Morgunblaðið - 24.03.2001, Blaðsíða 74
DAGBÓK
74 LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Kyndill og Trinket
koma í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Svanur fór í gær. Son-
ar og Katla komu til
Straumsvíkur í gær.
Fréttir
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði,
fundur í Gerðubergi á
þriðjud. kl. 17.30.
Kattholt. Flóamark-
aður í Kattholti, Stang-
arhyl 2, opinn þriðjud.
og fimmtud. kl. 14–17.
Félag frímerkjasafn-
ara. Opið hús laug-
ardaga kl. 13.30–17.
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun kl.
17–18.
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sól-
vallagötu 48. Skrif-
stofan er opin alla
miðvikud. kl. 14–17. S.
551 4349. Fataúthlutun
og fatamóttaka er opin
annan og fjórða mið-
vikud. í mánuði kl. 14–
17, s. 552 5277.
Styrkur, samtök
krabbameinssjúklinga
og aðstandenda þeirra.
Svarað er í síma
Krabbameinsráðgjaf-
arinnar, 800 4040, kl.
15–17.
Mannamót
Félagsstarfið Norð-
urbrún 1 og Furugerði
1. Fimmtudaginn 29.
mars verður farið í
Fljótshlíðina. Stutt
stopp í Hveragerði,
súpa, brauð og kaffi í
Hlíðarenda, Hvolsvelli.
Njálusafnið skoðað og
ekið að Tumastöðum.
Leiðsögumaður: Anna
Þrúður Þorkelsdóttir.
Lagt af stað frá Norð-
urbrún kl. 10.15, frá
Furugerði kl. 10.30.
Skráning og nánari
upplýsingar á Norð-
urbrún í síma 568-6960
og í Furugerði í síma
553-6040.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Kvöldvaka í boði
Lionsklúbbs Hafn-
arfjarðar verður næst-
komandi fimmtudag,
29. mars, kl. 20.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
er opin virka daga kl.
10–13. Matur í hádeg-
inu. Sunnudagur:
Félagsvist spiluð kl.
13.30. Dansleikur um
kvöldið kl. 20, Caprí
tríó leikur fyrir dansi.
Mánudagur: Brids spil-
að kl. 13. Leiðbeining í
gömlu dönsunum kl.
19–21. Dagsferð verður
farin í Grindavík-Bláa
lónið-Reykjanes 2. apr-
íl. Brottför kl. 10 frá
Ásgarði, Glæsibæ.
Skráning hafin á skrif-
stofu FEB. Þriggja
daga ferð verður farin
á Snæfellsnes 27.–29.
apríl. Gististaður: Snjó-
fell á Arnarstapa.
Hringferð um Snæ-
fellsjökul. Komið í
Ólafsvík, á Hellissand
og Djúpalónssand.
Brottför frá Ásgarði,
Glæsibæ, 27. apríl kl.
9. Skráning hafin.Silf-
urlínan opin á mánu-
dögum og mið-
vikudögum kl. 10–12.
Ath. skrifstofa FEB er
opin kl. 10–16. Upplýs-
ingar í síma 588 2111.
Félagsstarf aldraðra í
Garðabæ. Spilað í
Kirkjulundi á þriðju-
dögum kl. 13.30. Vor-
fagnaður í Kirkjuhvoli í
boði Oddfellow 29.
mars kl. 19.30. Fótaað-
gerðir mánudaga og
fimmtudaga. Ath. nýtt
símanúmer, 565 6775.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðjud. og fimmtud.
kl. 13–16.30, spil og
föndur. Pútttímar í
íþróttahúsinu á Varmá
kl. 10–11 á laug-
ardögum.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund og leikfimiæf-
ingar í Breiðholtslaug
falla niður. Boccia á
þriðjudögum kl. 13 og
á föstudögum kl. 9.30,
umsjón Óla Stína.
Mánudaginn 26. mars
kemur Hrafnistuskór-
inn í heimsókn. Mið-
vikudaginn 28. mars
verður farið í heimsókn
til Þorlákshafnar og
samvera með eldri
borgurum þar. Skrán-
ing hafin. Allar veit-
ingar í kaffihúsi Gerðu-
bergs. Allar
upplýsingar á staðnum
og í síma 575 7720.
Vesturgata 7. Fimmtu-
daginn 29. mars verður
heimsókn í Listasafn
Íslands á sýninguna
Náttúrusýnir. Upplýs-
ingar og skráning í af-
greiðslu í síma 562-
7077.
Félag fráskilinna og
einstæðra. Fundur
verður í kvöld kl. 21 í
Konnakoti, Hverfisgötu
105. Nýir félagar vel-
komnir. Munið göng-
una mánudag og
fimmtudag.
Kirkjustarf aldraðra,
Digraneskirkju. Opið
hús þriðjudag frá kl.
11. Leikfimi, matur,
helgistund og fræðsla.
Verið velkomin.
Félagsstarf SÁÁ.
Félagsvist í Hreyf-
ilshúsinu (3. hæð) laug-
ardaga kl. 20. Allir vel-
komnir.
Parkinsonsamtökin á
Íslandi. Aðalfundurinn
verður haldinn í safn-
aðarheimili Áskirkju
laugardaginn 24. mars
kl. 14. Venjuleg aðal-
fundarstörf, kaffiveit-
ingar og skemmtiatriði.
Allir velkomnir.
Átthagafélag Stranda-
manna heldur vorball
sitt laugardaginn 24.
mars í Breiðfirð-
ingabúð. Húsið opnað
kl. 22, hljómsveitin
Breiðbandið ásamt
Mattý Jóhanns leikur
fyrir dansi.
ITC-fundir. Fundir I.
og II. ráðs ITC verða
haldnir í Kiwanishús-
inu við Engjateig í dag.
Skráning hefst kl. 12.
Sameiginlegur fundur
hefst kl. 17 og kl. 19 er
hátíðarkvöldverður.
Allir eru velkomnir á
fundi hjá ITC.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar.
Létt leikfimi, bakleik-
fimi karla, vefjagigt-
arhópar, jóga, vatns-
þjálfun. Einn ókeypis
prufutími fyrir þá sem
vilja. Nánari uppl. á
skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Minningarkort
Minningarkort Kven-
félags Háteigssóknar.
Kvenfélagskonur selja
minningarkortin. Þeir
sem hafa áhuga á að
kaupa þau vinsam-
legast hringi í síma
552-4994 eða síma 553-
6697. Minningarkortin
fást líka í Kirkjuhús-
inu, Laugavegi 31.
Minningarkort Kven-
félags Langholts-
sóknar fást í Lang-
holtskirkju, sími 520
1300, og í blómabúðinni
Holtablómið, Lang-
holtsvegi 126. Gíró-
þjónusta er í kirkjunni.
Minningarkort Kven-
félags Neskirkju fást
hjá kirkjuverði Nes-
kirkju, í Úlfarsfelli,
Hagamel 67 og í
Kirkjuhúsinu v/
Kirkjutorg.
Minningarkort Kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði fást í
blómabúðinni Burkna,
hjá Sjöfn í síma 555
0104 og hjá Ernu í
síma 565 0152 (gíró-
þjónusta).
Slysavarnarfélagið
Landsbjörg, Stang-
arhyl 1, 110 Reykjavík.
Sími 570-5900. Fax:
570-5901. Netfang:
slysavarnafelag-
id@landsbjorg.is
Minningarkort Rauða
kross Íslands eru seld í
sölubúðum Kvenna-
deildar RRKÍ á sjúkra-
húsum og á skrifstofu
Reykjavíkurdeildar,
Fákafeni 11, sími 568-
8188.
Minningarkort Hvíta-
bandsins fást í Kirkju-
húsinu, Laugavegi 31,
sími 562-1581, og hjá
Kristínu Gísladóttur,
sími 551-7193 og Elínu
Snorradóttur, sími 561-
5622.
Minningarkort Sjúkra-
liðafélags Íslands eru
send frá skrifstofunni,
Grensásvegi 16,
Reykjavík. Opið virka
daga kl. 9–17. Sími
553-9494.
Minningarkort Vina-
félags Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525-1000
gegn heimsendingu
gíróseðils.
Í dag er laugardagur 24. mars, 83.
dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Honum bera allir spámennirnir
vitni, að sérhver, sem á hann
trúir, fái fyrir hans nafn fyrir-
gefningu syndanna.
(Post. 10, 43.)
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
ÞAÐ hlýtur að vera fagn-
aðarefni hjá flestum rétt
hugsandi þjóðfélagsþegn-
um, að nú skuli vera lagt
fram á alþingi frumvarp til
þyngri refsingar við öllu
klámi og allri kynlífsþjón-
ustu yfir höfuð. Þetta frum-
varp ætti félagsmálaráð-
herra, herra Páll Pétursson
að taka fegins hendi. Það
gæti hjálpað ráðherra að
hafa hemil á súludansstöð-
unum og sporna við inn-
flutningi á nektardans-
meyjum. Ef Reykjavík á að
standa undir nafni; að vera
menningarborg, þá verður
hún að hrista af sér þennan
klámiðnað, sem er að tröll-
ríða höfuðborginni. En það
er eins og þegar kemur
fram einhver þarfleg tillaga
á alþingi, þá kippi einhver í
spottann og málið er svæft í
einhverri nefnd. Því örugg-
asta leiðin til að losna við
eitthvert mál er að setja
það í nefnd. Það er svo mik-
il hætta á að það dagi þar
uppi. Það hljóta að vera
menn úr öllum stjórnmála-
flokkunum, sem styðja
þetta frumvarp, ef ein-
hverjir peningamenn úti í
bæ kippa ekki í spottann,
eins og svo oft þegar spjót-
in beinast að „bissness“-
mönnum, sem ráða stund-
um einum of í þessu þjóð-
félagi í krafti mammons.
Kjósandi.
Fátækt á Íslandi
í dag
UMRÆÐAN í þjóðfélag-
inu um fátækt á Íslandi er
nú komin aftur á stað. Þar
hafa verið nefndir til hópar
eins og ellilífeyrisþegar, ör-
yrkjar, einstæðar mæður
og fleiri. Á næstunni mun
kirkjan og Rauði krossinn
verða með málþing um
þessi mál. Þingmenn og
ráðherrar mættu gjarnan
hafa þessi mál í huga og at-
huga hvað þeir geta gert,
hafandi það í huga að Ís-
land er eitt ríkasta land í
heimi og hér á að ríkja hið
margumtalaða góðæri, sem
kemur eflaust til fárra út-
valdra í þessu þjóðfélagi.
Þegar þetta málþing hefst,
þá ættu þingmenn og ráð-
herrar að reyna að sjá sér
fært að mæta og leggja
eitthvað jákvætt til mál-
anna. Fátækt á Íslandi
þyrfti ekki að vera til, ef
þjóðarkökunni væri jafnt
skipt. Þetta er svo stór
blettur á þessu þjóðfélagi
og öllum til skammar.
Stjórnmálamenn verða að
afmá þennan smánarblett
af einni ríkustu þjóð í
heimi.
Öryrki.
Samstarf Laugarnes-
kirkju og ÖBÍ
ÞAÐ er einstaklega gleði-
legt, þegar kirkjan kemur
til fólksins, en það á líka að
vera þannig að fólkið komi
til kirkjunnar. Því eins og
stendur í kirkjuvísi frá
Laugarneskirkju, þá eigum
við kirkjuna saman. Kirkj-
an kemur þér við. Hjónin
Þorvaldur Halldórsson og
Margrét Scheving eiga
miklar þakkir skildar fyrir
að stytta okkur stundir hjá
Ö.B.Í í Hátúni 10 með gosp-
elsamveru síðasta miðviku-
dag hvers mánaðar. Þá ber
einnig að þakka fyrir
þriðjudagskvöldin með
Þorvaldi og séra Bjarna
Karlssyni í Laugarnes-
kirkju. Ég vil hvetja sem
flesta til að mæta í Laug-
arneskirkju á þriðjudags-
kvöldum. Allt þetta heið-
ursfólk á þakklæti skilið
fyrir sinn þátt til þess að
styrkja trú fólks og létta
því lund.
Með bestu kveðju
Gunnar G. Bjartmarsson
Hátúni 10.
Ómaklega vegið
að Staðarskála
MÉR fannst ómaklega veg-
ið að Staðarskála í Velvak-
anda í Morgunblaðinu fyrir
stuttu síðan. Mér finnst
þessi gagnrýni ekki sann-
gjörn því ég hef alltaf feng-
ið mjög góða þjónustu þeg-
ar ég hef komið þarna við.
Síðast liðið sumar kom ég
t.d. kl. 18.30 og þá var löng
biðröð í afgreiðslu. Ég ætl-
aði að snúa við en ákvað
samt að fara í biðröðina, og
gekk afgreiðslan fljótt og
vel fyrir sig og ég fékk góða
þjónustu. Auðvitað getur
verið mikið að gera þarna á
álagstímum en þjónustan
er frábær.
Hörður Sævaldsson.
Tapað/fundið
Týnt hjól
GAMALT hvítt kven-
mannshjól með svartri
körfu hvarf fyrir nokkru
þar sem það stóð fyrir utan
blokk í Stigahlíð í Reykja-
vík. Hjólsins er sárt sakn-
að. Skilvís finnandi er vin-
samlegast beðinn að hafa
samband við Maríu í síma
568-4193. Fundarlaunum
heitið.
Brúnt leðurveski
tapaðist
BRÚNT leðurveski með
langri ól tapaðist á leiðinni
frá Stjörnubíói að Ótrúlegu
búðinni á Laugavegi, mið-
vikudaginn 21. mars sl. um
kl. 19.30. Í veskinu var dag-
bók merkt Blóðbankanum
og penni. Skilvís finnandi
er vinsamlegast beðinn að
hafa samband í síma 561-
5135. Fundarlaun.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Burt með
súlustaðina
og klámbúllur
Víkverji skrifar...
ÞÓTT skiptar skoðanir séu umframtíð Reykjavíkurflugvallar,
líkt og berlega kom í ljós í atkvæða-
greiðslunni um síðustu helgi, hljóta
flestir íbúar að vera sammála um að
sú mikla umræða um skipulagsmál
borgarinnar sem átt hefur sér stað
undanfarið sé af hinu góða.
Reykjavík hefur stækkað ört á
undanförnum árum og allt bendir til
að sú þróun eigi eftir að halda áfram
af miklum krafti í framtíðinni. Því
má gera ráð fyrir að eftir nokkra
áratugi verði höfuðborgin orðin
mun fjölmennari og stærri en hún
er í dag, með öllum þeim möguleik-
um og vandamálum sem því fylgir.
Það er því að mati Víkverja löngu
tímabært að jafnt borgaryfirvöld
sem íbúar íhugi vandlega hvernig
við viljum að borgin okkar þróist,
ekki einungis næstu árin heldur
áratugina. Með því að horfa langt
fram í tímann og reyna að sjá fyrir
vandamálin, sem óhjákvæmilega
eiga eftir að koma upp í skipulaginu,
verður vonandi hægt að koma í veg
fyrir mörg af þeim mistökum, sem
gerð hafa verið í borgum í ná-
grannalöndunum.
Það er að mörgu að huga í borg-
um, sem vaxa hratt á skömmum
tíma. Ef vöxturinn er stjórnlaus og
óskipulagður er hætt við því að
borgir verði einkennalausar breiður
af byggingum án nokkurrar annarr-
ar innbyrðis tengingar en malbik-
aðra gatna. Slíku „skipulagi“ hættir
síðan til að smitast yfir í mannlífið í
borgunum.
x x x
RAUNAR er Víkverji þeirrarskoðunar að ekki sé nóg að
horfa til Reykjavíkur eingöngu í
þessu sambandi. Það hlýtur ekki
síður að vera hagsmunamál íbúa í
nágrannasveitarfélögum að horft sé
á svæðið sem eina heild, þegar
ákvarðanir um framtíðarþróun
byggðar verða teknar á næstu ár-
um.
Sé rétt á málum haldið væri hægt
að gera stórkostlega hluti á höfuð-
borgarsvæðinu. Það væri hins vegar
einnig hægt að gera þetta svæði að
óspennandi byggð, þar sem mannlíf
á undir högg að sækja.
Umræða um mál af þessu tagi er
áberandi, jafnt í Evrópu sem
Bandaríkjunum. Þar er hins vegar
oftar en ekki verið að ræða hvernig
hægt sé að bæta fyrir mistök fyrri
ára. Ekki síst er það áberandi í
Bandaríkjunum þar sem miðbær
margra borga hefur verið látinn
drabbast niður og íbúðarbyggðin
færst til fjarlægra úthverfa. Varla
er það þróun, sem við viljum að eigi
sér stað hér á landi.
x x x
ÞRÁTT fyrir að ákveðnar fylk-ingar hafi myndast í tengslum
við flugvallarmálið vonar Víkverji
að menn slíðri nú sverðin og taki
höndum saman um skipulagsmálin
þannig að blómleg byggð geti haldið
áfram að þróast á höfuðborgar-
svæðinu. Það hlýtur jú, þegar upp
er staðið, að vera hagsmunamál
allra borgarbúa. Nú ætti að vera lag
að hefja slíka umræðu, því að líklega
hafa skipulagsmál aldrei verið jafn-
mikið í deiglunni og einmitt nú. Það
gæti því hugsanlega orðið jákvæð-
asta afleiðing atkvæðagreiðslunnar
að fólk sem til þessa hefur aldrei
velt vöngum yfir skipulagsmálum er
nú farið að láta þau sig varða.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 hefur hönd á, 8 skaða, 9
tuskan, 10 kvíði, 11
girnd, 13 ýlfrar, 15 hrist-
ist, 18 sjá eftir, 21 blóm,
22 fljótið, 23 tóbaki, 24
farangur.
LÓÐRÉTT:
2 rándýrs, 3 streymi, 4
mauks, 5 líkamshlutar, 6
sæti, 7 röskur, 12 ginn-
ing, 14 sefa, 15 vera við-
eigandi, 16 örlög, 17
höfðu upp á, 18 erfiði, 19
kæns, 20 fædd.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 sópum, 4 eikur, 7 ljúft, 8 rytju, 9 trú, 11 maur,
13 hrat, 14 ískur, 15 hrak, 17 álag, 20 frú, 22 refur, 23
nagar, 24 kerið, 25 afræð.
Lóðrétt: 1 selum, 2 prúðu, 3 mett, 4 edrú, 5 kutar, 6
raust, 10 rekur, 12 rík, 13 hrá, 15 horsk, 16 arfar, 18 lýg-
ur, 19 gerið, 20 frið, 21 únsa.