Morgunblaðið - 24.03.2001, Side 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ENN er talsverð loðnuveiði og má
líflegt á miðunum enda skiptir
miklu máli að nota tímann vel þeg-
ar jafn langt er liðið á loðnuvertíð
og nú. Nóg er eftir að loðnukvóta
og loðnu víða að finna á miðunum
við landið.
Mikið hefur til dæmis verið um
að vera í Vestmannaeyjum, en eins
og sjá má á myndinni koma bátarn-
ir að hver á eftir öðrum drekk-
hlaðnir. Hér sigla þeir inn Sigurður
og Ísleifur hvor á eftir öðrum og
skömmu áður hafði Antares lagst
að bryggju með fullfermi.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Tveir með fullfermi í innsiglingunni
VINSÆLUSTU fermingardagar að
þessu sinni eru um páska og hvíta-
sunnu, eins og verið hefur lengi,
þrátt fyrir tilmæli biskups um að
prestar leitist við að ferma ekki um
páska til að skyggja ekki á hið raun-
verulega innihald þeirra og boðskap.
Þetta kemur fram í blaðauka
Morgunblaðsins um fermingar og
þar kemur einnig fram að könnun á
viðhorfum framhaldsskólanema
fæddra 1981 og 1983 til fermingar
trúar og trúðariðkunar leiddi í ljós,
að 56% framhaldsskólanemanna
töldu börn fermast of ung og 46,8%
þeirra kváðust hafa fermst hefðar-
innar vegna. Þegar framhaldsskóla-
nemarnir voru spurðir að því hvort
þeir teldu að hækkun fermingarald-
ursins í 16 ár myndi fækka eða fjölga
fermingum, svöruðu 88% þeirra að
slíkt myndi gera það að verkum, að
fermingum myndi fækka.
Fermingar
um páska
og hvíta-
sunnu vin-
sælastar
Fermingar/C-blað
LÖGREGLAN í Reykjavík
fékk í gærmorgun tilkynn-
ingu um að verið væri að
beita konu ofbeldi í húsi í
vesturbænum.
Að sögn lögreglu reyndist
þetta ekki á rökum reist.
Húsráðandi kvaðst hins vegar
hafa fengið særingamann á
staðinn til að særa illa anda
úr konu sinni og skýrði það
lætin.
Andasær-
ingar, ekki
ofbeldi
DANSMEY á nektardans-
staðnum Club 7 við Hverfis-
götu féll niður af súlu í fyrri-
nótt. Hún mun hafa vankast
nokkuð við fallið og kvartaði
eftir það um eymsli í hálsi.
Lögreglan var kvödd á stað-
inn um kl. 1 og sjúkrabifreið
flutti stúlkuna á slysadeild
Landspítala – háskólasjúkra-
húss. Ekki var þó talið að
meiðsli hennar væru alvarleg.
Dansmey
féll af súlu
INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra segir að aldrei hafi hvarfl-
að að sér að samningur heilbrigðis-
ráðuneytisins um rekstur
hjúkrunarheimilisins við Sóltún með
einkaframkvæmdarsniði yrði ódýr-
ari og fjárhagslega hagkvæmari en
ríkisrekin öldrunarþjónusta. Mark-
miðið hafi fyrst og fremst verið að
geta boðið þjónustu fyrir aldraða
vistmenn sem þurfa á mikilli umönn-
un að halda og þar sem gerðar væru
mjög miklar kröfur um fagþjónustu.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær leiðir samanburður
Ríkisendurskoðunar í ljós að dag-
gjald Sóltúnsheimilisins sé um 14%
hærra en annarra hjúkrunarheimila
sem athugunin náði til en Sól-
túnsheimilið er rekið með einka-
framkvæmdarsniði.
Miklar kröfur gerðar um fag-
þjónustu við veika einstaklinga
Heilbrigðisráðherra bendir einnig
á að kostnaður á legudag á Sól-
túnsheimilinu nemur um 14 þúsund
kr., en sólarhringurinn á öldrunar-
lækningadeild sé á bilinu 17–18.000
kr. til samanburðar. „Við gerum
mjög miklar kröfur til þjónustunnar
á hjúkrunarheimilinu við Sóltún. Við
gerum kröfur um meiri fagþjónustu
heldur en almennt er veitt, vegna
þess að þarna er eingöngu um mjög
veika einstaklinga að ræða. Verk-
kaupandi, sem er heilbrigðisráðu-
neytið, hefur líka meira um það að
segja hverjir leggjast inn til vistunar
á Sóltúnsheimilið en annars staðar,“
segir hún. „Við höfum aldrei fyrr far-
ið svona faglega og nákvæmlega of-
an í það hvaða þjónustu við viljum
kaupa. Það mun nýtast okkur í fram-
tíðinni varðandi aðra þjónustusamn-
inga sem ég tel nauðsynlegt að gera
við öldrunarstofnanir, svo allir sitji
við sama borð,“ segir Ingibjörg.
Kaupa þjónustu fyrir
veikustu einstaklingana
Aðspurð hvaða hagkvæmni sé
fólgin í rekstri Sóltúnsheimilisins
fyrir ríkið úr því að kostnaðurinn við
það er töluvert meiri en við önnur
hjúkrunarheimili, sagði Ingibjörg að
með þessum samningi væri ráðu-
neytið að fara inn á nýjar brautir.
„Ég hef aldrei látið mér detta í hug
að þetta væri ódýrara en ríkisrekið
kerfi. Við erum ekkert að tala um
það í þessu sambandi. Það sem um er
að ræða er að okkur lá á að fá 90
rúm, sem við fáum fljótt og örugg-
lega fyrir okkar skjólstæðinga.
Þarna erum við að kaupa þjónustu
fyrir þá sem þurfa mest á henni að
halda, fyrir veikustu einstaklingana.
Menn verða þess vegna að átta sig á
að það kostar sitt að gera kröfur til
meiri fagaðila og það má einnig
benda á að fyrirtækið, sem rekur
heimilið, borgar skatta og skyldur
sem aðrir aðilar í heilbrigðisþjónust-
unni eru undanþegnir í dag,“ segir
Ingibjörg Pálmadóttir.
Morgunblaðið/Jim Smart
Framkvæmdir standa yfir við byggingu hjúkrunarheimilisins við Sóltún 2 í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að húsið verði tekið í notkun í september.
Aldrei talið að samningurinn
yrði ódýrari en ríkisrekstur
Heilbrigðisráðherra um skýrslu Ríkisendurskoðunar um Sóltúnsheimilið
SAMTÖK ferðaþjónustunnar hafa
útbúið blað þar sem farþegar í af-
þreyingarferðum staðfesta með
undirskrift sinni ýmislegt sem til er
tekið. Meðal þess er að þeir hafi
kynnt sér öryggisreglur viðkomandi
fyrirtækis og muni hlíta þeim, þeir
séu með ökuréttindi ef um vélsleða-
ferð er að ræða, þeir hafi tilkynnt
um sjúkdóma sína ef um þá er að
ræða og þeir séu ekki undir áhrif-
um áfengis eða vímuefna.
Einnig skrifa farþegarnir undir
að þeir beri sjálfir ábyrgð á því
tjóni sem þeir kunna að valda vegna
gáleysis eða fyrir að hafa ekki farið
að settum reglum. Blöð sem þessi
eru víða í notkun erlendis og þykja
stuðla að auknu öryggi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Samtökum ferðaþjónustunnar er
markmiðið með staðfestingar-
blaðinu að gera farþega meðvitaðri
um að það þurfi að fara varlega,
hvort sem fólk ferðast með vélsleð-
um á jöklum, með bátum á vatni
eða niður jökulár, eða í hestaferð-
um.
Erna Hauksdóttir, framkvæmda-
stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar,
sagði við Morgunblaðið að öryggis-
mál í ferðaþjónustu hefðu verið tek-
in fyrir síðastliðið ár og þetta væri
einn liður í þeim aðgerðum að auka
öryggi farþega í afþreyingarferðum.
Hún sagði sérstaka áherslu vera
lagða á vélsleðaferðir, bátaferðir og
hestaferðir.
Til mikilla hagsbóta
Afþreyingarfyrirtæki eru þegar
farin að nota staðfestingarblaðið og
meðal þeirra eru Íslenskar ævin-
týraferðir sem nýlega urðu til með
sameiningu 4 fyrirtækja, Addís,
Langjökuls, Bátafólksins og Vél-
sleðaleigunnar Geysis.
Garðar Vilhjálmsson fram-
kvæmdastjóri sagði öryggisatriði
sem þetta staðfestingarblað vera
löngu tímabært og til mikilla hags-
bóta enda hefði hugmyndin að því
komið frá fyrirtækjunum sjálfum en
Samtökum ferðaþjónustunnar verið
falið að samræma aðgerðina. Hann
sagði að til viðbótar þessu blaði
fengju farþegar eigin öryggisreglur
fyrirtækisins og leiðbeiningar í
hendur áður en lagt er af stað.
Farþegar
skrifa
undir stað-
festingu
♦ ♦ ♦