Morgunblaðið - 19.04.2001, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 19.04.2001, Qupperneq 59
SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 59 FAGNA ber allri opinberri umræðu um stöðu Íslands í sam- félagi þjóðanna. Ný- verið áttu sér stað nokkuð fjörugar um- ræður á Alþingi um gæði og framtíðar- horfur samningsins um Evrópska efna- hagssvæðið (EES). Miðflokkarnir (Sam- fylkingin og Fram- sókn) sáu teikn á lofti um að samningurinn sé þegar búinn að renna sitt blómaskeið og nauðsynlegt sé fyr- ir Íslendinga að halda vel á málum til að viðhalda þeim árangri sem náðst hefur með þátt- töku í efnahagssvæðinu. Til marks um það bentu þeir á nýlegt dæmi um að fulltrúum EFTA ríkjanna hafi verið sent formlegt bréf þar sem þeim var tjáð að þeirra væri ekki vænst á fundi nefndar á veg- um Evrópusambandsins (ESB), sem hefur með öryggismál skipa að gera. Flokkarnir, lengst til hægri og lengst til vinstri í núver- andi landslagi íslenskra stjórnmála (Vinstri grænir og Sjálfstæðis- flokkurinn), brugðust við með því að segja að umræðan sé óþarflega mæðuleg eða að öll raunhæf dæmi skorti til að réttlæta þessar álykt- anir. Þeim þykir e.t.v. ekkert merkilegt þótt Íslendingar fái ekki að eiga fulltrúa í einni og einni nefnd hjá Evrópusambandinu, jafnvel þótt verið sé að ráða til lykta löggjöf sem okkur ber að fara eftir og varðar höfuðatvinnu- veg þjóðarinnar. Athyglisvert er þó að allir virðast sammála um að samningurinn hafi virkað eins og vítamínssprauta á íslenskt atvinnu- og efnahagslíf og standa beri vörð um þann árangur. Þó eru ekki liðin nema rétt 6 ár frá gildistöku hans. Er EES samningurinn góður samningur eða hefur eitthvað það gerst sem gefur tilefni til vanga- veltna um hið gagnstæða? Nú á tímum síaukinnar alþjóðavæðingar er afar mikilvægt að við höldum vöku okkar og gerum okkur grein fyrir stöðu okkar gagnvart öðrum þjóðum í nútíð og framtíð og set- um markvissa stefnu á hvaða tæki- færi við viljum tryggja komandi kynslóðum. Hér verður ekki leitast við að svara því hverjir kostir og gallar gætu fylgt aðild Íslands að Evrópusambandinu, aðeins reynt að varpa ljósi á hvað hefur breyst í um- hverfi EESsamnings- ins og nokkur atriði varðandi réttinn til að eiga fulltrúa á nefnd- arfundum hjá ESB. Þó að samningurinn sé að forminu til óbreyttur má segja að hann sé að mörgu leyti annar samningur en til var stofnað. ESB stoðin hefur gildnað og EFTA stoðin hefur að sama skapi rýrnað. Þá hef- ur ESB útvíkkað sam- starf sitt svo mikið að hlutdeild EFTA ríkjanna hefur bæði minnkað og orðið óskýrara með tímanum. Tilurð EES EES samningurinn var undirrit- aður hinn 1. maí 1992, eftir nær 3 ára samningaviðræður milli sjö EFTA ríkja og tólf EB ríkja (nú ESB). Hann gekk í gildi tæpum tveimur árum síðar eða 1. janúar 1994. EFTA ríkin notuðu tímann til að aðlaga löggjöf sína að löggjöf EB og fjögur þeirra áttu á sama tíma í aðildarviðræðum við ESB. Sviss féll úr lestinni þegar aðild að EES var felld á þjóðaratkvæða- greiðslu. Þá voru Austurríki, Finn- land og Svíþjóð aðeins virkir þátt- takendur í EES í eitt ár, því þessi ríki gengu formlega inn í ESB, 1. janúar 1995 en Noregur stóð eftir í EES þegar aðildarsamningur hans var felldur í þjóðaratkvæða- greiðslu í annað sinn. EFTA stoð Evrópska efnahagssvæðisins sam- anstóð því aðeins af Íslandi og Noregi en fljótlega bættist fursta- dæmið Liechtenstein í hópinn. Alpalöndin tvö voru sennilega meginaðdráttarafl EB til að opna innri markað sinn fyrir EFTA ríkjunum. Sviss og Austurríki eru auðug ríki í hjarta Evrópu og verulegur vegartálmi í landfræði- legum skilningi á milli Norður- og Suður-Evrópu. Því voru ríkir hags- munir í húfi fyrir ESB að stofna til góðra pólitískra sambanda við þau. Ætla má að það hafi verið þessi sterka staða Sviss sem réttlætti gerð tvíhliða samninga í augum ESB eftir að það hafnaði aðild að EES. Því verður ekki litið fram hjá því að ESB hefur engan veginn sömu stjórnmálalegu og viðskipta- legu hagsmuni af EES samningn- um og þegar hann var gerður. Markmið samningsins Meginmarkmið EES-samnings- ins var að skapa einsleitan innri markað á öllu EES-svæðinu. Innri markaðurinn hefur verið kenndur við hið svonefnda fjórfrelsi, þ.e. frelsi til frjáls flutnings á vöru, þjónustu, fólki (til náms og vinnu) og fjármagni. Þá var ákveðin sam- vinna á sviði samkeppnismála, félagsmála, menningarmála og þátttaka í svonefndum áætlunum (aðgangur að styrkjum vegna rannsókna- og þróunar, mennta- mála o.fl.). Á þeim tíma sem samn- ingaviðræður um EES stóðu yfir var innri markaðurinn lítt þróaður, nema fyrir vöruviðskipti, en að öðru leyti enn hugsjón, markmið sem stefnt var að. Evrópubanda- lagið (sem þá var kallað) sá fyrir sér að geta stækkað innri mark- aðinn verulega með því að bæta sjö vel stæðum EFTA löndum við hann. Allar götur síðan hefur verið unnið að því að betrumbæta innri markaðinn, sem hefur mætt alls- kyns hindrunum á vegi sínum. Úr- lausnir hafa í ríkum mæli falist í uppbyggingu og útvíkkun á sam- starfinu (t.d. aukin áhersla á borg- araleg réttindi), sem ekki fellur undir innri markaðinn í skilningi EES samningsins. Breytt staða Skammt er stórra högga á milli hjá Evrópusambandinu. Síðan EES samningurinn komst á hafa bæði Maastricht og Amsterdam sáttmálarnir komið til fram- kvæmda. Það hefur haft í för með sér breytt valdahlutföll á milli stofnana ESB, að myntbandalagið er komið á, sett hefur verið á fót svokallað svæði friðar, öryggis og réttlætis, sem sumir spá að verði jafn mikilvægt og innri markaður- inn (þar falla undir m.a. Schengen og samstarf á sviði löggæslu og varnarmála) og síðast en ekki síst á ESB í aðildarviðræðum við 12 ríki Mið- og Austur-Evrópu. Nýj- um aðildarríkjum ber skylda til að sækja um aðild að Evrópska efna- hagssvæðinu og EFTA/EES ríkj- unum ber skylda til að veita þeim aðild, án þess þó að hafa haft tæki- færi til að hafa áhrif á gerð aðild- arsamninga þeirra. Samstarf EES-ríkjanna og Evrópusambandsins Það er því samhengi á milli þess hvernig ESB er að þróast og stækka og þess hve staða EFTA ríkjanna innan EES er smásaman að veikjast. Framkvæmdastjórn ESB er í öllum tilvikum gagnaðili EFTA ríkjanna en þau eiga engan sjálfstæðan rétt til samráðs eða upplýsinga gagnvart öðrum stofn- unum sambandsins. Að vísu er al- gengt að framkvæmdastjórnin setji ýmsar tæknilegar reglugerðir um vöruviðskipti og samningurinn tryggir rétt fulltrúa EFTAríkj- anna til að vera boðaðir til skrafs og ráðagerða um samningu þeirra. Aftur á móti er öllum mikilvæg- ustu málefnunum ráðið til lykta með sameiginlegri lagasetningu ráðherraráðsins og þingsins. Evr- ópuþingið fékk sín pólitísku völd fyrst með Maastricht og enn frek- ar með Amsterdam sáttmálanum. Valdahlutföllin hafa því breyst á milli stofnana ESB frá því EES samningurinn komst á og stundum dugar skammt að hafa aðeins að- gang að undirbúningsstigi nýrrar löggjafar í gegnum embættismenn framkvæmdastjórnarinnar. Þá hefur framkvæmdastjórnin að undanförnu komið þeim skila- boðum á framfæri við EFTA ríkin að EES samstarfið verði hér eftir rekið með lágmarksfyrirhöfn fyrir ESB. Það er því komið undir vel- vilja og þekkingu ótalmargra starfsmanna framkvæmdastjórnar- innar á EES samningum hvort EFTA ríkin fá fundarboð um sér- fræðingafundi um tiltekin málefni. Þýðing þess að mæta á fundi felst einna helst í auknum skilningi og þekkingu á þeim málefnum sem eru til umfjöllunar hverju sinni auk þess sem nærvera EFTA fulltrúanna minnir aðildarríkin á að þrjú lönd bætast í hóp þeirra sem viðkomandi löggjöf kemur til með að gilda um. Það kemur fyrir að embættismenn frá eitthverju stóru ríkjanna vefengja rétt EFTA fulltrúanna til að vera með. Á það einkum við um mikilvægar nefndir sem hafa stefnumótunarhlutverk. Það verður til dæmis að virða Þjóðverjum til vorkunnar að þeir eru með eina sendinefnd á fundi til að gæta hagsmuna 80 milljóna manna þegar Norðurlandaþjóðirn- ar eru með 5 sendinefndir til að tala máli 25 milljóna. Hvaða rétt hafa EFTA/EES- ríkin við ákvarðanatöku? EES samningurinn veitir engan rétt til upplýsinga eða samráðs eftir að frumvarp hefur verið lagt fyrir hina eiginlegu löggjafa, ráð- herraráðið og þingið. Frumvörp að tilskipunum taka miklum breyting- um í meðförum þeirra og oft líða nokkur ár frá því framkvæmda- stjórnin hefur lokið starfi sínu þar til ný gerð er loks samþykkt. Ef EFTA ríkin frétta af breytingu á tilteknu frumvarpi og ákveða að koma á framfæri athugasemdum sínum tekur við nokkuð langur fer- ill. EFTA ríkjunum ber að tala einni röddu gagnvart ESB og þurfa þau því að miðla málum sín í milli áður en þau geta tjáð sig um hagsmuni sína. Það tekur bæði langan tíma og málamiðlunin getur tekið broddinn úr hagsmunabar- áttunni. Þá tekur við viðleitni til að fá athygli aðildarríkja ESB á mál- efnum EFTA. Á þessu stigi hafa EFTA ríkin enga fulltrúa á sam- ráðsfundum og fulltrúar aðildar- ríkjanna berjast fyrst og fremst fyrir sínum sjónarmiðum. Það er því aðeins þegar hagsmunir EFTA/EESríkja og einhvers aðild- arríkis fara saman sem búast má við stuðningi. Aðstaða EFTA-þegna í aðildarríkjum ESB Oft gætir þekkingarskorts innan aðildarríkja ESB á þeim rétti sem EES samningurinn veitir, t.d. til að stofna fyrirtæki eða fá dval- arleyfi vegna náms eða atvinnuleit- ar. Því getur verið fyrirhafnarsamt og dýrt að sýna fram á rétt sinn áður en hann verður hagnýttur. Gengisfelling EES-samningsins! Þegar til kastanna kemur er Evrópusambandið samsafn af ótölulegum aragrúa einstaklinga, bæði í opinberu starfi og í atvinnu- lífi, í 15 löndum, bráðum í 27 lönd- um, sem allir hafa persónuleg við- horf og mismikla þekkingu á einstökum samningum sem ESB hefur gert við önnur ríki. Þróunin hefur orðið sú að ekki eru lengur skörp skil milli innri markaðs lög- gjafarinnar, sem heyrir undir EES samninginn, og annarra viðfangs- efna ESB sem veikir mjög stöðu EFTA/EES ríkjanna til að þróa samninginn. Þá má gera ráð fyrir að halli enn frekar undir fæti með inngöngu fleiri ríkja í ESB. Af þessum ástæðum virðist tilhneig- ingin í æ ríkara mæli hafa orðið sú að halda EFTA fulltrúum utan við stefnumótunina. Af sömu ástæðum má draga þá ályktun að ekki sé pólitískur jarðvegur til að leita eft- ir viðræðum um breytingar á EES-samningnum, sem kalla á samþykki allra þjóðþinga aðildar- ríkja ESB. Þetta kallar vissulega á viðbrögð íslenskra stjórnvalda. HVERNIG VERÐUR GÓÐUR SAMNINGUR VONDUR SAMNINGUR? Unnur Gunnarsdóttir Þróunin hefur orðið sú, segir Unnur Gunn- arsdóttir, að ekki eru lengur skörp skil milli innri markaðs löggjaf- arinnar, sem heyrir undir EES-samninginn, og annarra viðfangsefna ESB sem veikir mjög stöðu EFTA/EES- ríkjanna til að þróa samninginn. Höfundur er sjálfstætt starfandi lögmaður í Reykjavík. STUTT VERSLUNIN Splæs var opnuð fyrir stuttu á efri hæð Flutningaþjónust- unnar á Hellu við Dynskála 22. Eig- endur hennar eru hjónin Agnes Ólöf Thorarensen og Þórhallur Svavars- son og Jóhanna Pálsdóttir og Viðar Ástvaldsson öll búsett á Hellu. Í nýju versluninni fæst fatnaður á alla fjölskylduna í ýmsum þekktum vörumerkjum og skór af Nike-, Skechers- og X-18-gerðum, margs konar hárskraut og fylgihlutir fyrir allan aldur. Í versluninni fæst einnig mikið úrval af bókum en Agnes Ólöf og Þórhallur ráku áður Bókabúð Svavars á Hellu en stofnandi henn- ar, Svavar Kristinsson, lést á síðasta ári. Að sögn eigendanna var ákveðið að fara út í þennan rekstur til að nýta betur húsnæði Flutningaþjón- ustunnar auk þess sem engin tísku- verslun hefur verið rekin á Hellu um nokkurt skeið. Að sögn þeirra félag- anna hafa viðtökur verið afar já- kvæðar og lofa góðu um framhaldið. Verslunin Splæs á Hellu er opin virka daga kl. 13–18. Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir Tísku- og bókaverslunin Splæs hefur verið opnuð á Hellu, en innan- búðar eru Jóhanna Pálsdóttir og Agnes Ólöf Thorarensen. Ný verslun á Hellu Hella. Morgunblaðið. DR. PATRICIA L. Rogers, Ful- brightkennari við Kennaraháskóla Íslands, Dr. Jack Reynolds, deild- arforseti kennaradeildar Bemidji State University og Patricia Reyn- olds, kennari við Horace May Elementary School, halda málstofu á vegum Rannsóknarstofnunar KHÍ næstkomandi föstudag, 20. apríl, kl. 15.15. Málstofan verður haldin í stofu M 301 í aðalbyggingu Kennaraháskóla Íslands við Stakkahlíð. Málstofan fer fram á ensku og er öllum opin. „Dr. Jack Reynolds, Patricia Reynolds og Dr. Patricia L. Rogers munu gera grein fyrir þróun kenn- aramenntunar í Bandaríkjunum. Sérstaklega verður rætt um þróun á þessu sviði í Minnesota en þar hafa meiri breytingar átt sér stað í kennaramenntun á undanförnum árum en í flestum öðrum fylkjum Bandaríkjanna. Fjallað verður um hvernig grunn- og framhaldsnám í kennaramenntastofnunum er upp- byggt og hvaða hugmyndafræði liggi þar til grundvallar. Rætt verð- ur um tengsl fræða við starf á mis- munandi skólastigum, hvernig námsbrautir eru þróaðar og hvern- ig notkun upplýsingatækni hefur haft áhrif á nám og kennslu. Eftir kynninguna verður góður tími gefinn fyrir spurningar og um- ræður,“ segir í fréttatilkynningu frá Kennaraháskóla Íslands. Málstofa um kenn- aramenntun í Minnesota
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.