Morgunblaðið - 17.03.2001, Síða 74
74 LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Mánudaginn 12. mars var önnur
lota í vorbarómeter félagsins spiluð.
Hæstri kvöldskor náðu þá þessi pör:
Dröfn Guðmundsd. – Ásgeir Ásbjörnss. 36
Haraldur Hermannss. – Jón Ingi Jónss. 28
Gunnlaugur Óskarss. – Þórarinn Sófuss. 25
Halldór Einarss. – Trausti Harðars. 21
Friðþj. Einarss. – Guðbr. Sigurbergss. 18
Áður en síðasta lotan í keppninni
hefst er staðan svo þannig:
Dröfn Guðmundsd. – Ásgeir Ásbjörnss. 79
Gunnlaugur Óskarss. – Þórarinn Sófuss. 32
Halldór Einarss. – Trausti Harðars. 31
Friðþj. Einarss. – Guðbr. Sigurbergss. 27
Halldór Þórólfss. – Hulda Hjálmarsd. 23
Og fleiri eru þar örskammt á eftir,
þannig að baráttan um verðlauna-
sæti er hörð,
þótt fyrsta sætið sýnist reyndar
frátekið.
Bridsfélag Borgarfjarðar
Firmakeppni félagsins, þriggja
kvölda einmenningi, lauk miðviku-
daginn 7. mars. 24 spilarar tóku þátt
í mótinu sem fram fór undir styrkri
stjórn Jóns Þórissonar í Reykholti.
Eftir spennandi keppni og miklar
sveiflur urðu úrslit þessi.
1. Tamningastöðin Múlakoti 481
Spilari Baldur Árni Björnsson
2. Velgirtir verktakar Miðgarði 480
Spilari Örn Einarsson
3. Hamrakartöflur 472
Spilari Þorsteinn Pétursson
4. Veitingastaðurinn Brú Hrútafirði 471
Spilari Bjarni Ingvarsson
Undanfarið hefur staðið yfir nám-
skeið í brids á vegum félagsins. 14.
mars mættu 12 útskrifaðir nemend-
ur á fyrsta spilakvöld sitt. Spiluð var
sveitakeppni (8 sveitir) með monrad
fyrirkomulagi og raðað í sveitir
þannig að nýliðar spiluðu með
reyndari mönnum. Reyndist þetta
vel og verður framhald á. Úrslit urðu
sem hér segir.
Sveit Ingólfs Helgasonar 76
Sveit Guðmundar Kristinssonar 72
Sveit Guðmundar Péturssonar 62
Sveit Sindra Sigurgeirssonar 59
UNDANKEPPNI MasterCard-
mótsins verður haldin í Þönglabakk-
anum 30. mars til 1. apríl en þá
keppa 40 sveitir úr öllum landshlut-
um um 10 sæti í úrslitunum sem
verða spiluð 11.–14. apríl. Dregið
hefur verið í 5 riðla samkvæmt
styrkleika sveitanna:
A-riðill:
Valgarð Blöndal, Reykjavík
HV Umboðsverslun, Vestfjörðum
Þróun, Reykjanesi
Þórður Ingólfsson, Vesturlandi
Skúli Jónsson, N.-Vestra
Frímann Stefánsson, N.-Eystra
Þrír Frakkar, Reykjavík
ESJA kjötvinnsla, Reykjavík
B-riðill:
Friðrik Jónasson, N.-Eystra
Síldarvinnslan, Austurlandi
Arnar G. Hinriksson, Vestfjörðum
Skeljungur, Reykjavík
Málning, Reykjavík
Hlynur Garðarsson, Reykjavík
Jacqui McGreal, Reykjavík
Sigfús Þórðarson, Suðurlandi
C-riðill:
Hagasveitin, Vesturlandi
Bragakaffi, N.-Eystra
K.H.B., Austurlandi
Sparisjóður Norðlendinga, N.-Eystra
Ferðaskrifstofa Vesturlands, Reykjavík
Flugleiðir fragt, Reykjavík
Tryggingarmiðstöðin, Suðurlandi
Sparisjóður Keflavíkur, Reykjanesi
D-riðill:
ROCHE, Reykjavík
Stefanía Sigurbjörnsdóttir, N.-Vestra
SUBARU-sveitin, Reykjavík
Bryndís Þorsteinsdóttir, Reykjavík
Vírnet, Vesturlandi
Vinir, Reykjanesi
Bogi Sigurbjörnsson, N.-Vestra
Búnaðarbankinn, Hellu, Suðurlandi
E-riðill
Mjólkurbú Flóamanna, Suðurlandi
Dröfn Guðmundsdóttir, Reykjanesi
Símon Símonarson, Reykjavík
Gísli Ólafsson, Vesturlandi
SPRON, Reykjavík
Herðir, Austurlandi
Preben Pétursson, N.-Eystra
Slökkvitækjaþj. Austurlands, Austurlandi
Undanúrslitin hefjast föstudaginn
30. mars kl. 14 á fyrirliðafundi. Spila-
mennska hefst kl. 15 og verða spil-
aðir 2 leikir. Á laugardag hefst spila-
mennska kl. 11 og verða spilaðir 3
leikir. Á sunnudag verður byrjað kl.
10.30 og spilaðir 2 leikir.
Umferðir verða spilaðar í þessari
röð í öllum riðlum: 3 – 7 – 1 – 5 – 2 – 6
– 4.
Bridgesamband Íslands og Euro-
pay Island hafa gert með sér sam-
starfssamning og heitir Íslandsmót-
ið í sveitakeppni 2001 Master-
Card-mótið, en Europay Island
hefur stutt bridshreyfinguna á Ís-
landi mjög vel undanfarin ár.
Dregið í undanúrslitum Ís-
landsmótsins í sveitakeppni
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
Dregið var í undanúrslit Íslandsmótsins í sveitakeppni í gær. Það
voru Stefanía Skarphéðinsdóttir, framkvæmdastjóri Bridssambands-
ins, Ísak Örn Sigurðsson, stjórnarmaður og mótsnefndarmaður, og
Ólafur Steinason sem drógu sveitirnar í fimm riðla.
BRIDS
U m s j ó n A r n ó r G .
R a g n a r s s o n
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði Glæsibæ. Fimmtud. 8. mars
2001. 26 pör. Meðalskor 216 stig.
Árangur N-S:
Haukur Guðmundss. –Þorsteinn Sveinss.
263
Eysteinn Einarss. – Aðalbj. Benediktss. 251
Anna Jónsd. – Sigurrós Sigurðard. 250
Árangur A-V:
Hilmar Ólafss. – Björn E. Péturss. 268
Þorsteinn Laufdal – Magnús Halldórss. 258
Sigrún Straumland – Sigríður Ólafsd. 241
Tvíkeppni spiluð mánud. 12. mars,
20. pör. Meðalskor 216 stig.
Árangur N-S:
Tómas Jóhannss. – Viggó Nordquist 282
Eysteinn Einarss. – Sigurður Pálss. 241
Olíver Kristóferss. – Þorleifur Þórarinss.
241
Árangur A-V
Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 273
Bergur Þorvaldss. – Ragnar Björnss. 247
Elín Jónsd. – Soffía Theodórsd. 236
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK í Gullsmára
spilaði tvímenning á tíu borðum
mánudaginn 12. marz. Miðlungur
168. Efst vóru:
NS
Karl Gunnarsson og Erns Backmann 205
Díana Kristjánsd. og Ari Þórðarson 201
Helga Helgad. og Þórhildur Magnúsd. 186
AV
Þórhallur Árnason og Björn Bjarnason 198
Viðar Jónsson og Sigurþór Halldórsson 186
Kristján Guðmundss. og Sig. Jóhannss. 186
– Eldri borgarar spila brids að
Gullsmára 13 alla mánudaga og
fimmtudaga. Skráning kl. 12.45.
MÚSÍKTILRAUNIR Tónabæjar
hófust á nýjum stað í Safamýrinni
síðastliðið fimmtudagskvöld og léku
þá sjö hljómsveitir úr ýmsum áttum
sýnishorn sjö tónlistarstefna. Áfram
komust fyrir vikið ólíkar hljómsveit-
ir, önnur að spila þrautreynt Nirv-
ana-rokk en hin öllu nýstárlegri tón-
list.
Noise var fyrst á svið og leið einna
helst fyrir tilþrifalítinn söng; söngv-
ari sveitarinnar, sem er reyndar lip-
ur gítarleikari einnig, var sem hann
nennti eiginlega ekki að syngja nema
þegar hann bætti eilítið í. Víst er gott
að menn séu enn að hlusta á Nirv-
ana, en það besta sem heyrðist frá
sveitinni þetta kvöld var annað lagið
þar sem þeim tókst nánast að hrista
af sér áhrifin.
Filius Jupiter! var öllu nútíma-
legri, en dugði illa til þar sem lögin
voru stefnu- og átakalaus. Það var
helst að sprettir í þriðja laginu yrðu
til þess að áheyrendur risu upp við
dogg, en annars er fátt um sveitina
að segja.
Rítalín fór dauflega af stað, en
setti í fluggír í öðru lagi sínu; fyr-
irtaksskemmtun. Í lokalaginu datt
stemmningin aftur niður og greini-
legt að þeir félagar þurfa að liggja
betur yfir lagasmíðum og marka sér
skýrari stefnu, enda hefðu þeir rúll-
að þessu upp ef öll lögin hefðu verið
eins fjörug og annað lagið.
Mictian byrjaði með miklum
hamagangi, skerandi gítarkeyrslu
og hávaða sem lofaði góðu. Eftir smá
tíma fóru eyrun að þreytast og undir
lokin að biðjast vægðar. Þeir félagar
mættu gjarnan gefa sér tíma til að
vera þungir og leyfa gítarfrösunum
að anda eilítið.
Coral spilaði þunglamalega ný-
bylgju með arfaslöppum textum.
Sveitin er þó vel þétt og lofar góðu,
en skortir á í frumleika.
Fyrsta lag Desibel var dauflegt,
en þegar þeir félagar voru búnir að
hrista úr sér hrollinn komust þeir í
mikið stuð. Annað lagið var þeirra
besta þrátt fyrir mistök í innkomu og
það þriðja var reyndar gott líka með
skemmtilegri keyrslu.
Lokaorð kvöldsins átti raftónlist-
ardúettinn Anonymous. Þar fóru
saman hljóð valin af kostgæfni og
góð úrvinnsla, utan að rödd söng-
konu sveitarinnar var illa nýtt, nán-
ast eins og bakþanki. Sérstaklega
var þriðja lag sveitarinnar vel
heppnað.
Morgunblaðið/BjörgFilius Jupiter! í tölvuleik.
Rítalínbræður í stuði.
Harðkjarnasveitin Desibel.
Coral
Svartmálmsstemmning
hjá Mitchian.
Sýnishorna-
kvöld í Tónabæ
TÓNLIST
T ó n a b æ r
Fyrsta tilraunakvöld Músíktilrauna
Tónabæjar, haldið í félagsmiðstöð-
inni Tónabæ fimmtudaginn 15.
mars. Fram komu Noise, Filius
Jupiter!, Rítalín, Mictian, Coral,
Desibel og Anonymous.
MÚSÍKTILRAUNIR
Árni Matthíasson