Morgunblaðið - 24.03.2001, Blaðsíða 36
Lesendur Morg-
unblaðsins geta
komið spurn-
ingum varðandi
sálfræði-, félags-
leg og vinnutengd
málefni til sérfræðinga á veg-
um persona.is. Senda skal
tölvupóst á persona@per-
sona.is og verður svarið jafn-
framt birt á persona.is.
Ég á orðið í vandræðum með sjálfan mig, ég
þori varla orðið að segja nokkuð innan um fólk
af ótta við að það sem ég segi hljómi heimsku-
lega og allir í herberginu fari að horfa á mig.
Ég hef alltaf verið talin mjög feimin frá því að
ég var krakki, en þetta er eitthvað miklu meira
og verra en feimni, ég er farin að kvíða í marga
daga fyrir smáfundum og hætti jafnvel við á
síðustu stundu.
Hvað er að og er hægt að hjálpa?
SVAR Þú ert að lýsa félagsfælni, al-gengum sjúkdómi sem allt að
15% fólks upplifir einhvern tíma á lífsleiðinni.
Oftast byrjar sjúkdómurinn á unglingsárum,
stundum jafnvel á barnsaldri og fátítt er að
hann byrji eftir 25 ára aldur.
Sjúkdómseinkennin snúast að miklu leyti
um ótta fólks við að verða sér á einn eða ann-
an hátt til skammar. Algengt er að sjúkling-
urinn lýsi óþægindum við að fara í fjöl-
skylduboð eins og t.a.m. fermingar, honum
finnst sem allir séu að fylgjast með honum og
hann óttast mjög alla gagnrýni sem hann
gæti fengið. Þessir sjúklingar eiga oft erfitt
með einfalda hluti eins og að skrifa ávísun
fyrir framan afgreiðslufólk verslunar eða að
matast innan um ókunnuga eins og á veit-
ingastöðum.
Misjafnt er hversu víðtæk áhrif þessa eru á
líf fólks, sumir eiga fyrst og fremst erfitt með
að standa upp og tala frammi fyrir áheyr-
endum, en hjá þeim sem verst eru settir get-
ur þetta truflað nær öll samskipti sem þeir
eiga við aðra og nánast útilokað þá frá mann-
legum samskiptum.
Alvarleiki þessa kvilla sést kannski best
þegar skoðaðar eru aðstæður hópsins. Þá
kemur í ljós að skólaganga þeirra er almennt
styttri og aðspurð þá segja þau oft frá vanlíð-
an í skóla, ótta við að leita svara við því sem
þau ekki skildu og margra daga kvíða fyrir
því að þurfa að flytja eitthvað fyrir framan
bekkinn.
Starfsframi er minni en búast mætti við
miðað við verðleika, enda veigra þessir sjúk-
lingar sér við að sækjast eftir vinnu sem kall-
ar á að aukin athygli beinist að þeim. Oft eru
þessir sjúklingar einnig með lægri tekjur en
aðrir í sambærilegum stöðum, þar sem þeir
sækja ekki sinn rétt af sama krafti og aðrir.
Fólk í þessum hópi er líklegra til að vera
einhleypt en aðrir, enda er hópurinn ófram-
færinn og hver man til dæmis ekki eftir ein-
hverjum af félögum sínum sem aldrei þorði að
reyna við stelpu fyrr en hann var orðinn svo
drukkinn að engin þeirra vildi líta við honum.
Af framansögðu má vera ljóst að afleið-
ingar félagskvíða geta verið miklar og verða
yfirleitt verri eftir því sem lengur dregst að
gera eitthvað í málinu. Oft er það svo að þeir
sem þjást af félagsfælni leita sér ekki hjálpar
fyrr en fylgikvillar reka þá af stað, þar sem
þeim finnst sjálfum sem þetta sé aum-
ingjaskapur í sér og eitthvað sem þeir verði
bara að hrista af sér. Sjúkdómar eins og
þunglyndi vilja nefnilega koma í kjölfar
félagsfælni, að ekki sé talað um þá sem reyna
að gera sér félagslegar aðstæður bærilegar
með því að fá sér aðeins í glas, þeir verða oft
áfengissýki að bráð.
Leiti fólk sér hins vegar aðstoðar er oftast
hægt að hjálpa. Í vægari tilvikum og þegar
sjúkdómurinn er bundinn við tiltölulega af-
markaðar félagsaðstæður dugar oft viðtals-
meðferð. Svokölluð hugræn meðferð, sem
miðar að því að leiðrétta „rangar“ hugsanir
og koma í veg fyrir að þær valdi óraunhæfum
kvíða, reynist oft sérlega vel.
Í erfiðari tilvikum og sérstaklega þegar
sjúkdómurinn snertir almennt öll félagsleg
tengsl sjúklingsins er yfirleitt nauðsynlegt að
nota lyf. Ein og sér er lyfjameðferð þó yf-
irleitt ekki nægjanleg, sjúklingurinn þarf
ákveðinn stuðning samhliða, fræðslu og helst
hugræna meðferð að einhverju marki.
Félagskvíði / Félagsfælni
eftir Garðar Sigursteinsson
Í erfiðari tilvikum og sér-
staklega þegar sjúkdóm-
urinn snertir almennt öll
félagsleg tengsl sjúklings-
ins er yfirleitt nauðsynlegt
að nota lyf.
...........................................................
Nánari upplýsingar um félagsfælni:
http://www.persona.is/
http://www.social-anxiety.org/_
Höfundur er sérfræðingur í geðlækningum.
36 LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
DIAMOND Excell, ellefu ára
stúlka sem fæddist án handleggja
en lærði að skrifa, borða og bursta
tennurnar með því að nota fæturna,
faðmaði móður sína nýlega með því
að nota „líftækja“-handleggi sem
settir voru á hana fyrir skömmu.
Diamond fékk að taka þessa raf-
handleggi með sér heim eftir að
hafa haldið sýningu á því hvernig
þeir virka fyrir fjölmiðla og stuðn-
ingsfólk sem hjálpaði til við að
safna 60 þúsund Bandaríkjadollur-
um (5,1 milljón króna) upp í þá 70
þúsund dollara (5,9 milljónir króna)
sem handleggirnir kostuðu.
Hún hafði mátað handleggina áð-
ur og þá faðmaði hún mömmu sína í
fyrsta sinn. „Það var svo gott,“
sagði móðir hennar, Delia Excell.
„Því verður ekki með orðum lýst
hvernig mér leið þegar hún faðmaði
mig með þessum handleggjum.“
Ivan Yaeger hannaði handlegg-
ina úr pörtum sem hann átti til en
fékk síðan gervilimasmiðinn Eug-
ene Silva í lið með sér til að smíða
þá og setja saman. Yaeger hannaði
fyrst gervilim sem vísindaverkefni
þegar hann var í miðskóla og notaði
nú nokkra þætti þeirrar hönnunar
sem hann fékk einkaleyfi á þegar
hann var enn í skóla.
Á hvorum handlegg eru mótorar
sem opna og loka þrem liðum. Þeir
virka samkvæmt boðum sem heil-
inn sendir þegar vöðvar eru hreyfð-
ir. Með því að hreyfa bakvöðva get-
ur Diamond opnað liðina og með
því að hreyfa brjóstvöðva lokar hún
þeim. Tveir nemar sem eru á ólinni
sem festir handleggina við hana
gera henni kleift að skipta frá ein-
um lið til annars.
Úlnliðurinn getur snúist næstum
heilan hring og olnboginn er þann-
ig gerður að þegar Diamond geng-
ur sveiflast handleggirnir eðlilega.
Þeir verða lengdir eftir því sem
stúlkan eldist og stækkar. Dia-
mond hefur enn ekki fyllilega lært
að hreyfa handleggina og mun æfa
sig lengur. Hún sýndi hvernig hún
tók upp poka með því að grípa í
haldið á honum með vísifingri og
þumli. „Það var auðvelt,“ sagði
hún.
Lítil stúlka
fær gervi-
handleggi
Miami. AP.
Associated Press
Þáttaskil
Hin 11 ára gamla Diamond Excell á fréttamannafundi þar sem nýir hand-
leggir hennar voru kynntir fjölmiðlum. Tæknin nýja þykir marka þáttaskil
á þessu sviði en handleggirnir eru léttir og sérhannaðir fyrir Diamond.
Lyf
Nýjar upplýsingar um
ágæti aspríns
Sjúkdómar
Vonir um parkinsons-
meðferð dvína
Samskipti
Félagsfælni er algengur
sjúkdómur
Raddheilsa
Mælt með hljóðkerfum
í skólastofumHEILSA
HEILBRIGÐIR einstaklingar njóta
ef til vill ekki þeirrar heilsubótar sem
þeir vænta af neyslu E-vítamíns, sam-
kvæmt niðurstöðum nýrrar rann-
sóknar er birtar voru í The Journal of
the American Medical Association.
Vísindamenn sýndu fram á, að þótt
E-vítamíni væri bætt í mat heilbrigðs
fólks hafði það engin áhrif á hversu
miklar „oxíðskemmdir“ urðu í líkama
þeirra og vekja þessar niðurstöður
spurningar um gildi þess að taka vít-
amínið.
Orsakir oxíðskemmda eru svo-
nefnd stakefni sem verða til í frum-
um. Sérfræðingar telja að tengsl séu
á milli niðurbrotskemmda og margra
sjúkdóma, þ. á m. krabbameins og
hjartabilana. Andoxunarefni á borð
við C- og E-vítamín eru talin draga úr
virkni stakefna.
Til þess að prófa hvort neysla E-
vítamíns dregur úr oxíðáhrifum gáfu
dr. Emma A. Meagher við Háskólann
í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum og
samstarfsmenn hennar 30 heilbrigð-
um konum og körlum á aldrinum 18-
60 ára annaðhvort óvirka lyfleysu eða
E-vítamín í 200 til 2.000 eininga
skömmtum daglega.
Í ljós kom aukið magn E-vítamíns
eftir tvo mánuði hjá þeim sem tóku
vítamínið, samanborið við þá sem
tóku lyfleysuna. En oxíðskemmdir,
sem mældar voru með tilliti til efna
sem losuðust út í þvagið, reyndust
næstum því óbreyttar þrátt fyrir mis-
munandi stærð vítamínskammtanna.
Þetta er ein fyrsta rannsóknin sem
beinist að áhrifum E-vítamíns á oxun í
líkamanum. Dr. Tim Byers, prófessor
við læknadeild Háskólans í Colorado,
sagði að þær upplýsingar sem fengist
hefðu í þessari rannsókn, ásamt upp-
lýsingum úr öðrum rannsóknum,
bendi til þess að E-vítamín hafi ekki
þau áhrif að draga úr dánartíðni,
hjartasjúkdómum eða heilaáfalli. „E-
vítamín veitir í raun ekki vernd gegn
oxíðskemmdum, eins og margir vís-
indamenn hafa talið að það myndi
gera,“ sagði Byers sem ekki tók þátt í
gerð rannsóknarinnar.
Vísbending um fæðubótarefni
Hann bendir enn fremur á, að þess-
ar niðurstöður gefi vísbendingar um
önnur fæðubótarefni. Margt fólk taki
stóra skammta af bætiefnum í þeirri
trú að þau hafi góð áhrif. En eftir því
sem meiri rannsóknir fari fram sé að
koma í ljós ákveðið mynstur. „Fæðu-
bótarefni virðast ekki hafa þau bæt-
andi áhrif sem talið hefur verið að þau
hafi.“ Mestu skipti að maður borði
heilsusamlegar og vel samsettar mál-
tíðir, segir Byers.
E-vítamín gagnast
heilbrigðum lítið
New York. Reuters.
Associated Press
Löngum hefur verið deilt um
ágæti fæðubótarefna.