Morgunblaðið - 19.04.2001, Qupperneq 37
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 37
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
- ANNO 1929 -
K
O
R
T
E
R
38.430.-
29.900.-
29.900.-
Stærð172x60x56 cm
Stærð 129x55x55 cm
Stærð125,5x55x55 cm
helluborð - CH04W
veggofn m/blæstri,
hreinsiplötum og
grillteini, hvítur
Edesa 2H 175
Verð áður kr. 49.9
00.-
Tvöfaldir Amerískir
kæliskápar
með eða án klakavélar
Verð frá kr.
119.920.-
Verð áður frá kr. 149.900.-30%
afsl
.
Ath. Öll verð miðast við staðgreiðslu Heildarlausnir fyrir eldhúsið
22.900.-
Verð áður kr. 82.800.-
Þú sparar kr.
Kæli-og frystiskápar
28” sjónvarp með
Hi-Fi stereo, 2 Scarttengi,
RCA tengi að framan, Íslenskt
textavarp, Allar aðgerðir á skjá o.fl.
14.900.-
LG Videotæki
frá kr.
29.900.-
LG fjölkerfa D
VD
spilari kr.
Verð áður kr. 4
3.900.-
VIÐFANGSEFNIÐ er hin eilífa
leit mannsins að nýjum leiðum og
löndum. Könnun hins óþekkta í
hnotskurn, skemmtilega ofin fundi
okkar eigin fósturjarðar og landa-
fundum Íslendinga í vestri. Í hina
röndina er fjallað um óstöðvandi
sókn nútímans og í framtíðinni, útí
óravíddir himingeimsins, þegar
flestir leyndardómar jarðkringl-
unnar þykja upplýstir. Stefnan er
tekin á Mars, þennan rauðleita ná-
granna okkar sem enn um sinn
lumar á þeirri dulúð sem hvetur
framsækna og forvitna menn allra
alda til dáða. Allt frá dögum Pýþ-
easar og heilags Brendans, sem
hér sá, múlbundinn sinni kristnu
siðfræði, rauðglóandi smádjöfla á
eldspúandi eyjunni í norðri.
Höfundarnir velta fyrir sér
mannvænlegum aðstæðum í út-
geimi, ekki síst á Titan, þeim dul-
arfulla fylgifiski Satúrnusar, en
það er Rauða plánetan sem fær
mesta athyglina. Enda undir
smásjá vísindamanna sem gert
hafa nokkrar, flestar mislukkaðar,
tilraunir til að kynnast henni úr
návígi. Mun einn slíkur leiðangur
fullkomnustu vísindatækja kominn
eitthvað áleiðis til reikistjörnunn-
ar.
Myndirnar Uppsigling og Nasa-
sjón eru þó alls ekki vísindalega
uppbyggðar, þvert á móti fisléttar,
stundum súrrealískar vangaveltur
um óseðjandi forvitni mannsins.
Kryddaðar fallegri tónlist, verkum
geimlistmálara, léttstígum baller-
ínum og svipljótum púkaskröttum
guðsmannsins Brendans. Það hef-
ur sjálfsagt aldrei verið heldur
ætlunin að komast að einhverri há-
vísindalegri niðurstöðu heldur að
bera saman, á gamansaman hátt,
leit og leitaraðferðir að svörum við
spurningum á ólíkum tímum. Von-
andi fáum við svör við brennandi
spurningum samtímans og ekki er
síður óskandi að þau veki nýjar.
Leitið og
þér mun-
uð finna
Sæbjörn Valdimarsson
SJÓNVARPS-
MYND
S j ó n v a r p i ð
UPPSIGLING
og NASASJÓN
Leikstjóri, klipping, þýðing, hand-
rit og dagskrárgerð: Viðar Víkings-
son. Samsetning: Ögmundur Sig-
fússon. Þulur: Kristján Franklin
Magnús. Tónskáld: Máni Svav-
arsson. Myndataka og hljóð: Magn-
ús B. Magnússon, Bergsteinn
Björgúlfsson, o.fl. Hljóðblöndun:
Catheart-Jones. Leikmynd: Hólmar
Jóhannesson, o.fl. Grafík: Bjarki
Guðjónsson, Ármann Karlsson.
Förðun: Hanna Maja. Sýningartími
2 x 30 mín. Framkvæmdastjóri:
Anna Dís Ólafsdóttir. Framleið-
andi: Jón Þór Hannesson. Saga
film, árgerð 2001.
ENN er Valdimar Leifsson á veiði-
slóðum, vopnaður sínum kvikmynda-
tökuvélum og tólum. Stefnan tekin í
vesturátt, nánar tiltekið á hreindýra-
hjarðir íslensks landnema í Græn-
landi. Ferðafélagarnir nokkrir stang-
og skotveiðimenn. Í þessu stórbrotna
og ægifagra landi hefur Stefán Hrafn
Magnússon sest að, eftir að hafa num-
ið hreindýrabúskap í Noregi. Stefán
hefur verið í tengslum við Grænland
frá fermingaraldri og stofnsetti sitt
eigið bú í Isortoq árið 1990.
Á aðeins áratug hefur Stefán gert
sannkallað kraftaverk í þessum áður
óbyggða landshluta. Byggt hús og
önnur mannvirki, girt land, sem skipt
er í sumar- og vetrarhaga, frá fjalli,
réttara sagt jökli til fjöru. Komið sér
upp glæsilegri hreindýrahjörð sem
telur hundruð dýra. Sjálfur veit bónd-
inn ekki glöggt fjölda þeirra.
Valdimar skoðar viðfangsefnið í
hæfilegri fjarlægð, það sem við blasir
er í flesta staði einkar forvitnilegt.
Grænland er mikilfenglegt og and-
stæðurnar ótrúlegar og myndrænar.
Jökullinn jafnan í seilingarfjarlægð
en undirlendið sjáum við í sínu feg-
ursta sumarskarti. Einsog einn veiði-
mannanna bendir á, gætir hvergi
þeirra ljótu uppblásturssára sem svo
víða stinga augu og hjarta í okkar eig-
in náttúru. Sjálf eru hreindýrin tign-
arlegar skepnur og fiskurinn fagur í
stuttum og blátærum ánum.
Hreindýrabóndinn Stefán er sjálf-
ur hinn áhugaverðasti. Bersýnilega
dugnaðarforkur, fjallhress og með
skopskynið í besta lagi. Stefán hefur
komið sér upp mikilvægu búi sem
skilar af sér fjölda sláturdýra á ári
hverju. Skapað sér og fjölda annarra
góða og örugga atvinnu. Stefán hefur
einnig komið sér upp heimili og fjöl-
skyldu í þessu heillandi en harðbýla
nágrannalandi okkar og unir greini-
lega hag sínum vel. Er kvæntur inn-
fæddri konu. Því miður fengum við
ekki tækifæri til að kynnast viðhorf-
um hennar né landa hennar til bú-
skaparins og niðursuðudósaveiði-
mennskunnar, sem eflaust koma
náttúrubörnunum spánskt fyrir sjón-
ir.
Grænland er vafalaust land karl-
mennskunnar, en það hugtak á lítið
skylt við þá iðju að elta uppi meinlaus
jórturdýr, og dálítið spaugilegt að sjá
karlmennin í felubúningum með al-
væpni. Jafn fáránlega fjarri raun-
veruleikanum og persónurnar hans
Carks Hiaasen í Sick Puppy. Sem
ætti að vera skyldulesning slíkum
borgargörpum áður en þeir hleypa af
skoti.
Túrhestaveiðimennskan er tiltölu-
lega lítil aukabúgrein í rekstri Stef-
áns. Árlega vafrar eitthvað af dýrun-
um út úr girðingunni. Flækingarnir
standa síðan byssuglöðum frístunda-
karlmennum til boða, en veiðiferðir,
sem hér er svo ágætlega lýst, munu
njóta talsverðra vinsælda, enda sér-
stök tilbreyting í ferðamennskuflór-
unni.
Harðjaxlar og jórturdýrSJÓNVARPS-MYND
S t ö ð 2
Í LANDI KARLMENNSK-
UNNAR – VEIÐIFERÐ
TIL GRÆNLANDS
Leikstjóri, handritshöfundur, kvik-
myndataka og klipping Valdimar
Leifsson. Tónlist Halldór Bragason
og Jan Gorborek. Hljóðupptaka
Halldór Bragason. Hljóðsetning
Jón Kjartansson. Heimildarmynd.
Sýningartími 30 mín. Skírdag, 12.
apríl 2001. Lífsmynd. Árgerð 2000.
Sæbjörn Valdimarsson