Morgunblaðið - 19.04.2001, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 19.04.2001, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ Myndband um íslenska fjárhundinn Útliti og eigin- leikum lýst ÚT ER komið mynd-band um íslenskafjárhundinn. Hundaræktarfélag Ís- lands gefur þetta mynd- band út. „En það er deild íslenska fjárhundsins, díf, sem sá um gerð mynd- bandsins,“ sagði Helga Finnsdóttir dýralæknir, sem er í stjórn díf. En hvaða tilgangi þjóna svona myndbönd? „Íslenski fjárhundurinn er eini þjóðarhundur Ís- lendinga. Hundaræktar- félag Íslands var stofnað 4. september 1969 af nokkrum hugsjónamönn- um sem beittu sér fyrir varðveislu og hreinræktun íslenska fjárhundsins, sem þá var talinn í veru- legri útrýmingarhættu. Árið 1979 var stofnuð sérdeild innan félags- ins, deild íslenska fjárhundsins, díf, sem hefur síðan borið ábyrgð á verndun stofnsins. Myndbandið er byggt á rætkunarmarkmiði hundsins, en í því er útliti og ein- kennum íslenska hundsins lýst, lund, vinnueiginleikum og fjöl- breyttum litbrigðum – ræktend- um og áhugamönnum, heima og erlendis til leiðbeiningar í leik og starfi.“ – Er íslenski fjárhundurinn sloppinn úr útrýmingarhættu? „Í dag teljum við að svo sé vegna markvissrar ræktunar. Stofninn er ekki mjög stór á Ís- landi, við teljum að það séu senni- lega ekki nema u.þ.b. 400 til 500 fjárhundar til á landinu. Vanda- málið þegar stofninn er svona lít- ill er hætta á of mikilli skyldleika- ræktun.“ – Hverjir eru helstu eiginleikar íslenska hundsins? „Honum er vakteðli eiginlegt og svo er hann auðvitað afskap- lega glaður og vingjarnlegur hundur – einstakur fjölskyldu- hundur vegna glaðlyndi síns og ljúfrar lundar. Það eru helstu ein- kenni íslenska fjárhundsins. Hann er þjóðargersemi og menn- ingararfur sem við þurfum að standa vörð um.“ – Er hann vinsæll í sveitum landsins? „Vinsældir íslenska fjárhunds- ins aukast ár frá ári, bæði í borg og sveit.“ – Eru margir sem rækta ís- lenska hundinn? „Á síðasta ári fæddust um 80 íslenskir fjárhundar sem eru ætt- bókarfærðir. Einstök fyrir ís- lenska hundinn eru litbrigðin hans. Þau eru með ýmsu móti, þótt einn aðallitur skuli ávallt vera ríkjandi. Helstu litir eru gul- ur í ýmsum blæbrigðum – allt frá ljósgulum til dökkrauðguls, mó- rauður og svartur. Hvítt fylgir alltaf aðallitnum, svo sem blesa, kragi týra í skotti og hvítt á fót- um.“ – Hvaða litir eru eftirsóttastir? „Algengustu litirnir eru gul- og rauðleitir hundar og svartir. Fólk velur hunda hins vegar ekki endilega eftir litum, frekar eftir eiginleik- um. Við Íslendingar eigum þennan eina þjóðarhund og nú á þessu mynd- bandi kemur í fyrsta skipti fram lýsing á útliti og eiginleikum hundsins, sem er afskaplega mik- ilvægt bæði fyrir okkur Íslend- inga og einnig útlendinga, því ís- lenski hundurinn er algengur í nágrannalöndunum. Við höfum einnig orðið vör við aukinn áhuga á hundinum í Bandaríkjunum. Ís- lendingar sýndu lengi íslenska fjárhundinum ekki tiltakanlega mikinn áhuga. Mark Watson, sem var breskur aðalsmaður sem hafði mikinn áhuga á Íslandi og íslenskri menningu, sá hvert stefndi og áhugi hans ýtti undir íslenska hugsjónamenn hvað varðar verndun og varðveislu ís- lenska hundsins, og varð þetta kveikjan að stofnun Hundarækt- arfélags Íslands.“ – Eru á myndbandinu sýnd dæmi um afbrigði íslenska hunds- ins og rakin saga hans? „Saga íslenska hundsins er samofin sögu lands og þjóðar og nær eins langt aftur í tímann og saga okkar Íslendinga. Land- námsmenn tóku búsmala sinn með sér til Íslands og einnig hunda til aðstoðar við gæslu og smölun búfjár. Í myndbandinu er sögu hundsins lýst, útliti gerð góð skil og vinnueiginleikum. Hund- urinn er þar sýndur við smölun og rekstur fjár og hesta.“ – Hvar ætlið þið að dreifa þessu myndbandi? „Það fæst á skrifstofu Hunda- ræktarfélags Íslands og seinna víðar og kostar 1.790 krónur. Það er 13 mínútur í sýningu og díf fékk Pál Steingrímsson til liðs við sig við framleiðslu þess. Textinn er á íslensku og ensku, Guðjón Einarsson les íslenska textann en Martin Regal les þann enska. Tónlistin í myndbandinu er eftir Guðna Ágústsson, formann díf, hún er bæði frumsamin og einnig útsett íslensk þjóð- lög.“ – Er um að ræða leikna mynd? „Það er örstutt leik- ið atriði tekið upp á Árbæjarsafni, en að öðru leyti er hún tekin úti. Við fengum lánað fé á Heiðarbæ II á Þingvöllum og Tóftum, til þess að geta sýnt hunda í vinnu. Þeir ráku líka hesta, það atriði var tek- ið upp í Dallandi í Mosfellssveit. Loks bera að geta allra hundaeig- endanna sem lánuðu hunda sína til að sýna útlit, byggingu og liti þeirra á myndbandinu.“ Helga Finnsdóttir  Helga Finnsdóttir fæddist í Reykjavík 1948. Hún lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1970 og prófi í dýra- lækningum frá Konunglega dýralækna- og landbúnaðarhá- skólanum í Kaupmannahöfn 1979. Hún hefur rekið dýralækn- ingastofu Helgu Finnsdóttur í Skipasundi frá árinu 1981. Sér- grein hennar eru sjúkdómar hunda og katta. Hún er gift Sig- urði Erni Hanssyni dýralækni og eiga þau eina dóttur, Ragnheiði Ástu. Saga íslenska hundsins er samofin sögu lands og þjóðar Viltu að ég leggi starf utanríkisráðherra niður, ha?? Það var allt í himnalagi úti í Brussel, góði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.