Morgunblaðið - 17.03.2001, Side 77
ÞJÓNUSTA/FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 77
LANDSPÍTALINN – HÁSKÓLASJÚKRAHÚS
FOSSVOGUR: Alla daga kl. 15–16 og 19–20 og e. samkl. Á
öldrunarlækningadeild er frjáls heimsóknartími e.
samkl. Heimsóknartími barnadeildar er frá 15–16 og
frjáls viðvera foreldra allan sólarhringinn. Heimsókn-
artími á geðdeild er frjáls.
GRENSÁSDEILD: Mánud.–föstud. kl. 16–19.30, laugard.
og sunnud. kl. 14–19.30 og e. samkl.
LANDAKOT: Á öldrunarsviði er frjáls heimsóknartími.
Móttökudeild öldrunarsviðs, ráðgjöf og tímapantanir í
s. 525 1914.
ARNARHOLT, Kjalarnesi: Frjáls heimsóknartími.
HRINGBRAUT: Kl. 18.30–20.
BARNA- OG UNGLINGAGEÐDEILD, Dalbraut 12: Eftir
samkomulagi við deildarstjóra.
BARNASPÍTALI HRINGSINS: Kl. 15–16 eða e. samkl.
GEÐDEILD LANDSPÍTALANS KLEPPI: Eftir sam-
komulagi við deildarstjóra.
GEÐDEILD LANDSPÍTALANS Vífilsstöðum: Eftir
samkomulagi við deildarstjóra.
KVENNADEILD, KVENLÆKNINGAD. Kl. 18.30–20.
SÆNGURKVENNADEILD: Kl. 14–21 (feður, systkini,
ömmur og afar).
VÍFILSSTAÐASPÍTALI: Kl. 18.30–20.
SUNNUHLÍÐ hjúkrunarheimili í Kópavogi: Heimsókn-
artími kl. 14–20 og eftir samkomulagi.
ST. JÓSEFSSPÍTALI HAFN.: Alla d. kl. 15–16 og 19–
19.30.
SJÚKRAHÚS SUÐURNESJA, KEFLAVÍK: Heimsókn-
artími a.d. kl. 15–16 og kl. 18.30–19.30. Á stórhátíðum
kl. 14–21. Símanr. sjúkrahússins og Heilsugæslustöðv-
ar Suðurnesja er 422 0500.
SJÚKRAHÚS AKRANESS: Heimsóknartímar eru frá kl.
15.30–16 og 19–19.30.
AKUREYRI – SJÚKRAHÚSIÐ: Heimsóknartími alla
daga kl. 15.30–16 og 19–20. Á barnadeild og hjúkr-
unardeild aldraðra Sel 1: kl. 14–19. Slysavarðstofusími
frá kl. 22–8, s. 462 2209.
BILANAVAKT
VAKTÞJÓNUSTA. Vegna bilana á veitukerfum Orku-
veitu Reykjavíkur (vatns-, hita- og rafmagnsveitu) sími
585 6230 allan sólarhringinn. Kópavogur: Vegna bilana
á vatnsveitu s. 892 8215. Rafveita Hafnarfjarðar bil-
anavakt 565 2936
BILANAVAKT BORGARSTOFNANA: Sími 5 800 430
tekur við tilkynningum um bilanir
og liðsinnir utan skrifstofutíma.
SÖFN
ÁRBÆJARSAFN: Safnhús Árbæjar eru lokuð frá 1. sept-
ember en boðið er upp á leiðsögn fyrir ferðafólk á
mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 13.
Einnig er tekið á móti skólanemum og hópum sem
panta leiðsögn. Skrifstofa safnsins er opin frá kl. 8–16
alla virka daga. Nánari upplýsingar í s. 577 1111.
BORGARBÓKASAFN, aðalsafn, Tryggvagötu 15: Sími:
563 1717, fax: 563 1705. Opið mánud–fimmtud. kl. 10–
20. Föstud. kl. 11–19. Laug. og sun kl. 13–17.
BORGARBÓKASAFNIÐ í Gerðubergi, Gerðubergi 3–5:
Sími: 557 9122, fax: 575 7701. Mánud.–fimmtud. kl. 10–
20, föstud. kl. 11–19. Sept.–maí er einnig opið laugard.
og sunnud. kl. 13–16.
BÚSTAÐASAFN v/Bústaðaveg: Sími: 553 6270, fax: 553
9863. Mánud.–fimmtud. kl. 10–20, föstud. kl. 11–19.
Sept.–maí er einnig opið laugard. kl. 13–16.
BÓKABÍLAR:Bækistöð í Bústaðasafni, sími: 553
6270.Viðkomustaðir víðs vegar um borgina. Bókabílar
ganga ekki í tvo mánuði að sumrinu og er það auglýst
sérstaklega.
FOLDASAFN v/Fjörgyn:Sími: 567 5320, fax: 567 5356.
Mánud.–fimmtud. kl. 10–20, föstud. kl. 11–19. Sept.–
maí er einnig opið laugard. og sunnud. kl. 13–16.
SELJASAFN, Hólmaseli 4–6: Sími: 587 3320. Mánud. kl.
11–19, þriðjud.–föstud. kl. 11–17. Sumarafgreiðslutími
auglýstur sérstaklega.
SÓLHEIMASAFN, Sólheimum 27: Sími: 553 6814. Má-
nud.–fimmtud. kl. 10–19, föstud. kl. 11–19. Sept.–maí er
einnig opið laugard. kl. 13–16.
BÓKASAFN DAGSBRÚNAR: Skipholti 50D. Safnið verð-
ur lokað fyrst um sinn vegna breytinga.
BÓKASAFN KEFLAVÍKUR: Opið mán.–fös. 10–20. Opið
lau. 10–16 yfir vetrarmánuði.
BÓKASAFN KÓPAVOGS, Fannborg 3–5: Mán.–fim. kl.
10–21, fös. kl. 10–17, lau. (1. okt.–30. apríl) kl. 13–17.
Lesstofan opin frá (1. sept.–15. maí) mán.–fim. kl. 13–
19, fös. kl. 13–17, lau. (1. okt.–15. maí) kl. 13–17.
BÓKASAFN SAMTAKANNA ’78, Laugavegi 3: Opið
mán.–fim. kl. 20–23.
BORGARSKJALASAFN REYKJAVÍKUR, Tryggvagötu
15: Opið mán. til fös kl. 9–12 og kl. 13–16. S. 563 1770.
BYGGÐASAFN ÁRNESINGA, Húsinu á Eyrarbakka:
Opið alla daga frá kl. 10–18 til ágústloka. S: 483 1504.
BYGGÐASAFN HAFNARFJARÐAR: Sívertsen-hús,
Vesturgötu 6, 1. júní–30. ág. er opið alla daga frá kl. 13–
17, s: 555 4700. Smiðjan, Strandgötu 60, 16. júní–30.
sept. er opið alla daga frá kl. 13–17, s: 565 5420, bréfs.
565 5438. Siggubær, Kirkjuvegi 10, 1. júní–30. ág. er
opið lau.–sun.. kl. 13–17. Skrifstofur safnsins verða
opnar alla virka daga kl. 9–17.
BYGGÐASAFNIÐ Í GÖRÐUM, AKRANESI: Opið kl.
13.30–16.30 virka daga. S. 431 11255.
FJARSKIPTASAFN LANDSSÍMANS, Loftskeytastöð-
inni v/Suðurgötu: Opið á þriðjud., fimmtud. og sunnud.
frá kl. 13–17. Tekið er á móti hópum á öðrum tímum eft-
ir samkomulagi.
FRÆÐASETRIÐ Í SANDGERÐI, Garðvegi 1, Sandgerði,
s. 423 7551, bréfs. 423 7809. Opið alla daga kl. 13–17 og
eftir samkomulagi.
GAMLA PAKKHÚSIÐ í Ólafsvík er opið alla daga í sum-
ar frá kl. 9–19.
GOETHE-ZENTRUM: Lindargötu 46, Reykjavík. Opið
þri. og mið. kl. 15–19, fim., fös. og lau. kl. 15–18. S.
551 6061. Fax: 552 7570.
HAFNARBORG, menningar og listastofnun Hafnarfjarð-
ar opin alla daga nema þri. frá kl. 11–17.
LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS _ HÁSKÓLABÓKA-
SAFN: Opið mán.–fim. kl. 8.15–22. Fös. kl. 8.15–19 og
lau. 9–17. Sun. kl. 11–17. Þjóðdeild lokuð á sun. og
handritadeild er lokuð á lau. og sun. S: 525 5600, bréfs:
525 5615.
LISTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötu 23, Selfossi:
Opið eftir samkomulagi. S. 482 2703.
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Safnið er opið lau.
og sun. frá kl. 14–17. Lokað í desember og janúar.
LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirkjuvegi. Sýningarsalir,
kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11–17, lokað
mán. Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leiðsögn:
Opið alla virka daga kl. 8–16. Bókasafn: Opið þri.–fös.
kl. 13–16. Aðgangur er ókeypis á mið. Uppl. um dag-
skrá á internetinu: http//www.natgall.is
LISTASAFN REYKJAVÍKUR
THE REYKJAVÍK ART MUSEUM
Lisatsafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir Flókagötu – 105
ReykjavíkSími/Tel: (354) 552 6131 Fax: (354) 562 6191
Netfang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:lista-
safn@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið
fimmtudaga–þriðjudaga 10–17 miðvikudaga 10–19
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsið Tryggvagötu 17 –
101 Reykjavík Sími/Tel: 511 5155 Fax: 562 6191 Net-
fang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:listasafn-
@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið föstu-
daga–miðvikudaga 11–18 Fimmtudaga 11–19
Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn Sigtúni – 105
Reykjavík Sími553 2155 Fax: 562 6191 Netfang: lista-
safn@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið
maí–september kl. 10–16 alla daga október–apríl kl.
13–16 alla daga
LISTASAFN KÓPAVOGS – GERÐARSAFN: Opið dag-
lega kl. 12–17 nema mán.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er op-
ið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Upplýsingar í s.
553 2906.
LISTASALUR Korpúlfsstöðum við Thorsveg er opinn
alla mið. kl. 12-18.
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Grófarhús,
Tryggvagata 15, Reykjavík. Sími 563 1790. Fax:
563 1799. reykjavik.is/ljosmyndasafn - Opið mán._föst.
kl. 10-16.
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. Safnið
er lokað yfir vetrarmánuðina, en hópar geta fengið að
skoða safnið eftir samkomulagi.
MINJASAFN AKUREYRAR, Minjasafnið á Akureyri,
Aðalstræti 58, Akureyri. S. 462 4162. Opið frá 16.9.–
31.5. á sun. milli kl. 14–16. Einnig eftir samkomulagi
fyrir hópa. Skrifstofur opnar virka daga kl. 8–16.
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskóg-
um 1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mán. kl. 11–
17 til 1. september. Alla sun. frá kl. 14–17 má reyna sig
við gamalt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn eldri
borgara. Safnbúð með minjagripum og handverksmun-
um. Kaffi, kandís og kleinur. S. 471 1412, netfang mi-
naust@eldhorn.is.
MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina v/
Elliðaár. Opið á sun. kl. 15–17 og eftir samkomulagi. S.
567 9009.
MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í sumar
frá kl. 13–17. Hægt er að panta á öðrum tímum í s.
422 7253.
IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið
frá 1. júní til 31. ágúst kl. 14–18, en lokað á mán. S.
462 3550 og 897 0206.
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein-
holti 4, s. 569 9964. Opið virka daga kl. 9–17 og á öðrum
tíma eftir samkomulagi.
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi
12. Opið mið. og lau. 13–18. S. 554 0630.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu
116 eru opnir sun. þri. fim. og lau. kl. 13.30–16.
NESSTOFUSAFN. Yfir vetrartímann er safnið opið sam-
kvæmt samkomulagi.
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið opið mán.–sun. 12–17.
Sýningarsalur opinn þri.–sun. kl. 12–17, lokað mán.
Kaffistofan opin mán.–laug. kl. 8–17, sun. kl. 12–17.
Skrifstofan opin mán.–föst. kl. 9–16, lokað 20.–24.4.
Sími 551–7030, bréfas: 552 6476. Tölvupóstur:
nh@nordice.is – heimasíða: hhtp://www.nordice.is.
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafn-
arfirði. Opið þri. og sun. 15–18. S. 555 4321.
RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið lau. og sun.
til ágústloka frá l. 13–18. S. 486 3369.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551 3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Stendur til marsloka. Opin lau. og sun. kl. 13.30–16.
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði,
er opið lau. og sun. frá kl. 13–17 og eftir samkomulagi.
Sími sýningar 565 4242. Skrifstofa Lyngási 7, Garðabæ,
sími 530 2200. Fax: 530 2201. Netfang: aog@natmus.is.
SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS-
SONAR, Súðarvogi 4. Opið þri. – lau. frá kl. 13–17. S.
581 4677.
SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv.
samkl. Uppl. í s: 483 1165, 483 1443.
SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10–
18. S. 435 1490.
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Árnagarði v/Suð-
urgötu. Handritasýning er opin þri. til fös. kl. 14–16 til
15. maí.
STEINARÍKI ÍSLANDS Á AKRANESI: Opið alla daga kl.
13–18 nema mán. S. 431 5566.
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Sýningar við Suðurgötu
lokaðar vegna endurbóta á húsnæði.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ: Menningarsögulegar sýn-
ingar. Fundarstofur til leigu. Veitingastofa. Opið alla
daga frá kl. 11–17. Sími 545 1400.
AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mán. til fös. kl. 10–
19. Lau. 10–15.
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl. 14–
18. Lokað mán.
NONNAHÚS, Aðalstræti 54. Opið a.d. kl. 10–17 frá 1. júní
– 1. sept. Uppl. í s. 462 3555.
NORSKA HÚSIÐ Í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í
sumar frá kl. 11–17.
ORÐ DAGSINS
Reykjavík s. 551 0000.
Akureyri s. 462 1840.
SUNDSTAÐIR
SUNDSTAÐIR Í REYKJAVÍK: Sundhöllin er opin v.d. kl.
6.30–21.30, helg. kl. 8–19. Opið í bað og heita potta alla
daga. Vesturbæjarlaug er opin v.d. 6.30–21.30, helg. 8–
19. Laugardalslaug er opin v.d. 6.50–21.30, helg. 8–19.
Breiðholtslaug er opin v.d. kl. 6.50–22, helg. kl. 8–20.
Grafarvogslaug er opin v.d. kl. 6.50–22.30, helg. kl. 8–
20.30. Árbæjarlaug er opin v.d. kl. 6.50–22.30, helg. kl.
8–20.30. Kjalarneslaug opin mán. og fim. kl. 11–15. Þri.,
mið. og fös. kl. 17–21.
SUNDLAUG KÓPAVOGS: Opin virka daga 6.30–22, um
helgar 8–19 (apríl-sept.), kl. 8-18 (okt.-mars).
GARÐABÆR: Sundlaugin opin mán.–fös. 7–20.30. Lau.
og sun. 8–17. Sölu hætt hálftíma fyrir lokun.
HAFNARFJÖRÐUR. Suðurbæjarlaug: Mán.–fös. 7–21,
lau. 8–18, sun. 8–17. Sundhöll Hafnarfjarðar: Mán.–fös.
6.30–21, laug. og sun. 8–12.
VARMÁRLAUG Í MOSFELLSBÆ: Opið v. d. kl. 6.30–
7.45 og kl. 16–21. Um helgar kl. 9–18.
SUNDLAUGIN Í GRINDAVÍK: Opið alla v. d. kl. 7–21 og
kl. 11–15 um helgar. S. 426 7555.
SUNDLAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.45–8.30 og 14–22,
helgar 11–18.
SUNDMIÐSTÖÐ KEFLAVÍKUR: Opin mán.–fös. kl. 7–
21, lau. kl. 8–17, sun. kl. 9–16.
SUNDLAUGIN Í GARÐI: Opin mán.–fös. kl. 7–9 og
15.30–21, lau og sun. kl. 10–17. S: 422 7300.
SUNDLAUG AKUREYRAR er opin v.d. kl. 7–21, lau. og
sun. kl. 8–18. S. 461 2532.
SUNDLAUG SELTJARNARNESS: Opin mán.–fös. 7–
20.30, lau. og sun. kl. 8–17.30.
JAÐARSBAKKALAUG, AKRANESI: Opin mán.–fös. 7–
21, lau. og sun. 9–18. S: 431 2643.
BLÁA LÓNIÐ: Opið v.d. kl. 11–20, helgar kl. 10–21.
ÚTIVISTARSVÆÐI
HÚSDÝRAGARÐURINN er opinn alla daga kl. 10–17.
Kaffihúsið opið á sama tíma. Fjölskyldugarðurinn er
opinn sem útivistarsvæði á veturna. S. 5757 800.
SORPA:
SKRIFSTOFA SORPU er opin kl.
8.15–16.15. Móttökustöð er opin
mán.–fim. 7.30–16.15 og föst 6.30–
16.15. Endurvinnslustöðvarnar við: Bæjarflöt, Jafnasel,
Dalveg og Blíðubakka eru opnar kl. 12.30–
19.30. Endurvinnslustöðvarnar við: Ánanaust, Sævar-
höfða og Miðhraun eru opnar k. 8–19.30. Helgaropnun
laugardaga og sunnudaga kl. 10–18.30. Endurvinnslu-
stöðin á Kjalarnesi er opin sunnudag., miðvikud. og fös-
tud. kl. 14.30–19.30. Uppl.sími 520 2205.
ÍSLENSK-ameríska verslunar-
félagið ehf. f.h. Pampers og Gerb-
er styrkti Neistann, styrktarfélag
hjartveikra barna, í átaki sínu
„Gefum þeim von“. Íslensk-am-
eríska veitti Neistanum styrk að
upphæð 200.000 krónur og að auki
Pampers-bleyjur og Gerber-
barnamat að andvirði 100.000
krónur. Á myndinni má sjá full-
trúa Neistans, Guðnýju Sigurð-
ardóttur og Hafdísi Ingimund-
ardóttur, veita gjöfinni móttöku
úr hendi Huga Sævarssonar,
markaðsstjóra Íslensk-ameríska
ehf.
Styrktu Neistann
Segja kosn-
ingar aðför
að lands-
byggðinni
STJÓRN fjórðungssambands Vest-
firðinga hefur sent frá sér ályktun
um Reykjavíkurflugvöll:
„Stjórn Fjórðungssambands
Vestfirðinga telur að þær kosningar
um Reykjavíkurflugvöll sem fram
fara 17. mars séu aðför að lands-
byggðinni. Reykjavíkurflugvöllur er
grundvöllur innanlandsflugsins og
verði hann aflagður og innanlands-
flugið flutt til Keflavíkur er verið að
skerða með áhrifamiklum hætti að-
gang landsmanna að þjónustu höf-
uðborgarinnar. Nú eiga kosningarn-
ar allt í einu að snúast um skipulag
borgarinnar og byggingarland en
látið er sem það hlutverk sem
Reykjavíkurflugvöllur hefur sé létt-
vægt og allt eins geti sú þjónusta far-
ið fram annars staðar öllum að skað-
lausu.
Þetta er alrangt. Reykjavíkurflug-
völlur er öryggisventill sjúkraflugs-
ins frá landsbyggðinni. Hann er
tenging landsins alls við þjónustu
höfuðborgarinnar. Við stóru sjúkra-
húsin og við höfuðstöðvar sjórnsýsl-
unnar. Með flutningi innanlands-
flugsins til Keflavíkur, sem er eini
raunhæfi kosturinn ef flugvöllurinn
verður aflagður, er verið að lengja
sjúkraflutning og verið að skapa
verulegt óhagræði fyrir atvinnulíf og
stjórnvöld í landinu utan Reykjavík-
ur.“
Sýningar á
ljósmyndum
úr háfjalla-
leiðöngrum
SÝNING á ljósmyndum nokkurra af
helstu háfjallaklifrurum Bretlands,
þeirra Chris Bonington, Doug Scott,
David Oswin og Jim Fothringham,
sem hafa verið í framlínu háfjalla-
mennskunnar sl. 30 ár, verður opnuð
í Kringlunni í dag, laugardag, kl. 10.
Sýningin, sem verður fyrir utan
verslunina Nanoq, ber heitið „Trav-
els in High Places“.
Sunnudagskvöldið 18. mars verð-
ur Doug Scott með skyggnumynda-
sýningu í sal Ferðafélags Íslands í
Mörkinni 6. Sýningin ber heitið
„Moments of Being“ og fjallar um
nýjar klifurleiðir og landkönnun á af-
skekktum slóðum í Tíbet, Bútan,
Nepal og Arunachal Pradesh héraðs
á Norðaustur-Indlandi.
Doug Scott er íslenskum fjalla-
mönnum að góðu kunnur, hefur m.a.
klifrað með Íslendingum hér og er-
lendis. Scott varð fyrstur Breta á
Everest tind, 1974, auk þessa að hafa
tekið þátt í mörgum af þekktustu
fjallaleiðöngrum síðari tíma, segir í
fréttatilkynningu. Sýningin byrjar
kl. 20 og er aðgangseyrir við dyrnar
800 kr.
Fræðslufund-
ur um sam-
kynhneigð
FRÆÐSLUFUNDUR á vegum for-
eldra- og aðstandendahópsins sem
starfar á vettvangi Samtakanna ’78
verður í dag, laugardaginn 17. mars.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði
félagsins, Laugavegi 3, og hefst kl.
16.
Þar mun Ingibjörg S. Guðmunds-
dóttir hjúkrunarfræðingur fjalla um
bókina „Coming out to Parents“, eft-
ir Mary V. Borhek. Ingibjörg mun
fjalla um það tímabil þegar samkyn-
hneigðir segja foreldrunum frá kyn-
hneigð sinni. Bókin leiðir aðstand-
endur í gegnum sorgarviðbrögð sem
tekur tíma að vinna úr saman, segir í
fréttatilkynningu. Fundurinn er öll-
um opinn sem hafa áhuga á lífi og
reynslu samkynhneigðra og að-
standenda þeirra, og eru félagsmenn
hvattir til að koma og taka þátt í gef-
andi umræðu og skoðanaskiptum,
segir ennfremur.
Útivistar-
ganga um
Krýsuvík
ÚTIVIST fer á sunnudaginn, 18.
mars, kl. 13 í í gönguferð um Krýsu-
vík og Sveifluháls.
Ekið verður að hverasvæðinu við
Seltún og gengið upp á gömlu þjóð-
leiðina Ketilstíg og síðan farið á milli
sérstæðra móbergskletta í Sveiflu-
hálsi. Þetta er ágæt um 3 klst. ganga
og fararstjóri er Gunnar Hólm
Hjálmarsson. Brottför er frá BSÍ, en
einnig stansað við kirkjug. í Hafn-
arfirði. Verð er 1.400 kr. fyrir félaga
og 1.600 kr. fyrir aðra.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
Áskorun
til samninga-
nefnda
STARFSGREINASAMBAND Ís-
lands hefur sent frá sér eftirfarandi
áskorun til samninganefnda sam-
taka sjómanna og útvegsmanna:
„Starfsgreinasamband Íslands
skorar á samninganefndir samtaka
sjómanna og útvegsmanna að ganga
heilshugar til verks og ganga frá
kjarasamningi fyrir sjómenn sem
verið hafa samningslausir í rúmt ár.“
♦ ♦ ♦
Hollvinir í
Húsi málar-
ans á kjördag
HOLLVINIR Reykjavíkurflugvall-
ar verða með aðstöðu og nokkurs
konar kosningamiðstöð á efri hæð-
inni í Húsi málarans, Bankastræti,
laugardaginn 17. mars, í tilefni af
skoðanakönnun borgaryfirvalda á
afstöðu borgarbúa til veru flugvall-
arins í Vatnsmýri. Samkoman byrjar
kl. 13 og stendur þar til úrslit verða
kunngjörð.
Gönguferð á
Reynivalla-
háls
FERÐAFÉLAG Íslands efnir til
gönguferðar sunnudaginn 18. mars á
Reynivallaháls við Hvalfjörð og nið-
ur að Fossá.
Hæðaraukning á þessari leið er
um 250 m og áætlaður göngutími
2½–3 klst. Fararstjóri í ferðinni er
Sigríður H. Þorbjarnardóttir og
þátttökugjald 1.500 krónur fyrir full-
orðna. Brottför er frá BSÍ kl. 10.30
og komið við í Mörkinni 6.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
Mynd á hvolfi
Með myndlistarumfjöllun Braga
Ásgeirssonar í blaðinu í gær, um
sýningu Kristins G. Jóhannssonar,
birtist myndin á hvolfi. Um leið og
beðist er velvirðingar á mistökunum
er myndin birt aftur.
Rangt föðurnafn
Í myndatexta í blaðinu á fimmtu-
dag, með grein um Íslenska dans-
flokkinn, var föðurnafn Guðmundar
Helgasonar rangt.
Beðist er velvirðingar á mistökun-
um.
Rangt heiti
Í frétt í blaðinu á fimmtudag um
úrskurð í máli Club Clinton var
rangt farið með nafn úrskurðarað-
ilans í málinu. Nefndin heitir úr-
skurðarnefnd skipulags- og bygg-
ingarmála, ekki skipulags- og um-
ferðarmála, eins og stóð.
Kristinn G. Jóhannsson: Garð-
ljóð um vetur, olía á léreft.
Leiðrétt
♦ ♦ ♦
UTANRÍKISRÁÐHERRA Finn-
lands hefur tilnefnt Jóhann Pétur
Andersen, forstjóra Hraðfrystistöð-
varinnar hf. í Vestmannaeyjum, sem
kjörræðismann Finnlands í Vest-
mannaeyjum. Jóhann Pétur tekur
við af Sigurði Einarssyni forstjóra,
sem lést sl. haust.
Sendiherra Finnlands á Íslandi,
Timo Koponen, afhenti Jóhanni
Pétri skipunarbréf 16. mars sl. í mót-
töku sem haldin var honum til heið-
urs. Jafnframt hefur Jóhanni Pétri
verið afhent viðurkenningarbréf frá
íslenska utanríkisráðuneytinu.
Kona Jóhanns Péturs Andersen
er Erla Adolfsdóttir.
Nýr kjörræð-
ismaður Finn-
lands í Eyjum