Morgunblaðið - 29.03.2001, Síða 62
FÓLK Í FRÉTTUM
62 FIMMTUDAGUR 29. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
UNDANFARIÐ
ár hafa þau Szymon
Kuran og Hafdís
Bjarnadóttir heillað
tónelskar sálir með
leik sínum á knæp-
um og göngugötum
hér heima og erlend-
is. Þau hafa flutt
landamæralausa
tónlist, afar tilfinn-
ingaríka, sem flokka
mætti undir hina
geðrænu stefnu sem
á vaxandi fylgi að
fagna meðal tónlist-
aráhugamanna hér-
lendis. Skömmu fyr-
ir aldamót sendi
dúettinn geðgóði,
sem reyndar hefur á
stundum verið
kvartett, frá sér
geisladisk sem hér
er til umfjöllunar og
ber hið markaðs-
væna nafn Live from
Reykjavík. Diskur-
inn hefur að geyma
upptökur á níu tón-
dæmum frá þremur hljómleikum sem
allir voru haldnir á síðastliðnu sumri.
Að gefnu tilefni tel ég ástæðu til að
geta þess sérstaklega að Kuran
Kompaní er ekki djasshljómsveit. Að
halda því fram væri svipað og að segja
Morgunblaðið vera flokksblað.
Tengslin eru vissulega til staðar en
áhrifin eru mun margþættari en svo
að Kompaníið verði básað af á þann
hátt sem sjálfskipaðra spekinga er
siður. Áhrif frá austur-evrópskri og
keltneskri þjóðlagahefð eru jafnvel
auðheyrðari en djassandinn; landa-
mæralaus list og áðurnefnd geðræna
eru þó lýsingarorðin sem mér þykir
helst hæfa er Kompaníið ber á góma,
en fyrst og síðast þá er tónlistin ein-
stök og þeirra.
Fyrsta tóndæmið á diskinum heitir
„Sagn“ og er afbragðssmíð eftir Liv
Greni og Gyro Uleberg. Útfærsla
þeirra Szymonar og Hafdísar er ægi-
fögur og einföld hljóðmyndin, sem
eingöngu er fyllt af fiðlu og gítar,
virkar opin en seiðandi. Stafrænar
seinkunarbrellur með skammsvörun
gefa hljóðfærunum aukið rými og
setja meiri spennu í hrynrænar leik-
fimisæfingar.
„Crash“, er næsta lag og jæja,
djassskotið. Valdimar K. Sigurjóns-
son leikur þekkilegan
göngubassa og hið
geðræna tvíeyki
spinnur af tilfinningu
yfir grunninn. „Crash“
situr ekki sterkt eftir
sem tónsmíð en er
áhrifamikið í návígi á
hljómleikastað. Það er
og notað sem eins kon-
ar rauður þráður í
gegnum þennan
hljómleikadisk í fjór-
um mismunandi út-
færslum. Það er þó til-
tæki sem að mínu viti
eldist heldur illa.
Þriðja lagið kallast
„Milli svefns og vöku“
og er Hafdísar. Ein-
hver miðaldastemmn-
ing er yfir smíðinni og
hinn keltneski blær er
notalegur.
Áðurnefndar seink-
unarbrellur er áber-
andi hér sem víðar og
gefa útsetningunni
viðeigandi flæði. Haf-
dís á afar góðan sóló
um miðbik lagsins og
Szymon leikur gullfallega sem í
ástandi því er titill lagsins gefur til
kynna.
Á eftir „Crash“, í útfærslu nr. 2, líð-
ur áfram ljóðræn smíð, „Fjöll“, eins
og draumur sem maður vill ekki
vakna upp frá. Flestir þurfa þó ein-
hvern tímann að yfirgefa drauma sína
og veruleikinn tekur þá oft kuldalega
á móti sálinni eins og ég upplifði við að
fá útfærslu nr. 3 á „Crash“ framan í
mig, í kjölfar hinnar fallegu fjalla-
smíðar.
Ópusinn á eftir hinum þriðja
árekstri kallast „Heim“ og er vel við
hæfi.
„Ástandið milli svefns og vöku“
hallast nær svefni á ný og ómstríðan
umvefur hlustir og sálu. Hafdís sýnir
snilldartakta á hljóðstyrksfetil og
samhljómur þeirra Szymons er sem
algjör. Verkið geislar af tóngáfu og
títtnefndri geðrænu. Sælan varir þó
ekki lengi því verkið er stutt og að því
loknu er maður enn á ný hrifinn til
veruleikans þar sem fjórða útgáfan af
„Crash“ vekur mann hratt og örugg-
lega. Stuttur er þó galsinn, góðu
heilli, og lokalagið, „Ditty“, leggur
mann til hvílu í hlýjum heimi drauma
á ný.
Live from Reykjavík er prýðileg
heimild um tvo af merkari hljómlist-
armönnum Íslands í dag, Hafdísi
Bjarnadóttur og Szymon Kuran.
Snilligáfa Szymons er þjóðinni löngu
kunn en færri þekkja Hafdísi sem á
komandi árum mun vafalaust vekja
mikla eftirtekt meðal tónlistaráhuga-
fólks. Diskur þessa heillandi tvíeykis
inniheldur mörg fögur og vel leikin
verk. Endurteknar útfærslur af
„Crash“ eru þó til vansa og hefði verið
vænlegra að leyfa fleiri verkum að líta
dagsins ljós. Þrátt fyrir smávægilega
hnökra í hljóðvinnslu þá er hljómur-
inn á diskinum hlýr og tilgerðarlaus.
Það er tónlist Kuran Kompaní líka.
Góða skemmtun!
Szymon Kuran og Hafdís
Bjarnadóttir skipa dúett-
inn Kuran Kompaní.
List án
landamæra
TÓNLIST
G e i s l a p l a t a
LIVE from Reykjavík, geisladiskur
dúettsins Kuran Kompaní. Dúettinn
skipa þau Szymon Kuran, fiðlu-
leikari og Hafdís Bjarnadóttir,
gítarleikari. Lögin voru hljóðrituð
hliðrænt af Ragnari Emilssyni á
Næsta bar og í Kaffileikhúsinu
síðastliðið sumar. Szymon og Haf-
dís sömdu efnið nema hvað Sagn er
eftir Liv Greni og Gyro Uleberg.
Ditty er svo byggt á Kanon eftir
Pachelbel. Valgeir Ísleifsson og
Jón Skuggi sáu um stafræna
eftirvinnslu. Valdimar Kolbeinn
Sigurjónsson leikur á
kontrabassa í „Crash“.
LIVE FROM REYKJAVIK
Orri Harðarson
)#+EG+: #) #?$#
+E1+: #) #?$#
)#+A+B !) #?$#
+I+B !) #?$#
Sýnt í Gamla bíói (í húsi Íslensku óperunnar)
Miðasala í síma 511 4200
og á Netinu - www.midavefur.is
Föstudag 30. mars kl. 20:00 - frumsýning, uppselt
Laugardag 31. mars kl. 23:00 - örfá sæti laus
Fimmtudag 5. apríl kl. 20:00 - nokkur sæti laus
Laugardag 7. apríl kl. 20:00 - örfá sæti laus
Laugardag 14. apríl kl. 20:00
25% afsláttur af mat fyrir og eft ir sýningu á Café Óperu.
Hópar: Hafið samband í síma 511 7060.
Nemendaleikhúsið
sýnir
STRÆTI
eftir Jim Cartwright
=>?;
4 !
Sýningar hefjast kl. 20.00
sýnir í Tjarnarbíói
Höfundar: Hjördís Hjartardóttir,
Ingibjörg Hjartardóttir
og Sigrún Óskarsdóttir.
Leikstjóri: Sigrún Valbergsdóttir.
Frumsýning laugardaginn 31. mars.
2. sýning fimmtudaginn 5. apríl.
3. sýning föstudaginn 6. apríl.
Sýningar hefjast kl. 20.00.
Miðapantanir allan sólarhringinn
í síma 551 2525.
Miðasala opin alla sýningardaga
frá kl. 19.00.
!" # $ 4 ! !" %
&
5/) !#
&
6 /) !#
!! #
!" '
$ 1 /) !#
!
1 /) !0) (
)
*
+ *
$ 40/) !"
.@/) !"
* " ,-%
6 ; !
.!/) !7
5"/) !0!%# .#
*/01*21*34+4!56/,+7#8*+41
9,!45,+7:,605/9;6
<<<
=
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sviðið kl. 20.00:
,0:1595*55:!6>?2+ >
3' ;A
.'#A"
. !A"
@
. @A"
.
;A"
A
51:+4/2;*7545
4(
">' #A
.>@A" %
&
.7>+!#A" %
&
.0>A" %
&
#;6:016,+0161BC >) ;
D
4 !A
.
E'+#4B2216+44 5 * &
.!A" !" %
&
!0
.@A" !" %
&
.
A" !"
. @A" !" %
&
;A" !" %
&
!0
&
Smíðaverkstæðið kl. 20.00:
,0:1595*55:!6>?2+ >
6' #A
.!A"
.@A"
+!#A"
A"
A"
7A"
Litla sviðið kl. 20.30:
>'.#5+4!>54 7
-% F$#
3' ;A !A .@A"2
-
<<<
)
G )
.) / !#
%
HI
AHJ.
H
AH
552 3000
Opið 12-18 virka daga
SNIGLAVEISLAN KL. 20
flyst í Loftkastala vegna mikillar aðsóknar
lau 21/4 örfá sæti laus
fim 26/4 nokkur sæti laus
sun 29/4
Á SAMA TÍMA SÍÐAR KL. 20
fös 6/4 örfá sæti laus
mið 11/4 nokkur sæti laus
lau 21/4 laus sæti
SJEIKSPÍR EING OG
HANN LEGGUR SIG KL. 20
lau 31/3 örfá sæti laus
lau 7/4 nokkur sæti laus
fös 27/4 nokkur sæti laus
Síðustu sýningar!
530 3030
Opið 12-18 virka daga
SNIGLAVEISLAN KL. 20
fim 29/3 UPPSELT
fös 30/3 UPPSELT
lau 31/3 kl. 16 UPPSELT, Aukasýn.
sun 1/4 UPPSELT
mið 4/4 UPPSELT
fim 5/4 UPPSELT
lau 7/4 UPPSELT
sun 8/4 UPPSELT
mið 11/4 UPPSELT
fim 12/4 UPPSELT - Skírdagur
Ath! Sýningar færast eftir 12/4 í Loftkastala
Á sýningardögum er miðasalan opin fram að
sýningu og um helgar opnar hún í viðkom-
andi leikhúsi kl. 14 ef sýning er um kvöldið.
Hópasala er í síma 530 3042 frá kl. 10-16
virka daga.
midasala@leik.is — www.leik.is
Stóra svið
SKÁLDANÓTT e. Hallgrím Helgason
Í KVÖLD: Fim 29. mars kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fös 6. apríl kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Lau 21. apríl kl. 19 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Fös 27. apríl kl. 20
AUKASÝNINGAR V. MIKILLAR
EFTIRSPURNAR
MENNINGARVERÐLAUN DV 2001
ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR!
BLÚNDUR & BLÁSÝRA e. Joseph
Kesselring
Fös 30. mars kl. 20 3. sýning - ÖRFÁ SÆTI
Lau 31. mars kl. 19 4. sýning - ÖRFÁ SÆTI
Lau 7. apríl kl. 19 5. sýning
MÓGLÍ e. Rudyard Kipling
Lau 31. mars kl 13 - UPPSELT
Sun 1.apríl kl 14 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Sun 8. apríl kl 14 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Sun 22. apríl kl 14 – ATH:Sýningin er túlkuð
á táknmáli
Sun 29. apríl kl 14
ÍD
KRAAK EEN OG KRAAK TWEE e. Jo
Strömgren
POCKET OCEAN e. Rui Horta
Sun 1. apríl kl. 20 – 5. sýning
Fim 5. apríl kl. 20 – 6. sýning
Litla svið
ABIGAIL HELDUR PARTÍ e. Mike Leigh
Í KVÖLD: Fim 29. mars kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
ALLRA SÍÐASTA SÝNING!
KONTRABASSINN e. Patrick Süskind
Í KVÖLD: Mið 28 mars kl 20 forsýning
miðaverð kr. 1000
Fös 30. marskl. 20 FRUMSÝNING - UPPSELT
Fim 5. apríl kl. 20 2. sýning - ÖRFÁ SÆTI
Lau 7. apríl kl. 19 3. sýning
Leikari:
Ellert A. Ingimundarson
Lýsing: Lárus Björnsson. Þýðing: Hafliði
Arngrímsson/Kjartan
Óskarsson. Leikmynd og búningar: Axel
Hallkell Jóhannesson. Leikstjórn:
KjartanRagnarsson.
ÖNDVEGISKONUR e. Werner Schwab
Sun 1. aprílkl. 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Sun 8. apríl kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Sun 22. apríl kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Sun 29.apríl kl. 20
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Í HLAÐVARPANUM
Föstudagur 30. mars kl. 19.00
Grískt kvöld
Eva - bersögull sjálfsvarnareinleikur
21. sýn. sun. 1. apríl kl. 21.00
22. sýn. þri. 3. apríl kl. 21 örfá sæti laus
23. sýn. þri. 10. apríl kl. 21.00
24. sýn. fim. 19. apríl kl. 21.00
25. sýn. lau. 21. apríl kl. 21.00
„...textinn er bæði skemmtilegur og sannur í allri
sinni tragí-kómík...ég skora á (konur) að fjöl-
menna og taka karlana með..." (SAB Mbl.)
?
$
&
+05*55/*/5
Leikfélag
Mosfellssveitar
Gamanleikritið
Á svið
Hið fúla fólskumorð
í Bæjarleikhúsinu, Mosfellsbæ
Leikstjóri Ingrid Jónsdóttir
Frumsýning fös. 30. mars kl. 20.00.
2. sýn. sun. 1. apríl kl. 20.00.
3. sýn. fös. 6. apríl kl. 20.00.
4. sýn. sun. 8. apríl kl. 20.00.
Miðaverð aðeins kr. 1.500.
Miðapantanir í síma 566 7788.