Morgunblaðið - 17.03.2001, Qupperneq 32
ERLENT
32 LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Umhverfisviðurkenning
Reykjavíkurborgar
Borgarstjórinn í
Reykjavík auglýsir
eftir tilnefningum til
Umhverfisviðurkenningar
Reykjavíkurborgar
2001
Umhverfisviðurkenning Reykjavík-
urborgar er veitt fyrirtæki eða stofn-
un sem leitast við að haga rekstri
sínum eða einstökum rekstrarþátt-
um í samræmi við grunnregluna um
sjálfbæra þróun. Til greina koma
fyrirtæki eða stofnanir í Reykjavík
sem á einhvern hátt hafa sýnt slíka
viðleitni. Viðurkenningin verður
veitt formlega á umhverfisdegi Sam-
einuðu þjóðanna þann 5. júní nk.
Viðurkenningin kom í hlut Prent-
smiðjunnar GuðjónÓ árið 2000 og
var það í fjórða sinn sem hún var
veitt.
Þeir, sem óska eftir að koma til
greina í ár eða óska eftir að tilnefna
fyrirtæki eða stofnun til Umhverfis-
viðurkenningarinnar, eru vinsamleg-
ast beðnir að fylla út sérstök eyðu-
blöð sem liggja frammi hjá Heil-
brigðiseftirliti Reykjavíkur, Suður-
landsbraut 14, og hjá Upplýsinga-
þjónustu Ráðhúss Reykjavíkur.
Tilnefningum ber að skila á sama
stað eigi síðar en 9. apríl 2001.
Umhverfis- og heilbrigðisnefnd Reykjavíkurborgar
mun óska eftir frekari upplýsingum frá tilnefndum
fyrirtækjum eða stofnunum og frá þeim aðilum
sem tilnefna.
Frekari upplýsingar fást hjá
Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur
Suðurlandsbraut 14, 108 Reykjavík, sími 588 3022.
FORSÆTISRÁÐHERRA Indlands,
Atal Behari Vajpayee, hefur fyrir-
skipað rannsókn á mútuhneykslinu
svokallaða. Hæstiréttur landsins mun
fara með rannsókn málsins, sem
skekið hefur samsteypustjórn Vajp-
ayee síðustu daga.
Í ræðu sem sjónvarpað var á rík-
isreknu sjónvarpsstöðinni Doordash-
an í gær sagði Vajpayee að hann
myndi beina þeim tilmælum til hæsta-
réttar að ljúka rannsókninni innan
fjögurra mánaða.
Hneykslið braust út sl. þriðjudag
þegar myndband var sýnt á frétta-
vefnum tehelka.com. Það voru blaða-
menn vefjarins sem gerðu mynd-
bandið sem þykir hafa afhjúpað
spillingu í varnarmálum Indlands. Á
myndbandinu má sjá háttsetta stjórn-
málamenn, embættismenn og herfor-
ingja taka við mútum frá blaðamönn-
unum sem brugðu sér í líki vopnasala.
Fyrr um daginn var því algerlega
vísað á bug að ríkisstjórnin myndi
segja af sér eins og stjórnarandstað-
an hefur krafist. George Fernandes,
sem sagði af sér embætti varnarmála-
ráðherra á fimmtudag, sagði á blaða-
mannafundi í gær að ríkisstjórnin
hefði umboð til að stýra landinu
næstu fimm árin.
„Þau einföldu rök að sumir vilji að
hún láti af völdum eru ekki nægileg til
að ríkisstjórnin segi af sér,“ sagði
Fernandes og bætti við að ákvörðun
ríkisstjórnarinnar um rannsókn máls-
ins hefði verið tekin einróma. Á fund-
inum sagði innanríkisráðherrann
L.K.Advani að hann spáði því að nafn
Fernandes yrði hreinsað í rannsókn-
inni og hann myndi taka við embætti
á nýjan leik.
„Ríkisstjórn þjófa“
Stjórnarandstæðingar á indverska
þinginu hafa ekki sætt sig við við-
brögð stjórnarflokkanna í málinu og
var áfram órólegt í þinginu í gær eins
og undanfarna daga, þrátt fyrir áð-
urnefnda afsögn Fernandes og af-
sögn leiðtoga tveggja stjórnmála-
flokka undanfarna daga, Jayu Jaitley,
formanns Samata-flokksins og Bang-
aru Laxman, formanns flokks hind-
úista, BJP, sem Vajpayee tilheyrir.
„Þetta er ríkisstjórn þjófa,“ heyrðist
kallað í þinginu og hátt settir með-
limir Kongress-flokksins, stærsta
stjórnarandstöðuflokksins kröfðust
afsagnar ríkisstjórnarinnar.
Krafist afsagnar
ráðgjafa Vajpayee
Stjórnmálaskýrendur hafa bent á
að samsteypustjórnin sé ekki í bráðri
hættu þrátt fyrir að einn flokkur,
Trinamool Kongress, hafi dregið sig
út úr samstarfinu í fyrradag. Reynd-
ar hafi stjórnin naumari meirihluta en
áður sem geri Vajpayee enn háðari
hverfulum stuðningi svæðisbundinna
flokka sem muni selja sig dýrar en
fyrr.
Sannleiksgildi þessara vangaveltna
virtist koma í ljós í gær því Samata-
flokkurinn, sem er svæðisbundinn
flokkur sem aðild á að ríkisstjórninni,
krafðist þess að tveir háttsettir emb-
ættismenn á skrifstofu forsætisráð-
herra segðu af sér að því er Reuters
fréttastofan segir. Annar þessara
tveggja manna, Brajesh Mishra, sem
er ráðgjafi forsætisráðherrans í ör-
yggismálum, er nefndur á nafn á
myndbandinu umtalaða. Leiðtogi
Samata, Prabhunath Singh, sagði í
samtali við Reuters að ef Vajpayee
hlustaði ekki á þá myndu þingmenn
flokksins hittast til að ráða ráðum sín-
um um næstu skref.
Fernandes vísaði því hins vegar á
bug á blaðamannafundinum í gær að
Samata-flokkurinn, sem hann tilheyr-
ir sjálfur, hefði gert slíkar kröfur.
Enn mikil ólga í indverskum stjórnmálum
Rannsókn hefst
á mútumálinu
Nýju Delhí. AFP, Reuters.
Stuðningsmenn Kongress-flokksins, sem er í stjórnarandstöðu á Ind-
landi, hrópa slagorð gegn núverandi stjórnarflokkum og brenna eft-
irmyndir af Vajpayee forsætisráðherra, Laxman, fv. formanni stjórn-
arflokksins BJP, og Fernandes, fv. varnarmálaráðherra.
Reuters
YFIRGANGSSEGGIR og nemend-
ur sem taka vopn með sér inn í skóla í
Kaliforníu verða neyddir til að sækja
líkhús heim og horfa á krufningu í
von um að þessar aðgerðir verði til
þess að breyta háttum þeirra.
Meðferðin, sem eftirlitsmenn
skóla í Los Angeles sjá um, kemur í
kjölfar skothríðarinnar í San Diego í
síðustu viku. Þá greip Charles Will-
iams, fimmtán ára nemandi skólans
og fórnarlamb eineltis, til vopna og
skaut tvo samnemendur sína og
særði þrettán.
Umsjónarmaðurinn Mike Anton-
ovich segir: „Maður gleymir ekki
heimsókn til líkskoðara. Að sjá hann
opna hauskúpuna til að skera úr um
dánarorsök er nokkuð sem hefur
varanleg áhrif.“
Antonovich segir að markmiðið sé
að hræða nemendur, sýna þeim áhrif
byssuskota og hnífsstungna og raun-
veruleika dauðans. „Við viljum að
börnin gangi frá þessari reynslu með
þá tilfinningu að þau vilji hvorki
deyja né verða völd að dauða ann-
arra. Krakkar munu læra að meta
lífið betur.“
Áætlunin er styrkt af lögreglunni í
Los Angeles. Hún kemur í kjölfar
aukins ofbeldis í bandarískum skól-
um og verður skylda fyrir þá sem
uppvísir verða að yfirgangi og of-
beldishótunum. Undanfarin 4 ár hafa
nemendur 16 sinnum gripið til vopna
í bandarískum skólum, þ.á m. í Col-
umbine-skólanum í Colorado þar
sem tveir nemendur skutu 12 skóla-
félaga til bana og einn kennara.
Nemendur
sendir í líkhúsið
Los Angeles. The Daily Telegraph.
„Sjokkmeðferð“ á dagskrá í Kaliforníu
SPRENGINGAR urðu í fjórum
íbúðarbyggingum í grennd við iðn-
aðarborgina Shijiazhuang í Norð-
ur-Kína í fyrrinótt. Kínverska
fréttastofan Xinhua sagði að átján
manns hefðu beðið bana en blaða-
menn í borginni sögðu að mann-
tjónið hefði verið miklu meira.
Mannréttindahreyfing í Hong
Kong sagði að allt að 200 manns
hefðu látið lífið og leifar af
sprengiefninu TNT hefðu fundist í
tveimur bygginganna. Yfirvöld
sögðu þó ekkert um hvað hefði
valdið sprengingunum, sem urðu
allar á nánast sama tíma. Orðróm-
ur komst á kreik um að verka-
menn, sem ríkisfyrirtæki hefðu
sagt upp störfum, hefðu sprengt
byggingarnar. Slík sprengju-
tilræði hafa verið fremur algeng í
Kína.
Björgunarmenn leita hér í rúst-
um einnar af byggingunum.
Reuters
Mannskæðar spreng-
ingar í Kína