga notalega stund í kirkjunni
og hlýða á tónlist og ritningarlestur
án þess að taka sjálfir virkan þátt.
Hljómburður Hjallakirkju þykir
henta sérlega vel fyrir orgeltónlist.
Siðferðilegur háski?
NÆSTKOMANDI sunnudag, 18.
mars, kl. 10:00 mun dr. Vilhjálmur
Árnason prófessor flytja erindi á
fræðslumorgni í Hallgrímskirkju
sem hann nefnir Siðferðilegur háski?
Uppeldi á Íslandi í upphafi aldar.
Þetta er þriðja erindið af fimm, sem
flutt verða um uppeldismál á
fræðslumorgnum í Hallgrímskirkju.
Dr. Vilhjálmur er löngu landskunnur
fyrir rit sín um siðfræði og þátttöku í
umræðu um siðferðileg álitamál.
Ástæða er til að hvetja uppalendur,
bæði foreldra og kennara, til að hlýða
á erindi Vilhjálms. Að erindinu loknu
gefst tækifæri til fyrirspurna áður en
guðsþjónusta hefst kl. 11 í umsjá séra
Sigurðar Pálssonar.
Kirkjudagur
Safnaðarfélags
Ásprestakalls
ÁRLEGUR kirkjudagur Safnaðar-
félags Ásprestakalls er á morgun,
sunnudag. Um morguninn verður
barnaguðsþjónusta í Áskirkju kl. 11
og síðan guðsþjónusta kl. 14. Inga
Backman syngur einsöng, sóknar-
prestur prédikar og Kirkjukór Ás-
kirkju syngur undir stjórn Kristjáns
Sigtryggssonar organista.
Eftir guðsþjónustuna og fram eftir
degi verður kaffisala í Safnaðarheim-
ili Áskirkju. Allur ágóði af kaffisölu
Kirkjudagsins rennur til fram-
kvæmda við kirkjuhúsið og til öflunar
kirkjumuna, en kirkjudagurinn hefur
lengi verið einn helsti fjáröflungar-
dagur Safnaðarfélags Ásprestakalls.
Eins og jafnan á kirkjudaginn
verða glæsilegar veitingar á boðstól-
um og vona ég að sem flest sóknar-
börn og velunnarar Áskirkju leggi
leið sína til hennar á sunnudaginn og
styðji starf Safnaðarfélagsins.
Bifreið mun flytja íbúa dvalar-
heimila og annarra stærstu bygginga
sóknarinnar að og frá kirkju.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
Tónlistarmessa
í Vídalínskirkju
SUNNUDAGINN 18. mars nk., kl.
11:00, verður gregorsk messa með
altarisgöngu í Vídalínskirkju með
nokkuð öðru sniði en venjulega.
Í stað hinna föstu messuliða mun
Kór Vídalínskirkju flytja kafla úr
messum eftir Haydn og Mozart. Org-
elleikari verður Pavel Manachek og
einnig leikur Hjörleifur Valsson á
fiðlu. Þá munu söngnemendur Snæ-
bjargar Snæbjarnardóttur úr Tón-
listarskólanum í Garðabæ syngja.
Stjórnandi tónlistar verður Jóhann
Baldvinsson.
Kór kirkjunnar leiðir einnig al-
mennan safnaðarsöng.
Fermingarbörn og foreldrar
þeirra eru sérstaklega hvött til að
mæta vel til guðsþjónustunnar.
Sunnudagaskólinn yngri og eldri
deild á sama tíma í kirkjunni.
Sr. Hans Markús Hafsteinsson og
sr. Friðrik J. Hjartar þjóna við at-
höfnina ásamt djákna safnaðarins,
Nönnu Guðrúnu Zoëga. Sóknar-
nefndarfólk les ritningarlestra.
Mætum vel, tökum vel undir í
sálmasöngnum og öðru því sem fram
fer og gleðjumst þannig saman í
kirkjunni okkar.
Að lokinni guðsþjónustu verður
gengið til aðalsafnaðarfundar Garða-
sóknar og boðið upp á súpu og brauð í
umsjá Lionsfólks í Garðabæ. Prestar
Garðaprestakalls.
Aðalsafnaðarfundur
Garðasóknar
SUNNUDAGINN 18. mars verður
haldinn aðalsafnaðarfundur Garða-
sóknar í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili
Vídalínskirkju, fundurinn hefst strax
að aflokinni messu sem hefst kl.
11:00. Að lokinni guðsþjónustu verð-
ur gengið til málsverðar í safnaðar-
heimilinu í boði sóknarnefndar og
síðan tekið til við aðalfundarstörf.
Veitingar í umsjá Lionsfélaga í
Garðabæ. Venjuleg aðalfundarstörf.
Ársfundur Hins ís-
lenska biblíufélags
ÁRSFUNDUR Hins íslenska biblíu-
félags verður haldinn í Hallgríms-
kirkju á mánudaginn 19. mars kl. 20.
Dagskrá venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Fella- og Hólakirkja. Opið hús fyrir
8., 9. og 10. bekk kl. 20–23.
Grafarvogskirkja. AA-hópur hittist
kl. 11:00.
Neskirkja. Kirkjustarf eldri borgara
í dag kl. 14. Haraldur Ólafsson pró-
fessor rýnir í bækur. Kaffiveitingar.
Munið kirkjubílinn. Allir velkomnir.
KEFAS: Almenn samkoma í dag
laugardag kl. 14. Ræðumaður Ár-
mann J. Pálsson. Þriðjud.: Bæna-
stund kl. 20.30. Miðvikud.: Samveru-
stund unga fólksins kl. 20. Allir
hjartanlega velkomnir.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl.
11. Æfing fellur niður hjá Litlum
lærisveinum í safnaðarheimilinu.
Hvammstangakirkja. Sunnudaga-
skóli kl. 11.
Akraneskirkja. Kirkjuskóli kl. 11.
TTT-starf (10–12 ára) kl. 13. Umsjón:
Hreiðar Örn Stefánsson.
Hjálpræðisherinn. kl. 13 Laugar-
dagsskóli.
Sjöundadags aðventistar á Íslandi:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Bibl-
íufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Eric Guðmundsson.
Safnaðarheimili aðventista, Blika-
braut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður
Steinunn Theodórsdóttir.
Safnaðarheimili aðventista, Gagn-
heiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður
Björgvin Snorrason.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10.
Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður
Einar Valgeir Arason.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnar-
firði: Guðsþjónusta kl. 11. Biblíu-
fræðsla kl. 12. Ræðumaður Gavin
Anthony. Súpa og brauð að samkomu
lokinni. Kl. 20 um kvöldið mun Brian
Neumann, fyrrverandi rokkari, hefja
fyrirlestraröð þar sem hann segir frá
reynslu sinni af rokkinu, fjallar um
hinn kristna poppheim, tónlistariðn-
aðinn og samspil tónlistar og trúar. Á
laugardagskvöldið mun hann tala
um: Tungumál tónlistarinnar.
Sunnudag kl. 20: Hugurinn bak við
kerfið. Mánudag kl. 20: Orðsending
til hinna hryggu. Þriðjudag kl. 20:
Umbreyting hjartans.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill meðan húsrúm leyfir.
Safnaðarstarf
Dalvíkurkirkja
endurvígð
Dalvíkurkirkja