Morgunblaðið - 19.04.2001, Síða 37

Morgunblaðið - 19.04.2001, Síða 37
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 37 Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776 - ANNO 1929 - K O R T E R 38.430.- 29.900.- 29.900.- Stærð172x60x56 cm Stærð 129x55x55 cm Stærð125,5x55x55 cm helluborð - CH04W veggofn m/blæstri, hreinsiplötum og grillteini, hvítur Edesa 2H 175 Verð áður kr. 49.9 00.- Tvöfaldir Amerískir kæliskápar með eða án klakavélar Verð frá kr. 119.920.- Verð áður frá kr. 149.900.-30% afsl . Ath. Öll verð miðast við staðgreiðslu Heildarlausnir fyrir eldhúsið 22.900.- Verð áður kr. 82.800.- Þú sparar kr. Kæli-og frystiskápar 28” sjónvarp með Hi-Fi stereo, 2 Scarttengi, RCA tengi að framan, Íslenskt textavarp, Allar aðgerðir á skjá o.fl. 14.900.- LG Videotæki frá kr. 29.900.- LG fjölkerfa D VD spilari kr. Verð áður kr. 4 3.900.- VIÐFANGSEFNIÐ er hin eilífa leit mannsins að nýjum leiðum og löndum. Könnun hins óþekkta í hnotskurn, skemmtilega ofin fundi okkar eigin fósturjarðar og landa- fundum Íslendinga í vestri. Í hina röndina er fjallað um óstöðvandi sókn nútímans og í framtíðinni, útí óravíddir himingeimsins, þegar flestir leyndardómar jarðkringl- unnar þykja upplýstir. Stefnan er tekin á Mars, þennan rauðleita ná- granna okkar sem enn um sinn lumar á þeirri dulúð sem hvetur framsækna og forvitna menn allra alda til dáða. Allt frá dögum Pýþ- easar og heilags Brendans, sem hér sá, múlbundinn sinni kristnu siðfræði, rauðglóandi smádjöfla á eldspúandi eyjunni í norðri. Höfundarnir velta fyrir sér mannvænlegum aðstæðum í út- geimi, ekki síst á Titan, þeim dul- arfulla fylgifiski Satúrnusar, en það er Rauða plánetan sem fær mesta athyglina. Enda undir smásjá vísindamanna sem gert hafa nokkrar, flestar mislukkaðar, tilraunir til að kynnast henni úr návígi. Mun einn slíkur leiðangur fullkomnustu vísindatækja kominn eitthvað áleiðis til reikistjörnunn- ar. Myndirnar Uppsigling og Nasa- sjón eru þó alls ekki vísindalega uppbyggðar, þvert á móti fisléttar, stundum súrrealískar vangaveltur um óseðjandi forvitni mannsins. Kryddaðar fallegri tónlist, verkum geimlistmálara, léttstígum baller- ínum og svipljótum púkaskröttum guðsmannsins Brendans. Það hef- ur sjálfsagt aldrei verið heldur ætlunin að komast að einhverri há- vísindalegri niðurstöðu heldur að bera saman, á gamansaman hátt, leit og leitaraðferðir að svörum við spurningum á ólíkum tímum. Von- andi fáum við svör við brennandi spurningum samtímans og ekki er síður óskandi að þau veki nýjar. Leitið og þér mun- uð finna Sæbjörn Valdimarsson SJÓNVARPS- MYND S j ó n v a r p i ð UPPSIGLING og NASASJÓN Leikstjóri, klipping, þýðing, hand- rit og dagskrárgerð: Viðar Víkings- son. Samsetning: Ögmundur Sig- fússon. Þulur: Kristján Franklin Magnús. Tónskáld: Máni Svav- arsson. Myndataka og hljóð: Magn- ús B. Magnússon, Bergsteinn Björgúlfsson, o.fl. Hljóðblöndun: Catheart-Jones. Leikmynd: Hólmar Jóhannesson, o.fl. Grafík: Bjarki Guðjónsson, Ármann Karlsson. Förðun: Hanna Maja. Sýningartími 2 x 30 mín. Framkvæmdastjóri: Anna Dís Ólafsdóttir. Framleið- andi: Jón Þór Hannesson. Saga film, árgerð 2001. ENN er Valdimar Leifsson á veiði- slóðum, vopnaður sínum kvikmynda- tökuvélum og tólum. Stefnan tekin í vesturátt, nánar tiltekið á hreindýra- hjarðir íslensks landnema í Græn- landi. Ferðafélagarnir nokkrir stang- og skotveiðimenn. Í þessu stórbrotna og ægifagra landi hefur Stefán Hrafn Magnússon sest að, eftir að hafa num- ið hreindýrabúskap í Noregi. Stefán hefur verið í tengslum við Grænland frá fermingaraldri og stofnsetti sitt eigið bú í Isortoq árið 1990. Á aðeins áratug hefur Stefán gert sannkallað kraftaverk í þessum áður óbyggða landshluta. Byggt hús og önnur mannvirki, girt land, sem skipt er í sumar- og vetrarhaga, frá fjalli, réttara sagt jökli til fjöru. Komið sér upp glæsilegri hreindýrahjörð sem telur hundruð dýra. Sjálfur veit bónd- inn ekki glöggt fjölda þeirra. Valdimar skoðar viðfangsefnið í hæfilegri fjarlægð, það sem við blasir er í flesta staði einkar forvitnilegt. Grænland er mikilfenglegt og and- stæðurnar ótrúlegar og myndrænar. Jökullinn jafnan í seilingarfjarlægð en undirlendið sjáum við í sínu feg- ursta sumarskarti. Einsog einn veiði- mannanna bendir á, gætir hvergi þeirra ljótu uppblásturssára sem svo víða stinga augu og hjarta í okkar eig- in náttúru. Sjálf eru hreindýrin tign- arlegar skepnur og fiskurinn fagur í stuttum og blátærum ánum. Hreindýrabóndinn Stefán er sjálf- ur hinn áhugaverðasti. Bersýnilega dugnaðarforkur, fjallhress og með skopskynið í besta lagi. Stefán hefur komið sér upp mikilvægu búi sem skilar af sér fjölda sláturdýra á ári hverju. Skapað sér og fjölda annarra góða og örugga atvinnu. Stefán hefur einnig komið sér upp heimili og fjöl- skyldu í þessu heillandi en harðbýla nágrannalandi okkar og unir greini- lega hag sínum vel. Er kvæntur inn- fæddri konu. Því miður fengum við ekki tækifæri til að kynnast viðhorf- um hennar né landa hennar til bú- skaparins og niðursuðudósaveiði- mennskunnar, sem eflaust koma náttúrubörnunum spánskt fyrir sjón- ir. Grænland er vafalaust land karl- mennskunnar, en það hugtak á lítið skylt við þá iðju að elta uppi meinlaus jórturdýr, og dálítið spaugilegt að sjá karlmennin í felubúningum með al- væpni. Jafn fáránlega fjarri raun- veruleikanum og persónurnar hans Carks Hiaasen í Sick Puppy. Sem ætti að vera skyldulesning slíkum borgargörpum áður en þeir hleypa af skoti. Túrhestaveiðimennskan er tiltölu- lega lítil aukabúgrein í rekstri Stef- áns. Árlega vafrar eitthvað af dýrun- um út úr girðingunni. Flækingarnir standa síðan byssuglöðum frístunda- karlmennum til boða, en veiðiferðir, sem hér er svo ágætlega lýst, munu njóta talsverðra vinsælda, enda sér- stök tilbreyting í ferðamennskuflór- unni. Harðjaxlar og jórturdýrSJÓNVARPS-MYND S t ö ð 2 Í LANDI KARLMENNSK- UNNAR – VEIÐIFERÐ TIL GRÆNLANDS Leikstjóri, handritshöfundur, kvik- myndataka og klipping Valdimar Leifsson. Tónlist Halldór Bragason og Jan Gorborek. Hljóðupptaka Halldór Bragason. Hljóðsetning Jón Kjartansson. Heimildarmynd. Sýningartími 30 mín. Skírdag, 12. apríl 2001. Lífsmynd. Árgerð 2000. Sæbjörn Valdimarsson
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.