Morgunblaðið - 29.03.2001, Page 64
FÓLK Í FRÉTTUM
64 FIMMTUDAGUR 29. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SÍÐASTLIÐINN laugardag opnaði
í Gula húsinu sýningin Forrest eða
Frumskógur en það eru þau Asami
Kaburagi, Cécile Parcillié, Charl-
otte Williams, Julia Oschatz, Julia
Steinmann, Luigi Pixeddu, Manuel
Ruberto, Nguyen Viet Thaanh og
Verena Lettmayer sem eiga verk á
sýningunni. Þau eru öll skiptinemar
við LHÍ og segja hugmyndina að
sýningunni hafi verið sú að fá alla
skiptinemanna við Listaháskólann
til að sýna saman, bæði til að gera
þau sýnilegri í skólanum og einnig
til að hrista þau betur saman.
Þótt verk þeirra séu mjög ólík þá
segja þau að aðstæður þeirra séu
allar þær sömu og þau séu öll að
glíma við sömu vandamálin. Þau
segjast öll vera hálfheimilislaus
hérna á Íslandi en núna sé Gula
húsið orðið heimilið þeirra.
„Ég ákvað að sýna hérna í hús-
inum þegar ég kom hingað í fyrsta
skipti fyrir um 3 vikum,“ segir
Charlotte sem hefur haft veg og
vanda af skipulagningu sýning-
arinnar. „Ég taldi að það gæti orðið
gaman að sýna hér áður en ég færi
heim aftur. Þetta er líka frábært
tækifæri til að fá að sýna í öðru
landi.“
Skólinn og fólkið
Flest eru þau ánægð með skólann
en komu hingað til Íslands kannski
frekar út af landinu eða mannlífinu.
Skólinn hafi síðan komið þeim
ánægjulega á óvart. „Listaháskól-
inn hérna er mjög ólíkur skólanum
mínum,“ segir Charlotte en hún er
að læra í Englandi. „Ég er á öðru
ári og er í fimm vikna námskeiðum
hér, sem ég er alls ekki vön. Yf-
irleitt standa námskeiðin í skól-
anum mínum í marga mánuði og
sami kennarinn allan tímann en
hérna á allt að gerast mjög hratt og
það er kannski bara eitthvað sem
ég er óvön.“ Einnig fannst þeim öll-
um gott hversu ólíkir myndlist-
armenn eru að kenna og að hér sé
líka ungt fólk við kennslu en
reynsla þeirra sé að það sé eitthvað
sem tíðkast óvíða. „Mér finnst
sambandið milli nemanda og kenn-
ara hér vera mjög gott,“ segir Julia
sem kemur frá Þýskalandi. „Í skól-
anum mínum er mjög mikil áhersla
lögð á það að kennarar og nem-
endur séu á sitt hvoru planinu sem
mér þykir hálfgerður hroki, nokk-
uð sem ekki fyrirfinnst hér.
Stemmningin yfir kennslunni hér
er allt önnur og léttari.“
Það kom samt flestum í opna
skjöldu hvað nemendurnir vinna lít-
ið í skólanum og er gert að vinna
sjálfstætt í staðinn. „Vandinn við
það er sá að skortur á vinnuaðstöðu
getur komið niður á afköstunum,
auk þess sem maður saknar þess að
geta fylgst með vinnuferli samnem-
enda sinna. Þar að auki skortir til-
finnanlega vinnuandann sem er svo
nauðsynlegur í listaskólum. Þetta
er samt mjög mismunandi eftir
bekkjum og skipulagi námskeið-
anna,“ segir Charlotte.
Ástæðan fyrir þessu telur hóp-
urinn vera að hluta til þá að ekki sé
hægt að komast inn í skólann á
kvöldin og vinna fram eftir nóttu.
Nokkuð sem þau hafa vanist í sínum
heimalöndum. „Kannski er þetta
líka út af því að skólinn er ekki þar
sem fólkið er. Það eru fáir sem búa í
nágrenni við skólann og þangað er
lítið að sækja. Ég held að það séu
allir sammála um að staðsetning
skólans sé honum lítt til fram-
dráttar. Nær væri að hafa hann í
nágrenni við miðbæinn svo hann
gæti nýst betur og nemendur hefðu
eitthvað þangað að sækja annað en
tímana sem þeir verða að sækja.
Það er líka allt of mikið stólað á að
maður hafi eigin bíl til umráða til
að koma efnivið til og frá skólanum,
nokkuð sem er alveg ótrúlegt. Það
var mjög fyndið þegar við tókum
strætó hingað niður í miðbæ með öll
verkin sem eru á sýningunni hér í
Gula húsinu,“ segir Julia ákveðin.
Húsið handa öllum
Þau eru öll mjög þakklát fyrir
tækifærið að fá að sýna í Gula hús-
inu og finnst sérstaða þess vera
skemmtileg. „Það frábæra er að
þetta er ekki gallerí heldur venju-
legt hús,“ segir Charlotte. „Það gef-
ur svo mikla möguleika og ákveðið
frelsi sem gallerí veitir ekki. Sýn-
ingarstaður sem rekinn er af lista-
mönnum og er alveg frjáls og óháð-
ur öllu. Þetta framtak hefur hvatt
mig til að koma af stað svipuðum
gallerísrekstri í Englandi þar sem
ég bý. Þar eru virðuleg gallerí sem
þarf að borga fyrir að sýna í en
svona staður er eitthvað sem ætti
að vera í öllum borgum fyrir lista-
menn og aðra til að nota.“Gula hús-
ið er opið alla daga frá 15:00-18:00
og er síðasti sýningardagur sunnu-
dagurinn 1. apríl. Þess má geta að í
kvöld kl. 19:00 verður kvikmynda-
sýning í Gula húsinu á horni Hverf-
isgötu og Frakkastígs og á sama
tíma verður boðið upp á ítalskan
mat handa gestum.
Morgunblaðið/Jim Smart
Það er ekki laust við að erlenda listafólkið öfundi kollega sína af aðstöðunni sem þeir hafa í Gula húsinu.
Frumskógur
í Gula húsinu
Skiptinemar við Listaháskóla Íslands sýna í Gula húsinu
SVO virðist sem fátt hafi vakið meiri
athygli vestanhafs á afstaðinni Ósk-
arsverðlaunahátíð en kjóllinn bless-
aði sem Björk Guðmundsdóttir
klæddist, en hann var hannaður af
góðvini hennar frá Makedóníu,
Marjan Pejoski. Það vakti líka
óskipta athygli þegar hún í ofanálag
lyfti kjólnum og verpti eggi fyrir við-
stadda fjölmiðlamenn og áhorfendur
sem fylgdust með komu stjarnanna
að Shrine Auditorium-höllinni í Los
Angeles en eggið reyndist vera sam-
kvæmisveskið hennar. Fjölmiðlar
þar í landi hafa velt sér þessi lifandis
ósköp upp úr svanakjólnum frum-
lega og sýnist sitt hverjum.
„Það má segja að útgangurinn á
henni hafi valdið fjaðrafoki,“ sagði
Merle Ginsberg frá tímaritinu
Women’s Wear Daily. „Það er aldrei
neinn illa og óviðeigandi klæddur á
svona hátíðum og því er gaman þeg-
ar einhver reynir eitthvað nýtt og
hleypir lífi í tuskurnar.“
Heidi Oringer, tískusérfræðingur
ABC-sjónvarpsstöðvarinnar, var
ekki eins sæl með múnderinguna á
Björk sem hún segir hafa verið stór-
slys af versta tagi og hvorki nælon-
samfestingurinn sem hún klæddist
undir svaninum né egglaga sam-
kvæmisveskið hafi virkað.
Tískulögga skemmtanabransasíð-
unnar EOnline var hins vegar mun
jákvæðari í garð svanskjólsins og
segir hann hafa verið skemmtilega
öðruvísi og spyr hver þurfi á Cher að
halda ef Björk gengur rauða dreg-
ilinn. Spjallþættirnir vinsælu hafa
þar að auki gert sér mat úr upp-
ákomu Bjarkar og þótt margir telji
hana hafa farið yfir strikið eru flestir
sammála um að slíkt sé einmitt svo
nauðsynlegt til að hleypa lífi í annars
allt of íhaldssama samkomu.
Skopmynd þessi af Björk birtist nýlega á prenti vestanhafs og fer nú
manna á milli hérlendis í gegnum tölvupóst. Í talblöðrunni segir: „Láttu
ekki svona Björk. Þú ert glæsileg í þessum kjól.“
Svanurinn olli
fjaðrafoki
Mikið rætt um Björk vestanhafs