Morgunblaðið - 19.04.2001, Side 30
ERLENT
30 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÖLDUNGADEILD
MENNTASKÓLANS VIÐ HAMRAHLÍÐ
NÝJUNG EFTIR PÁSKA!
Stutt tungumálanámskeið fyrir eldri borgara
Um er að ræða hnitmiðuð námskeið til að gera fólki kleift að bjarga sér á tilteknu tungumáli um það
nauðsynlegasta sem snýr að ferðamanninum, s.s. ferðlög, kurteisisreglur, veitingahús, búðir og
heilsugæsla. Kennt verður tvisvar í viku, klukkutíma í senn í fimm vikur. Gert er ráð fyrir að nem-
endafjöldi á hverju námskeiði verði um 15. Tungumálin sem unnt er að velja um eru enska, franska,
norska, spænska og þýska.
Framburðarnámskeið í ensku
Á námskeiðinu eru kynnt undirstöðuatriði í enskum framburði. Farið verður í helstu einkenni ís-
lensks framburðar á ensku, muninn á enskum og amerískum framburði og erfið hljóð æfð með að-
stoð hljóðsnældu og æfingaheftis. Nemendur fá þessi gögn til eignar. Námskeiðið er hentugt þeim
sem telja mikilvægt að framburður þeirra sé sem áheyrilegastur og þeim sem þurfa að halda ræður
eða fyrirlestra, t.d. á alþjóðlegum málþingum eða ráðstefnum. Námskeiðið er 12 kennslustundir.
Stutt tölvunámskeið Kennari: Sigurður Haraldsson MCP, netstjóri MH.
a) Windows & Internetið. Þar verður farið í Windows 95/98 stýrikerfin og kennd skráastjórnun með
Windows Explorer, diskameðhöndlun og fleira. Einnig verður Internetið kynnt, helstu hugtök
skýrð (HTTP, HTML, FTP, WWW o.fl.) og kennt verður hvernig á að nálgast upplýsingar á markviss-
an hátt. Námskeiðið er 12 kennslustundir.
b) Námskeið í Word. Farið verður almennt í Word 97/2000; kennt að búa til nýtt skjal, opna og vista
skjöl, blaðsíðuuppsetningar, útlitsbreytingar síðu og texta, neðanmálsgreinar, töflur, textadálkar,
stílar, sjálfvirkt efnisyfirlit, atriðaorðaskrá og ýmislegt fleira eftir því sem tími vinnst til. Gerð verða
verkefni í tímum. Námskeiðið er 12 kennslustundir.
c) Námskeið í Excel. Farið verður í helstu atriði í Excel 97/2000, hvernig unnið er með jöfnur og
hvernig hægt er að láta Excel sjá um alla útreikninga. Gerð verða hagnýt verkefni. Námskeiðið er
12 kennslustundir.
Innritað er í síma 595 5200 mánudaginn 21. apríl til miðvikudagsins 23. apríl nk.
kl. 10.00-18.00. Gert er ráð fyrir að námskeiðsgjald sé greitt við innritun.
Er þetta ekki eitthvað fyrir þig? Komdu þá í heimsókn á heimasíðu okkar! Þar má
finna ýmsar hagnýtar upplýsingar um þessi námskeið. Slóðin er; www. mh.is. Þú
getur einnig hringt í síma 595 5200.
Rektor.
CHRIS Patten, sem fer með utanrík-
ismál í framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins (ESB), hefur kynnt til-
lögur framkvæmdastjórnarinnar um
það hvernig efla megi hlutverk sam-
bandsins í að stuðla að stöðugleika og
friði á spennusvæðum utan landa-
mæra þess.
Á blaðamannafundi í Brussel sagði
Patten, að ESB væri að byrja að hafa
í alvöru eitthvað að segja í alþjóða-
málum, frá Balkanskaga til Kóreu,
vegna þess að það væri farið að tala
einni röddu. Sagði hann að sambandið
væri að læra að nota í bland „svipu og
gulrót“ í aðferðafræði sinni í afskipt-
um af alþjóðamálum, þ.e. að nota ým-
ist hörku eða loforð um efnahagsað-
stoð til að draga úr spennu og byggja
upp stöðugleika á
átaka- og spennu-
svæðum heimsins.
„Það er óhugs-
andi að við hefðum
náð þeim árangri
sem við náðum í
Makedóníu eða í
hliðstæðri deilu
fyrir tveimur eða þremur árum. Ég
tel að þetta sýni mikinn pólitískan
vilja,“ sagði Patten. ESB hefur átt
forystu um að stuðla að því að draga
úr spennu í samskiptum slavneskra
og albanskra íbúa Makedoníu.
Sú aðferðafræði sem ESB beitti í
Makedoníu – þrotlausar miðlunartil-
raunir sáttasemjara, þrýstingur á
deiluaðila, snögglega veitt efnahags-
aðstoð og náið samráð við NATO –
virðist hafa gengið upp, en þessi ag-
aða og áhrifaríka aðferðafræði sting-
ur í stúf við það ómarkvissa fát sem
virtist einkenna utanríkismálaaf-
skipti ESB á fyrstu árum tíunda ára-
tugarins, þegar Júgóslavía liðaðist í
sundur með blóðugum borgarastríð-
um.
„Makedonía er sígilt dæmi um af-
stýringu átaka,“ sagði Patten.
Plagg það sem Patten kynnti á
blaðamannafundinum er framlag
framkvæmdastjórnarinnar til evr-
ópskrar átakavarnaáætlunar (Euro-
pean Programme for Conflict Pre-
vention), sem fyrirhugað er að verði
samþykkt á leiðtogafundi ESB í
Gautaborg í júní. Til grundvallar
þessari áætlun liggur, auk hinna nýju
tillagna, skýrsla sem framkvæmda-
stjórnin og embætti æðsta talsmanns
utanríkis- og öryggismála ESB, Jav-
iers Solana, sömdu sameiginlega um
þetta efni fyrir leiðtogafundinn í Nice
í desember sl.
Hinar nýju tillögur framkvæmda-
stjórnarinnar ganga í megindráttum
út á fjögur atriði:
að þau verkfæri og aðferðir sem
ESB getur gripið til í því skyni að
draga úr spennu og stuðla að stöð-
ugleika á tilteknu spennusvæði
verði nýtt með kerfisbundnari og
betur samhæfðum hætti, einkum í
tengslum við samstarfssamninga
ESB við önnur ríki;
að skilvirkni aðgerða ESB verði
bætt með því að þróa sérstakar að-
ferðir við að bera snemma kennsl á
og beita sér gegn rótum átaka, í
staðinn fyrir að bregðast aðeins við
þegar í óefni er komið;
að bæta hæfni ESB til að bregðast
fljótt við aðstæðum þar sem átök
virðast í uppsiglingu;
að styðja við alþjóðlegt samstarf
um átakavarnir, í félagi við alla
helztu bandamenn ESB.
Fyrsta markmiðið sagði Patten
vera hægt að orða þannig, að ESB
ætti að beita betur
stöðu sinni sem
heimsins stærsta
veitanda þróunar-
og efnahagsað-
stoðar til að ráðast
að rótum rósturs í
hinum ýmsu lönd-
um heims. Skil-
virknina beri að auka með því að taka
á málum sem oft eiga þátt í að kveikja
ófrið, svo sem viðskipti með léttvopn,
eiturlyf og fólk. Um þriðja atriðið seg-
ir hann að ESB verði að geta brugðizt
við innan nokkurra daga eða vikna í
stað mánaða eða ára.
Samstarf einnig við Ísland
Síðasta atriðið, að styrkja alþjóð-
legt samstarf um átakavarnir, varðar
einnig EFTA-ríkin í EES, Ísland og
Noreg, þótt aðallega sé átt við hin
stærri samstarfsríki ESB, Bandarík-
in, Japan, Kanada og Rússland.
„Evrópusambandið getur sannar-
lega lagt töluvert af mörkum til að
stuðla að stöðugleika, jafnvel friði og
velmegun, á spennu- og átakasvæð-
um heimsins,“ sagði Patten. „En sam-
stæð varnarstefna gegn átökum og
róstri er komið undir þremur þáttum:
skýrri skilgreiningu á markmiðum,
hæfni til að grípa til aðgerða, og póli-
tískum vilja til að grípa til aðgerða.“
Þannig muni skilvirkni aðgerða ESB
vera fyrst og fremst undir því komin,
að hve miklu leyti því tekst að tryggja
sér pólitískt umboð aðildarríkja
sambandsins til að framfylgja sam-
eiginlegri stefnu í slíkum málum. „Að
sjóða sameiginleg gildi og hagsmuni
aðildarríkjanna saman í skýrt skil-
greind forgangsatriði og markmið,
sem hægt er að beita á tilteknu svæði
heimsins, er, þegar öllu er á botninn
hvolft, prófsteinn á hæfni okkar til að
leggja okkar af mörkum til átaka-
varna með áhrifaríkum hætti,“ sagði
Patten.
Reuters
Chris Patten sem fer með utanríkismál í framkvæmdastjórn ESB.
Markvissar
átakavarnir
í nafni ESB
Kynntar hafa verið tillögur framkvæmda-
stjórnar ESB um leiðir til að efla hlutverk
ESB í að stuðla að stöðugleika í heiminum.
Auðunn Arnórsson kynnti sér þær.
auar@mbl.is
DÓMSTÓLL í Madríd
vísaði í gær á bug kröfu
rússneskra yfirvalda um
að Spánverjar framseldu
fjölmiðlakónginn Vladímír
Gúsínskí en hann er sak-
aður um fjármálasvik í
Rússlandi. Gúsínskí átti
meðal annars sjónvarps-
stöðina NTV sem hefur
gagnrýnt mjög stjórn
Vladímírs Pútíns Rúss-
landsforseta. Fyrr í mánuðinum
náðu menn hliðhollir forsetanum
völdum í stöðinni.
Hægt er að áfrýja niðurstöðunni
en fulltrúi Media-Most, fjölmiðla-
fyrirtækis Gúsínskís, taldi
ósennilegt að saksóknari
á Spáni myndi gera það.
„Eftir þrjá daga verður
Vladímír Gúsínski alger-
lega frjáls og getur þá
farið hvert á land sem er í
hinum siðmenntaða heimi,
að sjálfsögðu að Rúss-
landi undanskildu,“ sagði
fulltrúinn, Dmítri Ost-
alskí.
Talsmaður saksóknara í
Moskvu sagði í gær að þar væru
menn ekki búnir að gefa upp alla
von um að fá Gúsínskí framseldan
þrátt fyrir úrskurðinn. Gúsínski
hefur verið í stofuvarðhaldi í
glæsihúsi sínu á Costa del Sol á
Spáni og tvisvar verið stungið í
fangelsi síðan í desember. Hann
hefur ekki komið til Rússlands
síðan í júlí í fyrra af ótta við að
vera handtekinn.
Fjölmiðlaveldi Gúsínskis á nú
mjög á brattann að sækja og sæt-
ir rússneska stjórnin vaxandi
gagnrýni á Vesturlöndum fyrir
meintar tilraunir til að kæfa sjálf-
stæða fjölmiðla í landinu. Frétta-
menn sem hafa mótmælt aðferð-
um Pútíns og manna hans hafa
verið reknir og þægari menn
ráðnir í staðinn.
Dómstóll á Spáni úrskurðar í máli Vladimírs Gúsínskís
Madríd. AFP.
Vladimír
Gúsínskí
Framsalskröfu hafnað
JÓN Baldvin Hannibalsson,
sendiherra Íslands í Wash-
ington, er nú staddur í
Eistlandi, þangað sem hon-
um var boðið sem heið-
ursræðumanni á hátíð-
arsamkomu skipulagðri af
upplýsingaskrifstofu Nor-
ræna ráðherraráðsins þar í
landi. Tilefnið er að tíu ár
eru nú liðin frá því slík
skrifstofa var opnuð í Tall-
inn, nokkrum mánuðum áður en
sjálfstæði Eistlands var formlega
viðurkennt, en eins og kunnugt er
var Ísland fyrsta ríkið sem við-
urkenndi formlega sjálfstæði Eist-
lands, Lettlands og Litháens árið
1991, í utanríkisráðherratíð Jóns
Baldvins.
„Þetta er liður í áætluðum hátíð-
arhöldum þeirra á þessu
ári, sem snýst um þessi tíu
ár frá sjálfstæðisstofnun,
af ýmsum tilefnum, bæði
fyrir og eftir formlega
sjálfstæðisviðurkenningu,“
sagði Jón Baldvin í samtali
við Morgunblaðið.
Efnt var til sérstakrar
hátíðarsamkomu þar sem
nokkrir vel valdir ræðu-
menn töluðu, Jón Baldvin
þar á meðal, en yfirskrift dag-
skrárinnar var „Eistland – hluti af
Norðurlöndum?“. Auk Jóns töluðu
þar Lauristin, varaforseti finnska
þingsins, Toomas Hendrik Ilves, ut-
anríkisráðherra Eistlands, og
fræðimenn við Tartu-háskóla þar
sem samkoman fór fram. Flestir
boðsgesta munu þó hafa verið úr
menningargeiranum, frá Norð-
urlöndunum og Eistlandi.
„Af mér er síðan það að segja að
mér hefur verið tekið hér með
kostum og kynjum, aðallega af
fyrrverandi samstarfsmönnum,“
segir Jón. Fyrsta dag heimsóknar
sinnar, sl. mánudag, hafi hann
snætt hádegisverð með eistneska
utanríkisráðherranum og varafor-
seta þingsins og um kvöldið bauð
Lennart Meri, forseti Eistlands sem
var utanríkisráðherra í fyrstu rík-
isstjórninni eftir sjálfstæðið, hinum
fyrrverandi íslenzka starfsbróður
sínum til kvöldverðar á heimili
sínu. Segir Jón Baldvin endurfundi
þeirra hafa verið ógleymanlega.
„Það var alveg stórkostleg stund
að hitta hann. Segi ég ekkert frá
því frekar fyrr en í ævisögu!“
Jón Baldvin Hannibalsson heiðursgestur í Eistlandi
Ógleymanlegir endur-
fundir með Lennart Meri
Jón Baldvin
Hannibalsson