Morgunblaðið - 24.03.2001, Blaðsíða 33
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 33
Glæsilegar undirfatalínur
frá Lepeldsdf
með 25% afslætti
Litir:
Hvítt — svart —
kremað —
dökkblátt —
rautt
Skálastærðir:
A-B-C-D-DD-E-F
KRINGLUKAST
undirfataverslun,
1. hæð Kringlunni,
sími 553 7355
Spennandi
leynitilboð!
Reiki-, heilunar- og sjálfstyrkingarnámskeið
Skráning á námskeið í síma 553 3934 kl. 10–12 virka daga.
Guðrún Óladóttir, reikimeistari.
Hvað fá þátttakendu
r út
úr slíkum námskeiðu
m?
Læra að nýta sér orku til að lækna sig
(meðfæddur eiginleiki hjá öllum)
og/eða koma sér í orkulegt og tilfinningalegt jafnvægi.
Læra að beita hugarorkunni á jákvæðan og uppbyggilegan
hátt í staðinn fyrir að beita henni til niðurrifs.
Læra að hjálpa öðrum til þess sama.
Lausir einkatímar í heilun og ráðgjöf
Námskeið í Reykjavík
30. mars - 1. apríl I stig • Helgarnámskeið.
2. - 4. apríl II stig • Kvöldnámskeið.
5. - 7. apríl II stig • Helgar og kvöldnámskeið.
Vegna mistaka birtist ekki rétt
verð á tveimur vörutegundum í
helgartilboðum Hagkaups sl.
fimmtudag. Um er að ræða
Pascual fitulitla jógúrt, 500 g,
sem á að kosta 169 krónur en
ekki 99 krónur og Barilla-spag-
ettí sem á að kosta 99 krónur
kílóið en ekki 850 krónur kílóið.
LEIÐRÉTT
FÓLK notar í auknum mæli ferskt
spínat í matargerð enda margir
kaupmenn hér á landi farnir að
selja það árið um kring.
„Spínat er ekki ræktað hér á
landi en við höfum verið að flytja
það inn frá Bandaríkjunum á þess-
um árstíma en á sumrin frá Ítalíu,“
segir Kolbeinn Ágústsson hjá Sölu-
félagi garðyrkjumanna þegar hann
er spurður hvort spínat sé ræktað
hér á landi. Hann segir að megnið af
spínatinu selji þeir til veitingastaða
en einnig í nokkrar verslanir á höf-
uðborgarsvæðinu og úti á landi.
Árni Ingvarsson kaupmaður í
Nýkaupi segir að mikil aukning sé á
neyslu spínats hér á landi og hann
segist leggja upp úr því að hafa á
boðstólum bæði ferskt og frosið spí-
nat. Það sama segir Jón Þorsteinn
Jónsson markaðsstjóri hjá Nóatúni.
Ekki er ráðlagt að gefa korna-
börnum spínat því það inniheldur
töluvert af nítrati en það er annars
hollt fyrir börn og fullorðna.
Að sögn Laufeyjar Steingríms-
dóttur forstöðumanns Manneldis-
ráðs er spínat járnríkt, það er tölu-
vert af kalki í því og t.d. c-vítamíni,
a-vítamíni og fólasíni.
Spínat þarf að hreinsa vel úr
volgu vatni og fjarlægja stilkana á
stórum blöðum. Ef spínatið er gróft
og dökkt þá er gott að láta suðuna
aðeins koma upp á því áður en það
er notað í matargerð. Síðan er það
skolað í ísköldu vatni. Ef spínat-
blöðin eru lítil og fínleg er hægt að
steikja spínatið upp úr smjöri og
krydda það með salti og pipar og
jafnvel múskati. Einhverjir merja
hvítlauksrif í smjörið og aðrir strá
örlitlum sykri á pönnuna.
Á Ítalíu þar sem mikið er borðað
af spínati eru ung spínatblöð gjarn-
an notuð niðurskorin í salat. Þá
borða margir slík spínatblöð þegar
aðeins er búið að sæta þau með
makkarónumylsnu. Spínat er gott í
eggjakökur, lasagna, bökur og hrís-
grjónarétti svo dæmi séu tekin.
Hér kemur uppskrift að eggja-
köku með spínati og ricotta-osti.
Eggjakaka
með spínati
og ricotta-osti
4 eggjakökur
300 g ferskt spínat
smjör
6-8 egg
6-8 msk vatn
salt, múskat og nýmalaður
svartur pipar
olía til að steikja úr
6 msk ricotta ostur.
Hreinsið spínatið og látið renna
af því í sigti. Fjarlægið stilka og hit-
ið síðan spínatið í örlitlu smjöri á
pönnu. Kryddið með salti, pipar og
múskati eftir smekk. Haldið síðan
spínatinu heitu meðan eggjahræran
er útbúin
Hrærið saman egg og vatn þang-
að til eggjarauður og hvítur hafa al-
veg samlagast vatninu.
Kryddið með salti og pipar.
Ein og ein eggjakaka er búin til í
einu. Setjið á pönnu einn fjórða af
eggjahrærunni og látið stífna á
pönnu. Setjið spínat á miðju eggja-
kökunnar og síðan ricotta-ost.
Þegar það er komið er búinn til
böggull með því að fella allar hlið-
arnar að fyllingunni eins og verið sé
að pakka spínatinu og ostinum inn.
Eggjakakan er síðan borin fram
með fersku salati eftir smekk og ný-
bökuðu brauði.
Aukning í sölu á fersku spínati
Spínat inniheldur
járn og kalk
Morgunblaðið/Jim Smart
BAKARÍIÐ Kornið í Hjalla-
brekku 2 í Kópavogi er með sér-
staka kökudaga alla fimmtu-
daga og föstudaga og
brauðdaga á mánudögum,
þriðjudögum og miðvikudögum.
Þessa tilboðsdaga er hefðbundð
verð á öllum brauðum og kökum
bakarísins lækkað um 30% að
meðaltali.
„Þetta er ekki lækkun í ein-
hvern stuttan tíma heldur höf-
um við verið með þessa tilboðs-
daga í nokkur ár og lækkunin
er fyrirhuguð til frambúðar,“
segir Dagmar Jóhannesdóttir,
sölumaður bakarísins Kornsins.
„Þetta hefur gefist mjög vel
og þess vegna höldum við þessu
áfram. Ég veit ekki til
þess að annað bakarí
á landinu sé með
svona tilboðsdaga.
Fyrst voru það
nánast eingöngu
Kópavogsbúar
sem komu til
okkar en nú er
fólk farið að
koma af öllu höf-
uðborgarsvæðinu
sem frétt hefur af til-
boðsdögunum hjá vinum og
vandamönnum. Þeir sem koma
lengra frá birgja sig oftast upp
og setja vörurnar gjarnan í
frysti. Þá eru aðrir sem koma
tvisvar sinnum í viku til okkar,“
segir Dagmar.
Alls eru um tuttugu brauðteg-
undir seldar í bakaríinu og í
kringum tuttugu tegundir af
kökum. Öll brauð eru á sama
verði á brauðdög-
um eða á 140
krónur. Hefð-
bundin brauð
eins og þriggja
korna brauð og
heilhveitibrauð
lækka minnst en hefð-
bundið verð er 199 krónur.
„Stór samlokubrauð, gróf og fín,
lækka mest en þau kosta venju-
lega 230 krónur. Af öðrum teg-
undum sem við erum með má
nefna ítölsk brauð og brauð með
sólþurrkuðum tómötum.“ Á
kökudögum eru tvö verð á kök-
um; 230 krónur og 280 krónur.
„Djöflatertan lækkar einna mest
en hún er venjulega á 460 krón-
ur en á tilboðsdögum kostar hún
280 krónur, formkaka eins og
jólakaka fer úr 310 í 230 krónur
og hjónabandssælan fer úr 365 í
280 krónur.“
Brauð- og kökudagar allan ársins hring hjá Korninu
Þrisvar í viku kosta allar
brauðtegundir 140 krónur
Morgunblaðið/Jim Smart
FYRIRTÆKIÐ
Glói ehf. hefur
hafið innflutning
á neyðarboð-
anum „Alert-
Mate“. Í frétta-
tilkynningu segir
að tækið sé lítið
og handhægt og
hægt sé m.a. að
festa það í föt og stinga í vasa.
Tækinu fylgja ýmisskonar festing-
ar þannig að einnig er hægt að
festa það við glugga og setja í bíl.
Einungis kunnugir eiga að geta
slökkt á tækinu. Neyðarboðinn
kostar 2.800 krónur og fæst hjá
Glóa ehf. að Dalbrekku 22 í Kópa-
vogi.
NÝTT
Neyðarboði