Morgunblaðið - 24.03.2001, Qupperneq 75
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 75
Yfirhafnir
Útsala
50% afsláttur
Opið laugardag
frá kl. 10—16
Mörkinni 6,
sími 588 5518
Síðustu
dagar
Innilegar þakkir til allra, sem glöddu mig í tilefni
af 100 ára afmæli mínu 21. febrúar 2001 með
gjöfum, skeytum og heimsóknum.
Guð blessi ykkur öll.
Herdís Bjarnadóttir,
Sjúkrahúsi Hvammstanga.
Full búð af glæsilegum vörum
Antik&úr
Bæjarlind 1- 3
Opið: Laugardag frá kl. 11-16, sunnudag 13-16 og
virka daga 11-18. Sími 544 2090
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
HRÚTUR
Afmælisbarn dagsins:
Þú átt dálítið bágt með þig í
fjölmenni og þarft að taka
þér tak svo að þú getir um-
gengist annað fólk af öryggi.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það ætti ekkert að standa í
veginum fyrir þér svo fram-
arlega sem þú hefur unnið
heimavinnuna þína og þekkir
málið sem um er að ræða út
og inn.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Mundu að þú berð ábyrgð á
öllum þínum mistökum en
hinsvegar er óþarfi að ganga
um með hauspoka þeirra
vegna. Lærðu bara af þeim
svo að þau hendi þig ekki aft-
ur.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Oft er það svo að lausn erfiðra
mála er sáraeinföld og eftir á
finnst manni hún liggja í aug-
um uppi. Vandinn er bara að
koma auga á hana.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú þarft að læra að fara með
það vald sem þér er fengið.
Hin fullkomna valdbeiting er
nefnilega sú að þurfa ekki að
beita valdinu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Eitthvað verður til þess að
setja allt á annan endann hjá
þér í dag. Láttu það samt ekki
setja þig úr jafnvægi heldur
bregstu við og leystu málin.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Streitan er farin að taka sinn
toll svo nú þarftu að staldra
við og athuga heilsufar þitt
því takmarkið er heilbrigð sál
í hraustum líkama.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Gættu þín að ganga ekki of
langt þegar vinir þínir vilja
gera þér greiða. Slíkt á maður
að nota sparlega og helst ekki
nema til hálfs hverju sinni.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Einbeittu þér að einhverju
uppbyggilegu í stað þess að
sitja og naga neglurnar yfir
glötuðum tækifærum. Þau
koma hvort eð er ekkert aft-
ur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Taktu þér tíma til þess að
hugleiða hvað reynsla síðustu
daga hefur kennt þér. Það
sem í fyrstu leit út fyrir að
vera hrikalegt áfall hefur
reynst þér til blessunar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Kastaðu frá þér gömlum for-
dómum og gakktu opnum
huga til móts við framtíðina.
Það væri ekki verra að taka
upp þráðinn við gamlan vin.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Reyndu ekki að slá ryki í aug-
un á fólki. Þú stjórnast ekki
aðeins af góðvild heldur kem-
urðu líka til með að hafa
hagnað af fyrirtækinu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Sýndu þeim leyndarmálum
sem þér hefur verið trúað fyr-
ir fyllstu virðingu og geymdu
þau hjá þér. Sá eini sem tapar
á lausmælgi ert þú sjálfur.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
ALLAR VILDU MEYJARNAR
Allar vildu meyjarnar
eiga hann,
en ástina sína
hann aldrei fann.
Hann kyssti fleiri en eina,
hann kyssti fleiri en tvær;
hann kyssti þær allar,
– svo kvaddi hann þær.
Þá, sem hann gat elskað,
hann aldrei fann,
en allar vildu meyjarnar
eiga hann.
Davíð Stefánsson.
EFTIR fimlegar skylming-
ar suðurs í sæti sagnhafa
og austurs í vörninni er
spurning dagsins þessi:
Hvor fer með sigur af
hólmi?
Austur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ D2
♥ K64
♦ D10983
♣ 962
Vestur Austur
♠ G10985 ♠ K74
♥ 52 ♥ Á987
♦ 72 ♦ K65
♣10843 ♣KG7
Suður
♠ Á63
♥ DG103
♦ ÁG4
♣ÁD5
Vestur Norður Austur Suður
– – 1 lauf Dobl *
Pass 1 tígull Pass 1 grand *
Pass 3 grönd Allir pass
* Með því að dobla fyrst
og segja svo grand við lág-
markssvari makkers sýnir
suður jafna skiptingu og
18–20 punkta.
Vestur spilar út spaða-
gosa og fyrstu slagirnir
spila sig sjálfir. Sagnhafi
reynir drottninguna, en
dúkkar kónginn og aftur
spaða í öðrum slag, en fær
þriðja slaginn á spaðaás.
Vill lesandinn taka afstöðu
með sagnhafa eða vörninni
áður en lengra er haldið?
Suður byrjar á því að
fara í hjartað – spilar
drottningunni og svo gos-
anum. Hann vonast til að
austur taki með ásnum, en
austur gefur ekki höggstað
á sér og dúkkar (enda væri
spilinu strax lokið með
sigri sagnhafa ef hann
kæmist inn á hjartakóng til
að svína tvisvar í tígli og
einu sinni í laufi). En
þriðja hjartaslaginn tekur
austur með ásnum. Hann
íhugar að spila laufi, en vill
ekki gefa sagnhafa fría
svíningu og sendir hann
heim á hjartatíuna. Ná-
kvæm vörn.
En nú á suður kost á fal-
legri fléttu: Hann spilar
tígulgosa og yfirdrepur
með drottningu. Þetta er
leikur sem austur getur
ekki svarað: Ef hann drep-
ur fást fjórir slagir á tígul,
svo hann er tilneyddur að
gefa. Þessa einu innkomu
blinds notar sagnhafi til að
spila tígultíu og svína.
Austur má ekki leggja á af
augljósum ástæðum og tíg-
ultía blinds heldur slagn-
um. Þá á aðeins eftir að
veita austri náðarstuðið
með því að svína laufd-
rottningunni og þakka um
leið fyrir hetjulega baráttu.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Árnað heilla
50 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 24.
mars, verður fimmtug Em-
ilía Kjærnested, Grund-
arási 4, Reykjavík. Eigin-
maður hennar er Karl
Stefán Hannesson. Þau eru
að heiman í dag.
EINN af fjölmörgum er-
lendum skákmeisturum
sem komu til landsins til að
taka þátt í Íslandsmóti
skákfélaga var ástralski
stórmeistarinn Ian Rogers
(2529). Hann tefldi líkt og í
fyrra fyrir Taflfélag Garða-
bæjar. Ekki kom það þó í
veg fyrir fall þeirra
Garðbæinga í aðra deild. Í
stöðunni hafði sá ástralski
hvítt gegn íslenskum koll-
ega sínum Þresti Þórhalls-
syni (2465). 21. Bxe6! fxe6
22. Dxe6 Bd6
23. Re5!
Bxe5 24.
dxe5 c5 25.
f3 Í kjölfar
mannsfórnar-
innar er kom-
in upp skond-
in staða þar
sem svartur
er algerlega
bundinn í
báða skó.
Hann reyndi
að létta á
stöðunni með
uppskiptum
drottningum
en þá komst
frípeð hvíts á fleygiferð.
25... Dc6 26. Dxc6 Bxc6 27.
e6 Rb8 28. e7 Hde8 Ekki
hefði stoðað að leika 28...
Hxd1 þar sem eftir 29.
Hxd1 Bxa4 30. Hd8 He8 31.
Rf6 stendur hvítur með
pálmann í höndunum. 29.
Rf6 Kg7 30. Hd6 Kf7?! 30...
Bxa4 hefði verið fýsilegra.
Staða svarts verður nú von-
laus. 31. Rxg8 Hxg8 32. b3
He8 33. Hh6 Kg7 34. Hhe6
Kf7 35. c4 Bd7 36. Hxb6
Bc6 37. Hd1 Ba8 38. Hd8
Rc6 39. Hxa8! Hxa8 40.
Hxc6 og svartur gafst upp.
C-sveit skákfélags Grand-
rokks sigraði í 4. deild og
tryggði sér þar með sæti í
þriðju deild að ári.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Hlutavelta
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu til styrktar Rauða
krossi Íslands og söfnuðu 445 kr. Þær heita Bryndís M.
Kristjánsdóttir, Ingibjörg G. Jónsdóttir og Bergrós Krist-
jánsdóttir.
Landsliðsmál kvenna
Nýlega tók stjórn Bridssambands
Íslands þá ákvörðun að senda ekki
kvennalið á Evrópumótið í sumar.
Er það vissulega miður en stjórnin
ákvað jafnframt að skipa nefnd sem
á að vinna að því að sem bestur ár-
angur náist í alþjóðakeppni. Í nefnd-
inni voru skipuð: Páll Bergsson for-
maður, Ragnar Hermannsson og
Valgerður Kristjónsdóttir.
Nefndin hóf störf í janúar og hef-
ur nokkuð frjálsar hendur um fram-
kvæmd. Nú, eftir nokkra fundi, hef-
ur verið tekin ákvörðun um að gera
áætlun sem nær fram að næsta
Norðurlandamóti árið 2002, væntan-
lega í Júní. Tímanum verður skipt í
þrennt.
Mars til ágúst 2001. Allstórum
hópi kvenna verður gefinn kostur á
því að taka þátt í starfi sem felur í
sér mánaðarlega fundi. 26. mars
verður haldinn kynningarfundur í
Þönglabakka kl. 19.30 þar sem nán-
ar verður skýrt frá verkefnum en
þau munu meðal annars fela í sér:
farið yfir vörnina, útspil o.fl.: ein-
staklingsverkefni (heimavinna),
öðru hvoru verður fenginn fyrirles-
ari til að fjalla um ákveðin atriði
spilsins, o.fl. o.fl.
2) September til desember 2001.
Fyrirliði skipaður. Valin 6 pör í þétt-
ara prógramm en stærri hópi gefinn
kostur á að vera í stuðningsliði með
fleiri verkefnum og jafnframt spila-
æfingum (gæti orðið einu sinni í
mánuði) þar sem spil kvöldsins er
skoðuð og rædd.
3) Janúar til júní 2002. Valið
þriggja para landslið til farar á
Norðurlandamót. Mikil vinna.
Áframhaldandi starf stuðningsliðs.
Eins og áður sagði verður kynn-
ingarfundur um landsliðsmál
kvenna í Þönglabakkanum nk.
mánudagskvöld þar sem málin verða
nánar skýrð.
BRIDS
U m s j ó n A r n ó r G .
R a g n a r s s o n
DAGBÓK
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði Glæsibæ fimmtud. 15. mars. 22
pör. Meðalskor 216 stig.
Árangur N-S
Björn E. Péturss. – Hilmar Ólafss. 263
Jón Stefánss. - Sæmundur Björnss. 260
Viggó Nordquist – Tómas Jóhannss. 230
Árangur A-V
Þorsteinn Laufd. – Magnús Halldórss. 263
Alda Hansen – Margrét Margeirsd. 257
Eysteinn Einarss. – Guðlaugur Sveinss. 252
Tvímenningskeppni spiluð mánud.
19. mars. 21 par. Meðalskor 216 stig.
Árangur N-S
Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 260
Halldór Magnúss. – Þórður Björnss. 238
Ólafur Ingvarss. – Jóhann Lútherss. 225
Fróði B. Pálss. – Þórarinn Árnas. 225
Árangur A-V
Jón Stefánss. – Sæmundur Björnss. 264
Þorsteinn Laufdal – Magnús Halldórss. 255
Hannes Ingibergss. – Albert Þorsteinss. 229
22 pör í Gullsmára
Eldri borgarar spiluðu tvímenn-
ing á tólf borðum í Gullsmára 13
fimmtudaginn 22. marz. Miðlungur
var 220. Beztum árangri náðu:
NS
Dóra Friðleifsd. – Guðjón Ottóss. 311
Guðrún Pálsd. – Sigurður Pálss. 247
Þórhildur Magnúsd. – Helga Helgad. 246
AV
Jóhanna Jónsd. – Magnús Gíslas. 258
Valdimar Hjartars. – Björn Bjarnas. 242
Heiður Gestsd. – Unnur Jónsd. 241
Bridsdeild FEBK í Gullsmára
spilar þar alla mánudaga og fimmtu-
daga. Skráning kl. 12.45.
Bridsfélag Kópavogs
Fimmtudaginn 22. mars lauk
tveggja kvölda Board a match-sveit-
arkeppni með tvímenningsútreikn-
ingi og fóru leikar þannig:
1. Sv. Jóns Steinars Ingólfss. 67
2. Sv. Þróunar 63
3. Sv. Þorsteins Berg 57
4. Sv. Sigurðar Sigurjónss. 56
Með Jóni Steinari spiluðu Guð-
björn Þórðarson, Jens G. Jensson og
Bryndís Þorsteinsdóttir.
Fimmtudaginn 29. mars hefst
þriggja kvölda Butler-tvímenningur
í boði 11–11-verslananna og eru
verðlaunin glæsilegar matarkörfur.
Tvö efstu sætin gefa rétt til að
vera fulltrúar Bridsfélags Kópavogs
í kjördæmakeppni BSÍ sem verður
haldin í Borgarnesi.
Spilað er í Þinghóli í Hamraborg-
inni og eru allir velkomnir.
Spilamennska hefst kl. 19.45.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík fimm daga vikunnar