Morgunblaðið - 24.03.2001, Page 26
VIÐSKIPTI
26 LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ársreikningur félagsins fyrir ári› 2000, ásamt tillögum
fleim, sem fyrir fundinum liggja, ver›a hluthöfum til
s‡nis á sama sta› frá 27. apíl n.k
Reykjavík, 23. mars 2001
Stjórn Eignarhaldsfélagsins Alfl‡›ubankinn hf.
Dagskrá:
1. Venjuleg a›alfundarstörf í samræmi vi› ákvæ›i greinar
4.06 í samflykktum félagsins.
2. Hækkun hlutafjár í EFA um 69.955.574 a› nafnver›i og
hluthafar falli frá forkaupsrétti í samræmi vi› 34. gr. laga
2/1995 um hlutafélög.
3. Tillaga stjórnar um heimild til a› auka hlutafé um 300 m.kr.
a› nafnver›i me› sölu n‡rra hluta me› forkaupsrétti.
4. Tillaga stjórnar um heimild til a› auka hlutafé um 150 m.kr.
a› nafnver›i og hluthafar falli frá forkaupsrétti í samræmi
vi› 34. gr. laga 2/1995 um hlutafélög.
5. Tillaga stjórnar um breytingar á greinum 1.04, 5.03, 8.01
og 11.01 vegna starfsleyfis sem fjárfestingarbanki.
6. Tillaga um heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutabréfum í
félaginu.
7. Önnur mál, löglega upp borin.
A›göngumi›ar a› fundinum ver›a afhentir hluthöfum
e›a umbo›smönnum fleirra á skrifstofu félagsins a›
Sí›umúla 28, 2. hæ›, Reykjavík dagana 2. og 3. apríl n.k.
milli kl. 10-15 og á fundarsta›.
A›alfundur
A›alfundur Eignarhaldsfélagsins Alfl‡›ubankinn hf.
ver›ur haldinn í †mi, sal Karlakórs Reykjavíkur vi›
Skógarhlí› 20, mi›vikudaginn 4. apríl 2001 og hefst
kl. 16:00.
HEILDARTAP Íslenska járn-
blendifélagsins hf. á árinu 2000 nam
615 milljónum króna samanborið við
247 milljóna tap árið áður.
Rekstrartap fyrir fjármunaliði var
247 milljónir í fyrra en 264 milljónir
króna árið áður. Rekstrartekjur
félagsins árið 2000 námu 4.275 millj-
ónum króna samanborið við 2.882
milljónir 1999. Hækkun rekstrar-
tekna á milli ára nam því 1.392 millj-
ónum, eða 48,3%. Gengistap félags-
ins á liðnu ári nam 462 milljónum
króna.
Heildareignir félagsins í árslok
voru 9.157 milljónir. Heildareignir
hækkuðu um 1.456 milljónir króna á
milli ára. Samkvæmt tilkynningu
skýrast breytingar á efnahag á árinu
2000 aðallega af hlutafjáraukningu,
reiknaðri skattinneign og tapi
félagsins. Hlutafé félagsins var auk-
ið um 350 milljónir króna að nafn-
verði í maí 2000 með lokuðu hluta-
fjárútboði á genginu 1,5.
Í tilkynningunni segir að á árinu
2000 hafi félagið haldið áfram
áherslum sínum á öryggismál á
vinnusvæðum og að það hafi leitt til
um 62% fækkunar á vinnuslysum
milli ára.
47% framleiðsluaukning
Árið 2000 var fyrsta ár Íslenska
járnblendifélagsins með þrjá ofna í
fullum rekstri. Samkvæmt tilkynn-
ingunni nam aukning í framleiðslu,
samanborið við árið 1999, samtals
35.279 tonnum, eða 47%. Þá segir að
til að mæta sílækkandi verði á
stöðluðu 75% kísiljárni hafi félagið
aukið áherslu sína á verðmætari
framleiðslu á árinu. Hlutfall fram-
leiðslu á verðmætari afurðum hafi
verið 23% af heildarframleiðslu á
árinu 2000.
Meðal ráðstafana til lækkunar á
rekstrarkostnaði Íslenska járn-
blendifélagsins var fækkun starfs-
manna um 10% á 4. fjórðungi ársins.
Fram kemur í tilkynningunni að
félagið hafi átt við mjög erfiðan
rekstur að stríða fyrri hluta ársins.
Hluta þeirra tæknivandamála, sem í
ljós hafi komið við gangsetningu
þriðja ofnsins, hafi ekki tekist að
leysa fyrr en á fyrri hluta ársins
2000. Erfiðleikar í skautrekstri hafi,
auk vandamála í háspennukerfum
nýja ofnsins, leitt til lækkaðs álags
og skerts rekstrartíma hans. Nýi
ofninn sé nú rekinn á eðlilegu álagi
og sé framleiðslugeta verksmiðjunn-
ar um 115 þúsund tonn af 75% kís-
iljárni á ári.
Í tilkynningunni segir að stálfram-
leiðendur um allan heim séu helstu
kaupendur kísiljárns. Á liðnu ári hafi
stálframleiðsla verið í hámarki sam-
fara því sem verð á kísiljárni hafi
verið í sögulegu lágmarki. Ástæðan
sé fyrst og fremst aukið framboð á
kísiljárni frá fyrrverandi Sovétlýð-
veldum og Kína. Niðurfelling und-
irboðstolla í Bandaríkjunum haustið
1999 hafi leitt til offramboðs á kís-
iljárni á þeim markaði.
Gert sé ráð fyrir því að verð á
stöðluðu kísiljárni verði lágt á þessu
ári. Félagið mun auka frekar fram-
leiðslu sína á verðmætari afurðum.
Það muni draga úr áhættu félagsins
hvað varðar markað á stöðluðu kís-
iljárni.
Ekki ánægður með afkomuna
Frank Björklund, framkvæmda-
stjóri Íslenska járnblendifélagsins
hf., segist ekki ánægður með afkomu
félagsins á síðasta ári. Hann segir að
þó útlit sé fyrir að verð á stöðluðu
kísiljárni verði áfram lágt séu horfur
félagsins þó betri en áður. Vitað sé
að verðið muni hækka og því sé ekk-
ert annað hægt að gera en halda út
þá lægð sem nú sé. Þá sé búið að
leysa flest þau vandamál sem komið
hafi upp í framleiðslunni á síðasta ári
og því sé gert ráð fyrir aukinni fram-
leiðslu á þessu ári. Einnig sé verið að
vinna í því að draga enn frekar úr
rekstrarkostnaði félagsins.
Aðalfundur Íslenska járnblendi-
félagsins hf. verður haldinn 21. júní
næstkomandi. Stjórn félagsins mun
leggja til við aðalfund að arður verði
ekki greiddur til hluthafa fyrir árið
2000 í ljósi erfiðrar stöðu félagsins.
615 milljóna króna tap Ís-
lenska járnblendifélagsins
!
"#
!
$
%!
"&%
'
'#(
! ""#$
$
! ""#$
$
! ""#$
$
Hlutafé
Basisbank
aukið
EIGENDUR danska netbankans
Basisbank verða í þriðja skipti á
þremur mánuðum að auka hlutafé
sitt í bankanum, samkvæmt því
sem fram kemur í vefútgáfu Jyl-
lands-Posten. Þar segir að tekin
verði afstaða til aukningar á höf-
uðstól hlutafjár í bankanum á aðal-
fundi hans næstkomandi miðviku-
dag. Ekki liggi fyrir um hve mikla
aukningu verði að ræða að þessu
sinni. Bankinn hafi í janúar og
mars fengið nýtt hlutafé, samtals
að fjárhæð liðlega 300 milljónir
króna, með eftirgjöf á lánum eig-
endanna.
Haft er eftir Jan Thorsen, fram-
kvæmdastjóra Basisbank, í Jyl-
lands-Posten, að upplýsingar um
fjárhag bankans verði í fyrsta
skipti gerðar opinberar í kjölfar
aðalfundarins. Bakgrunnur þess
pukurs sem sé með afkomu Bas-
isbank sé sá að í raun sé eigandi
bankans einungis einn, þ.e. Basis
PFS.
Raunverulegir eigendur séu hins
vegar Íslandsbanki-FBA, áhættu-
fjárfestingarfélagið Vertex Man-
agement í Singapúr og þróunar-
sjóður í eigu Bankinvest-gruppen.
Þessir aðilar eigi fulltrúa í stjórn
Basisbank.
Í Jyllands-Posten segir að hluta-
fjáraukning Basisbank sé nauðsyn-
leg til að tryggja að bankinn upp-
fylli ákvæði laga um að höfuðstóll
sé að minnsta kosti 37,5 milljónir
danskra króna, jafngildi tæplega
400 milljónum íslenskra króna.
Basisbank var stofnaður í sept-
ember á síðasta ári og var hlutafé
hans þá rúmar 750 milljónir króna.
REKSTUR Sparisjóðs Hafnarfjarð-
ar í fyrra skilaði 513,6 milljónum
króna hagnaði fyrir áætlaða skatta
samanborið við 368,6 milljónir árið
áður. Hagnaður eftir skatta nemur
349,5 milljónum króna á en var 251,3
milljónir árið áður. Í tilkynningu frá
SPH segir að aukinn hagnað megi
rekja til sölu á hluta af eign spari-
sjóðsins í Kaupþingi en söluhagnað-
ur vegna þessa nam 635 milljónum
króna.
Í ársreikningi sparisjóðsins er
miðað við markaðsverð á innlendum
og erlendum markaðsverðbréfum.
Arðsemi eigin fjár var 19,6% í fyrra
en 16,7% árið áður og eiginfjárhlut-
fall sparisjóðsins samkvæmt svoköll-
uðum CAD-reglum var 11,7% í árs-
lok en skal að lágmarki vera 8,0%.
„Góður árangur náðist á sviði inn-
lána en heildarinnlán og verðbréf
námu samtals 15,84 milljörðum í árs-
lok og jukust um 17,7% frá árinu áð-
ur. Útlán til viðskiptamanna voru
samtals 20,8 milljarðar í árslok og
var aukningin 22,3% frá fyrra ári.
Vaxtamunur sem hlutfall af meðal-
stöðu vaxtaberandi eigna var 3,9% á
síðastliðnu ári. Aðrar rekstrartekjur
voru 982,3 milljónir króna og jukust
um 86,5% frá árinu 1999. Önnur
rekstrargjöld námu 1.183,8 milljón-
um króna og jukust um 35,3% frá
árinu áður.
Umsvif sparisjóðsins jukust mikið
á árinu og má rekja aukinn rekstr-
arkostnað að miklu leyti til umfangs-
mikilla breytinga sem miða að því að
veita viðskiptavinum alhliða fjár-
málaþjónustu. Þjónustusviðum var
fjölgað með tilheyrandi fjárfesting-
um í húsnæði, upplýsingakerfum og
uppbyggingu þjónustuþátta.“
Hagnaður SPH
350 milljónir
)
%&#
*
#
+
,
-.*/0
&$
$!
'
!$
%
!
!
#
!
(
! ""#$
$
! ""#$
$
! ""#'
$
UPPHAFSGILDI vísitölu krónunn-
ar í gær var 122,23 stig og veiktist
krónan fljótlega í um 122,48 stig, en
krónan veikist þegar vísitalan hækk-
ar. Þá greip Seðlabankinn inn í og
við það hækkaði gengi krónunnar og
vísitalan fór í 121,65 stig. Þessi
styrking hélt þó ekki og krónan
veiktist á ný og var lokagildi hennar
122,41 stig. Veiking innan dagsins
var því rúmlega 0,1%. Halldór Hildi-
mundarson á millibankaborði Ís-
landsbanka-FBA hf. segir það vera
til marks um hversu veikt krónan
standi að hún skuli veikjast þrátt
fyrir þessi inngrip.
Inngrip
Seðlabanka