Morgunblaðið - 17.03.2001, Page 39

Morgunblaðið - 17.03.2001, Page 39
MENNTUN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 39 VIÐ LOK þessa greinaflokksum stærðfræði og stærð-fræðinám er ástæða til aðstaldra við nokkur megin- atriði sem ég hef fjallað um og freista að setja þau í samhengi. Einnig er bent á verk sem unnið er að á vettvangi skólamála og hvernig þeim vindur fram. En ítrekað hefi ég bent á að stök verkefni, þótt kölluð séu átak, vega lítið þegar tekist er á við málefni eins og þessi, málefni sem eru svo samofin menningu okk- ar að ekki er talið taka því að tala um en þó svo sundurrofin frá hinni sýni- legu og opinberu menningu okkar að mikilvægi þeirra hverfur sífellt í skuggann. Gegnum árin hef ég í viðræðum mínum við ýmsa stærðfræðinga, og í því sem ég hef hlustað á þá segja eða lesið eftir þá, fundið efasemdir um að unnt sé að skrifa yfirleitt nokkuð um stærðfræði fyrir almenning. Efa- semdir hef ég einnig heyrt um að unnt sé að gera efni fyrir sjónvarp svo að sú stærðfræði sem sýnd er sé verðug. Slíkar efasemdarraddir hef ég einnig heyrt frá fólki sem hefur litla þekkingu á stærðfræði. Rökin snúast þá ekki um áhyggjur af því að efnið verði óverðugt heldur óskemmtilegt. Læsi Íslendinga í stærðfræði Sumir viðurkenna mikilvægi þess að gera fólki grein fyrir raunveru- legu eðli og hlutverki stærðfræði í nútíma- og framtíðarþjóðfélagi. En eitt er að skilja, annað að vilja. Og eitt er að vilja, annað að kunna. Það krefst umhugsunar og yfirsýnar, að skrifa fyrir almenning um flókin málefni sem sjaldan sjást í fjölmiðl- um. En mikilvægt er að efla slíka kynningarskyldu fræðimanna. Með því að mun fleiri komi að slíku verki varðandi stærðfræði en höfundur þessara greina, getur flóra þess sem skrifað er orðið fjölbreyttari og um leið náð athygli mun fleira fólks. Sjónvarpsþættirnir Líf í tölum hafa greini- lega víða kveikt áhuga. Eftirlaunaþegar, nem- endur á barnastigi og all- ir aldurshópar þar á milli hafa sent þakkarkveðjur og stundum eitthvað um það hvaða þættir hafi höfðað sterkast til þeirra. Margar spurningar hafa greinilega vaknað og hlutdeild stærðfræði í alls kyns störfum hefur komið í ljós. Með sýn- ingu Sjónvarpsins á þessum þáttum er óhætt að fullyrða að læsi margra Íslendinga á stærðfræðisviðið og for- vitnileika þess hefur eflst eða jafnvel orðið til. Þökk sé Sjónvarpinu fyrir það. Þökk einnig Morgunblaðinu fyrir að birta þennan greinaflokk samhliða sjónvarpsþáttunum en hann var skrifaður til þess að setja inntak þeirra í víðtækara samhengi og tengja íslenskum aðstæðum. Sá sem vill læra stærðfræði að loknum grunnskóla hefur vart getað það nema á stærðfræðitengdum sviðum háskóla. Með rafrænu að- gengi að fræðsluefni, námsverkefn- um og leiðbeiningum eru einstak- lingar nú frjálsari að því hvar og hvernig þeir skapa sér námsum- hverfi. En flestir telja erfitt að læra stærðfræði án kennara. Rafrænu miðlarnir og myndefni bjóða hins vegar möguleika á að breyta stærð- fræðinámi innan skóla þannig að það höfði til mun víðtækari hóps en verið hefur og jafnvel einnig til fólks sem ekki stefnir að prófi heldur vill bara fræðast sér til ánægju. Hér á ég að sjálf- sögðu ekki við æfinga- dæmi í algebru eða al- mennum brotum sem vissulega er að finna í talsverðum mæli á Net- inu allt eins og verið hefur í áratugi í æfinga- heftum skólanna. Vand- inn sem slíkum æfinga- dæmum er ætlað að leysa er ekki rétt greindur. Meginvand- inn er ekki sá að nem- endur geti ekki lært að- ferðir til að leysa dæmi og munað það í takmarkaðan tíma þar til próf er yfirstaðið. Vandinn er sá að nem- endur átta sig ekki á því hvaða fyr- irbærum í lífinu almenn brot lýsa og um hvað algebra snýst. Við slíkum vanda er ekki hægt að bregðast á annan hátt en að auka læsi þeirra á þau svið sem fela í sér hlutföll og margvíslegan stærðarsamanburð þar sem skilningur á almennum brotum er mikilvægur. Og það er ekki nóg að benda á þetta, þarna verður meginþungi vinnunnar að liggja. Á sama hátt verður nemandi að sjá mörg dæmi um regluleika í tölum og reikningi til þess að byrja að greina að sumt á alltaf við, er algilt og kallar á hugtök og tákn algebr- unnar og þá yfirsýn sem hún veitir varðandi talnareikning og síðar fleiri stærð- fræðisvið ef nemandi heldur lengra. Æfinga- dæmi án tengsla, skiln- ingsleitar og umræðu hafa gengið sér til húðar fyrir löngu og gera fátt annað en viðhalda vanda. Markmið í stærðfræðikennslu Læsið á stærðfræðilegu fyrirbær- in í umhverfinu er of lítið. Og aðgerð- ir til þess að efla það stranda oftar en ekki á því að kennarar og foreldrar hafa ekki sjálfir mátað á sig þau „stærðfræðilegu gleraugu“ sem til þarf. En hægt er að koma móts við þá kennara sem vilja taka á málinu og einnig foreldra. Talsvert stór hóp- ur kennara óskar eftir slíku en þarf stuðning og samstarf. Áður en það er rökstutt frekar er rétt að greina nokkra meginþætti sem ástæða er að hafa að markmiði í allri stærðfræði- kennslu.  Að nemandinn sé læs á þau stærð- fræðilegu fyrirbæri í umhverfi sínu sem hann hefur þroska og reynslu til að gera sér grein fyrir.  Að nemandinn sé fær um að glíma óhræddur við þrautir sem tengjast þessum fyrirbærum og hann skilur inntakið í. Hann geri það með hverj- um þeim hjálpartækjum sem henta honum, af fullum skilningi á því sem hann gerir og fullfær um að gera grein fyrir lausnum sínum og leiðum.  Að nemandinn skilji stærðfræði- legt samhengi án þess að tengja það sérstökum tilvikum og geti við lausnir þrauta fært sér í nyt þekkingu á hliðstæðum þrautum eða hlutum þeirra. Að hann geti byggt upp sí- vaxandi þekkingu sína og yfirsýn án þess að hvati eða tilefni komi frá öðrum en geti sjálf- ur sett fram spurning- ar til að glíma við út frá eigin yfirsýn og kunn- áttu. Sem háskólakennari lít ég ofanskráð mark- mið sem mjög mikil- væg og er að sjálf- sögðu ekki ein um það. En barnakennarinn getur einnig nýtt þessi markmið og byrjenda- kennari ekki síður en aðrir fái hann til þess nokkurt liðsinni. Mikilvægt er að láta aldrei deigan síga. Hvert skref sem stigið er þarf að vera tilefni til að stíga hið næsta. Þess vegna er brýnt að benda nú þegar á viðfangsefni sem myndi muna verulega um og unnt er að framkvæma. Þau keppa ekki við neitt annað sem er í gangi, hvorki stutt námskeið víða um land eða þró- unarverkefni einstakra kennara- hópa. En þau gefa möguleika á var- anlegri áhrifum en þessi verk. Endurmenntun kennara Skýrslur um endurmenntun kenn- ara þykja sýna mikla þátttöku. En fæstir gera sér ljóst hve hlutfallslega lágar tölurnar eru. Lítill hluti þeirra þúsunda sem kenna stærðfræði í skólum landsins hefur sóttendur- menntunarnámskeið á því sviði und- anfarinn áratug og langflestir aðeins stutt námskeið upp á 20 til 30 stund- ir. Slík námskeið duga ekki til að valda þeim breytingum sem eru nauðsynlegar að mati Bandaríkja- manna varðandi skólastarf þeirra og allar rannsóknir hér á landi benda til þess að hið sama eigi við hér. Þeir benda hins vegar á langt þróunar- ferli kennarahópa innan einstakra skóla sem fyrirmynd en þá leið hafa Japanir byggt upp undanfarna hálfa öld. Til eru dæmi um þessi vinnu- brögð hér á landi en þau tengjast einkum því sem kallað er Stærð- fræðikennsla byggð á skilningi barna. Stærðfræðikennsla byggð á skiln- ingi barna er grundvölluð á rann- sóknum Carpenters, Mosers og Rombergs kringum 1980. Þeir at- huguðu skilning barna á orðadæm- um úr nánasta umhverfi þeirra áður en þeim voru kenndar nokkrar að- ferðir eða uppsetningar. Þessar rannsóknir hafa fremur flestum öðr- um varpað ljósi á hve miklu meiri skilning börn hafa á þessum málum en skólinn hefur fært sér í nyt í byrj- endakennslu. Rannsóknir þeirra hafa verið endurteknar víða um heim með sömu niðurstöðum. Í framhaldi þeirra hófst síðan markviss vinna með byrjendakennurum við að skoða hvernig börn færu eðlilega að og að gefa kennurum þannig kost á að end- urskoða eldri leiðir í kennslu og að byggja á skilningi barnanna í stað þess að fylgja bókum síðu fyrir síðu. Stærðfræðikennsla byggð á skilningi barna hófst hér fyrir sex árum og hafa stuttar kynningar náð til fjöl- margra. Haustið 1999 jók mennta- málaráðherra stundafjölda byrjenda í stærðfræði. Það er viðurkenning á mikilvægi byrjendakennslunnar og ósk um að gefa þessum þætti miklu meiri gaum en áður. Öflugt starf með byrjendakennurum til að styðja þá í að nýta skilning barna og byggja á honum er bæði mikilvægasta verk- efnið að taka á í endurmenntun og einnig það aðgengilegasta. Þar er líka aðveldast að ná samstarfi við foreldra og að mynda sameiginlegt umhverfi fyrir stærðfræðinám barnanna. Námsgögn; myndbönd … Þeim sem ber saman lista yfir þau námsgögn sem skólum stóðu til boða árið 1985 og svo aftur árið 2000 verð- ur líklega fyrst starsýnt á þann fjölda myndbanda sem kominn er á markaðinn. Mismunandi er þó eftir námsgreinum hvert framboðið er og í stærðfræði er það afar takmarkað þótt til sé erlendt efni til þýðingar. Góð myndbönd geta skipt miklu máli við að gera stærðfræðikennsluna frjórri og nemendur betur læsir á stærðfræðileg fyrirbæri í umhverfi sínu. Því skiptir miklu máli að fá sjónvarpsþættina Líf í tölum á myndbönd fyrir fram- haldsskóla og eldri nem- endur grunnskólanna. Ósk um það var komið á framfæri strax og Sjón- varpið hafði ákveðið að taka þættina til sýningar en ekki er enn ljóst hvort opinberir aðilar hafi fé til að leggja í þetta verk. Vonandi verður það þó. Myndböndin ein duga samt skammt. Með þeim þarf verkefni og aðgengilegt lesefni. Unnið er að slíku við Kennaraháskóla Íslands og að fjármögnun. Einnig hefur verið skoðaður möguleiki á að bjóða nám- skeið fyrir kennara sem vilja nýta myndböndin ásamt efni á vef og fleiru til þess að auka stærðfræðilegt læsi og áhuga nemenda sinna og þar með yfirsýn þeirra og árangur. Ísland er eyja en þó ekki í öllum skilningi. Við búum við sömu vanda- mál á þessu sviði og fjöldi annarra vestrænna landa. Lítum á dæmi um aðgerðir innan nokkurra þeirra. Í viðtali Ritu Colwell forstjóra National Science Foundation í Bandaríkjunum við Los Angeles Times fyrir rúmri viku var rætt um forgangsverkefni hennar fyrir sjóð- inn. Colwell er líffræðingur og hefur stjórnað mjög veigamiklum rann- sóknaverkefnum á erfðamengi mannsins. Engu að síður hefur hún sett stærðfræði í forgang til styrk- veitinga. Hún vekur athygli á því að stærðfræði hafi sem fræðigrein fengið minna fé aðrar greinar en vegna mikilvægis hennar í öllum náttúruvísindum verði að snúa því við. Hún bendir á þátt stærðfræði í upplýsingaflæði nútímans sem felst í því að gera gögnin skiljanleg og sem aftur er grundvöllur þess að skapa þekkingu úr upplýsingum. „Haldið áfram,“ sagði David Blunkett menntamálaráðherra Eng- lands þegar hann tilkynnti að fjár- veiting yrði tryggð til þess að starfið við Alþjóðlega stærðfræðiárið 2000 gæti haldið áfram í Englandi árið 2001. Vefur stærðfræðiársins fékk verðlaun á BETT upplýsingatækni- sýningunni í menntamálum sem besti ókeypis námsgagnavefurinn í Englandi. Glenn-skýrslan svonefnda sem lögð var fram í lok september 2000 eftir störf „National Commission on Mathematics and Science Teaching for the 21st Century“ bar heitið Be- fore It’s Too Late. Í henni segir m.a. „Í stuttu máli eru börn í bandarísku þjóðfélagi að glata hæfninni til þess að mæta þeim ögrandi viðfangsefn- um sem þegar liggja fyrir við upphaf 21. aldarinnar að ekki sé talað um þau sem koma í kjölfarið. Okkur er að mistakast að fanga áhuga æsk- unnar fyrir vísindum og stærð- fræði.“ Í yfirlýsingu Freudenthal-stofn- unarinnar í Hollandi, sem er ein af virtari rannsóknastofnunum á sviði stærðfræðimenntunar, segir: „Að mati okkar eru kennarar mikilvæg- ustu boðberar nýrra hugmynda um breytingar varðandi stærðfræðinám. Kennarar gera það kleift að stærð- fræðimenntun nái þeim gæðum að efla hæfni nemenda til að mæta kröf- um nútíma þjóðfélags.“ Sænska ríkisstjórnin samþykkti í lok desember 2000 sérstaka fjárveit- ingu til þess að efla stærðfræði- menntun. Einkasjóðir og fyrirtæki, svo sem bankar, hafa einnig lagt mikla fjármuni til ýmissa þátta þess- arar uppbyggingar undanfarin þrjú ár. Það sem enginn biður um Frumkvöðlastarf byggist á því að gera það sem enginn hefur beðið um. Í því reynir á að grandskoða svið og greina möguleika en ekki síður á á frumleika og áræði. Það er að vissu leyti persónubundið en getur eins og mörg dæmi sýna hér á landi lyft grettistaki. Frumkvöðlastarf þarf næringu og eftirtekt til þess að það þróist enn frekar og fleiri komi að og mikilvægt er að skapa gott umhverfi fyrir slíkt starf eins og skilningur er að vakna fyrir t.d. á sviði upplýsingatækni. Starfið vegna Alþjóð- lega stærðfræðiársins 2000 hér á Íslandii var dæmi um verk sem eng- inn hérlendis bað neinn um eða fól að annast. En þegar kallað var til sam- starfs reyndist áhugi fyrir því og margir hafa tengst starfinu. Mikil- vægt er því að það starf stöðvist ekki og ástæða til að taka undir með menntamálaráðherra Englands í þeim efnum. Vinnan við tryggja stöðuga og áframhaldandi uppbygg- ingu með þátttöku vaxandi fjölda fólks og sífellt betra kynningarstarfi, er mikilvægasta verkefnið sem við stöndum frammi fyrir. Það gerir kröfu um þekkingu og gerist ekki með fjármagni einu saman en það gerist heldur ekki án fjármagns og stuðnings opinberra yfirvalda, at- vinnulífs, kennara og foreldra. Þá mun um muna fyrir okkur sjálf og komandi kynslóðir. Líf í tölum XI/ Sjónvarpsþættina Líf í tölum þarf að fá á myndbönd fyrir framhaldsskólanemendur ásamt verkefnum og námskeiðum fyrir kennara. Anna Kristjánsdóttir, prófessor við KHÍ, ritar hér lok greinarflokksins um stærðfræðikennslu, sem setur aðferðir og skilning nemenda í öndvegi. Orðsins afl og ímynd hugans Morgunblaðið/RAX Stærðfræðin er alls staðar, einnig í frímínútum hér í Lækjarskóla í Hafnarfirði. Markmið er að nemendur verði læsir á tölurnar í lífinu.  Alþjóðlega stærðfræðiárið 2000 stendur enn í Englandi.  Kennarar eru boðberar nýrra hugmynda um stærðfræðinám. Anna Kristjánsdóttir Sjónvarpið kveikir áhuga á stærðfræði Frumkvöðull gerir hið nýja óbeðinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.