Morgunblaðið - 17.03.2001, Side 36
LISTIR
36 LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
EINS og alltaf áður var troðfullt
hús og mikil stemmning á skemmti-
kvöldi sem karlakórinn Heimir hélt
í Miðgarði í Skagafirði á dögunum.
Tónleikarnir eru upphitun fyrir
suðurför kórsins síðar í mán-
uðinum. Gert er ráð fyrir að fara
hefðbundna leið til þess að
skemmta tryggum áheyrendum
þeirra Heimismanna á suðvest-
urhorninu.
Páll Dagbjartsson, formaður
kórsins, bauð gesti velkomna og
gerði grein fyrir dagskrá skemmti-
kvöldsins, sem hófst með því að Sig-
urður Hansen, bóndi á Kringlu-
mýri, flutti frumort ljóð frá ýmsum
tímum.
Sigurður er kunnur meðal hag-
yrðinga landsins, en hins vegar hef-
ur ekki mikið heyrst af ljóðum
hans, sem ort eru við hin ýmsu
tækifæri. Flutti hann þarna tæki-
færisljóð, sum orðin til í gangnakof-
um, við hinar sérstöku aðstæður,
afmælisljóð og ljúfar náttúru-
stemmningar og gerðu menn góðan
róm að.
Þá tóku Heimismenn lagið og
fluttu fjölbreytta söngdagskrá en í
hléi var boðið til veislu að hætti eig-
inkvenna söngmanna.
Í hléinu birtust á sviði þeir Agnar
Gunnarsson á Miklabæ og Einar
Halldórsson frá Kúskerpi í hlut-
verkum séra Sigvalda og Hjálmars
tudda og skemmtu gestum um
stund. Síðan tók kórinn við og flutti
síðari hluta dagskrárinnar.
Ekki brugðust þeir Heimismenn
áheyrendum sínum og mikinn fögn-
uð vakti níu ára einsöngvari, Aron
Pétursson, sem flutti Kvæðið um
fuglana eftir Atla Heimi Sveinsson.
Við lok tónleikanna sagði Pétur
Pétursson, sem kynnti lögin, að það
væri þeim kórfélögum mikil ánægja
að hafa að þessu sinni þrjá ættliði á
senunni. Pétur Pétursson, faðir Ar-
ons, og afi hans, Stefán Haraldsson,
hafa lengi sungið með Heimi.
Aron söng líka aukalag með
kórnum, Þú komst í hlaðið á hvítum
hesti, við rífandi undirtektir. Að
sögn Páls Dagbjartssonar stefna
Heimismenn að útgáfu geislaplötu í
haust en mestallt efni á henni er
þegar til og frágengið. Þá er stefnt
á söngferð suður og verða fyrstu
tónleikarnir á Akranesi 22. mars og
þeir næstu í Grindavík daginn eftir.
24. mars verða tvennir tónleikar í
Reykjavík, að deginum í Langholts-
kirkju og um kvöldið á Hótel Ís-
landi. Sagði Páll að þessir tónleikar
væru í raun upphitun fyrir ferðina
suður.
Morgunblaðið/Bj.
Þrír ættliðir á sviði: Aron Pétursson, Pétur Stefánsson og Stefán Haraldsson.
Raddir þriggja
ættliða hljóma
á Heimiskvöldi
Sauðárkrókur. Morgunblaðið.
KVENNAKÓR Reykjavíkur heldur
ferna tónleika í Íslensku óperunni á
næstunni. Tvennir tónleikar verða
á mánudag og aðrir á miðvikudag.
Tónleikarnir eru kl. 19.30 og kl.
21.30. Sér til fulltingis hefur
Kvennakórinn fengið til liðs við sig
söngvarann Pál Rósinkrans.
Á tónleikunum verða flutt helstu
Bítla- og Abbalögin, s.s. Yellow
submarine, If I fell, Penny Lane og
Yesterday, Thank you for the mus-
ic, Money, money, og Dancing
Queen. Þá verða sungnir íslensku
smellirnir Sveitapiltsins draumur,
Bláu augun þín o.fl.
Stjórnandi kórsins er Sigrún Þor-
geirsdóttir. Kjartan Valdimarsson
leikur á píanó, Jóhann Hjörleifsson
á trommur og Friðrik Haraldsson á
bassa. Miðar á tónleikana fást í Ís-
lensku óperunni og hjá kórkonum.
Kvennakór Reykjavíkur ásamt stjórnandanum á æfingu.
Bítlastuð með
Kvennakór
Reykjavíkur
KROSSFERILSBÆNIR er þrí-
skipt: Krossferilsbænir úr Gamla
testamentinu, Krossferilsbænir úr
Nýja testamentinu og helgisiðir
kirkjunnar og Krossferill Krists í
bænum trúaðra.
Í fréttatilkynningu segir m.a.:
„Þeir sem kunnugir eru kaþólskum
kirkjum vita, að á veggjum þeirra
eru 14 myndir úr píslarsögu Jesú
Krists. Á föstudögum í lönguföstu
eru beðnar þar bænir sem kallast
krossferillinn. Gengið er fyrir
myndirnar, stansað hjá hverri fyrir
sig og hugleitt það atriði píslarsög-
unnar sem myndin sýnir.“
Útgefandi er Hjalti Þorkelsson.
Anna G. Torfadóttir myndskreytir.
Bókin er 68 bls. Hún er unnin í
Prentmennt ehf. og er til sölu í Kaþ-
ólsku bókabúðinni, Hávallagötu 14.
♦ ♦ ♦
Nýjar bækur
ÁST á óperu, einkum Mozart og síðan ást á óp-
erusöngkonu leiddi á sínum tíma til þess að óperan í
Glyndebourne í Suður-Englandi var stofnuð af
hjónunum John Christie og söngkonunni Audrey
Mildmey. Fjölskyldan heldur enn um stjórnvölinn,
ásamt öðrum. Nú þegar Nicholas Snowman, sem
kom til starfa í Glyndebourne 1998, hefur hætt
skyndilega og án nokkurra skýringa, hefur við ráð-
inn nýr framkvæmdastjóri, hinn fertugi David
Pickard, sem ekki hefur reynslu af óperurekstri, en
þekkir þó bæði til tónlistarumsvifa og óperunnar.
Þar sem óperan í Glyndebourne er eitt af meg-
inóperuhúsum Bretlands vekja allar hræringar þar
mikla athygli og þannig er það einnig núna. Það
eykur við að Snowman kom inn með hugmyndir um
ýmsar breytingar, sem sumar hafa gengið eftir en
aðrar ekki. Því velta menn vöngum yfir hvort hefðin
hafi orðið nýjungagirninni sterkari. Snowman hefur
aðeins sagt að hann láti af störfum til að vera meira
með fjölskyldu sinni. Glyndebourne-óperan er
þekkt fyrir að fá til liðs við sig unga og efnilega
söngvara. Þess er skemmst að minnast að Finnur
Bjarnason söng þar í Don Giovanni í haust og á
væntanlega eftir að sjást aftur á fjölum óperunnar.
Frá Mozart til nútímaópera
Landeigandinn John Christie var ákafur óperu-
unnandi og þegar hann erfði búgarðinn í Glynde-
bourne 1920 datt honum í hug að stuðla að óperu-
flutningi, sem honum fannst Bretar sinna
skammarlega illa. Christie var staðfastur pipar-
sveinn, en þegar hann kynntist söngkonunni Audr-
ey Mildmay 48 ára að aldri skipti hann um skoðun
og þau giftust.
Eftir tilheyrandi brúðkaupsferð til Salzborgar og
Bayreuth, eins og sæmdi óperuunnendum, hófust
þau handa um að koma óperunni upp. Audrey þótti
hugmyndir eiginmannsins heldur óburðugar og
áleit að fyrst setja ætti óperur upp á annað borð
yrði að gera það almennilega. Húsið, sem hann lét
byggja, tók 300 manns í sæti. Það hefur síðan verið
stækkað og tekur nú rúmlega 500 manns í sæti í við-
arklæddum og notalegum sal.
Óperan tók til starfa 1934. Í stríðinu var óperu-
húsið svefnskáli fyrir börn frá London, sem forðað
var frá loftárásum. Eftir stríðið voru peningarnir
búnir, en Christie stóð að stofnun Edinborgarhátíð-
arinnar 1947, sem óperan tengdist og 1950 var svo
stofnað fjárhaldsfélag, sem síðan hefur séð um að
afla fjár til Glyndebourne-óperunnar.
Áherslan hefur frá upphafi verið á óperum Moz-
arts, uppáhaldi Christies, en síðari árin hafa nú-
tímaóperur bæst við. Frábærir listamenn hafa
starfað þarna, til dæmis hljómsveitarstjórarnir
Fritz Busch, Bernard Haitink og Sir Andrew Davis,
sem hefur nýlega látið af störfum. Auk þess má
nefna listmálarann David Hockney, sem gerði leik-
tjöld og Peter Hall leikstjóri var á sínum tíma list-
rænn stjórnandi þarna.
Fjölskyldan við stjórn
Það er því traust og góð hefð að baki Glynde-
bourne-óperunnar og sýningar þar laða að óperu-
unnendur alls staðar að úr heiminum. Frá fyrstu
hefur áhersla verið á langan æfingatíma og sam-
hæfðan hóp alþjóðlegra söngvara frekar en stuttan
tíma með frægum stjörnum. Það tilheyrir sumar-
heimsókn á Glyndebourne að njóta matar í hléinu.
Gestirnar taka með sér allsnægtakörfur með eðal-
víni og góðum mat, eða kaupa körfur á staðnum.
Audrey Mildmay lést 1953 og Christie 1964. Son-
ur þeirra, Sir George Christie, dró sig í hlé sem
stjórnarformaður í árslok 1999, en er samt áfram
viðriðinn reksturinn. Sonur Sir George, Augustus,
tók við af föður sínum.
Snowman hafði ýmsar breytingar í huga. Hann
vildi að óperan færðist meira í fang, tækist á við
stærri verkefni og nú er Otello Verdis á komandi
dagskrá, auk þess sem hann vildi að óperan kastaði
sér út í samkeppnina um stóru nöfnin og pantaði
nýjar óperur til flutnings. Hvort hann komst að því
að fjölskyldan var hikandi við breytingar, sem
gengu þvert á Christie anda staðarins eða varð bara
þreyttur er óljóst, en breskir fjölsmiðlar spá því að
Pickard muni þurfa að þræða milli skers og báru í
metnaði sínum fyrir hönd Glyndebourne.
Síðan 1993 hefur David Pickard rekið Orchestra
of the Enlightenment, hljómsveit sem hefur frá
stofnuninni 1986 einbeitt sér að flutningi tónlistar
með upprunalegum hljóðfærum. Hljómsveitar-
stjórar eins og Frans Brüggen og Sir Simon Rattle
eru fastir gestastjórnendur og hljómsveitin á marg-
ar útgefnar upptökur að baki. Áður starfaði Pickard
hjá Covent Garden, en Glyndebourne þekkir hann
því hljómsveitin hefur oft verið húshljómsveit í óp-
eruflutningi þar.
Pickard mun ekki taka við rekstrinum fyrr en
síðar á árinu, svo það verður ekki fyrr en einhvern
tímann á næsta ári að hann fer að setja svip á stað-
inn. Efalaust verður náið fylgst með hvernig það
muni takast, en hann hefur enn ekki látið neitt uppi
um hvaða hugmyndir hann hafi um reksturinn og
andann á Glyndebourne.
Nýr framkvæmdastjóri í Glyndebourne
Línudans milli hefð-
ar og nýsköpunar
David Pickard
Saga óperunnar í Glyndebourne
svífur þar yfir vötnunum, segir Sig-
rún Davíðsdóttir, en nýr forstjóri
eftir að annar hætti eftir skamman
feril er dæmi um að það er ekki allt-
af auðvelt að halda áfram eins og
ekkert hafi í skorist.
ROBERT Kellogg prófessor
flytur erindi á miðvikudags-
kvöld kl. 20.30 í Sögufélags-
húsinu við Fischersund. Fyr-
irlesturinn er liður í
Rannsóknarkvöldi Félags ís-
lenskra fræða og nefnist
„Iceland in the Art and Life
of William Morris“. Fyrir-
lesturinn er á ensku en fund-
armönnum er frjálst að
spyrja á íslensku.
William Morris (1834-1896) var
skáld, listamaður, umbótasinnaður
sósíalisti og viðskiptajöfur er hann
kom fyrst til Íslands árið 1871.
Tveimur árum áður hafði hann haf-
ið nám í íslensku hjá Eiríki Magnús-
syni og hóf að þýða fornsögur á ensku
með aðstoð Eiríks. Ísland og íslensk-
ar miðaldabókmenntir urðu honum
eins konar fyrirmynd, hvort sem var
frá listrænu, pólitísku eða
persónulegu sjónarmiði.
Sérstaklega þótti honum
aðdáunarvert hvernig hinar
fornu höfundarlausu bók-
menntir – Biblíur fólksins
eins og hann nefndi þær –
gátu lifað framhaldslífi og
mótað siðferði manna í ein-
földu og stéttlausu sam-
félagi. Sjálfur lifði hann í eins
konar ástarþríhyrningi ásamt konu
sinni og vini, Dante Gabriel Rossetti.
Robert Kellogg er kunnur fyrir frá-
sagnarfræðiritið „The Nature of
Narrative“. Kellogg hætti störfum frá
Virginiuháskóla árið 1999 og hefur
síðan dvalið jöfnum höndum á Íslandi
og í Bandaríkjunum. Hann kennir
reglulega við enskudeild Háskóla Ís-
lands og er í íslensku Fulbrightnefnd-
inni.
Ísland í lífi og list
Williams Morris
William Morris