Morgunblaðið - 24.03.2001, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 24.03.2001, Blaðsíða 68
FRÉTTIR 68 LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Eldhús- og svefnherbergisinnréttingar. Stigahandrið - parket Fulningahurðir ÚTVEGUM FRÁ LITHÁEN á mjög hagstæðu verði og í góðum gæðum Við hönnum innréttingarnar og gerum tilboð. Getum sýnt sýnishorn. Sími 554 2502, 695 8509, fax 872 1942. Eyrfeld ehf. Á BLÓÐGJAFARDAGINN 14. mars s.l. færði Neistinn, styrktarfélag hjartveikra barna, styrktarsjóði sínum eina milljón króna að gjöf. Styrktarsjóðurinn er sjálfstæð rekstrareining sem er rekin óháð styrktarfélaginu. Upphæðin er and- virði jólakorta og jólamerkja sem söfnuðust í desember s.l. Á Íslandi greinast árlega 40-50 hjartveik börn eða um 1% allra fæddra barna hér á landi. Á myndinni eru f.v. Hallfríður Kristinsdóttir, gjaldkeri sjóðsins og Guðrún Pétursdóttur, formaður, að veita gjöfinni móttöku úr hendi Guðnýjar Sigurðardóttur, gjald- kera Neistans, og Hafdísar Ingi- mundardóttur sem er í stjórn styrktarfélagsins. Neistinn styrkir hjartveik börn ALÞJÓÐLEG sýning Kynjakatta, kattaræktarfélags Íslands, verður haldin dagana 24.–25. mars. Til sýn- is verða kettir af öllum þeim teg- undum sem ræktaðar eru hér á landi. Af þeim má nefna síams, pers- neska, abyssiníu, sómalí, oriental, bengal, heilaga birma, norska skóg- arketti og húsketti. Erlendir dómarar munu dæma kettina og valdir verða þeir bestu í ákveðnum flokkum. Gæludýraversl- anir og heildsölur verða með kynn- ingar á vörum fyrir ketti. Sýningin fer fram í Íslenska kvikmynda- verinu í Fossaleyni 19–21 í Graf- arvogi og stendur yfir frá 10–18 báða dagana. Alþjóðleg sýning Kynjakatta SVARFDÆLSKI marsinn er yfir- skrift menningarhátíðar sem efnt verður til í Dalvíkurbyggð um aðra helgi, dagana 30. mars til 1. apríl. Að hátíðinni standa nokkrir áhugamenn um svarfdælska menningu. Hátíðin hefst með „heimsmeist- arakeppni í brús“ á Rimum í Svarf- aðardal kl. 20.30 föstudaginn 30. mars. Brús er spil sem trúlega er ekki mjög vel þekkt nú til dags. Á ár- um áður var það spilað víða um land, einkum var spilamennskan þó bundin við Svarfaðardal og Grýtubakka- hrepp. Klukkan 11 laugardaginn 31. mars verður efnt til málþings um svarf- dælska menningu í Dalvíkurskóla. Frummælandi er Þórarinn Eldjárn og nefnir hann erindi sitt „… dælska, firska, vetnska og lenska“; Árni Daníel Júlíusson sagnfræðingur flyt- ur erindi sem hann kallar „Gullöldin í Svarfaðardal“; Gunnar Stefánsson útvarpsmaður ræðir um Svarfdæla sögu og fleiri sögur; og Guðrún Krist- insdóttir, minjasafnsvörður á Akur- eyri, ræðir um Kristján Eldjárn og fornminjarannsóknir í Svarfaðardal. Laugardagskvöldið 31. mars verð- ur stiginn svarfdælskur mars í félagsheimilinu Rimum í Svarfaðar- dal. Sunnudaginn 1. apríl verður efnt til gönguferðar um Dalvíkina undir leiðsögn Sveinbjörns Steingrímsson- ar og verður einkum litið á gömul hús. Lagt verður af stað frá ráðhúsi Dalvíkur og er reiknað með einnar klukkustundar gönguferð. Klukkan 14 sama dag verður söngur í Dalvík- urkirkju þar sem fram koma kórar í Dalvíkurbyggð og kór brottfluttra Svarfdælinga. Menningarhátíðin Svarfdælski marsinn Heimsmeistara- keppni í brús MÁLSTOFA í hjúkrunarfræði á vegum Rannsóknarstofnunar í hjúkrunarfræði verður haldin mánudaginn 26. mars kl. 12.15 í stofu 6 á 1. hæð í Eirbergi, Eiríks- götu 34. Málstofan er öllum opin. Þorbjörg Guðmundsdóttir hjúkrun- arfræðingur, MS, flytur fyrirlest- urinn Rannsókn á trúarlegri reynslu og trúarlegum þörfum sjúklinga sem standa frammi fyrir lífsógnandi sjúkdómum. „Því hefur verið haldið fram af fræðimönnum innan hjúkrunar að hinni trúarlegu vídd mannsins hafi ekki verið nægjanlega gaumur gef- inn þrátt fyrir að menn séu sam- mála um að hún sé einn þeirra þátta sem móta heildrænt líf hans. Hug- myndafræði heildrænnar umönnun- ar gengur út frá því að líkami, sál og andi séu samofin og að ójafn- vægi í einum þessara þátta valdi ójafnvægi í hinum tveimur. Litið er á einstaklinginn sem heild sem ekki er hægt að hlutgera með tilliti til sjúkdómsgreiningar og umönnun- ar. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna með eigindlegri að- ferðafræði trúarlega reynslu og trúarlegar þarfir einstaklinga sem höfðu greinst með lífsógnandi sjúk- dóma. Í rannsókninni tóku þátt sjö einstaklingar, 4 konur og 3 karlar, á aldrinum 29-65 ára sem greinst höfðu með krabbamein u.þ.b. einu ári áður en rannsóknin fór fram. Gagnasöfnun fór annars vegar fram með tveimur djúpviðtölum við hvern þátttakanda og hins vegar með skriflegri lýsingu þeirra á trúarlegri reynslu sinni og trúar- legri þörf við þessar aðstæður. Meginniðurstöður leiddu í ljós að allir þátttakendurnir lýstu aukinni trúarþörf á öllum stigum sjúkdóms- ferilsins; við greiningu, á meðferð- artímanum svo og eftir að meðferð lauk. Trúin gegndi þýðingarmiklu hlutverki í viðleitni þeirra í að ná einhvers konar fótfestu í sjúkdóms- ástandinu og að leita merkingar í þessari erfiðu reynslu og lífi sínu í heild. Flestir töldu að trúin hafi veitt þeim styrk, eflt von og veitt innri frið. Þátttakendurnir voru einhuga um að trúarleg málefni væru „persónuleg og viðkvæm“ og að það þyrfti að nálgast umræðu um þau með aðgát,“ segir í frétta- tilkynningu. Málstofa í hjúkrunarfræði ÞRIÐJA fræðsluerindi Hins ís- lenska náttúrufræðifélags í ár verð- ur haldið mánudaginn 26. mars kl. 20:30 í stofu 101 í Odda, húsi Há- skóla Íslands. Þá flytur prófessor Þóra Ellen Þórhallsdóttir erindi sem hún nefnir „Þjórsárver: vin í eyðimörk“. Í fyrirlestrinum verður fjallað um einkenni og sérstöðu Þjórsárvera, einkum gróður og jarðveg, og líkleg áhrif fyrirhugaðra virkjanafram- kvæmda á lífríkið. Þjórsárver eru stærsta gróðurvin miðhálendisins og líklega er tegundaauðgi blóm- plantna, mosa, sveppa, fléttna, skordýra og fugla óvíða meiri ann- ars staðar á hálendinu, segir í fréttatilkynningu. Gróður er einkar fjölskrúðugur og gróska mikil, sem að hluta stafar af því að sauðfjár- beit hefur verið minni þar en víðast hvar annars staðar. Þjórsárver eru ennfremur mesta freðmýri landsins. Síðast en ekki síst eru þau við- urkennd sem alþjóðlega mikilvægt votlendi, einkum vegna fuglalífs. Aðgangur að fræðsluerindum HÍN er ókeypis og öllum heimill. Fræðslu- erindi HÍN FERÐAFÉLAG Íslands gengst fyr- ir gönguferð sunnudaginn 25. mars á Hellisheiði. Byrjað verður á því að ganga á Skálafell sunnan Hellisheið- ar (574 m y.s.) og haldið þaðan áfram að Votabergi við Þrengslaveg þar sem rútan bíður. Reiknað er með 4– 4,5 klst. göngu og áætluð hæðaraukn- ing er um 200 m. Fararstjóri í þessari ferð er Jónas Haraldsson og þátt- tökugjald 1.600 krónur. Nú eru síð- ustu forvöð að læra að raða í bakpok- ann og stilla hann rétt, segir í fréttatilkynningu, því seinna bakpok- anámskeiðið verður haldið þriðjudag- inn 27. mars kl. 20. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á námskeiðið en þar verður farið yfir helstu atriði sem lúta að innihaldi bakpokans, hvað á að vera í honum og hvað á að skilja eftir, hvernig á að raða í hann, hvað fer efst og hvað fer neðst og síðast en ekki síst, hvernig á að stilla bakpok- ann þannig að hann sitji vel. Gönguferð og bakpokanámskeið LANDSBANKINN, í samvinnu við PricewaterhouseCoopers, býður nú Námu- og Vörðufélögum ókeypis ráðgjöf við framtalsgerð einstak- linga. Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið skattur@lais.is alla virka daga á skrifstofutíma og munu ráð- gjafar bankans svara innan sólar- hrings. Einnig verður spjallrás opin á vis- ir.is þar sem einstaklingar geta sent fyrirspurnir á Netinu varðandi fram- talsgerð og fengið svar um hæl. Spjallrásin verður opin á eftirfarandi tímum: Laugardaginn 24. mars milli klukkan 14 og 18, sunnudaginn 25. mars milli klukkan 14 og 18, mánu- daginn 26. mars milli klukkan 20 og 22, föstudaginn 30. mars milli klukk- an 20 og 22, laugardaginn 31. mars milli klukkan 14 og 18, sunnudaginn 1. apríl milli klukkan 14 og 18 og mánudaginn 2. apríl milli klukkan 20 og 22. Skattaráð- gjöf Lands- bankans NÝR Mercedes-Benz sportbíll, C-Sports Coupé, úr hinni svo- kölluðu C-línu verður frumsýndur hjá Ræsi um helgina. C-línan hefur vakið mikla at- hygli og hlaut meðal annars Stálstýrið sem bíll ársins 2001 hjá DV. Coupé er sportlegri en sá hefð- bundni en þó í svip- uðum verðflokki og kostar frá 2,9 milljónum króna. Bíllinn er þrennra dyra og hægt að fá hann í fjórum vélarstærð- um, þar af er ein CDI dísilvél. Hestöflin eru frá 129 til 197. Staðalbúnaður er ríkulegur og að auki er hægt að velja ým- iskonar valbúnað, til dæmis 6 gíra sjálfvirka gírskiptingu og rafdrifinn gler-sóltopp (pano- rama). Bíllinn verður til sýnis í húsa- kynnum Ræsis, Skúlagötu 59, á laugardag frá 12 til 17 og sunnu- dag frá 13 til 17. Léttar veitingar verða í boði. Nýr sportbíll frá Benz frumsýndur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.