Morgunblaðið - 17.03.2001, Page 85
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 85
Sekur um glæp
(Guilty As Charged)
S t r í ð s m y n d
Leikstjóri Mark L. Lester. Handrit
C. Courtney Joyner og Jeffery Al-
bert. Aðalhlutverk Antonio Sabato
Jr., James Remar. (96 mín.)
Bandaríkin 2000. Myndform.
Bönnuð innan 16 ára.
ÞESSI heitir reyndar Base II:
Guilty As Charged en svo virðist
sem markaðsséníin hafi metið sem
svo að það hjálpi
myndinni lítið að
vera bendluð við
fyrri myndina,
hvað þá að vera
önnur myndin í
röðinni. Ég veit
það ekki, kannski
var bara ég svona
vel fyrir kallaður
en þetta hugsan-
lega markaðsstress var algjör
óþarfi því það ætti enginn að þurfa
að vera með einhverja minnimátt-
arkennd yfir því að hafa komið ná-
legt þessari hreint þokkalegu her-
mynd. Hér ganga menn, með
hinum vana B-myndaleikstjóra
Lester í broddi fylkingar, hreint
og beint til verks og það er ekkert
verið að rembast við að gera meira
en efni standa til um. Sagan er
reyfarakennd og klisjótt, leikurinn
upp og ofan en sem formúlumynd,
hrein og bein afþreying, gengur
hún alveg upp. En eins og ég segi,
kannski var ég bara svona vel upp-
lagður.
Skarphéðinn Guðmundsson
MYNDBÖND
Upp-
ljóstrari
í hernum
alltaf á fimmtudögum
Gálgi
(Hangman)
S p e n n u m y n d
Leikstjóri: Ken Girotti. Handrit:
Vladimir Nemrovski. Aðalhlutverk:
Lou Diamond Phillips, Mädchen
Amick. (96 mín) Skífan. Bönnuð
innan 16 ára.
Leikstjóri þessarar raðmorðingja-
myndar ku eiga farsælan feril að
baki sem sjón-
varpsmynda- og
þáttaleikstjóri.
Þessi kvikmynd
ber þess skýrt
merki hvar leik-
stjórinn hefur alið
manninn, enda yf-
ir henni þess
ódýri sjónvarps-
myndakeimur.
Þetta er þó ekki
alslæm spennumynd. Handritið er
sæmilega skrifað, og fer fremur
óvenjulegar og óvæntar leiðir. Þá
leika þau Lou Diamond Phillips og
Mädchen Amick nokkuð vel. Þessi
mynd er hins vegar sadísk í meira
lagi, óvenju óhugnanleg raðmorð-
ingjamynd sem hentar illa ef fólk er
að leita eftir mynd til að lyfta sér
upp, eða eiga notalega kvöldstund
yfir.
Heiða Jóhannsdótt ir
Morðingi
með gálga-
húmor
isson, ritstjóri dægurtónlistarblaðs-
ins Q, eftirfarandi að segja: „Sex
Pistols náðu þarna manna best að
fanga allan þann spenning sem
rokkið getur gefið. Þetta var líka í
fyrsta og mögulega síðasta sinn
sem eitthvað sem sett er á umslag
plötu náði að hneyksla heila þjóð
eins og hún lagði sig.“ Athygli
vakti að umslag meistaraverks Bítl-
anna, Sgt. Pepper’s Lonely Hearts
Club Band, sem er óumræðilega
eitt það umtalaðasta í dægurlista-
sögunni, hafnaði í tíunda sæti.
Sid Vicious,
bassaleikari
Sex Pistols:
Meira pönk!
Guð
hjálpi
Sex
Pistols!
100 bestu plötuumslög allra tíma
FYRIRHUGUÐ er útgáfa á bók sem
mun innihalda myndir af 100 bestu
plötuumslögum allra tíma. Sérstök
dómnefnd var kölluð til verksins og
hefur hún nú komist að niðurstöðu.
Fyrir valinu varð plata hinnar bylt-
ingarkenndu ræflarokkssveitar
Sex Pistols, God Save The Queen, 7
tommu smáskífa sem út kom árið
1977. Umslagið prýðir afskræmd
mynd af Elísabetu Bretlandsdrottn-
ingu; búið er hylja munn hennar og
augu með pönkuðum bókstöfum.
Um umslagið hafði Andrew Harr-
♦ ♦ ♦