Morgunblaðið - 29.03.2001, Qupperneq 22
ERLENT
22 FIMMTUDAGUR 29. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ALEXEJ Kúdrín, fjármálaráð-
herra og aðstoðarforsætisráð-
herra Rússlands, sagði í gær að
rússneska stjórnin hefði ákveð-
ið að undirrita ekki eins árs
samning við Alþjóðagjaldeyris-
sjóðinn, IMF.
Kúdrín sagði að Rússar
myndu ekki þurfa á fjárhags-
aðstoð að halda á árinu og vildu
ekki vera undir „stöðugu eftir-
liti IMF“. Hann bætti þó við að
stjórnin hygðist halda áfram
viðræðum um þriggja ára sam-
starfssamning við stofnunina.
Orkugjöld
hækkuð í
Kaliforníu
YFIRVÖLD í Kaliforníu
ákváðu í fyrradag að hækka
raforkugjöld til að afstýra
orkukreppu í ríkinu og gert er
ráð fyrir því að rafmagnsreikn-
ingar allt að 25 milljóna Kali-
forníubúa hækki.
Meginmarkmiðið með hækk-
uninni er að hvetja íbúana til að
draga úr orkunotkun sinni.
Orkugjöld fátækustu íbúanna
haldast óbreytt en reikningar
þeirra sem nota mikla orku
hækka um allt að 36%.
Meirihluti
Eista andvíg-
ur ESB
RÚMUR helmingur Eista, eða
51%, er andvígur því að Eist-
land gangi í Evrópusambandið,
samkvæmt viðhorfskönnun
sem birt var í gær.
Aðeins 37% aðspurðra sögð-
ust vera hlynnt því að landið
fengi aðild að ESB. Í samskon-
ar könnun í febrúar voru 45%
Eista hlynnt aðild en 46% and-
víg.
Neikvæð umræða um ESB,
einkum um gin- og klaufaveik-
ina og kúariðufárið, er talin
hafa stuðlað að aukinni and-
stöðu við aðild Eistlands að
sambandinu.
Norðmenn
auki fjárfest-
ingar í þró-
unarlöndum
„GILDANEFNDIN“ svokall-
aða, sem stofnuð var til að
stuðla að bættu siðferði norsku
þjóðarinnar, hefur birt loka-
skýrslu sína og er þar lagt til að
Norðmenn noti olíuauð sinn til
að auka fjárfestingar í þróun-
arlöndum. Nefndin vill að 10%
af hreinum tekjum olíusjóðsins
verði notuð í þessu skyni.
Anne Kristin Sydnes, þróun-
armálaráðherra norsku stjórn-
arinnar, sagði að tillagan væri
áhugaverð en áhættan, sem
fylgdi auknum fjárfestingum í
þróunarlöndunum, kynni að
vera of mikil til að þær sam-
ræmdust reglum sem þingið
hefur sett um ávöxtun olíu-
sjóðsins.
Kjell Magne Bondevik stofn-
aði nefndina fyrir þremur árum
þegar hann var forsætisráð-
herra, en 49 manns úr ýmsum
stéttum eiga sæti í henni.
STUTT
Rússar
vilja ekki
samning
við IMF
VLADIMÍR Pútín Rússlandsforseti
gerði í gær fyrstu breytingarnar á
ríkisstjórn sinni, er hann skipaði
meðal annars nýjan varnarmálaráð-
herra. Við embættinu tekur Sergei
Ívanov, sem var áður yfirmaður
rússneska þjóðaröryggisráðsins, en
hann er fyrsti óbreytti borgarinn til
að setjast í stól varnarmálaráð-
herra.
Sergei Ívanov er fyrrverandi
starfsmaður sovésku leyniþjónust-
unnar (KGB), rétt eins og Pútín, en
hann er einn nánasti bandamaður
forsetans. „Rússland þarfnast nú-
tímalegs herafla sem er fær um
snör og skilvirk viðbrögð við þeirri
ógn sem nú steðjar að landi okkar,“
sagði Ívanov eftir útnefninguna í
gær. Hann kvaðst myndu ráðast í
umbætur í hermálum, sem hann
hefði lagt drög að sem yfirmaður
þjóðaröryggisráðsins. Hét hann því
að hækka laun hermanna og beita
sér fyrir auknum fjárveitingum til
hersins.
Kúdelina Ljúbov, fyrrverandi að-
stoðarráðherra í fjármálaráðuneyt-
inu, tekur við embætti aðstoðar-
varnarmálaráðherra, en hún er
fyrsta konan til að gegna stöðu ráð-
herra í varnarmálaráðuneytinu.
Pútín skipaði einnig nýjan innan-
ríkisráðherra, Borís Gryzlov. Hann
mun bera ábyrgð á baráttunni gegn
skipulagðri glæpastarfsemi og
stjórna hernaðaraðgerðum gegn að-
skilnaðarsinnuðum skæruliðum í
Tsjetsjníu. Gryzlov fer fyrir þing-
flokki Einingarflokksins, en hann
er fremur lítt þekktur stjórnmála-
maður. Þá verður Alexander Rúmj-
antsev ráðherra mála er lúta að raf-
orkuframleiðslu í kjarnorkuverum.
AFP-fréttastofan hafði eftir
emættismönnum í Kreml að þetta
væri aðeins upphafið að uppstokkun
Pútíns á stjórninni, en flestir ráð-
herranna hafa setið í embætti síðan
Borís Jeltsín var forseti.
Pútín stokk-
ar upp í
stjórninni
Reuters
Vladimír Pútín kynnir uppstokkun á ríkisstjórn sinni í gær. Við hlið
hans stendur Sergei Ívanov, nýr varnarmálaráðherra.
Moskvu. Reuters.
Óbreyttur borgari varnarmálaráðherra í fyrsta skipti í sögu Rússlands
AUSTURRÍSKI
hægrimaðurinn
Jörg Haider gaf í
gær í skyn, að
hann kynni að
hætta stuðningi
við ríkisstjórn
Frelsisflokksins
(FPÖ) og Þjóðar-
flokksins (ÖVP)
sem nú hefur
starfað í rúmt ár.
Gerði Haider, sem
sagði af sér sem
formaður FPÖ í
fyrravor, „tækni-
veldislegar“ að-
gerðir stjórnar-
innar ábyrgar
fyrir ósigri FPÖ í
borgarstjórnar-
kosningum sem
fram fóru í Vínarborg um síðustu
helgi.
„Haldi stjórnin þessum tækni-
kratahætti áfram
mun ég ekki verða
tiltækur í Vín,“
sagði hann í
fyrstu opinberu
ummælum sínum
um niðurstöðu
kosninganna á
blaðamannafundi í
Klagenfurt í gær.
Þótt Haider sé
hvorki formlegur
leiðtogi flokksins
lengur né eigi
sæti í ríkisstjórn-
inni – hann er
„aðeins“ fylkis-
stjóri í Kärnten –
eru áhrif hans
mikil í FPÖ og
hann tók virkan
þátt í kosninga-
baráttunni fyrir kosningarnar í höf-
uðborginni. Sagðist Haider harma,
að þær erfiðu kerfisumbætur sem
ríkisstjórnin hafi séð sig knúna til
að hrinda í framkvæmd skyldu hafa
orðið til að ræna FPÖ fylgi. Kosn-
ingarnar í Vín hefðu miklu fremur
átt að snúast um verk sitjandi
borgarstjórnarmeirihluta jafnaðar-
manna. Vín væri eina fylkið í Aust-
urríki þar sem atvinnuleysi og
félagsleg vandamál færu vaxandi. Í
kosningunum á sunnudaginn fékk
FPÖ rúm 20% atkvæða í stað
þeirra 28% sem hann fékk í síðustu
kosningum.
Stjórnmálaskýrendur höfðu spáð
því, að slæm útreið FPÖ í Vín-
arkosningunum, þriðju héraðskosn-
ingunum í röð þar sem flokkurinn
tapar fylgi, myndi auka á spennu
milli Haiders og ríkisstjórnarinnar,
sem í sitja sex fulltrúar Frelsis-
flokksins.
AP
Jörg Haider ræðir við frétta-
menn í Klagenfurt í gær.
Haider hótar
stjórninni í Vín
Vínarborg. AFP.
ST. bernharðshundar verða sífellt
vinsælli til átu í Kína og þykir kjöt-
ið af þeim afar bragðgott. Sviss-
lendingar eru hins vegar yfir sig
hneykslaðir á þessu athæfi Kín-
verja enda eru st. bernharðs-
hundar órofa tengdir Sviss í hug-
um margra og þar njóta þeir
mikillar hylli.
Hundaræktarbændur í Kína hafa
brugðist við vaxandi spurn eftir
hundakjöti með því að auka rækt-
un á st. bernharðshundum þar sem
þeir eru stórir og kjötmiklir, þola
sjúkdóma betur en aðrar tegundir
og fjölga sér hratt og mikið. Rík-
isrekin st. bernharðshundarækt-
unarstöð í borginni Shenyang í
norðausturhluta Kína hefur nýlega
gefið út kynningarmyndband þar
sem fram kemur að þessi tegund
hunda sé upplögð til eldis þar sem
þeir séu skapgóðir og bíti ekki.
Fullyrt er að fjárfesting í ræktun
st. bernharðshunda „sé arðbærari
en í eldi svína eða búpenings.“
Almenningur og dýravernd-
unarsinnar í Sviss hafa brugðist
harðlega við fréttum af st. bern-
harðshundaátinu í Kína. Samtök
sem nefnast SOS St. Bernard Int-
ernational og hafa aðsetur í Genf
hafa afhent svissneskum stjórn-
völdum undirskriftalista með nöfn-
um 11 þúsund hundaeigenda og
-ræktenda þar sem þess er krafist
að hömlur verði settar á sölu st.
bernharðshunda til annarra landa.
Fleiri alþjóðleg dýravernd-
unarsamtök hafa tekið í sama
streng.
Hundaát hefur lengi tíðkast í
Kína og þykir hundakjöt mesta
lostæti. Reuters-fréttastofan hafði
í gær eftir gesti á kínversk-
kóreskum veitingastað í Peking,
sem sérhæfir sig í réttum úr
hundakjöti, að kínverskum hunda-
eigendum væri mjög annt um
gæludýrin sín og myndu aldrei
leggja sér þau til munns. „En þess-
ir hundar sem hér eru matreiddir
eru sérstaklega ræktaðir til mann-
eldis – rétt eins og kjúklingar,
kindur og kýr – svo fólk hefur ekk-
ert samviskubit yfir því að borða
þá,“ sagði verkamaðurinn Zhang
Lei.
Morgunblaðið/Ómar
Svisslendingar
æfir yfir st. bern-
harðs-hundaáti
Peking. Reuters.