Morgunblaðið - 24.03.2001, Page 67
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 67
VÍSITASÍAN hófst með messu í
Strandarkirkju miðvikudaginn 21.
mars kl. 20. Sama dag kl. 16 heimsótti
biskup humarvinnslu Portland í Þor-
lákshöfn. Á laugardagsmorguninn kl.
10 skoðar hann íbúðir fyrir aldraða og
kl. 14 verður helgistund í Hjalla-
kirkju. Kl. 15 á laugardag messar
biskup í Þorlákskirkju. Auk þess að
hitta messugesti og þá sem á leið hans
verða hittir biskup sóknarnefndar-
fólk og skoðar m.a. nýlegt ráðhús Ölf-
usinga og hittir sveitarstjórnarmenn.
Þess er vænst að sem flestir sjái
sér fært að koma til helgistundar eða
messu. Biskup hefur sérstaklega ósk-
að eftir því að börn og unglingar komi
til kirkju og eru fermingarbörn og
foreldrar þeirra sérstaklega hvött til
að koma.
Þorlákshöfn heldur nú hátíðlegt 50
ára byggðarafmæli sitt og er heim-
sókn biskups kærkomið innlegg í af-
mælisárið. Reyndar hefur starf kirkj-
unnar í marsmánuði samtvinnast
afmælisárinu og hefur verið boðið
upp á margskonar viðburði í kirkj-
unni af því tilefni. T.d. hefur Stopp-
leikhópurinn sýnt ævintýrið um Ósk-
irnar tíu og tónlistardagskráin Úr
djúpinu, sem er tónlistardagskrá
sunnlenskra listmanna, var sett upp í
Þorlákskirkju. Þá var messa sérstak-
lega tileinkuð konum bæði í söng og
tali og 1. apríl kl. 17 verður „gospel-
“messa þar sem Þorvaldur Halldórs-
son sér um tónlistarhliðina.
Baldur Kristjánsson.
Vísitasía bisk-
ups í Hvera-
gerðisprestakall
HERRA Karl Sigurbjörnsson biskup
Íslands vísiterar í Hveragerðis-
prestakalli dagana 25. og 26. mars.
Vísitasía er hefðbundið orð yfir það
þegar biskup vitjar safnaða í biskups-
dæmi sínu. Herra Pétur Sigurgeirs-
son vísiteraði næstur biskupa á und-
an árið 1982. Vísitasía er í eðli sínu
meira en kurteisisheimsókn. Hún er
kynnis- og eftirlitsför biskupsins um
prófastsdæmið svo að hann þekki bet-
ur allar aðstæður safnaðanna, kenn-
ingu prestanna, ástand og eigur
kirknanna og svo mætti áfram telja.
Með biskupi verða í för eiginkona
hans, frú Kristín Guðjónsdóttir og
prófastur Árnesinga, séra Úlfar Guð-
mundsson.
25. mars, sunnudagur. Kl. 11
HNFLÍ – kapella, guðsþjónusta. Kl.
18 fundur með sóknarnefnd Hvera-
gerðissóknar. Kl. 20 Hveragerðis-
kirkja – messa. 26. mars, mánudagur.
Kl. 11 Dvalarheimilið Ás – helgistund.
Kl. 12.30 Grunnskóli Hveragerðis. Kl.
17 fundur með sóknarnefnd Kot-
strandarkirkju. Kl. 20 Kotstrandar-
kirkja – guðsþjónusta. Biskup mælist
til þess að sem flest börn og unglingar
sæki guðsþjónustur í hverri sókn.
Guðsþjónusturnar í Hveragerðis-
prestakalli verða sunnudagskvöldið
25. mars kl. 20 í Hveragerðiskirkju og
mánudagskvöldið 26. mars kl. 20 í
Kotstrandarkirkju.
Sóknarprestur/sóknarnefndir.
Kolaportsmessa
HELGIHALD þarfnast ekki hús-
næðis heldur lifandi fólks. Kirkja
Jesú Krists er ekki steypa heldur lif-
andi steinar, manneskjur af holdi og
blóði.
Þess vegna er hægt að fara út úr
kirkjubyggingum með helgihald og
fagnaðarerindið og mæta fólki í dags-
ins önn. Í tilefni af því bjóðum við til
messu í Kolaportinu sunnudaginn 25.
mars kl.14.
Prestarnir Kjartan Jónsson og
Jóna Hrönn Bolladóttir þjóna í mess-
unni.
Hjónin Þorvaldur Halldórsson og
Gréta Scheving leiða lofgjörðina.
Áður en Kolaportsmessan hefst
kl.14 munu okkar frábæru kirkju-
klukkur, Þorvaldur og Gréta, flytja
þekkt dægurlög.
Í lok stundarinnar er fyrirbæn og
smurning. Messan fer fram á kaffi-
stofunni hennar Jónu í Kolaportinu
sem ber heitið Kaffiport. Í Kaffiporti
er gott að setjast niður með ilmandi
kaffi og kökurnar hennar Jónu renna
ljúflega niður með Guðsorðinu. Það
eru allir velkomnir.
Miðborgarstarf KFUM&K.
Fjölskylduguðs-
þjónusta í
Dómkirkjunni
SUNNUDAGINN 25. mars kl. 13
verður fjölskylduguðsþjónusta í
Dómkirkjunni. Boðið verður upp á
stutta leiksýningu, um 20 mínútur,
sem ber yfirskriftina Óskirnar 10.
Bolli ætlar að segja loðmyndasögu og
svo ætlum við að sjálfsögðu að syngja
saman hátt og snjallt.
Verið velkomin í Dómkirkjuna.
Sjósókn og
trú í Hafnar-
fjarðarkirkju
LEIKDAGSKRÁ í tónum og tali um
trú og sjósókn fyrr og nú verður flutt í
Hafnarfjarðarkirkju á sunnudag kl.
16.
Dagskráin nefnist Það gefur Guð
minn. Dregnar verða upp leiftrandi
svipmyndir af sjósókninni og þekkt-
um persónum sem koma þar við sögu.
Jón Hjartarson leikari hefur sett dag-
skrárefnið saman og mun standa að
flutningi þess ásamt leikurunum
Ragnheiði Steindórsdóttur og Jóni
Júlíussyni. Þórunn Sigþórsdóttir
söngkona og Carl Möller píanóleikari
munu ásamt leikurunum flytja sjó-
mannalög og lausavísur í þessari leik-
dagskrá sem er bæði fjörleg og hríf-
andi. Meðal dagskráratriða eru:
Sjóferðarbæn og vararsöngur.
Fyrstu miðin: Fyrsta lúterska kirkj-
an á Íslandi, þýska kirkjan í Hafn-
arfirði. Skútan og sauðkindin. Stjáni
blái. Söltu jólin í Hafnarfirði. Jarlarn-
ir í Firðinum – Togaraöldin. Botnvör-
pungurinn Garðar – með fulla lest.
Nýsköpun. Slysin stóru. Útgerð í
öldudal. Aftur byr: Skuttogaraöld.
Meðal söngva eru förleg og falleg lög
eins og: Með fulla lest. Sjómenn ís-
lenskir. Sævar að sölum. Heyr mína
bæn. Sofnar lóa. Aðgangur er ókeypis
og allir hjartanlega velkomnir. Boðið
verður upp á kaffi og afmæliskringl-
ur, harðfisk og smjör og samræður
við leikarana í Strandbergi eftir sýn-
inguna.
Fyrr um daginn kl.11 fer fram sem
endranær árdegisguðsþjónsta í kirkj-
unni.
Prestar og sóknarnefnd
Hafnarfjarðarkirkju.
Sorgin vegna
sjálfsvíga
MIÐBORGARSTARF KFUM&K
og Biblíuskólinn við Holtaveg halda
sálgæslunámskeið fyrir almenning
miðvikudaginn 28. mars kl. 17-21 í að-
alstöðvum KFUM&K við Holtaveg.
Námskeiðið kostar 2.000 krónur og
innritun er í síma 5888899.
Þrír fyrirlestrar verða fluttir um
stór sorgarefni, einnig verður fjallað
um sálgæslu og mátt bænarinnar.
Dagskráin verður sem hér segir:
Sálgæsla og innri sár. Kennari: Guð-
laugur Gunnarsson, kristniboði.
Sorgin vegna hjónaskilnaða. Kennari:
Hafliði Kristinsson, ráðgjafi. Sorgin
vegna sjálfsvíga. Kennari: Jón
Bjarman, prestur. Matarhlé. Sorgin
þegar dauðinn nálgast. Kennari:
Kjellrun Langdal, hjúkrunarfræðing-
ur. Máttur bænarinnar. Kennari:
Guðrún Ásmundsdóttir, leikkona .
Jóna Hrönn Bolladóttir miðborg-
arprestur stýrir námskeiðinu. Fyrir-
spurnum verður svarað eftir fyrir-
lestrana.
Uppeldi til
virðingar fyrir
sjálfum sér
og öðrum
DR. SIGRÚN Aðalbjarnardóttir pró-
fessor mun flytja erindi á fræðslu-
morgni í Hallgrímskirkju næstkom-
andi sunnudag, kl. 10. Erindið nefnir
hún Uppeldi til virðingar fyrir sjálf-
um sér og öðrum. Dr. Sigrún er kunn
fyrir rit sín og rannsóknir á sviði upp-
eldis- og menntunarfræða og hefur
langa reynslu af kennslu á öllum
skólastigum. Þetta erindi Sigrúnar
vakti óskipta athygli þegar það var
fyrst flutt á alþjóðlegri ráðstefnu um
trú og vísindi í upphafi nýrrar aldar
(Faith in the Future), sem haldið var
hér á landi síðastliðið sumar. Að er-
indinu loknu gefst tækifæri til fyrir-
spurna áður en gengið verður til
guðsþjónustu sem er í umsjá séra
Sigurðar Pálssonar og hefst kl 11.
Bolli Pétur Bollason.
Leiksýning í
Breiðholts-
kirkju
STOPPLEIKHÚSIÐ sýnir barna-
leikritið „Ævintýrið um óskirnar tíu“
í fjölskylduguðsþjónustu í Breiðholts-
kirkju í Mjódd á morgun, sunnudag,
kl. 11.
Leikritið byggist á hinni vinsælu
verðlaunabók „Við Guð erum vinir“
eftir norska rithöfundinn Kari Vinje,
en leikgerðin er eftir Eggert Kaaber
sem jafnframt leikur öll hlutverkin í
sýningunni.
„Ævintýrið um óskirnar tíu“ fjallar
um Óskar, lítinn strák sem finnur
töfrastaf uppi í sveit hjá ömmu og afa.
Hann kynnist álfi nokkrum sem á
stafinn og fær að óska sér tíu sinnum.
Í verkinu er komið inn á það, að
kenna börnunum að biðja rétt, kenna
þeim um mátt bænarinnar og að
gleyma ekki þeim sem þurfa á bæn-
um okkar að halda.
Leikritið er ætlað 2-8 ára börnum
og tekur um 20 mínútur í sýningu.
Fella- og Hólakirkja. Opið hús fyrir
8., 9. og 10. bekk kl. 20-23.
Laugarneskirkja. Málþing kl. 13-16
um fátækt og einsemd, haldið á veg-
um Fullorðinsfræðslu Laugarnes-
kirkju í samvinnu vvið Hjálparstarf
Rauða kross Íslands, fræðsludeild
Biskupsstofu og Öryrkjabandalag Ís-
lands.
Neskirkja. Kirkjustarf eldri borgara
í dag kl. 14. Ekið um vesturbæinn
undir leiðsögn sr. Halldórs Gröndal
o.fl. Kaffi á Hótel Sögu. Lagt af stað
frá Neskirkju kl. 14. Munið kirkjubíl-
inn. Allir velkomnir.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl.
11.30 Æfing hjá Litlum lærisveinum í
safnaðarheimili.
Hvammstangakirkja. Sunnudaga-
skóli kl. 11.
Akraneskirkja. Kirkjuskóli kl. 11.
TTT-starf (10-12 ára) kl. 13. Umsjón:
Hreiðar Örn Stefánsson.
Hjálpræðisherinn. kl. 13 Laugar-
dagsskóli.
Biskup vísiterar
Þorlákshafnar-
prestakall
Þorlákskirkja
Safnaðarstarf
MIKIÐ hægviðri hefur verið á
SV-horninu það sem af er
marsmánuði. Fyrsti farfuglinn –
sílamávurinn – kom á Garðaholtið
18. mars. Hann er fáum
kærkominn þótt hann sé vissulega
vorboði, enda komið vorjafndægur
og dagurinn hefur tekið völdin. Nú
hrópar líkaminn á C-vítamín, þótt
það sé liðin tíð að Íslendingar séu
fölir og guggnir á þessum árstíma.
Grand-salatið er tiltölulega
nýkomið á markaðinn, það er
ræktað í Laugarási í
Biskupstungum. Stutt er síðan
farið var að rækta þessa
salattegund í Evrópu, en salat
sömu gerðar hefur í nokkur ár
verið ræktað í Lambhaga í
Mosfellssveit. Á ensku er þetta
salat kallað loose-head salat
(laushöfðasalat), en það hefur
ekkert „hjarta“ eða kjarna og vex í
hring. Því er sáð í litla potta og
ræktað í finnskri mold, sem er
mjög trefjakennd. Íslenska moldin
mundi losna í sundur og renna
burt í vatninu sem umleikur
ræturnar, en í vatnið er bætt
næringarefnum. Salatið hefur
stuttan ræktunartíma, hálfan
mánuð í uppeldi og 25 daga í
blaðvöxt. Engin eiturefni eru
notuð við ræktunina, það geymist
mjög vel í uppréttri stöðu á
köldum stað. Ekki er nóg að hafa
bara salatið, mun ljúffengara er að
setja á það einhverja salatsósu, t.d.
vinaigrette, sem mun vera
algengasta salatsósa hins
vestræna heims. Sósan dregur
fram bragðgæði salatsins. Salatið
er líka gott með alls konar áleggi í
samlokur að ógleymdri pítu, en
þegar þetta fallega salat stendur
upp úr pítunni biður það mann að
borða sig. Salat ætti aldrei að
klippa eða skera heldur rífa niður í
skálina. Við geymslu dökknar það í
brúnina ef það er skorið eða klippt.
Salat ætti ef hægt er að rífa niður
rétt fyrir notkun, C-vítamínið er
fljótt að rjúka úr því. Leggið filmu
eða disk yfir skálina og geymið í
kæliskáp, ef salatið á að geymast.
--------------
Í síðasta þætti vantaði fjölda
eggja í jarðarberjatertunni, þau
eiga að vera 5.
Salatsósa nr. 1
(vinaigrette)
8 msk. matarolía
2 msk. ljóst vínedik
Salat
Matur og matgerð
Kristín Gestsdóttir segir grand
og borðar Grand-salat.
nýmalaður pipar
salt milli fingurgómanna
Setjið í hristiglas og hristið
saman eða þeytið saman í skál.
Lögurinn á að þykkna.
Salatsósa nr. 2
7 msk. matarolía
safi úr ½ meðalstórri sítrónu
1 tsk. fljótandi hunang
salt milli fingurgómanna
2 skvettur úr tabaskósósuflösku
Setjið í hristiglas og hristið þar
til þykknar. Hunangið má bræða,
t.d. í örbylgjuofni.
Salatsósa nr. 3
8 msk. matarolía
1 msk. rauðvínsedik
2 msk. sérrí, helst þurrt
1 msk. mild chilisósa
salt milli fingurgómanna
nýmalaður pipar
Setjið í hristiglas og hristið
saman eða þeytið í skál með
þeytara.
Karrísósa með
sýrðum rjóma
1–2 msk. sesamfræ
1 dós sýrður rjómi
1 msk. sítrónusafi
1 msk. fljótandi hunang
2 tsk. karrí
salt milli fingurgómanna
Ristið sesamfræið á þurri
pönnu, kælið.
Þeytið allt hitt saman. Setjið
sesamfræið út í um leið og borið er
fram.
Grandsalat
með hnetum
½–1 salathöfuð
dl hnetur (fleiri en ein tegund)
Saxið hneturnar gróft og ristið á
þurri pönnu.
Rífið salatið í skál, hellið
salatsósu 1, 2 eða 3 yfir og stráið
hnetunum ofan á.