Morgunblaðið - 19.04.2001, Qupperneq 39
FRUMSÝNINGAR
THIRTEEN DAYS Bíóhöllin, Kringlubíó
ENEMY AT THE GATES
Laugarásbíó, Bíóborgin.
SÖGUR Á TJALDI; ÍSLENSK
KVIKMYNDAHÁTÍÐ Filmundur/Háskólabíó.
LALLI JOHNS
Íslensk. 2001. Leikstjóri og handrit: Þorfinnur
Guðnason. Lífshlaup síbrotamannsins Lalla í
hálfan áratug, séð með vökulli linsu eins okkar
besta kvikmyndagerðarmanns og viðfangsefnið
er sérkapítuli útaf fyrir sig. Mr. Johns er flottur á
sinn hátt með skopskynið í lagi. Óborganleg og
gráglettin. Háskólabíó.
TRAFFIC
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Steven Soder-
bergh. Handrit: Stephen Gaghan. Aðalleikend-
ur: Michael Douglas, Benicio Del Toro, Don
Cheadle, Luis Guzman. Yfirgripsmikil, margþætt
spennumynd um dópsmyglið frá Mexíkó til
Bandaríkjanna. Gædd mikilli frásagnargleði og
flestir kaflarnir trúverðugir í heimildarmyndarstíl.
½
Bíóhöllin, Bíóborgin. Háskólabíó.
ALMOST FAMOUS
Bandarísk. 2000. Handrit og leikstjórn: Camer-
on Crowe. Aðalleikendur: Patrick Fugit, Billy
Crudup, Kate Hudson, Frances McDormand.
Endurminningar höfundar af tónlistargerjun átt-
unda áratugarins eru sagðar á óvenju trúverð-
ugan og skemmtilegan hátt í mynd sem hefur
fjölmargt til síns ágætis. Góð persónusköpun,
bæði í handriti og leik. BILLY ELLIOT
Bresk. 2000. Leikstjórn: Stephen Baldry. Hand-
rit: Lee Hall. Aðalleikendur: Jamie Bell, Julie
Walters, Gary Lewis. Einföld, falleg og fyndin
mynd um baráttu 11 ára drengs við að fá að
vera hann sjálfur, og pabba hans við að finna
einhverja von. Háskólabíó.
FINDING FORRESTER
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Gus Van Sant.
Handrit: Mike Rich. Aðalleikendur: Sean Conn-
ery, Rob Brown, F. Murray Abrahams.
Fyrirsjáanleg mynd um ótrúverðuga vináttu, bor-
in uppi af persónutöfrum Connerys og fagmann-
legri leikstjórn. Bíóhöllin.
THE GIFT
Bandarísk. 2000. Leikstjóri Sam Raimi. Hand-
rit: Billy Bob Thornton. Aðalleikendur: Cate
Blanchett, Giovanni Riblisi, Keanu Reeves. Fín-
asta draugamynd frá Raimi og Thornton, um
konu með skyggnigáfu sem hjálpar lögreglunni í
morðmáli. Frábær leikur, einkum hjá Riblisi og
Blanchett. Háskólabíó.
KRJÚPANDI TÍGUR
Bandaríkin. 2000. Handrit og leikstjórn: Ang
Lee Mögnuð ástarsaga frá Ang Lee úr gamla
Kína, sem yfirvinnur þyngdarlögmálið í glæsi-
legum bardagaatriðum. Regnboginn.
GIRLFIGHT
Bandarísk. 2000. Leikstjórn og handrit: Karyn
Kusama. Aðalleikendur: Michelle Rodriguez,
Santiago Douglas, Paul Calderon. Lituð Brook-
lynstúlka með hegðunarvandamál fær útrás í
hringnum. Þar kynnist hún einnig ástinni í at-
hyglisverðri og óvenjulegri kvennamynd um frá-
hrindandi persónur. Háskólabíó.
HANNIBAL
Bandarísk. 2000 Leikstjóri Ridley Scott. Hand-
rit: Steve Zaillian, David Mamet. Aðalleikendur:
Anthony Hopkins, Julianne Moore, Ray
Liotta. Laugarásbíó.
102 DALMATIANS (ísl. tal)
Bandarísk. 2000. Leikstjórn: Kevin Lama.
Handrit: Dodie Smith. Aðalleikendur: Glenn
Close, Alice Evans, Gerard Depardieu. Það
stormar af Close sem leikur Krúellu hina ægi-
legu af sannfærandi fítonskrafti og hundarnir
eru afbragð. Gott fjölskyldugrín. ½ .
Bíóborgin, Kringlubíó.
KIRIKOU OG
GALDRAKERLINGIN
Frönsk. 1998. Leikstjórn og handrit: Michel
Ocelot. Aðalraddir: Óskar Jörundarson, Stefán
Karl Stefánsson, Jóhanna Vigdís Arnardóttir.
Einfalt ævintýri um gott og illt í frumskógum
svörtustu Afríku. Góð fyrir yngstu börnin. TEIKNIMYND
Háskólabíó.
LEIÐIN TIL EL DORADO (Íslenskt tal)
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Eric Bergeron.
Handrit: Don Paul. Teiknimynd. Segir frá tveimur
svindlurum sem finna gulllandið El Dorado, Út-
litið fullkomið, einsog vænta má, hið sama er
ekki hægt að segja um söguna eða tónlist-
ina.½
Bíóhöllin.
MEN OF HONOR
Bandarísk. 2000. Leikstjóri George Tillman, Jr.
Handrit: Scott Marshall Smith. Aðalleikendur:
Robert De Niro, Cuba Gooding, Jr., Charlize
Theron. Gamaldags mynd um þrákálf sem brýt-
ur blað í sögu sjóhersins og kemst til metorða
þar sem lituðum var áður úthýst. De Niro og
Gooding jr., kraftmiklir og sperrtir.½
Regnboginn, Bíóhöllin, Borgarbíó Akureyri.
MISS CONGENIALITY
Bandarísk. 2001. Leikstjórn: Donald Petrie.
Handrit: Mark Lawrence. Aðalleikendur: Sandra
Bullock, Benjamin Bratt, Michael Caine. Prýði-
leg gamanmynd um FBI-löggu sem tekur þátt í
fegurðarsamkeppni gegn vilja sínum.½
Bíóhöllin, Kringlubíó.
NÝI STÍLLINN KEISARANS
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Mark Dindal.
Handrit: Thomas Schumacher. Bráðfyndin mynd
fyrir börn og fullorðna.½
Bíóhöllin, Kringlubíó, Regnboginn.
PAY IT FORWARD
Bandaríkin 2001. Aðalleikendur: Kevin Spacey,
Helen Hunt, Haley Joel Osment. ½
Bíóhöllin, Bíóborgin, Kringlubíó, Nýja Bíó Ak-
ureyri, Nýja Bíó Keflavík.
SAVE THE LAST DANCE
Bandarísk. 2001. Leikstjóri Thomas Carter.
Handrit: Duane Adler. Aðalleikarar: Julia Stiles,
Sean Patrick Thomas.½
Kringlubíó, Háskólabíó.
SUGAR AND SPICE
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Francine McDoug-
all. Handrit: Mandy Nelson. Aðalleikkendur:
Marla Sokoloff, , Marley Shelton, Mena Suv-
ari.½
Laugarásbíó.
BOUNCE
Bandarísk. 2001 Leikstjóri og handrit: Dru
Roos. Aðalleikendur: Ben Affleck, Gwyneth
Paltrow, Tony Goldwyn. Regnboginn.
CHOCOLAT
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Lasser Hallström.
Hancrit: Robert Nelson Jacobs. Aðalleikendur:
Juliette Binoche, Judi Dench, Johnny
Depp. Regnboginn.
15 MINUTES
Bandarísk. 2001. Leikstjóri og handrit: John
Herzfeld. Aðalleikendur: Robert De Niro, Edward
Burns, Kelsey Grammer.
Laugarásbíó.
THE LITTLE VAMPIRE
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Uli Edel. Handrit:
Angela Sommer-Brodenburg. Aðalleikendur:
Jonathan Lipnicki, Richerd E. Grant, Alice
Krige. Bíóhöllin.
SAVE THE LAST DANCE
Bandaríkin. 2001. Leikstjóri: Thomas Carter.
Handrit: Duane Adler. Aðalleikendur: Julia Stil-
es, Sean Patrick Thomas. Háskólabíó, Kringlubíó.
WHAT WOMEN WANT
Bandarísk. 2000. Leikstjórn og handrit: Nancy
Meuers. Aðalleikendur: Mel Gibson, Helen
Hunt, Marisa Tomei. Regnboginn.
THE WEDDING PLANNER
Bandarísk. 2001. Leikstjóri Adam Shankman.
Handrit: Pamela Falk. Aðalleikendur: Jennifer
Lopez, Matthew McConaughey, Bridget Wil-
son. Laugarásbíó, Stjörnubíó,
Borgarbíó Akureyri.
ROCKY & BULLWINKLE
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Des McAnuff.
Handrit: Jay Ward. Aðalraddir: Robert De Niro,
Rene Russo, Jason Alexander.
Bíóhöllin.
Bíóin í borginni
Sæbjörn Valdimarsson/Arnaldur Indriðason/Hildur Loftsdóttir
VASSILI Zaitsev (Jude Law) er
frægasta leyniskytta Rússa í um-
sátrinu um Stalíngrad í síðari
heimsstyrjöldinni. Frægð hans fer
víða og Þjóðverjar setja mann til
höfuðs honum, sem er besta skytt-
an þeirra, Konig að nafni (Ed Harr-
is). Og á meðan bardaginn um Stal-
íngrad geisar sem harðast takast
þessir tveir menn á með riffla sína
að vopni.
Þannig er söguþráðurinn í stór-
myndinni Enemy at the Gates sem
frumsýnd er í þremur kvikmynda-
húsum í dag. Hún er eftir einn
fremsta og kunnasta leikstjóra
Frakka, Jean Jacques Annaud og
er með Jude Law, Ed Harris, Jos-
eph Fiennes, Rachel Weisz, Bob
Hoskins og Ron Perlman í aðalhlut-
verkum. Handritið gerir Alain God-
ard en myndin er byggð á bók
William Craig um umsátrið um
Stalíngrad og frægt einvígi sem
leyniskytturnar Zaitsev og Konig
háðu í bardaganum.
Það var fyrir sex árum sem Alain
Godard kom að máli við Annaud og
kynnti honum sögu Craigs. Þeir
ferðuðust til Stalíngrad sem nú
heitir Volgograd og þar fengu þeir
að kynna sér skjöl um stríðshetjuna
Zaitsev en riffillinn hans er geymd-
ur í minjasafni borgarinnar.
„Vassili var fullkomin hetja,“
segir leikstjórinn Annaud. „Hann
var notaður í áróðursskyni og sagt
var að hann hefði orðið ástfanginn
af konu í sinni herdeild. Andstæð-
ingur hans, leyniskyttan Konig, er
einnig nefndur í rússnesku áróðurs-
skjölunum en við fundum ekkert
um hann í Þýskalandi.“
Og áfram heldur Annaud: „Við
höfum tekið fyrir sögulegan atburð
og reynt að skilja hvernig fólk upp-
lifði hann. Við vitum um sumt af
þessu fólki í gegnum skjöl og
fréttamyndir en annað er opið fyrir
túlkanir.“
Þegar leikstjórinn var að leita að
leikurum til þess að fara með aðal-
hlutverkin í myndinni varð honum
hugsað til breska leikarans Jude
Laws, sem vakið hefur nokkra at-
hygli á undanförnum misserum.
„Ég sá Hinn hæfileikaríka Ripley í
grófklipptri útgáfu,“ segir Annaud,
„og mér fannst Jude mjög heillandi
þar. Það skín greind og kraftur úr
augum hans og það var ljóst frá
byrjun að hann skyldi fullkomlega
þennan mann sem hann átti að
leika, Vassili.“
„Ég hef aldrei leikið í svona
mynd áður,“ er haft eftir leikaran-
um. „Vassili var fábrotinn ungur
maður frá Úralfjöllunum sem gerð-
ist hermaður og varð kunnur fyrir
hittni sína með riffli. Og það sem
meira var: Hann var gerður að
hetju fólksins en maður veit ekki
lengur hvað er satt og hvað ekki.“
Law lagðist í heilmikla rannsókn-
arvinnu þegar hann bjó sig undir
hlutverkið og las sagnfræðirit og
var settur í þjálfun í meðferð á
þeirri gerð riffla sem brúkuð var í
Sovétríkjunum í síðari heimsstyrj-
öldinni.
Leikarar: Jude Law, Ed Harris, Joseph
Fiennes, Rachel Weisz, Bob Hoskins
og Ron Perlman.Leikstjóri: Jean
Jacques Annaud (Quest for Fire, The
Name of the Rose, The Bear, The
Lover).
Bardaginn um Stalíngrad
Laugarásbíó, Bíóborg og Borgarbíó Ak-
ureyri frumsýna Enemy at the Gates eft-
ir Jean Jacques Annaud með Jude Law í
aðalhlutverki.
Joseph Fiennes og Jude Law í
Enemy at the Gates eftir
franska leikstjórann Annaud.
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 39
Rússlandsferð í lok maí
Ferðaskrifstofan Garðaríki auglýsir Rússlandsferð til þriggja borga 29. maí - 15. júní 2001.
Flogið verður beint til Pétursborgar frá Kaupmannahöfn með SAS flugfélaginu, þar verður hin einstaka borg við Finnskaflóa "Feneyjar norðursins"
skoðuð hátt og lágt, m.a. Hermitage listasafn keisaranna og minjar um hið hrikalega 900 daga umsátur nasista um Leningrad. Snæddur verður
kvöldverður á hótel Astoríu þar sem Hitler ætlaði sér að fagna falli Leningrad árið 1941. Þaðan verður flogið (með Iljushin-86) alla leið til Sotsí við
Svartahaf sem er þekktasti sumarleyfisstaður Rússa, flokksbroddar hvíldu sig þar áður og Pútin forseti heldur mkið upp á staðinn. Á hótelinu
„Zhemcuzina“ fer fram kvikmyndahátíð (rússneksi „Óskarinn“) á sama tíma, þar að auki geta menn stundað sjó- og sólböð. Frá Svartahafi verður flogið
til Moskvu og seinustu dögunum varið þar. Þann 12. júní halda Rússar uppá nýjan þjóðhátíðardag. Í höfuðborg Rússaveldis er margt að skoða: Kreml,
Rauða torgið, grafhýsi Lenins, Novodevitsi (meyjar-) klaustrið, prúttmarkaðinn Izmailovo, auk þess sem leikhús- og tónleikamenning Rússa er með því
besta sem þekkist. Siglt verður eftir Moskvuánni og farið til klausturborgarinnar Sergeiev Posad sem áður hér Zagorsk.
Aðalfararstjóri, túlkur og skipuleggjandi á Íslandi er Haukur Hauksson, s: 554 0666, 848 44 29, sendid fyrirspurnir á moskva@torg.is og skoðið
www.austur.com
F.h. Garðaríkis efh./Turagenstvo „Tri kita“ Moskva. - Haukur Hauksson - Leyfi rússneska Samgönguráðuneytisins
Í ÞRETTÁN daga í október árið
1962 á meðan á Kúbudeilunni stóð
mátti minnstu muna að brytist út
kjarnorkustyrjöld sem að öllum lík-
indum hefði þýtt endalok mannkyns.
Deilur milli Bandaríkjanna og Sov-
étríkjanna um sovéska eldflauga-
palla á Kúbu mögnuðust á þessum
örlagaríku dögum með þeim hætti að
stefndi í styrjöld en á meðal þátttak-
enda í henni voru bræðurnir John F.
Kennedy, forseti Bandaríkjanna, og
Robert Kennedy, Robert McNam-
ara, Adlai Stevenson, Andrei Grom-
yko, Anatoly Dobrynin, Dean Ache-
son, Dean Rusk og Krutsjev, svo
nokkrir séu nefndir.
Bandaríska bíómyndin Þrettán
dagar eða Thirteen days sem frum-
sýnd er í dag í fjórum kvikmynda-
húsum, segir frá þessum mönnum og
því sem gerðist þá daga sem Kúbu-
deilan stóð yfir. Með aðalhlutverkin
fara Kevin Costner, sem leikur ráð-
gjafa Bandaríkjaforseta, Bruce
Greenwood, sem leikur John F.
Kennedy, Steven Culp, sem leikur
Robert bróður hans, Dylan Baker,
Michael Fairman, Frank Wood,
Kevin Conway og Tim Kelleher.
Leikstjóri er Roger Donaldson,
sem áður stýrði Kevin Costner í
spennutryllinum No Way Out, en
hann hreifst að sögn mjög að hand-
ritinu þegar hann las það og leit á
það sem klassískan spennutrylli sem
vildi svo til að byggðist á sannsögu-
legum atburðum. „Ég sá fyrir mér
Kúbudeiluna ekki aðeins sem sögu-
lega staðreynd heldur sem frábæra
sögu, frábæran pólitískan trylli þar
sem örlög heimsins voru lögð undir,“
er haft eftir leikstjóranum.
Kevin Costner leikur Kenny
O’Donnell, einn af ráðgjöfum forset-
ans og meðlim „írsku mafíunnar“
eins og hún var kölluð, en félagar
hennar voru nátengdir Kennedy. Í
myndinni er Kúbudeilunni lýst frá
sjónarhóli O’Donnells þessa. „Það er
hellingur af mönnum eins og
O’Donnell sem fólk á aldrei eftir að
vita hverjir voru,“ er haft eftir
Costner þegar hann lýsir persónu
sinni í myndinni. „Hans hlutverk var
aðeins að vera vinur og ráðgjafi John
F. Kennedys á þessum erfiðu tímum
og þannig varð hann vitni að sögu-
legum atburðum.“
Leikarinn hafði einnig sérstakan
áhuga á því persónulega sambandi
sem var á milli O’Donnells og Kenn-
edy-bræðranna. „Það sem mér
fannst mikilvægt var að sýna hvern-
ig þessir menn komu fram hverjir
við aðra,“ segir Costner. „Ég vildi
draga það fram í dagsljósið að fram-
koma þeirra var byggð á virðingu,
þeirri hugmynd að gefa aldrei neitt
eftir og halda aldrei neinu leyndu frá
hverjum öðrum.“
Og síðar segir leikarinn: „Myndin
fjallar um hrikalegan atburð í sög-
unni en hann snerist á endanum að-
eins um það sem fáeinir menn sögðu
hverjir við aðra. Allt byggðist á því
hvaða orð þeir notuðu og það mátti
hvergi gera mistök.“
Leikarar: Kevin Costner, Bruce
Greenwood, Steven Culp, Dylan Baker,
Michael Fairman, Frank Wood, Kevin
Conway og Tim Kelleher.
Leikstjóri: Roger Donaldson
(The Bounty, No Way Out, Marie,
Cocktail, The Getaway, Species,
Dante’s Peek).
Þrettán dagar í október
Bíóhöllin, Kringlubíó, Háskólabíó og
Nýja bíó Akureyri frumsýna Þrettán
daga eða Thirteen Days með Kevin
Costner sem fjallar um Kúbudeiluna.
Úr myndinni Þrettán dögum.