Morgunblaðið - 29.03.2001, Side 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 29. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞESSI möstur sem gnæfa yfir
hæstu tré í fjöskyldugarðinum í
Laugardal eru hluti af sjóræn-
ingjaskipi sem þar er að rísa. Sex
manns vinna nú hörðum höndum
að því að smíða skipið en það er
meðal nýjunga sem áætlað er að
taka í notkun þegar garðurinn
verður opnaður fyrir sumarið
þann 15. maí næstkomandi. Dugg-
an er ekki af verri gerðinni og
geta „sjóræningjar“ á öllum aldri
skemmt sér í sérstökum renni-
brautum og göngum sem munu
liggja þvert og endilangt um
fleyið. Þá verður sérstakur land-
gangur fyrir hjólastóla svo allir
geti tekið þátt í fjörinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sjóræningjar
í Laugardalnum
UM 0,6% Íslendinga á aldrinum 16
til 75 ára, eða um 1.700 manns, eru
haldnir spilafíkn að því er fram
kemur í rannsókn sem fyrirtækið
Íslenskir söfnunarkassar stóð fyrir
og framkvæmd var í lok síðasta
árs. Að sögn sögn Sigrúnar Árna-
dóttur, stjórnarformanns Ís-
lenskra söfnunarkassa, er þetta
hlutfall mun lægra heldur en búist
hafði verið við, en til samanburðar
eru um 0,8% Bandaríkjamanna
haldnir spilafíkn.
„Þetta er í fyrsta skipti sem
svona rannsókn fer fram en okkur
þótti orðið tímabært að afla hald-
bærra upplýsinga um það hvernig
þessi markaður er,“ sagði Sigrún.
„Ekki síst vegna þess að það hefur
verið slegið upp ýmsum tölum um
fjölda spilafíkla án þess að það hafi
nokkurn tímann legið fyrir ein-
hverjar rannsóknir á þessu sviði,
menn hafa jafnvel talað um að
15.000 Íslendingar væru haldnir
spilafíkn.“
Um 63% hafa spilað
í spilakössum
Fyrirtækið Íslenskir söfnunar-
kassar, sem stofnað var árið 1994
um rekstur söfnunarkassa Rauða
Kross Íslands, SÁÁ og Slysavarn-
arfélagsins Landsbjargar, stóð
fyrir rannsókninni, eins og áður
sagði. Í rannsókninni var hins veg-
ar ekki gerður greinarmunur á
spilakössum Íslenskra söfnunar-
kassa og Háskóla Íslands.
Rannsóknin, sem framkvæmd
var í október og nóvember á síð-
asta ári, byggist á sams konar
rannsókn sem bandarísk yfirvöld
létu gera árið 1998. Markmiðið var
að rannsaka umfang og áhættu-
hegðun tengda ýmsum leikjum þar
sem spilað er með peninga. Með
rannsókninni var reynt að fá heild-
stæða mynd af spilahegðun Íslend-
inga, sem og að skoða viðhorf
þeirra til löglegra happdrætta og
mæla útbreiðslu spilafíknar.
Rannsóknin, sem var símakönn-
un, var framkvæmd af Gallup og
unnin undir stjórn Dr. Stowe
Shoemaker sem er aðstoðarpró-
fessor við Háskólann í Las Vegas.
Úrtakið var 1.500 manns á aldr-
inum 16 til 75 ára og var svarhlut-
fallið 70,5%.
Könnunin sýndi að um 63% Ís-
lendinga hafa einhvern tíma spilað
í spilakössum. Sigrún sagði að því
hefði gjarnan verið haldið fram að
þeir sem spiluðu væru með lágar
meðaltekjur en að könnunin hefði
sýnt að það væri ekki rétt því
Íslenskir söfnunarkassar kynna rannsókn á spilahegðun
Um 1.700 Íslending-
ar haldnir spilafíkn
!
" #$
%
$
$
" #$
%
!
&
&
meðaltekjur þeirra væru um 150
þúsund krónur. Könnunin leiddi í
ljós að flestir svarenda höfðu tekið
þátt í Lottói eða um 89,4% Íslend-
inga og næstflestir höfðu spilað í
spilakössum eða 63% eins og áður
sagði. Þá höfðu um 29,5% tekið
þátt í Íslenskum getraunum eða
Lengjunni, 17,9% höfðu spilað í
bingói, 14,3% í leikjaveðmálum en
undir þann flokk falla einkaveðmál
eða peningaspil meðal kunningja
og 0,5% höfðu tekið þátt leikjum á
Netinu.
Aldurstakmark
verður hækkað í 18 ár
Sigrún sagði að þótt næstflestir
hefðu einhvern tímann spilað í
spilakössum hefði fólk að meðaltali
tapað minnst í þeim síðast þegar
það hefði tekið þátt eða um 287
krónum.
„Við áttum satt að segja von á
því að þessi tala væri hærri miðað
við þá umræðu sem hefur verið í
gangi.“
Sigrún sagði að þegar aðrar teg-
undir happdrætta eða leikja væru
skoðaðar kæmi ljós að fólk tapaði
mestu í leikjum á Netinu og í
leikjaveðmálum, eða rúmlega 1.700
krónum.
Sigrún sagði ánægjulegt að sjá
að níu af hverjum 10 Íslendingum
eru jákvæðir eða mjög jákvæðir
gagnvart því að ágóði af löglegum
happdrættum renni til góðgerða-
stofnana. Þá sagði hún að um
helmingur teldi að lögleg happ-
drætti hefðu góð áhrif á íslenskt
samfélag . Um 24% teldu þau hafa
slæm áhrif og um 27 sögðu þau
hvorki hafa góð né slæm áhrif.
Til þess að greina áráttukennda
spilahegðun og spilafíkn var not-
aðar sérstakur greiningarstaðall
sem að sögn Sigrúnar er viður-
kenndur af geðlæknum og sálfræð-
ingum. Samkvæmt staðlinum er
fólk greint í fjóra flokka. Í fyrsta
lagi þá sem eru í lágmarksáhættu
sem voru 91% Íslendinga. Í öðru
lagi þá sem er hætt við áráttu sem
voru 7,7%, í þriðja lagi þá sem
haldnir eru spilaáráttu sem voru
0,7% og í fjórða lagi þá sem haldn-
ir eru spilafíkn sem voru 0,6% Ís-
lendinga, eins og áður sagði.
Samkvæmt rannsókninni eru
8,5% þeirra sem stunduðu einka-
leiki og leikjaveðmál á síðasta ári
haldnir spilafíkn. Sambærileg tala
fyrir bingó er 4,5%, Íslenskar get-
raunir/Lengjuna 3,9%, þá sem
spiluðu í spilakössum 2,2% og þá
sem keyptu Lottó 1%.
Magnús Snæbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Íslenskra söfnunar-
kassa, sagði að út frá rannsókninni
hefði verið mótuð stefna í ábyrg-
um spilarekstri í þeim tilgangi að
hindra enn frekar slæmar afleið-
ingar spilunar. Hann sagði að
ákveðið hefði verið að hækka ald-
urstakmark úr 16 árum í 18, opna
hjálparlínu fyrir þá sem telja sig
eiga við áráttukennda spilahegðun
að stríða og gefa út bæklinga sem
verða til staðar við spilakassana.
BJÖRGUNARSVEITIN á Höfn í
Hornafirði var kalluð til aðstoðar
níu manns á tveim jeppum á
Vatnajökli á þriðjudagskvöld. Þar
voru á ferð þrír Íslendingar með
sex þýska ferðamenn á vegum
ferðaskrifstofunnar Katla Travel.
Ferðalangarnir hringdu í lög-
regluna á Höfn um klukkan 17 á
þriðjudag þegar jepparnir voru
orðnir eldsneytislitlir, en þá voru
þeir staddir nokkra km ofan við
þjónustumiðstöðina Jöklasel, við
rætur Skálafellsjökuls í austan-
verðum Vatnajökli. Lögreglan
gerði björgunarsveitinni viðvart,
sem brást við með því að koma til
þeirra eldsneyti og ryðja leiðina
frá Jöklaseli niður á þjóðveg, 16
km kafla, með jarðýtu. Veður var
gott á þessum slóðum að sögn
björgunarmanna en kafdjúpur
snjór hafði tafið för fólksins meir
en búist var við með þeim afleið-
ingum að mjög gekk á eldsneyt-
isbirgðirnar. Fólkið komst síðan í
Freysnes um klukkan 4 aðfaranótt
miðvikudags og gisti þar.
Hættu við för vegna
stormviðvörunar
Ferð fólksins hófst í Reykjavík
á föstudag og var ferðinni heitið til
Egilsstaða með viðkomu á nokkr-
um stöðum á hálendinu. Fólkið var
á leið inn að Snæfelli frá Gríms-
vötnum þegar stormviðvörun var
gefin út á þriðjudag og hætti það
þá við för sína í Snæfell og ákvað
að halda suður eftir jökli að Jökla-
seli. „Við áttum að vera stödd í
Snæfelli þegar stormurinn kæmi
en vildum ekki hætta á að verða
veðurteppt þar og ákváðum því að
snúa við út af slæmri spá og
þungu færi. Við töldum víst að við
myndum lenda í skárra færi þegar
sunnar drægi en sú varð ekki
reyndin,“ sagði Hlynur Lárusson
bifreiðastjóri. Að sögn hans var
enginn í hættu og ennfremur
stöðvuðust jepparnir aldrei,
hvorki vegna veðurs, færis né
eldsneytisleysis, en ljóst var að
vegna þungs færis myndi elds-
neytið ekki duga alla leið og því
var þörf á aðstoð.
Jeppamönnum var
hjálpað á Vatnajökli
ELDUR kviknaði í Antoni GK-58,
sem er 12 tonna plastbátur, þar sem
hann lá við bryggju í Grindavíkur-
höfn í gærmorgun.
Að sögn lögreglukom eldurinn
upp í stýrishúsi og skemmdist bát-
urinn töluvert í eldinum. Tilkynning
barst um eldinn laust fyrir klukkan
hálfsex en Slökkviliðið í Grindavík
lauk slökkvistörfum um klukkan
hálfsjö. Báturinn var mannlaus þeg-
ar eldurinn kom upp.
Eldur í báti í
Grindavíkurhöfn