Morgunblaðið - 17.03.2001, Page 56

Morgunblaðið - 17.03.2001, Page 56
MINNINGAR 56 LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Það sem heillaði mig mest var að sjá og finna hvað vináttusambandið við unglingana og vinnufólkið, sem var þar ár eftir ár, var náið, umhyggjan og ástúðin mikil sem hann fékk ríku- lega endurgoldið. Það stendur mér ljóslifandi fyrir hugskotssjónum er Gísli á Sleitu- stöðum ók bifreið sinni í hlað á Hól- um fyrst í október 1944 með nýnema í skólann. Þeirra á meðal var Jón, kominn til að búa sig undir drauma- ævistarfið. Þarna áttum við eftir að lifa við- burðaríkan vetur, með einstökum skólafélögum og kennurum sem lögðu sig fram um að miðla reynslu sinni og þekkingu. Ekki var mikið hægt að bæta við þekkingu Jóns er laut að ræktum íslenska sauðfjárins, man ég ekki betur en hann hafi feng- ið þá hæstu einkunn sem hægt var að fá í því fagi. Hann sýndi það sem bóndi að hann var í fremstu röð fjár- ræktarmanna. Jón var frjór í hugsun, félagslynd- ur með afbrigðum, líflegur og skemmtilegur félagi. Það fengum við þrír Tungnamenn, sem vorum her- bergisfélagar á Hólum, að reyna er við nutum óteljandi skemmtilegra heimsókna hans. Stundum gat orðið ansi líflegt þegar málefni líðandi stundar voru til umræðu. Jón hafði skoðanir á mönnum og málefnum, var einn helsti talsmaður Sjálfstæð- isflokksins í skólanum, síðan varð hann sterkur hlekkur í störfum fyrir flokkinn. Þökk sé honum fyrir að eiga þátt í að koma á fimmtíu ára samfundum okkar félaga á Hólum. Það hlýtur að hafa verið gleðidag- ur í Geldingaholti þegar Jón kom heim með þekkingu og aukið víðsýni, tilbúinn að feta í fótspor feðranna. Fyrst með foreldrum sínum, en síð- an kom inn í líf hans Margrét Eiríks- dóttir frá Steinsholti. Hún hafði hlot- ið í arf allar þær dyggðir sem mest máttu prýða góða húsfreyju. Sigldi lífsfleyinu sterk og örugg með Jóni í fimmtíu ára hjónabandi. Enda hefur farsælu starfi verið skilað í hvers- konar uppbyggingu eins og sjá má í Geldingaholti, glæsilegu stórbýli með vel ræktaðan og afurðasaman bústofn, sem var stolt Jóns. Hann var óþreytandi í félagsmála- störfum fyrir sveit sína og hérað svo og bændastéttina, þetta veitti honum sanna lífsfyllingu. Fyrir þessi störf og margt annað var hann sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálka- orðu. Jón var vel ritfær og hafði gott vald á íslenskri tungu, ritaði oft fundargerðir fyrir hin ýmsu félög og sendi skemmtilega fréttapistla í Morgunblaðið fyrr á árum. Jóni voru afréttir og náttúru- verndarmál afar hugleikin. Hann hafði frá unga aldri farið í fjallferðir, ævinlega á góðum smalahestum, þekkti hvert kennileiti, kannski mætti segja hverja þúfu. Mér skild- ist alltaf að þessar oft svo erfiðu ferð- ir enduðu sem ævintýri hjá Jóni. Honum líkaði ekki að fólk, sem taldi sig vera sjálfskipaða verndara há- lendisins, kenndi sauðkindinni um ef gróður þreifst ekki á einhverjum svæðum. Jón taldi að nýting og gæsla afréttanna væri best komin í höndum bændanna. Í Geldingaholti var jafnan gest- kvæmt og öllum tekið með mikilli al- úð og rausn við stóra borðstofuborð- ið sem var oft þétt setið. Ríkti gleði gestgjafanna þannig að öllum leið vel, þannig vildi Jón hafa það. Þótt Jón hafi átt við heilsubrest að stríða síðustu árin fékk hann að halda andlegri reisn til hinstu stund- ar. Fjölskyldunni í Geldingaholti vottum við Maja innilega samúð okk- ar. Vinur er kvaddur hinstu kveðju. Björn Erlendsson. Jóns Ólafssonar í Eystra-Geld- ingaholti verður ekki minnst án þess að verk hans fyrir Sláturfélag Suð- urlands beri á góma. Þar vann hann trúnaðarstörf í meira en aldarfjórð- ung, tók við deildarstjórastarfi í Gnúpverjahreppi af Ólafi föður sín- um árið 1976 og sótti alla aðalfundi frá 1975 og til þessa. Árið 1989 var Jón kjörinn í varastjórn Sláturfélags Suðurlands og gegndi því trúnaðar- starfi til ársins 1998. Varastjórnar- menn sitja að jafnaði einn stjórnar- fund hver. Því mun Jón hafa sótt um tvo stjórnarfundi á ári eða nær tutt- ugu fundi alls. Ég ætla mér það ekki að lýsa Jóni Ólafssyni til hlítar. Hann var atorku- samur félagsmaður í meira lagi og lá aldrei á skoðunum sínum. Allt baktjaldamakk var honum víðs fjarri og hann hélt fast fram máli umbjóðenda sinna. Mér sýndist að í hart færi milli okkar, er deild- arstjórar Uppsveita Árnessýslu og margir félagsmenn mættu okkur, forstjóra og stjórnarmönnum, á fundi í Aratungu sumarið l988. Til- efnið var að við hugðumst leggja nið- ur slátrun í Laugarási. En það var með ráði Jóns að ég fór í kaffihléinu inn í búrkompu inn af eldhúsinu með alla fjóra deildarstjórana. Þar var samþykkt að fresta lokun hússins um eitt ár. Jón sagði mér síðar að hann hefði ekki viljað svíkja deild- armenn sína um gefið loforð um slátrun í Laugarási þá um haustið. En eftir það stóð hann með stjórn- inni að lokun hússins sem kom til framkvæmda árinu seinna. Hann hafði efnt loforð sitt, en gekk síðan af afli sínu til starfs með stjórninni að hagræða í rekstri félagsins. Jón var í mörg ár fundarstjóri á aðalfundum Sláturfélags Suður- lands. Þar munaði um hann þegar mest gekk á í rekstrinum – og á fundunum. Þeim mun betur gladdist hann er betur fór að ganga. Hann tók stundum að sér veislustjórn í lok aðalfunda og for hann þá á kostum enda var honum léð mikil leiklistar- gáfa, sem við nutum af. Jóni var ekki gefið að skemmta á kostnað annarra. Hann sjálfur var miðpunkturinn í því góðlátalega gríni, sem hann vildi að um sig snerist. Þessi ljúfi forystumaður okkar átti þó mikla skapfestu. Hann var stefnufastur maður og einstaka mál tók hann upp á arma sína og rak beinlínis áfram. Ég skal játa það nú að stundum notfærði ég mér þetta er ég vildi ljúka tvísýnum málum. Reif- aði ég þau í áheyrn hans, er ég þótt- ist viss um skoðun hans. Hann tók þá hressilega við og rak málið fast uns aðrir létu sér segjast. Mér fannst alltaf stíll yfir þeim hjónum, Jóni og Margréti í Geld- ingaholti. Þar var gestaboð nótt sem nýtan dag. Í upphafi formennsku minnar í Sláturfélagi Suðurlands var enn siður Jóns að halda deildarfund- ina heima hjá sér í Geldingaholti. Fundur var þá haldinn í gestastofu Ólafs föður hans, þar sem Gnúpverj- ar uppfærðu Skugga-Svein um ára- mótin 1913–1914. Þar heitir síðan Skugga-Sveins stofa og hefur nú ný- verið verið klössuð upp sem hæfir frægð hennar. Fundirnir voru fjör- ugir en eins minnisstæð er þó kaffi- drykkjan í eldhúsinu hjá Margréti á eftir. Þar voru margir sveitungar Jóns og oftast flest börn hans. Þessi eftirminnilegi „klan“ í Geldingaholti átti þá sín á milli skemmtilegar orða- sennur, en mér varð fljótt ljóst að þessi orðsins átök voru aðeins skerp- ing á þeirri samheldni sem ávallt hef- ur ríkt í Geldingaholti. Persónuleg vinátta okkar Jóns í Geldingaholti stóð í fjörutíu ár. Haustið 1960 fórum við með völdum félögum saman í Lönguleit Flóa-, Skeiðamanna og Gnúpverja. Ein- hverjum Flóamönnum fannst þá Jón vera harður í horn að taka og sem fjallmaður virtist mér hann vera harðfengur. En við Flóamennirnir kynntumst líka öðrum Jóni. Hann reyndist ljúfmenni í öllu þessu fjalla- lofti. Hann hafði einnig brugðið yfir sig skikkju leikarans og í tjaldstað á kvöldin sýndist sem hann hefði alla málsmetandi Gnúpverja með sér í farteskinu. Sögur voru sagðar þar sem betri bændur lögðu sitt til mál- anna – þótt þeir reyndar sætu sak- lausir heima. Jóni Ólafssyni þótti engu síður vænt um Gnúpverjaafrétt en Geld- ingaholtið. Nokkur ár eru síðan ég gaf honum afrit af „Lögfestu Aust- arihrepps afréttar“ frá 1799. Hamp- aði hann oft því plaggi í öllu þessu umstangi Óbyggðanefndar og Þjóð- lendumanna ríkisins. Ekki lifir hann úrskurð Óbyggðanefndar, en ef mín trú er rétt mun ég heyra frá honum, er sá úrskurður fellur. Fyrir hönd Sláturfélags Suður- lands þakka ég Jóni ómetanleg störf og votta Margréti og börnum þeirra dýpstu samúð. Páll Lýðsson. Náinn vinur hefur kvatt. Síðustu daga var fylgdin þungbær, en falleg. Við hjónin bundumst Jóni og fjöl- skyldu hans í Geldingaholti sterkum böndum fyrir nær þrjátíu árum, er við nýgift keyptum land af foreldrum hans, Pálínu og Ólafi, en fólk okkar beggja rekur ættir í Hreppinn góða. Við undum okkur strax vel „fram á Hraunum“. Margs er að minnast, ótal gleði- og ánægjustundir á þessu tímaskeiði. Við nutum hjónanna Möggu og Nonna í einu og öllu, svo og ágætra barna þeirra. Hjálpvísi þeirra er viðbrugðið, annáluð gest- risni og glaðværð. Eftirminnilegar stundir við morgunverðarborðið þeirra, skeggrætt, aðeins karpað, fá- dæma minni og kunnugleiki um menn og málefni. Undraverð söfnun fróðleiks og þekkingar. Margar fölskvalausar og einlægar stundir átttum við Nonni saman tveir fram í Hraunbæ, sumarparadís okkar hjóna. Nonni var mjög elskur að konu sinni og börnum, jörð sinni og skepn- um. Eystri-Hreppurinn var öðrum sveitum fremri að hans mati. Þetta góða fólk á styrkan sess í hugum okkar. Við vorum þiggjendur í þeim samskiptum og nú er klippt á þetta sameiginlega lífshlaup. Ég sakna sárt vinar í stað, sem var bóngóður svo af bar, einlægur og barngóður. Dóttir okkar sagði oft: Flýttu þér að flagga, pabbi, þá kemur Nonni. Hugurinn reikar, myndirnar skýr- ast, þekkilegt hugskot – Nonni á Jarp sínum, stólpagrip, í Vír-úlpunni flaksandi í norðan þurrakulda inní Bjarnalækjarbotnum á haustdegi í leitum, og undan fer prúður rækt- aður fjárhópur. Eða í Skaftholtsrétt- um, Jón sæll, myndarlegur, höfðing- legur og fríður, eða á hrútasýningum heima fyrir, veitull og gamansamur, eða á þorrablótum – jafnvel í vetur – hrókur alls fagnaðar, eða þá bara á traktornum á venjulegum degi, snyrtilegur, oft með derhúfu, helst litaglaða. Stærstu gleðistundir Geld- ingaholtsbóndans voru réttardagur- inn, hrútasýningar, landsfundir Sjálfstæðisflokksins og forsetakosn- ingarnar 1980, er Vigdís „systir“ hans náði kjöri. Þá var sólríkt í hlaðinu hans. Einkenni heimsókna í Geldingaholt er, að þaðan fer sér- hver maður glaðari í lund. Í Eystra-Geldingaholti hefur lengi verið búið vel. Jón var afburða rækt- unarmaður, gleggri flestum á fé, sá út hrútsefni öðrum betur og átti verðlaunafé. Þar á bæ var gott hestakyn, viljugt og góðgengt – fas- mikið. Enginn hefur unnið Hreppa- svipuna, gjöf Eiríks frá Hæli til Smáramanna, oftar en Jón í Geld- ingaholti og Gulltoppur Skarðs- Nasasonur. Fráfall Nonna heggur okkur. Við stöldrum við, lítum til baka. Margt sem okkur þótti sjálfsagt í þessum góðu vináttuböndum er nú liðið hjá og kemur ekki aftur. Með virðingu lútum við höfði í þökk og gleði. Við kveðjum góðan dreng, þökkum trausta vináttu og samfylgd. Blessun Guðs fylgi fólkinu hans öllu. Sálma- skáldið ástsæla á Stóra-Núpi, Valdi- mar Briem, sagði: Drottinn, gef þú dánum ró, hinum líkn sem lifa. Margrét og Kristján Guðmundsson. JÓN ÓLAFSSON Í haust sem leið leyfðu forlögin mér að heimsækja föður- systur mína Klöru Tryggvadóttur og bónda hennar Ísak Sigurgeirsson á heimili þeirra í Litla-Hvammi 7 í Húsavík. Bjart og fagurt einbýli við elliheimilið, sem Húsvíkingar, svo myndarlega, búa öldruðum hjónum úr grenndinni. Þetta reyndist verða síðasta skiptið sem ég hitti mína kæru föðursystur. Erindið var að biðja hana að fræða mig um fortíðina. Þegar ég kom, hafði hún búið okkur ljúffenga matarveislu og engu gleymt þó komin væri á tíræðisaldur. Svo settumst við Klara í stofuna að spjalla, en Ísak þvoði upp og gekk frá í eldhúsinu.Svona voru móttökurnar hjá öldungunum - skiptu með sér húsverkunum eins og ungu hjónin í dag. Lengst af bjuggu þau að Undirvegg í Keldu- hverfi. Þangað kom ég nokkrum sinnum meðan þau bjuggu. Mér er í barnsminni lágreistur, hlýlegur torfbærinn í sólargeislun- um undir voldugum gjáveggnum í skugganum bakvið. Blár himininn yfir og sólgljáð fagurgrænt túnið í forgrunninn. (Í æsku sá ég bara björtu hliðarnar – það beið seinni tíma að koma auga á erfiðleika lífs- baráttunnar.) Það var heldur ekki í kot vísað hjá þeim Klöru og Ísak á Undirvegg þó salarkynni þættu trúlega rýr í dag. Viðmót þeirra var aukheldur þannig að öðrum leið vel í návist þeirra. Heimsóknir á Undirvegg voru því ávallt tilhlökkunarefni sem aldrei sveik. Frá þessum gamla bæ – úr torfi, grjóti og dálitlu timbri (án flests sem við nú teljum nánast meðfædd þægindi, nema e.t.v. skjólsins) – átti hún frænka mín sínar ljúfustu endurminningar. „Maður var ungur og hraustur og taldi sig geta allt,“ sagði hún. Þegar búið var að „sandskúra“ gólfið, sópa göngin og hlaðið („Þá sópaði maður hlaðið eins og göngin – þegar þurrt var.“) setja birki- grein í vasa á stofuborðið – ilm- urinn fyllti húsið og fagurgrænt laufið lýsti í sólargeislunum úr glugganum – þótti henni ekkert skorta. Önnur mynd, sem hún brá upp, KLARA TRYGGVADÓTTIR ✝ Klara Tryggva-dóttir fæddist á Hólum í landi Hauks- staða í Vopnafirði 7. febrúar 1908. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Húsavík 13. febrúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Húsavíkurkirkju 24. febrúar. var frá jólum, þegar elsti sonurinn kom í fyrsta skipti með verð- andi brúði í heimsókn. Í rökkvaðri stofunni hafði kertum verið raðað á þverbita sperranna. Svo birtist unga konan, í sínum fagurrauða kjól, (úr afhýsi úr stofunni, sem voru einu salarkynnin í bænum sem leyfðu hlýju og fullkomið næði til fataskipanna) sveipuð töfrabirtu kertanna „eins og drottning“ sagði hún frænka mín. Þá trúi ég litla stofan á Undirvegg í Kelduhverfi hafi jafnast á við veg- legustu sali í hugskoti viðstaddra. Þrátt fyrir rennandi vatn, raf- magn og miðstöðvarkyndingu í nýja, trausta, rúmgóða og hlýja bænum, grét yngsta dóttirin á fyrstu jólum , af söknuði yfir jól- unum úr þeim gamla. Þegar ég innti Klöru eftir hjálplegustu heim- ilistækjum nefndi hún fyrst „þvottabrettið“. Nú eru þeir trú- lega færri en hinir, sem vita hvað það var. Ég innti hana líka eftir menntun. Þá nefndi hún stuttlega þá tvo mánuði sem henni hlotnuðust (í far- skóla á Hólsfjöllum) „og talaðu svo ekki meir við mig um menntun“. Það hefur verið sárt fyrir greinda og námfúsa stúlku að eiga þess engan kost að mennta sig. Hún gerði það því sjálf og las við tungls- ljósið í glugganum á kvöldin. Það eina, sem hún var bitur yfir, þessi síðustu 93 ár, var virðing og aðbúnaður almúgakvenna á hennar yngri árum. Klara hafði mikið yndi af ljóðum og var sjálf afbragðshagyrðingur, þótt hún segði það varla nokkrum utan sinna nánustu. Ég vissi hve fróð hún var og spurði því hvort hún kynni vísu, sem móðir mín fór með fyrir mig á sínum dánarbeði. Þetta voru kveðjuorð ungs manns sem var að deyja úr tær- ingu. Ekki þekkti hún vísuna né höfundinn. Þegar ljóðlínan rifjaðist upp fyrir mér, var það um seinan, en þessi fáu orð eru svo fagurlega meitluð að jafnvel nú er ekki of seint að skrá þau þó samtölum okk- ar sé lokið – hérnamegin a.m.k. Hér er mér ei framar fritt, frýs í æðum hjartablóð. Breiddu nú ofan á barnið þitt brekánið græna, móðir góð. Ég þakka forsjóninni þennan síð- asta fund okkar í haust, sem og alla þá fyrri, og bið Guð að blessa Ísak og þau hin sem eiga um sárt að binda. Kristinn Helgason. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein- ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. Birting afmælis- og minningargreina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.