Morgunblaðið - 24.03.2001, Blaðsíða 21
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 21
Norðurorka óskar eftir tilboðum í mæla-
skipti á 200 ein fasa og 100 þriggja fasa
raforkusölumælum á Akureyri.
Verkið getur hafist í apríl en því skal lokið eigi síðar
en 1. júlí 2001. Tilboðsgögn eru afhent á markaðs-
deild Norðurorku, sími 460 1300.
Tilboðum skal skilað á markaðsdeild Norðurorku í
lokuðu umslagi, merktu fyrirtæki, verktaka, fyrir kl.
10:00 föstudaginn 30. mars 2001. Tilboðin verða
opnuð á sama stað kl. 10:00 föstudaginn 30. mars að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Norðurorka áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
Norðurorka óskar eftir tilboðum í mæla-
skipti á 800 rennslismælum fyrir hita-
veitu á Akureyri.
Verkið getur hafist í maí en því skal lokið eigi síðar
en 30. nóvember 2001. Tilboðsgögn eru afhent á
markaðsdeild Norðurorku, sími 460 1300.
Tilboðum skal skilað á markaðsdeild Norðurorku í
lokuðu umslagi, merktu fyrirtæki, verktaka, fyrir kl.
11:00 föstudaginn 30. mars 2001. Tilboðin verða
opnuð á sama stað kl. 11:00 föstudaginn 30. mars
að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Norðurorka áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
mundssonar, en keppnin var einnig
helguð minningu hans í tilefni af
því að hann hefði orðið 100 ára í
byrjun árs. Loks lásu ungmennin
ljóð að eigin vali og þar var fjöl-
breytnin í fyrirrúmi en þó áberandi
hversu margir völdu ljóð eftir Dav-
íð Stefánsson. Minnie sagði ánægju-
legt að Akureyrarskáldið höfðaði
VILHJÁLMUR Bergmann Braga-
son í Brekkuskóla varð í fyrsta sæti
í Stóru upplestrarkeppninni sem nú
var efnt til í fyrsta sinn á Akureyri.
Í öðru sæti varð Rannveig Þrast-
ardóttir sem einnig er í Brekku-
skóla og Jóhannes Stefánsson í
Glerárskóla varð í þriðja sæti.
Keppnin var haldin við hátíðlega
athöfn í sal Menntaskólans á Ak-
ureyri í Hólum en alls tóku 12 nem-
endur í grunnskólum Akureyr-
arbæjar þátt.
Það eru nemendur í 7. bekk sem
taka þátt í þessari keppni, en hún
var fyrst haldin í Hafnarfirði fyrir
5 árum og hefur síðan verið að
breiðast út um landið. Alls voru nú
haldnar 26 upplestrarhátíðir víða
um land, eða allt frá Raufarhöfn í
norðaustri til Hornafjarðar í suð-
austri, en þess er vænst að að skól-
ar á Austfjörðum taki þátt í næstu
keppni og þar með verður hún
haldin um land allt. Um 4.000
grunnskólanemar hafa tekið þátt í
keppninni.
Minnie Eggertsdóttir, kennari í
Síðuskóla, sagðist vona um um yrði
að ræða árlegan viðburð á Ak-
ureyri, en keppni sem þessi hefði
mikið gildi fyrir nemendur. Þá
hefðu lokahátíðir í hverjum skóla
jafnan haft yfir sér hátíðlegt og
menningarlegt yfirbragð og áheyr-
endur hefðu haft gaman af að hlýða
á hina ungu og færu upplesara.
Stóra upplestrarkeppnin hefst á
Degi íslenskrar tungu, 16. nóv-
ember, en henni lýkur nú í lok
þessa mánaðar.
Dálæti á Davíð
Keppnin í ár var helguð evrópska
tungumálaárinu og var því að þessu
sinni lesið útlent ævintýri en að
jafnaði er lesið úr íslenskum bók-
menntum. Hver keppandi las hluta
úr ævintýrinu. Þá völdu hinir ungu
lesarar úr 5 ljóðum Tómasar Guð-
enn svo sterkt til bæjarbúa af yngri
kynslóðinni. Auk þeirra Vilhjálms,
Rannveigar og Jóhannesar tóku
þátt í keppninni Björn Atli Ax-
elsson, Giljaskóla, Arngrímur Sig-
urðsson, Síðuskóla, Thea Theódórs-
dóttir, Brekkuskóla, Margrét Anna
Magnúsdóttir, Lundarskóla, Heiðar
Björn Guðjónsson, Oddeyrarskóla,
Elvar Steinn Ævarsson, Síðuskóla,
Ingibjörg Sandra Hjartardóttir,
Lundarskóla, Íris Sara Hauks-
dóttir, Síðuskóla, og Kristjána
Katla Ragnarsdóttir, Glerárskóla.
Allir keppendur fengu bókaverð-
laun frá Eddu en að auki hlutu sig-
urvegarar peningaverðlaun frá
Sparisjóði Norðlendinga.
Stóra upplestrarkeppnin var nú haldin í grunnskólunum á Akureyri í fyrsta sinn
Vilhjálmur, Rann-
veig og Jóhannes
hlutskörpust
Morgunblaðið/Kristján
Vilhjálmur Bergmann Braga-
son, nemandi í Brekkuskóla,
sigraði í upplestrarkeppninni.
Morgunblaðið/Kristján
Jóhannes Stefánsson, nemendi í
Glerárskóla, hafnaði í þriðja
sæti í upplestrarkeppninni.
Morgunblaðið/Kristján
Rannveig Þrastardóttir, nem-
andi í Brekkuskóla, hafnaði í
öðru sæti í upplestrarkeppninni.
AUÐHUMLA, samvinnufélag mjólkurframleið-
enda í Eyjafjarðarsýslu og Þingeyjarsýslum, hef-
ur gengið frá viðskiptasamningum við bændur
sem framleiða um 90% af allri mjólk í sýslunum
tveimur, að sögn Stefáns Magnússonar, bónda í
Fagraskógi og formanns stjórnar Auðhumlu. Með
viðskiptasamningunum skuldbinda mjólkurfram-
leiðendurnir sig til að leggja framleiðslu sína inn í
Norðurmjólk til næstu fimm ára.
Það þýðir jafnframt að eignarhlutur Grana, sem
er hlutafélag í eigu Auðhumlu, verður 30% í Norð-
urmjólk á móti 70% hlut Kaupfélags Eyfirðinga en
Norðurmjólk annast mjólkurvinnslu á Húsavík og
Akureyri. Til að eignarhlutur bænda geti orðið
34% í Norðurmjólk þurfa framleiðendur 99%
mjólkurinnar á vinnsluvæði Norðurmjólkur að
skrifa undir bindandi viðskiptasamning við Auð-
humlu. Með eignarhlut í Norðurmjólk eru mjólk-
urframleiðendur að koma með beinum hætti að
rekstri mjólkursamlaganna á Húsavík og Akur-
eyri. Aðalsteinn Hallgrímsson, bóndi í Garði II í
Eyjafjarðarsveit, er einn þeirra sem ekki hefur
skrifað undir viðskiptasamninginn og hann sagði
að afstaða sín hefði ekkert breyst í þeim efnum.
Hann sagði að á bak við þessi 10% sem ekki hefði
verið samið um, gætu verið um 20 mjólkurfram-
leiðendur. „Ég veit líka að það eru margir
óánægðir þótt þeir hafi skrifað undir viðskipta-
samninginn. Aðalsteinn sagðist hins vegar leggja
mjólk sína áfram inn hjá Norðurmjólk, svo fram-
arlega sem hann fengi viðunandi verð fyrir afurð
sína.
Stefán í Fagraskógi sagði forvarsmenn Auð-
humlu hafa farið í herferð í janúar og byrjun
febrúar sl. til að leita eftir samningum við mjólk-
urframleiðendur, sem hefði skilað þessum árangri.
„Það hefur ekkert verið ýtt frekar við mönnum en
þó vitum við af fleiri framleiðendum sem munu
skrifa undir. Við erum í ágætismálum í sjálfu sér
en upp á framhaldið viljum við fá sem allra flesta
inn. Það verða alltaf einhverjir sem ekki skrifa
undir en við viljum helst fá alla til liðs við okkur.
Stefán sagði stefnt að því að framleiðendur
keyptu enn stærri hlut í Norðurmjólk og eign-
uðust meirihluta en ákvörðun um framhaldið verð-
ur tekin á aðalfundi í vor. Hann sagði menn ekki
vera í neinni tímapressu og að hægt yrði að vinna
að þessum málum fram eftir sumri. Hlutfallslega
fleiri framleiðendur í Þingeyjarsýslum en Eyja-
firði hafa skrifað undir viðskiptasamninginn.
Aðalsteinn í Garði sagðist bíða eftir aðalfundi
KEA í vor þar sem hann hefði heyrt af því að KEA
vildi selja sinn hlut í Norðurmjólk. Hann sagði að
forsvarsmenn KEA hefðu ekki trú á því að ey-
firskir bændur hefðu bolmagn til þess að kaupa
hlut félagsins. „Og það er vegna þess að þeir ætla
að fá sem mest fyrir sinn hlut í samlaginu og þar af
leiðandi höfum við ekki efni á því að kaupa. Ég er
því að bíða eftir að sjá hver kemur til með að eign-
ast hlut KEA.
Viðskiptasamningar Auðhumlu við mjólkurframleiðendur á svæði Norðurmjólkur
Þegar hefur verið samið
um 90% framleiðslunnar
RÁÐSTEFNA fyrir konur verður
haldin á vegum Starfsgreinasam-
bands Íslands á Hótel KEA í dag,
laugardaginn 24. mars. Markmiðið
með ráðstefnunni er að hvetja konur
í verkalýðshreyfingunni til að taka
vikari þátt í ábyrgð og forystu stétt-
arfélaga.
Vel hefur verið vandað til skipu-
lags, segir í fréttatilkynningu, og eru
fyrirlesarar m.a. Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri og Svanur
Kristjánsson prófessor.
Starfsgreinasamband
Íslands
Ráðstefna
fyrir konur
VALGERÐUR H. Bjarnadótt-
ir, framkvæmdastjóri Jafnrétt-
isstofu, hefur átt fund með
Kristjáni Þór Júlíussyni bæjar-
stjóra á Akureyri, til að ræða
kröfu um leiðréttingu launa-
mismunar sem hún telur sig
hafa orðið fyrir sem jafnréttis-
og fræðslufulltrúi bæjarins á
árunum 1991–1995.
Bæjaryfirvöld buðu Valgerði
til viðræðna eftir að krafa
hennar kom fram fyrir
skömmu. Hún vildi ekki tjá sig
um viðræðurnar á þessu stigi
en sagði að þær hafi farið fram í
einlægni og fullri hreinskilni.
„Ég bauð bænum upp á að
semja við mig í stað þess að ég
legði fram kæru og með þess-
um viðræðum eru bæjaryfir-
völd að mæta því.“
Valgerður sagði að þegar
hún réð sig í starf jafnréttis- og
fræðslufulltrúa hafi hún farið
fram á að fá sömu laun og at-
vinnumálafulltrúi bæjarins, á
þeirri forsendu að þetta væru
sambærileg störf. „Því var
hafnað en síðan hefur það verið
staðfest að þetta séu sambæri-
leg störf.“
Krafa Valgerðar H.
Bjarnadóttur um
leiðréttingu
launamismunar
Viðræð-
ur í stað
kæru