Morgunblaðið - 24.03.2001, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 39
NOTKUN bætiefna úr jurtum
skömmu fyrir skurðaðgerð getur
truflað svæfingu eða aukið hættuna
á fylgikvillum á borð við frekari
blæðingu. Rétt væri að sjúklingar
neyttu ekki jurta áður en þeir gang-
ast undir aðgerð, að sögn dr. Suz-
anne Yee, lýta- og fegrunarlæknis
við Háskólann í Arkansas í Little
Rock í Bandaríkjunum.
Yee sagði á ársfundi bandarískra
fegrunarlækna nýverið, að hjá flest-
um læknum ríkti óskrifuð regla um
að sjúklingar væru ekki spurðir um
neyslu sína á jurta- eða fæðubótaefn-
um. Hún ítrekaði að það gæti reynst
banvænt að ræða þetta ekki „þar eð
margar jurtir geta aukið blæðingar-
tíma meðan á aðgerð stendur og eftir
hana, valdið breytingum á blóðþrýst-
ingi og framlengt áhrif svæfingar.“
Þar eð fólk líti ef til vill ekki á jurt-
ir sem lyf sé ekki víst að það geri sér
grein fyrir því, að jurtir geti haft
aukaverkanir. Meðal þeirra bæti-
efna úr jurtum sem geta haft áhrif á
blæðingu eru musteristré, glitbrá,
engifer og E-vítamín.
Að auki getur ginseng hækkað
blóðþrýsting, en hvítlauksefni geta
lækkað hann. Meðal jurta sem geta
dýpkað eða lengt svæfingu eru Jó-
hannesarjurt (e. St. John’s wort) og
kava kava. Yee lagði til að töku allra
jurtabætiefna væri hætt hálfum
mánuði fyrir skurðaðgerð, burtséð
frá því hversu smávægileg hún væri.
Yee hvatti ennfremur sjúklinga til
ræða við lækna sína um hvaða jurta-
bætiefni sjúklingarnir tækju og ráð-
leggur læknum að gera það að reglu-
legum þætti í sjúkrasögu
skjólstæðinga sinna. Slíkt geti komið
í veg fyrir vandamál og auðveldað
meðhöndlun fylgikvilla.
Jurtir og
skurðað-
gerð geta
farið illa
saman
San Diego. Reuters.
FJÖLDI dauðsfalla af völdum
hjartastopps jókst umtalsvert í
yngri aldurshópum fullorðinna
Bandaríkjamanna á tíunda áratugn-
um. Nam fjölgunin 10 prósentum
hjá körlum og 32 prósentum hjá
konum, að því er bandarískir emb-
ættismenn greindu frá nýverið.
Hjartastopp eru enn fátíð hjá
fólki undir 35 ára, og er aðeins um
eitt prósent af dauðsföllum af þess-
um völdum. En sérfræðingar segja
að þessi nýuppgötvaða aukning sé
áhyggjuvaldur og sé að öllum lík-
indum til marks um viðvarandi þró-
un en ekki tölfræðileg ólíkindi.
Vísindamenn telja að ein helsta
ástæða þessarar fjölgunar sé offitu-
faraldur, ásamt auknum reykingum
og notkun fíkniefna, einkum kóka-
íns, sem getur átt stóran þátt í því
að hjartastopp verður.
Læknar við Sótt- og forvarnar-
miðstöðina (CDC) í Bandaríkjunum
gerðu fyrstu athugun sem gerð hef-
ur verið á hjartastoppi meðal fólks
á aldrinum 15 til 34 ára. Greindu
þeir frá niðurstöðum könnunarinnar
á faraldursfræðiráðstefnu Banda-
rísku hjartaverndarsamtakanna í
San Antonio.
Í Bandaríkjunum öllum jókst
fjöldi banvænna hjartastoppa í
þessum aldursflokki úr 2.710 árið
1989 í 3.000 árið 1996. Alls létust
23.320 yngri fullorðnir, þar af voru
hátt í þrír fjórðu karlmenn.
„Þetta eru virkilega ógnvekjandi
niðurstöður sem þarf að taka mjög
alvarlega,“ sagði dr. Murray Mittle-
man, við Beth Israel Deaconess-
læknamiðstöðina í Boston. „Ef um
er að ræða atferlisþátt, eins og til
dæmis reykingar eða ólöglega fíkni-
efnanotkun, væri mikilvægt að geta
dregið það fram.“
Dr. George Mensah, yfirmaður
hjarta- og æðadeildar CDC, sagði
að læknar hefðu jafnan litið svo á að
hjartastopp væri einungis vandamál
hjá eldra fólki. Læknar hefðu einnig
áhyggjur af kynja- og kynþátta-
bundnum mun. Á þessum átta árum
fjölgaði dauðsföllum af völdum
hjartastoppa þrefalt hraðar hjá
konum en körlum. Aukningin nam
19% hjá svörtum og 14% hjá hvít-
um.
Hjartastopp verður þegar hjartað
hættir skyndilega að dæla á kerf-
isbundinn hátt og stöðvast þá blóð-
rásin. Ef hjartanu er ekki komið
snarlega af stað aftur deyr sjúkling-
urinn fljótlega eða verður fyrir var-
anlegum heilaskaða.
Fleiri hjartastopp hjá yngra
fólki í Bandaríkjunum
„Ógnvekjandi
niðurstöður“
Associated Press
Breyttir lífshættir og mataræði eru tekin að segja til sín á meðal ungs
fólks í Bandaríkjunum. Þar vegur þyngst offita, tóbak og fíkniefni.
San Antonio. AP.
♦ ♦ ♦