Morgunblaðið - 17.03.2001, Side 20
AKUREYRI
20 LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ver› a›eins í dag
„ÞETTA hefur verið afskaplega
góður og skemmtilegur tími,“
sagði Stefán Gunnlaugsson, veit-
ingamaður á Bautanum á Akur-
eyri, en hann hefur frá áramótum
verið fararstjóri hjá Úrvali-Útsýn
á Kanaríeyjum. Eiginkona hans,
Hugrún Engilbertsdóttir hjúkr-
unarfræðingur, starfar einnig hjá
félaginu á eyjunum og er þetta í
annað sinn sem hún sinnir þar
hjúkrunarstörfum. Stefán fylgdi
henni út á síðasta ári og dvaldi
þar í um mánuð, en nú ákvað
hann að taka að sér fararstjórn
og vera ytra fram í byrjun apríl.
Stefán var í óða önn að taka á
móti nýjum farþegum sem komu
til Kanaríeyja í fyrradag þegar
Morgunblaðið sló á þráðinn til
hans og var í essinu sínu, „það er
alltaf gaman þegar mikið er að
gera“, sagði hann.
Mikill straumur
Íslendinga í vetur
Stefán sagði að fjöldi Íslend-
inga hefði sótt Kanaríeyjar heim
nú í vetur, en að jafnaði væru um
eitt þúsund landar þar að spóka
sig í sólinni og hvíla lúin bein.
Liðlega helmingur þeirra væri á
vegum Úrvals-Útsýnar og far-
arstjórarnir væru fimm þannig að
í nógu væri að snúast. „Það hefur
verið mjög mikill straumur hing-
að í vetur enda hefur veðrið ver-
ið afskaplega gott og ég heyri
ekki annað en fólk sé ánægt með
dvölina,“ sagði Stefán. Fjöldi Ak-
ureyringa hefur dvalið á Kan-
aríeyjum í vetur að sögn Stefáns
og sagði hann það einkar
skemmtilegt að hitta sína heima-
menn þar ytra.
„Ég kann bara vel við þetta
starf,“ sagði Stefán, sem rekið
hefur veitingastaðinn Bautann á
Akureyri í 30 ár. „Það er gaman
að söðla um og prófa eitthvað
nýtt þegar maður hefur verið í 30
ár í sama starfinu. Ég hef gaman
af því að kynnast fólki og það
geri ég svo sannarlega sem far-
arstjóri hér. Þetta er líflegt og
skemmtilegt starf. Eins og gerist
og gengur kemur margt upp á,
bæði skemmtileg atvik og miður
skemmtileg, en það þarf að leysa
út öllu sem upp kemur.“
Fyrsta verkið að skoða
breytingar á Bautanum
Hann sagði veðurfarið hafa
verið einkar gott á Kanaríeyjum í
vetur og vissulega væri kærkom-
ið að dvelja þar yfir köldustu
vetrarmánuðina á Íslandi. Stefán
sagði að samt yrði fínt að koma
heim aftur og sérstaklega hlakk-
aði hann til að skoða þær breyt-
ingar sem gerðar hafa verið á
Bautanum, en staðurinn var opn-
aður eftir gagngerar endurbætur
um mánaðamótin janúar-febrúar.
„Ætli það verði ekki mitt fyrsta
verk að skoða þessar breytingar,
menn hafa verið að lýsa þessu
fyrir mér og ég heyri ekki annað
en vel hafi tekist til,“ sagði hann.
Spurður um veitingastaðina á
Kanaríeyjum svaraði hann að
þeir væru æði misjafnir, margir
væru alveg prýðilegir en þeir
væru líka margir sem þættu ekk-
ert sérstakir hér heima.
„Þetta hefur verið mjög gam-
an, margt sem kemur á óvart og
það er skemmtilegt að kynnast
enn fleiri hliðum mannfólksins en
maður hefur tök á sem veitinga-
maður,“ sagði Stefán og bað fyrir
kveðju heim.
Það er alltaf gaman
þegar mikið er að gera
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Stefán Gunnlaugsson, veitingamaður á Bautanum á Akureyri, hefur frá
áramótum starfað sem fararstjóri á Kanaríeyjum. Hér liðsinnir hann
Akureyringnum Gunnari Þórssyni, en annar ferðalangur bíður viðtals.
Stefán Gunnlaugsson söðlaði um eftir 30 ár í veitinga-
bransanum og gerðist fararstjóri á Kanaríeyjum
AKUREYRARKIRKJA: Leiksýn-
ing kl. 11 á morgun í Safnaðar-
heimili, Stoppleikhópurinn flytur
„Ævintýrið um óskirnar tíu“ í
sunnudagaskólanum.
Tónleikar kl. 16 á sunnudag þar
sem þrír kórar koma fram. Föstu-
messa kl. 20.30 um kvöldið. Séra
Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Kór Ak-
ureyrarkirkju syngur, Rósa Krist-
ín Baldursdóttir syngur einsöng,
Valgeir Skagfjörð og Saga Jóns-
dóttir lesa ljóð.
Biblíulestur kl. 20.30 á mánu-
dagskvöld, Tíu boðorð, Heilagur
Guð og afhelgun, séra Guðmundur
Guðmundsson sér um. Mogun-
söngur kl. 9 á þriðjudagsmorgun.
María Jónsdóttir í Kompaníinu
kynnir starfsemina á mömm-
umorgni kl. 10 á miðvikudags-
morgun. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund kl. 12 á hádegi á fimmtudag.
Bænaefnum má koma til prest-
anna. Léttur hádegisverður í Safn-
aðarheimili eftir stundina.
GLERÁRKIRKJA: Barnasamvera
og messa í kirkjuni á morgun kl.
11. Foreldrar hvattir til að mæta
með börnunum. Kyrrðar- og til-
beiðslustund kl. 18.10 á þriðjudag.
Hádegissamvera á miðvikudag frá
12 til 13. Helgistund, fyrirbænir
og sakramenti. Léttur hádegis-
verður í safnaðarsal á vægu verði.
Opið hús fyrir mæður og börn á
fimmtudag kl. 10 til 12. Æfing
barnakórsins kl. 17.30 á fimmtu-
dag.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sam-
koma kl. 20 í kvöld, laugardag.
Einar Höyland og frú syngja og
tala, en þau koma frá Noregi.
Unglingar taka þátt. Eftir sam-
komu er kaffi og unglingarnir selja
vöfflur með rjóma en einnig
verður happdrætti. Fjölskyldu-
samkoma á sunnudag kl. 11, börn
og unglingar verða með ýmis at-
riði.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Brauðs-
brotning kl. 20 í kvöld, G. Theodór
Birgisson predikar. Sunnudaga-
skóli fjölskyldunnar á morgun kl.
11.30. Aldursskipt kennsla þar
sem allir fá eitthvað við sitt hæfi.
Vakningasamkoma kl. 16.30 sama
dag. Fjölbreytt lofgjörðartónlist
og G. Theódór Birgisson predikar.
Fyrirbænaþjónusta, krakkakirkja
og barnapössun. Bænastundir alla
virka daga kl. 06.30.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í
dag, laugardag kl. 18 og á morgun,
sunnudag kl. 11 í Péturskirkju við
Hrafnagilsstræti 2 á Akureyri.
LAUGALANDSPRESTAKALL:
Messa verður sunnudaginn 18.
mars í Saurbæjarkirkju kl.11:00.
Sama dag kl.14:00 verður vígsla
Dalvíkurkirkju þar sem biskupinn
yfir Íslandi herra Karl Sigur-
björnsson mun predika.
MÖÐRUVALLAKLAUSTURS-
KIRKJA: Messa verður fyrir allt
prestakallið í Möðruvallaklaust-
urskirkju sunnudaginn 18. mars
kl. 14:00. Molasopi á prestssetrinu
eftir messu. Mætum öll og njótum
samveru í húsi Guðs.
SJÓNARHÆÐ: Sunnudagsskóli í
Lundarskóla kl. 13.30 á morgun,
sunnudag. Almenn samkoma á
Sjónarhæð fellur niður að þessu
sinni. Fundur fyrir 6–12 ára
krakka á Sjónarhæð kl. 17.30 á
mánudag. Roy Harrison svæðis-
stjóri Child Evangelism Fellow-
ship í Evrópu verður með nám-
skeið í barnastarfi frá kl. 20 til 22
á mánudagskvöld.
Kirkjustarf
GAMLA bátabryggjan gegnt
Slippkantinum á Akureyri var rifin
á miðvikudag í tengslum við fram-
kvæmdir við vesturkant fiskihafn-
arinnar. Hafnsögubátar Hafna-
samlags Norðurlands hafa haft þar
viðlegu en þeir hafa nú verið flutt-
ir að nýrri 36 metra langri tré-
bryggju við suðurkant fiskihafn-
arinnar.
Þá er verið að rífa burt nefið við
gömlu bátabryggjuna en á nefinu
voru verbúðir og hús sem öll hafa
verið rifin. Framkvæmdir við
dýpkun fiskihafnarinnar hefjast í
vor og næsta haust er stefnt að því
að halda áfram niðurrekstri á stál-
þili vesturkantsins til norðurs. Við-
legukanturinn er 120 metrar í dag
en hann verður lengdur um 70
metra.
Framkvæmdir í fiski-
höfninni á Akureyri
Gömul
bryggja
rifin fyrir
nýja
AGLOW, kristileg samtök kvenna,
halda fund í félagsmiðstöðinni í Víði-
lundi 22 á Akureyri næstkomandi
mánudagskvöld kl. 20. Á dagskrá
eru m.a. vitnisburðir, söngur, lof-
gjörð og fyrirbænaþjónusta, þá
verður kaffihlaðborð.
Aglow-fundur
♦ ♦ ♦
annan hvern miðvikudag