Morgunblaðið - 17.03.2001, Side 38
LISTIR
38 LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VORTÓNLEIKARÖÐ Karlakórs
Reykjavíkur verður óvenju
snemma á ferðinni í ár, en hún
hefst í húsi kórsins, Ými við Skóg-
arhlíð, í dag kl. 16. Alls verða
haldnir sex tónleikar á vikutímabili
með fjölbreyttri efnisskrá en að
sögn Guðmundar Sigþórssonar,
formanns stjórnar Karlakórs
Reykjavíkur, ber hún keim af því
að kórinn heldur upp á 45 ára af-
mæli sitt í ár. „Við erum nú aðeins
að lyfta okkur upp af því tilefni og
verðum með fjöruga og hátíðlega
dagskrá auk ýmissa skemmtileg-
heita.“ Þá syngur kór eldri félaga
sem kemur gjarnan fram með að-
alkórnum á stórafmælum, auk þess
sem fjórir hornleikarar úr Sinfón-
íuhljómsveit Íslands munu leika
kvartett fyrir fjögur horn eftir
Rossini.
Guðmundur segir að þetta sé í
annað sinn sem vortónleikaröð er
haldin í Ými, nýju húsnæði kórsins.
„Í fyrra var það ekki að öllu leyti
tilbúið, en nú erum við komnir með
allan búnað og erum mjög ánægðir
með að hafa náð því marki að geta
haldið vortónleikana nú í fullbúnu
húsinu.“
Lögin á efnisskránni eru fengin
úr ýmsum áttum. Á efnisskrá að-
alkórsins eru m.a. lög eftir fyrr-
verandi stjórnendur hans, Pál
Pamplicher Pálsson og Sigurð
Þórðarson. „Við syngjum m.a.
gamla smelli eftir Pál, þ.e. Hvað
svo?, lag sem fjallar um samskipti
kynjanna, og Öld hraðans, sem
fjallar á nokkuð gamansaman hátt
um nútímann, lýsir í raun flugtaki
og lendingu hjá Loftleiðaflugvél,“
segir Guðmundur. Auk þess syngur
kórinn lög eftir Sigfús Einarsson,
negrasálminn Were you there? og
Als Bublein klein, sem er nokkurs
konar drykkjuvísa úr Kátu kon-
unum frá Windsor. Þá flytur kór-
inn Dóná svo blá, frægan vals eftir
Johann Strauss. „Strauss samdi
þetta lag upphaflega fyrir karla-
kór. Það er hins vegar sjaldan flutt
í þeirri útgáfu, og munum við bæta
úr því,“ segir Guðmundur. Þá verð-
ur fluttur Veiðimannakórinn úr
Töfraskyttunni eftir Carl Maria
von Weber og Prestakórinn úr
Töfraflautunni eftir Mozart.
„Þannig verðum við á alþjóðlegum
og fjörugum nótum í okkar efnis-
skrá, en kór eldri félaga mun hins
vegar syngja rammíslensk lög, m.a.
eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson,
Pál Ísólfsson og Áskel Jónsson.“
Einsöngvarar eru að þessu sinni
úr röðum kórmanna, en þeir eru
Hjálmar Pétursson, Karl Jóhann
Karlsson og Gústav H. Gústavsson.
„Kór eldri félaga er auk þess með
einsöngvara úr sínum röðum, en
síðan er aldrei að vita nema við
lumum á enn fleiri einsöngvurum í
aukalögunum,“ segir Guðmundur
og gefur í skyn að tónleikagestir
megi eiga von á óvæntri upp-
ákomu. „Í lokin munu kórarnir
stiga á svið saman, um 110–120
karlar, og m.a. syngja Ísland, Ís-
land, einkennislag kórsins. Við
stefnum á að gera tónleikana eft-
irminnilega, bæði fyrir flytjendur
og áhorfendur, enda er þetta liður í
gleðskap sem mun standa meira og
minna allt árið,“ segir Guðmundur
en í september verður formlega
haldið upp á afmæli kórsins á há-
tíðartónleikum með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands í Háskólabíói.
Fyrstu tónleikar Vortónleikarað-
arinnar verða sem fyrr segir
haldnir í dag, 17. mars, kl. 16. Þá
syngur kórinn sunnudaginn 18.
mars kl. 16, þriðjudaginn 20. mars
kl. 20, miðvikudaginn 21. mars kl.
20 og fimmtudaginn 22. mars kl.
20. Sjöttu og síðustu tónleikarnir
verða laugardaginn 24. mars kl. 16.
Allir tónleikarnir eru haldnir í tón-
leikasalnum Ými við Skógarhlíð.
Vortónleikaröð Karlakórs Reykjavíkur að hefjast
Fjörug og hátíð-
leg dagskrá í
tilefni afmælis
Á NEÐRI hæð veitinga- og
skemmtistaðarins Ozio við Lækjar-
götu leikur Jazzkvartett Ragnars
Emilssonar annað kvöld, sunnudags-
kvöld, kl. 21.30.
Kvartettinn skipa: Ragnar Emils-
son, gítar, Davíð Þór Jónsson, hljóm-
borð, Jón Rafnsson, bassa, og Helgi
Sv. Helgason, trommur.
Flutt verða djasslög frá seinni
tímum í bland við frumsamið efni.
Miðaverð 600 kr.
Sunnudags-
djass á Ozio
RÚSSNESKA kvikmyndin Anna
Pavlova verður sýnd í bíósal MÍR,
Vatnsstíg 10, á morgun, sunnudag,
kl. 15. Í myndinni, sem gerð var árið
1983, segir frá lífi og listrænum ferli
hinnar frægu rússnesku ballettdans-
meyjar Önnu Pavlovu sem uppi var
1881–1931, allt frá því hún hóf dans-
nám í bernsku og fór að starfa ung
við Marinskíj-leikhúsið í Pétursborg.
Leikstjóri kvikmyndarinnar er
Emil Lotyanu (f. 1936). Í titilhlut-
verkum er Galína Beljaéva, en meðal
annarra leikara Bandaríkjamaður-
inn James Fox. Margir af fremstu
dönsurum óperu- og ballettleikhús-
anna í Leningrad og Moskvu koma
fram í myndinni og hljómsveitir leik-
húsanna leika.
Skýringar með kvikmyndinni eru
á ensku. Aðgangur er ókeypis.
Rússnesk kvik-
mynd í MÍR
LISTÁRIÐ 2001 er komið út. Í
því er fjallað um það helsta, sem er á
döfinni í Listasafni Íslands á þessu
ári, en einnig greint frá því fræðslu-
og rannsóknarstarfi sem þar fer
fram. Sýningardagskrá ársins er á
miðopnu blaðsins. Einnig er í
blaðinu fjallað sérstaklega um helstu
sýningar listársins í máli og mynd-
um. Ólafur Kvaran safnstjóri ritar
opnugrein um markmið og áherslur.
Þá fjalla deildarstjórar og aðrir
starfsmenn Listasafnsins meðal
annars um uppsetningu sýninga,
forvörslu og varðveislu verka, sér-
fræðibókasafn um íslenska myndlist,
fræðslustarf í safninu og uppsetn-
ingu gagnagrunns um íslenska
myndlistarsögu.
Sagt er frá útgáfustarfsemi Lista-
safns Íslands, safnbúðinni, nýskip-
uðu safnráði LÍ og kaffistofunni, en
hún er sjálfstæð rekstrareining inn-
an safnsins.
Fjallað er um fyrirhugaða flutn-
inga skrifstofuhluta safnsins í hús-
næði á Laufásvegi 12 og sagt frá
framlengingu samstarfssamnings
Símans og Listasafns Íslands.
Ritstjórar eru Hildur Helga Sig-
urðardóttir og Margrét Elísabet
Ólafsdóttir, ábyrgðarmaður Ólafur
Kvaran.
Blaðið er ókeypis og verður því
dreift víðs vegar um landið, en einn-
ig er hægt að nálgast það á Lista-
safni Íslands, Fríkirkjuvegi 7.
Ritið er 12 síður, í stóru broti,
prýtt fjölda litprentaðra mynda.
Rit
DAGSKRÁIN Óður til Tínu, sem féll
niður hinn 5. mars í Listaklúbbi
Leikhúskjallarans, verður flutt á
mánudagskvöld kl. 20.30.
Morgunmeyjar Kramhússins –
Tíu Tínur – skemmta ásamt Ruth
Reginalds og hljómsveit Magnúsar
Kjartanssonar.
Lísa Pálsdóttir útvarpskona verð-
ur kynnir kvöldsins og rifjar upp
helstu atriðin úr söngferli Tínu
ásamt því að bregða upp tóndæmum.
Óður til Tínu í
Listaklúbbnum
RAGNAR Óskarsson opnar ljós-
myndasýningu í sal félagsins Íslensk
grafík, Hafnarhúsinu, hafnarmegin,
í dag kl. 16. Á sýninguni eru 20 staf-
rænar og óbreyttar ljósmyndir. Sýn-
ingin stendur til 1. apríl.
Stafrænar
ljósmyndir
MÁR Jónsson sagnfræðingur held-
ur fyrirlestur í hádegisfundaröð
Sagnfræðingafélags Íslands í stóra
sal Norræna
hússins nk.
þriðjudag kl.
12.05 og lýkur kl.
13. Fyrirlestur-
inn nefnir hann
„Heimildir sem
heimildir um
heimildir“. Már
fjallar um þá til-
hneigingu í mörg-
um fræðigreinum
að horfa framhjá því að handritin
séu hlutir. „Íslenskir miðaldasagn-
fræðingar, svo dæmi sé tekið, nota
ritheimildir í útgáfum sem fyrir
liggja en gæta oft ekki að efnislegum
grundvelli þeirra, handritum og
skjölum. Íslenskufræðingar einblína
á tengsl ritverka sín á milli eða
munnlegan uppruna þeirra. Hand-
ritafræðingar huga einkum að texta-
tengslum handrita eða framvindu
textahefðar. Og fornleifafræðingar
skoða einungis muni sem hafa fund-
ist á víðavangi eða í jörðu niðri,“ seg-
ir Már.
Í fyrirlestrinum er ætlunin að
reifa möguleika á því að auka þekk-
ingu okkar á íslenskum handritum
frá tímabilinu 1100–1600 og þar með
forsendum íslenskrar menningar á
miðöldum. Slagorðið er: Athugum
ritheimildir án ritheimilda.
Már Jónssson er dósent í sagn-
fræði við Háskóla Íslands. Eftir
hann liggja m.a. bækurnar Blóð-
skömm á Íslandi 1270–1870 (1993),
Árni Magnússon: Ævisaga (1998) og
Dulsmál á Íslandi 1600–1900 (2000).
Aðgangur er ókeypis.
Fyrirlestur
um heimildir
Már
Jónsson
VÍKINGUR Heiðar Ólafsson píanó-
leikari heldur einleikaraprófstón-
leika frá Tónlistarskólanum í Reykja-
vík í Salnum í Kópavogi í dag kl. 14.
Á efnisskránni eru Prelúdía og
fúga nr. 21 í B-dúr BWV 866 (WK I)
eftir Johann Sebastian Bach, Sónata í
a-moll KV 310 eftir Wolfgang Ama-
deus Mozart, Etýða nr. 4, úr 1. hefti
(1985) eftir György Ligeti og Sónata í
h-moll eftir Franz Liszt. „Ég passaði
mig á því að hafa efnisskrána ekki of
langa, til að vera ekki að pína fólkið
úti í sal,“ segir Víkingur Heiðar og
lofar því að tónleikarnir verði ekki
miklu lengri en klukkutími.
Hef gaman af að spila verk þar
sem tilfinningasviðið er stórt
„Ég byrja á Bach, Prelúdíu og
fúgu í B-dúr, sem er í virtúósastíl og
þykir ein sú framúrstefnulegasta.
Svo er Sónata í a-moll eftir Mozart,
sem er einhver sú dramatískasta frá
hans hendi. Þegar Mozart semur
hana er móðir hans nýdáin og hann
sjálfur í mikilli sálarkreppu. Ég valdi
hana vegna þess að ég er svo drama-
tískur í mér og hef gaman af að spila
verk þar sem tilfinningasviðið er
stórt. Síðast fyrir hlé er píanóetýða
eftir Ligeti, sem er samtímamaður.
Mig langaði til að spila eitthvað alveg
nýtt sem fæstir í salnum hefðu heyrt.
Ég hef líka heyrt að þetta sé einhver
besta píanómúsík sem samin hefur
verið eftir Bartok og þá alla. Ég er
mjög hrifinn af þessu verki og finnst
ákveðin ögrun í því að spila það, “
segir hann.
Sýnir allt sem píanóleikarinn
þarf að hafa til að bera
Eftir hlé er eitt verk, Sónata í
h-moll eftir Liszt. Víkingur segir að
hún hafi verið mikið uppáhaldsverk
hjá sér í ein tvö ár. „Hún er hálftíma
löng og er talin vera einn helsti horn-
steinn rómantísku píanóbókmennt-
anna. Hún er svo ótrúlega „píanist-
ísk“, sýnir allt sem píanóleikarinn
þarf að hafa til að bera. Auk þess
finnst mér mjög gaman að spila róm-
antísk verk – það hentar mér mjög
vel,“ segir hann.
Miðasala hefst klukkustund fyrir
tónleikana í Salnum eða kl. 13 í dag.
Finnst mjög gaman að
spila rómantísk verk
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Víkingur Heiðar Ólafsson þreytir einleikarapróf í píanóleik frá Tónlist-
arskólanum í Reykjavík í Salnum í Kópavogi í dag kl. 14.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦