Morgunblaðið - 24.03.2001, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 9
HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað ís-
lenska ríkið og tvo kaupendur rík-
isjarðar í Djúpavogshreppi af kröfu
leigjenda sömu jarðar um að
ákvörðun fjármála- og landbúnaðar-
ráðherra um að selja jörðina yrði
dæmd ógild. Var dómur Héraðs-
dóms Austurlands þar með staðfest-
ur.
Leigjendur jarðarinnar, áfrýjend-
ur í Hæstaréttarmálinu, héldu því
fram að lagaskilyrðum hefði ekki
verið fullnægt til að salan mætti
fara fram, enda hefði ekki verið afl-
að meðmæla jarðanefnar, jörðin
ekki verið auglýst til sölu og ómál-
efnaleg sjónarmið hefðu ráðið því að
jörðin var seld.
Hæstiréttur taldi hins vegar að
heimilt hefði verið að selja jörðina
án þess að leitað væri heimildar
jarðanefndar, enda hafði verið aflað
sérstakrar lagaheimildar fyrir söl-
unni í fjárlögum. Þá taldi dómurinn
ekki að það varðaði ógildi sölunnar
að jörðin hefði ekki verið auglýst til
sölu. Þá taldi dómurinn að áfrýj-
endur hefðu ekki sýnt fram á að
ómálefnaleg sjónarmið hefðu ráðið
sölunni.
Ríkinu
heimilt að
selja jörð án
meðmæla
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá ríkis-
sáttasemjara:
„Í frétt Morgunblaðsins 23. mars
um atkvæðagreiðslu á vegum
Félags háskólakennara um boðun
verkfalls er haft eftir formanni þess
að félagið hafi vísað kjaradeilu sinni
við ríkið til embættis ríkissáttasemj-
ara fyrir tæpum mánuði. Hér er
ekki farið með rétt mál. Félag há-
skólakennara vísaði deilu sinni við
ríkið til embættisins með bréfi dags.
15. mars eða fyrir viku. Þá segir að
deiluaðilar muni funda hjá ríkis-
sáttasemjara í næstu viku. Hið rétta
er að fyrsti sáttafundur á vegum
embættisins er óviðkomandi fundi
forráðamanna félagsins með fjár-
málaráðherra eins og ætla mætti af
ummælum sem höfð eru eftir for-
manninum í frétt Morgunblaðsins.
Næsti sáttafundur verður næstkom-
andi þriðjudag.“
Mánuður frá
viðræðuslitum
Vegna athugasemdar ríkissátta-
semjara vill Róbert Haraldsson, for-
maður Félags háskólakennara, taka
fram að hann hafi ekki átt við í um-
ræddri frétt að mánuður væri frá
því deilu félagsins við samninga-
nefnd ríkisins var vísað til embættis
ríkissáttasemjara, heldur sé nú rétt-
ur mánuður frá því slit urðu á við-
ræðunum.
Að sögn Róberts hittu hann og
varaformaður félagsins fjármálaráð-
herra að máli vegna deilunnar í vik-
unni og á fimmtudag fór síðan fram
fyrsti eiginlegi fundur deiluaðila á
vegum ríkissáttasemjara. Annar
fundur hafi svo verið boðaður á veg-
um embættisins eftir helgi.
Deilunni
vísað til sátta-
semjara
15. mars
Háskólakennarar
og ríkið
♦ ♦ ♦
! " ! !
Glæsilegt úrval af tískufatnaði
fyrir fermingar
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Brúðargjafir Söfnunarstell
Gjafakort Áletranir á glös
Bæja r l ind 1 -3 , s ím i 544 40 44
Dúndur útsala á ekta pelsum
Allt að 50% afsláttur á meðan birgðir endast
Handunnin húsgögn allt að 50% afsláttur.
Mikið úrval af fermingargjöfum, gjafavörum,
sérkennilegum ljósum, fatnaði o.fl
Opið virka daga frá kl. 11-18
og laugard. frá kl. 11-16.
Sigurstjarnan,
Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin),
sími 588 4545.
og apótek um land allt. http://ymus.vefurinn.is
Mæður með börn á brjósti
Arnheiður
hjúkrunarfræðingur og
brjóstaráðgjafaleið-
beinandi Mælir með
medela brjóstagjafa-
hjálpartækjum.
Medela brjóstadælur,
frystipokar,
hjálparbrjóst,
mexíkanahattar,
hlífar fyrir sárar
geirvörtur o.fl.
- fyrir heilsu
Þumalína
Opið virka daga 10-18, laugardaga 10-16.
Hlíðasmára 17, Kópavogi, sími 554 7300,
(við hliðina á Sparisjóði Kópavogs).
!"#
Antikhúsgögn
Gili, Kjalarnesi, símar 566 8963 og 892 3041.
Opið
Lau.-sun. frá kl. 15-18 og þri.-fim. frá kl. 20:30-22:30,
eða eftir nánara samkomulagi, Ólafur.
Opið hús
- í dag kl. 13:00 - 16:00
Kynning á d&e MS. Opið hús hjá dagvist og
endurhæfingarmiðstöð MS-sjúklinga, Sléttuvegi
5, 24. mars. kl. 13:00 - 16:00. Kynning á
starfseminni. Auk þess verða handgerðir munir
til sölu.
MS-félag Íslands