Morgunblaðið - 24.03.2001, Blaðsíða 50
MINNINGAR
50 LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Hjálmar Gunn-arsson fæddist á
Eiði í Eyrarsveit 5.
mars 1931. Hann lést
á Kanaríeyjum 11.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Gunnar Jóhann Stef-
ánsson, bóndi á Eiði
og síðar harðfisk-
framleiðandi í
Grundarfirði, f.
22.11. 1903, d. 23.7.
1980, og Lilja Elís-
dóttir, húsfreyja, f.
24.7. 1907, d. 31.5.
1964. Systkini hans
eru: 1) Elís, f. 25.2. 1929. 2) Sveinn
Garðar, f. 17.7. 1932, d. 21.9. 2000.
3) Sigrún, f. 3.2. 1934. 4) Sigurlín, f.
17.5. 1936. 5) Helga Soffía, f. 8.11.
1937, d. 11.12. 1997. 6) Jóhann Leó,
f. 15.3. 1941. 7) Snorri, f. 22.9. 1943.
8) Óskírt meybarn, f. 6.1. 1946, d.
6.1. 1946. 9) Þórarinn, f. 18.7. 1947.
Sigmar Hrafn, hann á einn son, og
Eymar. 3) Ólafía Dröfn, f. 11.1.
1960, verkakona í Grundarfirði,
kvænt Bjarna Jónassyni; börn
þeirra eru Heiðar Þór, unnusta
hans er Erna Sigurðardóttir,
Helga Hjálmrós og Jóna Lind. Son-
ur Hjálmars með Kristínu Ólafs-
dóttur frá Hlaðhamri í Hrútafirði
er Ólafur, f. 26.9. 1950, vélfræðing-
ur í Kópavogi, kvæntur Emilíu
Karlsdóttur; dætur þeirra eru Sig-
ríður Amanda og Katrín Dögg.
Hjálmar fór ungur til sjós og afl-
aði sér vélstjórnarréttinda 1950 og
lauk síðan námi frá Stýrimanna-
skólanum í Reykjavík 1954. Hann
var síðan skipstjóri á eigin bát til
1978 að hann kom í land, rak síðan
útgerð og síðar jafnframt harðfisk-
og saltfiskverkun. Þá rak hann
einnig matvöruverslun til dánar-
dags. Hann sat í stjórn Hraðfrysti-
húss Grundarfjarðar 1969–1985, í
stjórn Kaupfélags Grundfirðinga
og útvegsmannafélags Snæfells-
ness í nokkur ár. Hann sat í hrepps-
nefnd Eyrarsveitar 1978–1982.
Útför Hjálmars fer fram frá
Grundarfjarðarkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Hinn 16. október
1954 kvæntist Hjálmar
eftirlifandi eiginkonu
sinni, Helgu Þóru
Árnadóttur, f. 4.5.
1934, frá Akranesi.
Foreldrar hennar
voru Árni Sigurðsson,
f. 19.8. 1902, d. 28.7.
1962, og Guðríður
Margrét Þórðardóttir,
f. 14.11. 1900, d. 14.8.
1978, frá Melstað
áAkranesi. Börn
þeirra eru: 1) Gunnar,
f. 9.8. 1955, skipstjóri í
Grundarfirði, kvæntur
Pauline Jean Haftka. Sonur Gunn-
ars með Gunnhildi Ragnarsdóttur
er Hjálmar. 2) Margrét, f. 17.6.
1957, verkakona í Grundarfirði,
gift Eyjólfi Júlíusi Sigurðssyni;
synir þeirra eru Árni Elvar, sam-
býliskona hans er Líney Rakel
Jónsdóttir og eiga þau þrjá syni,
Þú, Guð, sem stýrir stjarna her
og stjórnar veröldinni,
í straumi lífsins stýr þú mér
með sterkri hendi þinni.
Stýr mínu fari heilu heim
í höfn á friðarlandi,
þar mig í þinni gæzlu geym,
ó, guð minn allsvaldandi.
(V. Briem.)
Elsku pabbi minn! Með miklum
söknuði og trega sest ég niður en
trúi því varla enn að þú sért dáinn.
Betri pabba var ekki hægt að óska
sér, hvorki sem barn né fullorðin.
Minningarnar eru margar og góð-
ar bæði við leik og störf og þegar
söknuðurinn tekur völdin verður
gott að ylja sér við þær. Við pabbi
áttum sameiginlegt áhugamál en
það var hestamennskan og fórum
ég og fjölskylda mín og pabbi í
margar frábærar hestaferðir og
reiðtúra bæði norður í land og suð-
ur. Alltaf var mamma með og
reddaði öllu á sínum bíl og held ég
að á engan sé hallað þótt ég segi
að það fari enginn í sporin hennar
í þeim málum frekar en svo
mörgu. Pabbi var mikill fjölskyldu-
maður og vorum við öll alltaf í
huga hans, sama hvar í heiminum
hann var. Hann var mikill athafna-
maður og mátti helst aldrei sitja
auðum höndum. Þess vegna var
það mikið áfall fyrir hann þegar
hann fékk hjartaáfall fyrir fjórum
árum og var ekki heill heilsu eftir
það. Það vitum við best sem næst
honum stöndum hvað það var erf-
itt fyrir hann að mega ekki gera
neitt nema svona smásnatt. Hest-
ana sína varð hann að láta sér
nægja að horfa á en ekki lét hann
sig vanta þegar barnabörnin voru
að keppa á hestamótum. Elsku
pabbi minn, mikið á ég eftir að
sakna þess þegar ég kem í vinnuna
niðri í Tanga að eiga ekki eftir að
heyra þig segja: „Góðan daginn
elskan mín.“ En ég veit að við eig-
um eftir að hittast í fyllingu tím-
ans hinum megin og þá kemur þú
ríðandi á honum Sleipni þínum
með Stjörnu mína í taumi og við
fáum okkur góðan sprett eins og í
gamla daga.
Elsku mamma mín, þinn missir
er mestur og bið ég Guð að leiða
þig og ökkur öll styrkri hendi í
gegnum þessa miklu sorg og missi.
Elsku pabbi minn, góða nótt og
hafðu þökk fyrir allt.
Þín dóttir,
Ólafía Dröfn.
Elsku afi. Þú fórst til Kanarí
þar sem þér leið alltaf svo vel.
Þegar þið amma voru búin að vera
þar fjóra daga hringdi amma og
sagði að þú værir dáinn. Við áttum
margar góðar og skemmtilegar
stundir, mjög margar í hestaferð-
um. Við ferðuðumst mjög mikið,
næstum því um allt land. Þú varst
samt ekkert búinn að fara á hest-
bak síðustu fjögur ár eftir að þú
varðst hjartveikur. En það vantaði
aldrei ykkur ömmu þegar það var
hestamót eða eitthvað annað um
að vera hjá okkur. Það var alltaf
jafn gott að koma til ykkar, ef
mann vantaði eitthvað redduðuð
þið því. Þú varst nýbúinn að halda
70 ára afmælið þitt, sem var mjög
góð stund. Það er mikil sorg og
söknuður að missa þig.
Góði guð, passaðu afa og hjálp-
aðu ömmu því hún hefur misst svo
mikið.
Þitt barnabarn
Jóna Lind.
Elsku afi okkar! Ekki gátum við
ímyndað okkur það þegar við fór-
um út að borða með ykkur ömmu á
afmælisdaginn þinn, hinn 5. mars
síðastliðinn, að það væri okkar síð-
asta stund með þér. En svona er
lífið, maður veit víst aldrei hvenær
maður kveður í hinsta sinn.
Frá blautu barnsbeini höfum við
alltaf verið mikið með þér. Við átt-
um okkar besta áhugamál sameig-
inlegt, hestana. Þeir voru ekki fáir
útreiðartúrarnir og hestaferðirnar,
hvert á land sem var, sem við fór-
um með þér og þú með okkur.
Þegar við vorum að fara í reiðtúr
og pabbi var úti á sjó komst þú
heim til okkar og náðir í okkur á
„pikkanum“ þínum og keyrðir okk-
ur svo aftur heim og fengum við
alltaf að sitja á pallinum og þótti
okkur það mikið sport. Alltaf áttir
þú til súkkulaðirúsínur í vasanum
og voru þær mjög vinsælar þegar
við áðum úti í sveit og einnig þeg-
ar heim var komið. Þegar við
stálpuðumst fórum við svo að
vinna hjá þér á sumrin, annað-
hvort í fiskinum eða eitthvað að
snattast. Þú og amma sýnduð öllu
því sem við gerðum alltaf mikinn
áhuga. Þið voruð til dæmis alltaf
mætt fyrst á staðinn þegar við
vorum að keppa á hestamótum til
þess að fylgjast með okkur og þú
varst alltaf að spyrja hvort það
væri ekki örugglega allt í lagi. Oft-
ar en ekki höfum við keppt á hest-
inum þínum, honum Nasa, og
varstu alltaf afar stoltur af okkur
og honum að keppni lokinni. Þú
varst alltaf á ferðinni og alltaf að
gera eitthvað og var það þess
vegna mikið áfall fyrir þig og okk-
ur þegar þú fékkst hjartaáfall og
þurftir eftir það að taka því rólega.
Þá fóruð þið að fara oft til Kan-
aríeyja á veturna því þú þoldir
kuldann illa og þar leið ykkur vel í
sólinni og hitanum. Það hefði verið
gaman að fá að sjá þig koma heim
einu sinni enn brúnan og sællegan.
En elsku afi, takk fyrir öll árin
sem við áttum saman, við vitum að
þú bíður okkar hinum megin þegar
þar að kemur og tekur á móti okk-
ur opnum örmum eins og vana-
lega.
Megi góður guð styrkja elsku
ömmu okkar og okkur öll í þessum
mikla missi og sorg.
Þín barnabörn
Helga Hjálmrós og
Heiðar Þór.
Elsku afi, orð fá ekki lýst þeirri
sorg og þeim söknuði sem ríkir í
hjarta mínu nú. Það eina sem ég
get huggað mig við eru allar ljúfu
minningarnar sem ég á um þig,
allir reiðtúrarnir sem við fórum
saman og bílferðirnar um sveit-
irnar þegar ég var yngri. Þetta
voru allt yndislegar stundir með
þér, stundir sem við áttum saman,
og fyrir þær þakka ég. Öll að-
fangadags- og áramótakvöldin í
Hamrahlíðinni með þér, ömmu og
allri fjöldskyldunni voru sennilega
ein yndislegustu kvöld lífs míns
þegar ég hugsa út í það.
Þegar ég kvaddi þig áður en þú
fórst til Kanarí bjóst ég aldrei við
að það yrði mín síðasta stund með
þér en sú var nú því miður raunin.
Ég á svo bágt með að trúa því að
nú sé búið að taka þig frá okkur.
Elsku afi, það er með þessum orð-
um sem ég kveð þig nú og alltaf
mun ég sakna þín. Minningin um
þig mun lifa í hjarta mér um
ókomna tíð.
Sigmar Hrafn.
Elsku afi minn, sjötugsafmæli
þínu var nýlokið og komið var að
kveðjustund því þú og amma voruð
á leiðinni til Kanaríeyja þar sem
ykkur þótti svo gott að vera. Aldr-
ei hefði mig grunað það þegar ég
faðmaði þig og ömmu og kvaddi
ykkur áður en þið fóruð að það
yrði í síðasta skipti sem ég sæi þig
á lífi, þá hefði ég aldrei sleppt tak-
inu.
Engin orð fá lýst því hversu
mikið ég mun sakna þín, afi minn,
því þú varst ekki einungis afi
minn, þú varst líka nokkurs konar
félagi og vinur og vissir alltaf ná-
kvæmlega hvað var í gangi hjá
manni hverju sinni og alltaf var
hægt að leita til þín til að fá ráð-
leggingar við hinu og þessu.
Þú varst sérstaklega góður við
okkur barnabörnin þín og alltaf
varstu tilbúinn að fara með okkur,
litlu gimsteinana þína, hingað og
þangað, hvort sem það var í út-
reiðartúra eða á rúntinn um sveit-
ina á hvíta pikkanum en það var
sama hvað var gert, alltaf voru
Svalarnir og súkkulaðirúsínurnar
með í för. Ég held að við barna-
börnin séum búin að fara á næst-
um alla veitingastaði í Reykjavík,
þökk sé þér og ömmu. Því ef þið
voruð á ferðinni í bænum var okk-
ur alltaf boðið út að borða og ekki
brást það að þú fékkst þér rauð-
sprettu og ef hún var góð þá var
hún að sjálfsögðu veidd í Breiða-
firðinum. Afi minn, það verður
sárt að hafa þig ekki því þú varst
svo stór partur af fjölskyldunni og
það máttu vita að þótt litlu strák-
arnir mínir, sem þér þótti svo
vænt um, muni ekki muna eftir
þér verður nóg af sögum að segja
fyrir háttinn. Minning þín mun lifa
með okkur að eilífu. Með virðingu
og þakklæti kveð ég þig, afi minn,
hvíl í friði og Guð geymi þig.
Árni Elvar.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer,
sitji guðs englar yfir mér.
(H. Pétursson.)
Góða nótt afi.
Kristófer, Viktor Ingi
og Eyjólfur Júlíus.
Hjálmar Gunnarsson var einn
þessara manna sem setja svip á
umhverfi sitt. Harðduglegur sjó-
sóknari og aflamaður á yngri ár-
um, útgerðarmaður og fiskverk-
andi í áratugi, kaupmaður og
félagsmálamaður, mikill að burð-
um og raddsterkur; „karakter“
sem tekið var eftir.
Ég kynntist Hjálmari fyrir rúm-
um þrjátíu árum þegar hann kom
til Akraness til að semja um smíði
á skipi hjá skipasmíðastöð Þor-
geirs & Ellerts. Einhver hafði var-
að okkur við og sagt að við ættum
eftir að finna fyrir honum þessum.
Annað kom á daginn. Öll samskipti
við Hjálmar voru á einn veg; kurt-
eisi í samskiptum, heiðarleiki í við-
skiptum og gagnkvæmt traust
okkar á milli. Á rúmum áratug
voru byggð fyrir hann þrjú skip:
tveir hundrað tonna bátar, Siglu-
nes og Haukaberg, og stór skut-
togari, Sigurfari 2. Starfsmönnum
skipasmíðastöðvarinnar líkaði vel
að vinna fyrir Hjálmar enda talaði
hann jafnan hlýlega til þeirra.
Hjálmar átti það til að vera dá-
lítið stríðinn, allt þó í góðu.
Ég minnist þess þegar Lands-
banki Íslands flutti útibú sitt í
glæsilega nýbyggingu á Akranesi.
Húsið var innréttað í stíl við tísku
þess tíma og þegar Hjálmar kom í
fyrsta sinn inn í nýja bankann og
leit í kringum sig í afgreiðslusaln-
um sá hann að veggirnir voru bæði
ópússaðir og ómálaðir.
Þá sagði hann stundarhátt með
sinni sterku rödd: „Höfðuð þið
ekki efni á að klára að innrétta áð-
ur en þið fluttuð inn, elskurnar
mínar?“ Síðan ég hóf þingmennsku
fyrir tíu árum hef ég oftast litið
inn hjá Hjálmari þegar ég hef
komið í Grundarfjörð. Alltaf tók
hann mér opnum örmum þótt ekki
værum við flokksbræður. „Guðjón
minn, hvað eruð þið að gera af
ykkur í þinginu núna, elskan mín?“
spurði hann gjarnan með stríðn-
isglampa í augum, dró fram harð-
fisk eða annað góðgæti og svo var
spjallað um heima og geima. Þetta
voru skemmtilegar heimsóknir.
Þegar fundir voru haldnir í Grund-
arfirði tók hann oft til máls og
ræddi sín áhugamál tæpitungu-
laust, stjórn fiskveiða, atvinnumál
og málefni byggðarlagsins voru
honum hugleikin og lá hann ekki á
skoðunum sínum og var nákvæm-
lega sama þótt margir fundar-
manna væru ósammála honum.
Hjálmar var mikill hamingju-
maður í einkalífinu. Hann kvæntist
ungur Helgu Árnadóttur frá Mel-
stað á Akranesi, mikilli ágætis-
konu. Þau voru einstaklega sam-
hent hjón og studdu hvort annað
með ráðum og dáð.
Allmörg undanfarin ár hafa þau
gert út Haukabergið þar sem
Gunnar sonur þeirra er skipstjóri,
rekið litla fiskverkun í Grundar-
firði og myndarlegan sölubás í
Kolaportinu í Reykjavík þar sem
þau hafa selt sínar ágætu afurðir
við miklar vinsældir viðskiptavin-
anna. Það var gaman að heim-
sækja þau í Kolaportið, þar sem
Helga eða einhver afkomenda
þeirra var við afgreiðslu og Hjálm-
ar rölti um fyrir framan af-
greiðsluborðið og tók menn tali.
Síðustu árin voru Hjálmari erfið
vegna heilsubrests. Hann lét þó
ekki deigan síga og hélt sínu striki
til síðasta dags. Það verður öðru-
vísi að koma í Grundarfjörð að
Hjálmari gengnum. Hann setti
sterkan svip á mannlífið í plássinu.
Ég þakka honum samfylgdina og
áratuga vináttu og tryggð.
Við Guðný sendum Helgu og
fjölskyldu innilegar samúðarkveðj-
ur.
Guð blessi minningu Hjálmars
Gunnarssonar.
Guðjón Guðmundsson.
Hjálmar Gunnarsson var einn af
þeim mönnum sem setja svip á
umhverfi sitt og það samfélag sem
þeir búa í. Hann var einn af þeim
sem lögðu grunn að myndarlegri
uppbyggingu Grundarfjarðar og
því kraftmikla atvinnu- og mannlífi
sem einkennir byggðarlagið. Hann
starfaði áratugum saman við sjáv-
arútveginn, sem sjómaður og skip-
stjóri og síðar sem útgerðarmaður
og fiskverkandi. Hann sýndi sínu
starfsfólki jafnan alúð, enda störf-
uðu sömu starfsmenn hjá honum
árum saman. Hjálmar tók virkan
þátt í félagsstarfi og starfaði lengi
í sveitarstjórn og nefndum sveit-
arfélagsins. Hann lagði sig fram
um að styðja við og styrkja félags-
starf í sinni heimabyggð og studdi
við bakið á þeim sem áttu á ein-
hvern hátt erfitt. Persónulega var
Hjálmar þó ekki alltaf allra, gat
verið þungur og fastur fyrir ef
honum mislíkaði eitthvað eða við
einhvern, en síðan voru málin jöfn-
uð og áfram haldið lífsins gangi.
Með fráfalli Hjálmars hverfur á
braut frumkvöðull og virkur at-
hafnamaður.
Hjálmar Gunnarsson var mikill
fjölskyldumaður, hann hélt vel ut-
an um sitt fólk og lagði sig fram
um að fjölskyldunni vegnaði vel.
Þau hjónin Hjálmar og Helga voru
sérlega samrýmd og það var oft
unun að fylgjast með því hve vel
þau stóðu saman og með hvort
öðru. Hjálmar og Helga hafa í
mörg ár rekið fyrirtæki sitt með
myndarbrag og hafa börn þeirra
og fjölskyldur tekið virkan þátt í
þeirri starfsemi. Þar hafa ekki ríkt
kynslóðaskipti, börnin, tengda-
börnin og barnabörnin hafa fengið
sín tækifæri og hefur verið eftir
því tekið hve Hjálmar lagði sig
HJÁLMAR
GUNNARSSON
&"
""
#;< % !#$
""%%
%
!%"%
' " () * *"" "!
# !
+"(,--
.
/ !" "!
=##
2 2 # %
1*: # > /
2
# % /
8# 2/+
/
1 1: 1 1 1: