Morgunblaðið - 17.03.2001, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 17.03.2001, Blaðsíða 34
ERLENT 34 LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ AUSTURRÍSKI hægrimað- urinn Jörg Haider, sem er þekktastur erlendis fyrir um- deild ummæli um nasista, hef- ur óskað eftir einkarétti á nafni sínu til að hægri- menn í öðr- um löndum geti ekki not- fært sér frægð hans. Haider kveðst hafa þurft að gera þetta vegna þess að hvorki meira né minna en tíu ítalskir flokkar hafi notað nafn hans í áróð- ursskyni fyrir þingkosningar á Ítalíu, að sögn austurríska ríkissjónvarpsins ORF. Flokkur Haiders, Frelsis- flokkurinn, myndaði stjórn með Þjóðarflokknum á síðasta ári. Það varð til þess að önnur ríki Evrópusambandsins gerðu ráðstafanir til þess að einangra austurrísku stjórn- ina og sökuðu Haider um kynþáttafordóma og útlend- ingahatur. Haider er enn mjög áhrifa- mikill í Frelsisflokknum þótt hann hafi sagt af sér sem leið- togi hans. GOLFARAR í Bandaríkjunum eru komnir í hár saman út af kúlu. Hreinstefnumenn segja þessa nýju langfleygu kúlu vera lítillækkun á íþróttinni, því hún geri meðalmenn- um kleift að keppa við þá bestu. En þeir sem nota nýju kúluna segja hana vera bestu uppfinninguna í íþróttinni síðan golfbíllinn kom til sögunnar. Atvinnumenn sem nota nýju kúluna, Titleist Pro V1, hafa nú unnið 13 af 17 PGA-mótum sem haldin hafa verið síðan kúlan var kynnt í október sl. Meðal þeirra sem ekki nota kúl- una eru Tiger Woods sem hefur ekki unnið mót á þessu ári. Sé kúlan sleg- in rétt fer hún hraðar og snýst minna en aðrar gerðir af kúlum. Ferill hennar er flatari og því hefur vindur síður áhrif á hana. Þetta þýðir að í upphafshöggi getur hún farið ótrú- lega langt. Í inná-skoti fer hún bratt niður. Þótt hún sé í samræmi við op- inberar viðmiðunarreglur telja sum- ir að kúlan sé ekki í samræmi við anda íþróttarinnar. FLUGRÆNINGI, flugfreyja og farþegi féllu í gærmorgun, þegar saudi-arabískir sérsveitarliðar réð- ust til inngöngu í rússneska far- þegaþotu sem þrír tsjetsjneskir flugræningjar höfðu á valdi sínu á flugvellinum í Medina í Sádí-Arab- íu. Ríkissjónvarp Sádí-Arabíu sýndi myndir af því þegar um tugur vopnaðra hermanna ruddi sér leið inn um dyr og glugga á stjórnklefa þotunnar. Nokkru síðar sáust her- menn halda niðri tveimur hand- járnuðum ræningjum á flugbraut- inni og farþegar flýðu út úr vélinni niður landganga. Kröfðust eldsneytis „Árásinni lauk með því að einn flugræningi féll, einn farþegi og ein flugfreyja sem flugræningi myrti,“ hafði fréttastofan SPA eft- ir talsmanni saudíska innanríkis- ráðuneytisins. Háttsettur sádí-ar- abískur embættismaður sagði að einn ræningjanna hefði myrt flug- freyjuna og hefðu sérsveitarmenn svarað í sömu mynt og fellt ræn- ingjann. Farþeginn sem féll var 27 ára Tyrki. Þotan er af gerðinni Tupol- ev-156. Henni var rænt skömmu eftir flugtak frá Istanbúl í Tyrk- landi í fyrradag. Var ferðinni heit- ið til Moskvu, og voru 162 farþeg- ar og 12 manna áhöfn um borð. Ræningjar vopnaðir hnífum kröfð- ust þess að farið yrði með þá til arabalands, og nokkrum tímum síðar lenti þotan í Medina. Þar hófust samningaviðræður milli ræningjanna og saudískra yf- irvalda. Ræningjarnir slepptu um 50 farþegum, en kröfðust þess að nægt eldsneyti yrði sett á vélina til að hægt væri að fljúga henni um 5.000 km leið. Rússneskur dipló- mati sagði að ræningjarnir hefðu ennfremur gert „fremur óljósar pólitískar kröfur varðandi stríðið í Tsjetsjníu“. Rauðum, hvítum og grænum fána Tsjetsjníu hafði ver- ið sveipað um eina hurð vélarinn- ar. Fljótlega eftir að vélinni var rænt var haft eftir flugstjóra hennar að ræningjarnir krefðust þess að Rússar létu af hernaði í Tsjetsjníu. Óstaðfestar heimildir voru fyrir því í gær að ræningjarnir hafi ver- ið Aslanbek Arsajev, fyrrverandi ríkisöryggismálaráðherra Tsjetsj- níu, Stupian bróðir hans og sonur Stupians. Arsajev hafi barist í fyrra stríði tsjetsneskra aðskiln- aðarsinna gegn Rússum, en særst. Sameiginleg ákvörðun Talsmaður sádí-arabíska innan- ríkisráðuneytisins sagði að ákvörð- unin um að ráðast inn í vélina hafi verið sameiginleg af hálfu sádí- arabískra og rússneskra yfirvalda eftir að samningaviðræður við ræningjana sigldu í strand. Sagði talsmaðurinn ennfremur að Rúss- ar hefðu boðist til að senda til Medina í snatri sveit manna er væru sérþjálfaðir í að berjast við hryðjuverkamenn, en sádí-arabísk yfirvöld hefðu aftekið það með öllu. Flugvallarstarfsmaður sagði að nokkrum sérsveitarmönnum hefði tekist að komast að vélinni dulbún- ir sem hreingerningar- eða tækni- menn. Rússneskur stjórnarerindreki sagði að rússnesk yfirvöld hefðu sent Tupolev-156 þotu til Medina í fyrrinótt til að sérsveitarmennirnir gætu æft sig fyrir innrásina. Farþegarnir í þotunni voru flestir Rússar og Tyrkir. Þeir voru fluttir á hótel í Medina. Haft var eftir rússneskri konu um vistina um borð í vélinni: „Ég sá þrjá ræningja. Þeir komu vel fram við okkur, en stundum hótuðu þeir að sprengja vélina í loft upp. Við vor- um hrædd og áhyggjufull. Nú er ég þreytt.“ Tsjetsjnesku flugræningjarnir yfirbugaðir á flugvellinum í Medina í Sádí-Arabíu Þrennt lét lífið í árás á þotuna AP Sádí-arabískir sérsveitarmenn halda manni niðri á flugvellinum í Medina eftir að hafa ráðist um borð í rúss- nesku farþegaþotuna til að yfirbuga flugræningjana eftir að þeir hótuðu að sprengja hana í loft upp. Reuters Farþegar streyma frá borði eftir að sérsveitarmenn réðust inn í þotuna. Riyadh, Dubai, Ankara, Medina. AFP, Reuters. BANDARÍSKIR lögreglumenn hafa ráðist inn á heimili konu í Kaliforníu, eiganda ættleiðing- arfyrirtækis sem seldi unga tví- bura tvisvar sinnum í gegnum Netið, og tekið af henni þrjú smá- börn sem hún hafði ættleitt með ástkonu sinni. Börnin þrjú voru færð í umsjá bandarískra barnaverndaryf- irvalda. Bandaríska alrík- islögreglan, FBI, lagði einnig hald á skjöl og tölvubúnað á heimili konunnar, Tinu Johnson, og ástkonu hennar, Peggy Phile, í El Cajon, einu úthverfa San Diego. Konurnar sæta nú rannsókn FBI vegna hugsanlegra fjársvika í tengslum við ættleiðingu tvíbur- anna í gegnum Netið. Hjón í Kaliforníu, Richard og Vicky Allen, segjast hafa greitt Johnson 6.000 dali, jafnvirði rúmrar hálfrar milljónar króna, fyrir ættleiðingu tvíburanna í nóvember. Hjón í Wales, Alan og Judith Kilshaw, greiddu hins vegar Johnson helmingi hærri fjárhæð fyrir sömu tvíbura í janúar. Þau segjast ekki hafa vitað að börnin hafi þegar verið ættleidd. Hjónin í Kaliforníu féllu frá kröfu sinni til tvíburanna eftir að Richard Allen var handtekinn í vikunni sem leið fyrir að áreita tvær stúlkur á táningsaldri. Hjón- in í Wales berjast hins vegar enn fyrir því að endurheimta tví- burana sem eru nú á fósturheim- ili í Bretlandi. Börn tekin af konu sem seldi „nettvíburana“ Los Angeles. The Daily Telegraph. Haider vill einka- rétt á nafni sínu Vín. Reuters. Jörg Haider Langfleyg golfkúla New York. The Daily Telegraph. BÆNDUR í Norður-Noregi óttast að franski kvikmyndaleikarinn Ger- ard Depardieu geti borið með sér gin- og klaufaveiki en hann mun leika í myndinni „Ég er Dina“ er gerð verður eftir sögu Herbjørg Wassmo. Vilja þeir að leikarinn og aðrir erlendir starfsmenn kvik- myndafyrirtækisins verði sótt- hreinsaðir. „Depardieu á eftir að fara nokkr- um sinnum milli Bodø og Parísar í vor og sumar. Verður hann alltaf sótthreinsaður?“ spyr einn bændanna. Hjónin Oddbjørn og Ast- rid Olsen búa í næsta nágrenni við Kjerringøy þar sem myndatökuliðið verður með aðsetur. Elsti sonur þeirra fékk aukahlutverk í myndinni og kom heim í fyrradag eftir að hafa prófað búninga „sem hann fékk hjá einhverjum frönskum búningahönn- uðum“ að sögn hjónanna í viðtali við blaðið Nordlands Framtid. „Nú bönnum við syni okkar að fara inn í hlöðu,“ sögðu þau. Norður-Noregur Depardieu smitberi? Ósló. Reuters. ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.