Morgunblaðið - 24.03.2001, Page 35
STYTTA af egypska konunginum
Sesostris I, hvílir hér á stalli sínum í
listasafninu í Toledo í Ohio í Banda-
ríkjunum.
Styttan af Sesostris tilheyrir ann-
ars British Museum, en gripir frá því
safni eru nú að láni hjá listasafni Tol-
edo. Alls er um 144 fornmuni að
ræða og nefnist sýningin Eilífa
Egyptaland: forn meistaraverk í
eigu British Museum.
Eilífa
Egypta-
land
AP
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 35
ÞAU óvæntu tíðindi hafa gerst
að Rico Saccani hljómsveitar-
stjóri er stjórna átti flutningi
Sinfóníuhljómsveitar Íslands á
Carmen í Laugardalshöll er for-
fallaður vegna veikinda. Í hans
stað hefur verið fenginn til starf-
ans annar þekktur stjórnandi,
Alexander Anissimov frá Rúss-
landi.
Alexander Anissimov er Rússi
sem hlaut tónlistarmenntun sína
í Sankti Pétursborgar- og
Moskvu- konservatóríunum.
Hann þykir gott dæmi um þá
hæfileikaríku og vel menntuðu
listamenn sem komið hafa úr
austurvegi og getið sér gott orð
um víða veröld.
Anissimov á að baki tuttugu
ára feril sem hljómsveitarstjóri
og meðal annars hefur hann stýrt
36 óperu- og ballettuppfærslum
víðsvegar um heiminn. Árið 1980
var hann ráðinn aðalstjórnandi
Ballett- og óperuhúss Hvítarúss-
lands og má segja að það hafi
verið vendipunktur á ferli hans.
Frá þeim tíma hefur hann tekið
þátt í flest öllum hátíðum og
samkeppnum sem máli skiptu í
Sovét og síðar í Rússlandi.
Meðal merkra hljómsveita sem
hann hefur stjórnað má nefna
Sinfóníuhljómsveit London og þá
hefur hann unnið við og stjórnað
óperuuppfærslum í San Franc-
isco óperunni, Bastille óperunni í
París, Liceu óperuhúsinu í
Barcelona og Staatsoper í Ham-
borg en þetta eru allt heims-
þekkt óperuhús þar sem ein-
göngu valinkunnir menn stíga í
stjórnendapúltið. Anissimov hef-
ur verið aðalhljómsveitarstjóri
RTÉ þjóðarhljómsveitainnar í
Dublin frá 1988 og á döfinni hjá
Anissimov eru uppfærslur á óp-
erum í Berlin Komische Oper, í
Liceu og Bolshoi auk tónleika
með Orchestra Arena di Verona.
Helga Hauksdóttir hjá Sinfón-
íuhljómsveitinni kvaðst telja það
mikið happ að fá Anissimov til að
stjórna Carmen með svo stuttum
fyrirvara. „Hann er mjög eftir-
sóttur stjórnandi og hefur Sin-
fóníuhljómsveitin lengi haft uppi
áætlanir um að fá hann til lands-
ins. Við erum eiginlega búin að
ráða til að stjórna tónleikum á
næsta starfsári en tökum forskot
á sæluna með Carmen,“ sagði
Helga.
Það er sópransöngkonan Syl-
vie Brunet sem syngja mun tit-
ilhlutverkið en að sögn Helgu er
hún talin einn albesti túlkandi á
Carmen sem völ er á í dag.
„Þá ber að geta leikstjórans
Soniu Frisell, en hún er afar
hæfur leikstjóri sem hefur getið
sér gott orð við óperusviðsetn-
ingar á undanförnum árum.“
Rússneskur
stjórnandi tek-
ur við Carmen
Sinfóníuhljómsveit Íslands
ELLA Björt Daníels-
dóttir klarínettuleikari
heldur burtfar-
arprófstónleika frá
Tónlistarskólanum í
Reykjavík í Salnum í
Kópavogi í dag kl. 14.
Þorsteinn Gauti Sig-
urðsson leikur með á
píanó og að auki koma
fram þau María Huld
Markan Sigfúsdóttir
fiðluleikari og Árni
Björn Árnason píanó-
leikari.
„Ég er orðin spennt
og hlakka mjög mikið
til. Ég er tilbúin,“ segir
Ella Björt í samtali við
blaðamann tveimur
dögum fyrir tónleikana.
Á efnisskránni eru
Sónata í B-dúr eftir
Georg Philipp Tele-
mann, Rómansa (1892)
eftir Marie von Sach-
sen-Meiningen, Tríó
fyrir klarínettu, fiðlu
og píanó (1932) eftir
Aram Khatchaturian,
Ballaða op. 8 (1912) eft-
ir Leo Weiner, Vier
Stücke op. 5 (1913) eft-
ir Alban Berg og Fant-
asíusónata í h-moll op.
5 (1924) eftir Victor
Urbancic.
Gyðingasveifla eftir
Khatchaturian
„Ég valdi að fara
óhefðbundnari leiðir,“
segir Ella Björt þegar hún er
spurð um val verka á efnisskrá.
„Ég spila ekki þessi þekktustu
klarínettuverk heldur ákvað ég
að velja mér áhugaverð og
skemmtileg verk og jafnvel svo-
lítið óvenjuleg. Ég byrja reyndar
á sónötu eftir Telemann sem er
samin fyrir óbó og continuo en
hún hljómar afskaplega fallega á
klarínettu með píanóundirleik.
Ég valdi þetta verk vegna þess að
klarínettuleikarar eiga enga bar-
okktónlist – vegna þess að okkar
hljóðfæri er svo ungt.
Það er gamall siður að
byrja á barokki og mig
langaði að spreyta mig
á því. Svo spila ég róm-
önsu eftir Marie von
Sachsen-Meiningen, fal-
legt rómantískt stykki.
Eftir konu og ekki nóg
með það, hún var meira
að segja greifynja! Síð-
asta verkið fyrir hlé er
tríó eftir Khatchat-
urian. Það er svona
gyðingasveifla, hresst
og skemmtilegt tríó,“
segir hún.
„Eftir hlé er ég með
þrjú verk sem eru öll
samin í byrjun tutt-
ugustu aldarinnar en
samt mjög ólík. Ég
byrja á ballöðu eftir
Leo Weiner, síðróm-
antísku stykki, sem ég
held að hafi ekki verið
flutt áður hér á landi.
Weiner er tónskáld sem
mér finnst að mætti
heyrast meira eftir hér.
Svo spila ég Fjögur
stykki eftir Alban
Berg, allt öðru vísi tón-
list, það er ekkert eins
og Alban Berg. Þetta
er tólftónatónlist sem
er ofsalega falleg en
þarf að meltast svolít-
ið,“ segir Ella Björt.
Tónleikunum lýkur hún
svo á Fantasíusónötu
eftir Victor Urbancic.
„Ég held að það hafi ekki verið
flutt hér opinberlega síðan Urb-
ancic frumflutti það sjálfur,“ seg-
ir hún.
Miðasala í Salnum hefst
klukkustund fyrir tónleikana eða
kl. 13.00 í dag.
Ella Björt Daníelsdóttir þreytir burtfararpróf í klarín-
ettuleik frá Tónlistarskólanum í Reykjavík.
„Valdi að fara óhefð-
bundnari leiðir“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÁRLEGIR tónleikar Suzuki-tónlist-
arskólans í Reykjavík verða í Tjarn-
arsal ráðhússins í dag, laugardag, kl.
14. Nemendur skólans, á aldrinum 4-
15 ára, koma fram.
Suzuki-tónleikar
í ráðhúsinu
KANTATAN „Arianna a Naxos“ eft-
ir Josef Haydn og ljóðaflokkarnir „A
Charm of Lullabies“ eftir Benjamin
Britten og „Haugtussa“ eftir Edvard
Grieg eru viðfangsefni Tíbrártónleika
þeirra Sigríðar Aðalsteinsdóttur
mezzósópransöngkonu og Jónasar
Ingimundarsonar píanóleikara í Saln-
um í Kópavogi annaðkvöld, sunnu-
dagskvöld, kl. 20.
„Kantata Haydns er talin vera
skrifuð um 1789 en textahöfundurinn
er alveg ókunnur. Textinn er byggður
á þekktri grískri þjóðsögu um Ari-
önnu sem var yfirgefin af elskhuga
sínum en hann hafði heitið henni æv-
arandi tryggð vegna þess að hún
bjargaði honum frá dauða,“ segir Sig-
ríður, sem kveðst ekki vita til þess að
kantatan hafi verið flutt áður hér á
landi.
Ekki hægt að svæfa
börn við öll ljóðin
Ljóðaflokki Brittens, „A Charm of
Lullabies“ lýsir Sigríður sem vöggu-
vísum innan gæsalappa. „Það er
a.m.k. ekki hægt að svæfa börn við öll
ljóðin,“ segir hún. „Þetta eru fimm
lög og mjög ólíkir textar en hafa þó
allir eitthvað með börn að gera,“ segir
hún. „Haugtussa er glæsilegur flokk-
ur eftir Grieg sem samanstendur af
átta ljóðum eftir Arne Garborg en
hann skrifaði reyndar alls á milli 60
og 70 ljóð um fjallastúlkuna. Þetta er
hárómantískt og fallegt, mikil sveita-
sæla og dularkraftar í náttúrunni.
Hún er yfir sig ástfangin af piltinum
sem kemur og heimsækir hana og
þau eiga saman sælustund. Svo bíður
hún spennt eftir því að hann komi aft-
ur – en hann kemur ekki. Sorgin kem-
ur svo í næstsíðasta laginu, þar sem
„Að upplifa allan til-
finningaskalann“
Morgunblaðið/Þorkell
Jónas Ingimundarson og Sigríður Aðalsteinsdóttir á æfingu í Salnum.
hún er búin að bíða hans lengi en án
árangurs. Þá deyr allt inni í henni.
Mér finnst alveg frábært að upplifa
svona allan tilfinningaskalann í tón-
málinu og gaman að það skuli vera til
svona falleg músík,“ segir Sigríður,
sem var svo heppin að njóta leiðsagn-
ar norskrar söngkonu, vinkonu sinn-
ar, um framburð og túlkun.
Erum komin á ákveðið
hreinskilnisstig
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þau
Sigríður og Jónas vinna saman og
lætur hún mjög vel af samstarfinu.
„Við erum farin að þekkja hvort ann-
að nokkuð vel. Við erum komin á
ákveðið hreinskilnisstig, sem er alltaf
mjög gott,“ segir Sigríður.
Sigríður lauk prófi frá Söngskólan-
um í Reykjavík vorið 1995. Haustið
1995 hélt hún í framhaldsnám til Vín-
arborgar og í janúar sl. lauk hún námi
við óperudeild Tónlistarháskólans í
Vín. Undanfarin tvö ár hefur hún
einnig stundað nám við ljóða- og
óratóríudeild skólans undir hand-
leiðslu prófessors Charles Spencers.
Einnig hefur hún sótt ljóðanámskeið
hjá Robert Holl.
Syngur Fjodor í
Boris Goudonov
Sigríður var með samning við Þjóð-
aróperuna í Vín á síðastliðnu hausti
og fram í janúar. Þar söng hún m.a.
hlutverk Mercedes í Carmen, þriðju
dömu í Töfraflautunni og Eleonoir í
Blaubart. Í maí bregður hún sér aftur
til Vínar og syngur hlutverk Fjodors í
Boris Goudonov. Hún verður ekki eini
Íslendingurinn í þeirri uppfærslu, því
þar verður einnig bassasöngvarinn
Bjarni Thor Kristinsson.
♦ ♦ ♦
ÚR djúpunum nefnist tónlist-
ardagskrá sem fimm sunn-
lenskir listamenn hafa undan-
farið flutt í kirkjum á
Suðurlandi.
Næst verður hún flutt,
sunnudagskvöldið 25. mars í
Leikhúsinu (Iðnskólanum) við
Sigtún á Selfossi, kl. 20.30.
Verkin eru öll að stofni til
byggð á lögum sem gyðingar í
útrýmingarbúðum og fátækra-
hverfum sömdu í síðari heims-
styrjöldinni. Flytjendur eru
þau Hilmar Örn Agnarsson,
Hjörtur Hjartarson, Ingunn
Jensdóttir, Eyvindur Erlends-
son og Sveinn Pálsson.
Alls eru verkin sem flutt eru
á annan tug og kemur þar við
sögu bæði hljóðfæraleikur,
upplestur og söngur.
Gyðinga-
tónlist
Selfoss